Skutull - 28.01.1949, Blaðsíða 1
XXVII. árg.
Isafjörður, 28. janúar 1949.
4. tölubað.
SKUTULL
VIKUBLAÐ
Utgcfandi:
Alþýðuflokkurinn á Isafirði.
Innheimtumaður:
Haraldur Jónsson
Þvergötu 3, Isafirði.
Sunnukörinn ms. Gunnvör strandar
15 ára.
Frækileg björgun.
Sunnukórinn var stofnaður þann
25. janúar 1934 á sólardegi Isfirð-
inga. Ber kórinn nafn það með
réttu því ótal eru þær stundir, er
Sunnukórinn hefur komið Isfirðing
um í sólskinsskap með söngskemmt
unum sínum.
Aðaltildrög að stofnun Sunnu-
kórsins voru þau að sóknarprest-
ur, söngstjóri og safnaðarstjórn Isa-
fjarðar töldu mjög æskilegt, að á-
kveðin samtök áhugamanna styddu
söngstjórann í því að efla kirkju-
sönginn og sönglífið í bænum. Að
Ioknum undirbúningsfundum var fé
lagið stofnað, gefið nafn og því sett
lög, sem enn eru í gildi. Segir þar
að tilgangur Sunnukórsins sé:
Að sjá um og annast söng í
Isafjarðarkirkju við venjulegar
guðsþjónustur.
Að efla sönglíf i bænum, sér-
staklega með flutningi kirkju-
legra tónverka.
Sunnukórinn stofnuðu 28 konur
og menn.
Fyrsti formaður kórsins var kos-
inn þáverandi sóknarprestur, Sig-
urgeir Sigurðsson, og var hann for-
maður kórsins þar lil í ársbyrjun
1939 að hann flutti til Reykjavíkur
og tók við biskupsembættinu. Auk
séra Sigurgeirs voru í fyrstu stjórn
kórsins: Halldóra Halldórsdóttir,
Sigrún Magnúsdóttir, María Jóns-
dóttir og Sigríður Jónsdóttir.
Söngstjóri var ráðinn Jónas Tóm-
asson, tónskáld, sem verið hefur
orgelleikari og söngstjóri i Isafjarð-
arkirkju síðan 1910, og farist það
með ágætum úr hendi. Hefur hann
verið söngstjóri kórsins frá slofnun
o'g lagt honum mikið og óeigin-
gjarnt starf, með því einu að laun-
um að sjá góðan árangur starfa
sinna.
Auk kennslu söngstjóra hafa kór-
félagar einnig notið kennslu hjá
Sigurði Birkis, söngmálastjóra, frú
Jóhönnu Johnsen og séra Marinó
Kristinssyni.
Áður en Sunnukórinn var stófn-
aður hafði, fyrir forgöngu Sigur-
geirs Sigurðssonar, núverandi þisk-
ups og Jónasar Tómassonar, söng-
stjóra, verið haldið uppi söngstarf-
semi á Isafirði. Árið 1924 kom Sig-
urður Birkis hingað til Isafjarðar
og þjálfaði kirkjukórinn liér og var
það fyrsti kóririn, sem hann þjálf-
aði sem heildarkór.
Rúmum tuttugu árum síðar var
Sunnukórinn aðnjótandi þjálfunar
Sigurðar Birkis, er kórinn undirbjó
söngför til Reykjavíkur.
Síðla sumars 1945 fór Sunnukór-
inn söngför til Suðurlands. 1
þeirri för söng kórinn í Reykjavík,
Hafnarfirði, Vífilstöðum og Sel-
fossi.
Viðtökurnar syðra voru mjög
góðar og hlaut kórinn og ekki síður
söngstjórinn verðskuldað lof fyrir
frammistöðuna.
„Það er auösætt af þeim glæsi-
leik, sem var yfir þessum tónleik-
um Sunnukórsins, að hann hefur
ekki abeins unnib merkilegt starf
í tónlistarlífi Isfirbinga, heldur á
landsmælikvarba," sagði eitt
Reykjavíkurblaðanna og umsagnir
hinna voru á sömu lund.
Hér vestan lands hefur Sunnu-
kórinn sungið á sex stöðum, Bol-
ungavík, Súðavík, Reykjanesi, Flat-
eyri, Núpi og Þingeyri, auk þess
sem hann hefur sungið hér á Isa-
firði.
Fyrstu söngskemmtun sína hélt
kórinn á 1. árs afmæli sínu 1935
og síðan hefur hann tekið til með-
ferðar fjölda tónverka eftir ýmsa
hina færustu erlenda og innlenda
tónlagasmiði og flutt árlega nokkra
samsöngva og hljómleika og munu
þeir nú vera orðnir nálægt 60 að
tðlu.
Kórinn hefur tekið upp þá ný-
breytni að helga ákveðnu tónskáldi
heila hljómleika. Flutti hann þá
fyrst lög Jóns Laxdal, tónskálds, er
hér átti heima um langt árabil
og starfaði mikið að söngmálum.
Hefur Sunnukórinn haldið Schu-
berts-kvöld og sýndi þá fyrsta þátt
söngleiksins , Meyjarskemman.
Stjórnaði frú Jóhanna Johnsen
leiknum og lék eitt aðalhlutverkið.
Síðan hefur kórinn haldið hljóm-
leika þar sem eingöngu voru flutt
lög eftir Sigfús Einarsson og Jónas
Tómasson.
Árið 1936 var Sunnukórinn með-
al stofnenda í Sambandi blandaðra
kóra og á síðastliðnu ári sá hann
um söngmót vestfirzku kirkjukór-
anna er haldið var hér á Isafirði,
og öllum er í fersku minni engu
síður en söngleikurinn „Bláa
kápan" er Sunnukórinn flutti hér i
haust undir stjórn Sigrúnar Magnús
dóttur, leikkonu.
Sunnukórinn æfir nú af kappi
og ráðgerir söngför til Norður-
landsins snemma næsta sumar, ef
mænuveiki eða önnur óviðráðán-
leg atvik tefja ekki þá för. I kórn-
um eru nú yfir 40 söngvarar og
stjórn hans skipa: Ólafur Magnús-
son, forst., formaður, séra Sigurð-
ur Kristjánsson, ritari, Sigurður
Jónsson, prentari, gjaldkeri og
meðstjórnendur frúrnar Jóhanna
Johnsen og Margrét Finnbjörns-
dóttir.
Á undanförnum 15 árum hefur
S. 1. föstudag heyrði loftskeyta-
stöðin hér neyðarkall frá ni.s.
Gunnvöru RE 81, Kvað skipstjór-
inn skipið vera strandað við Kögur,
og þurfa skjóta hjálp. Loftskeyta-
stöðin sendi út aðstoðarbeiðni til
skipa bæði á mæltu máli og morsi
og á íslenzku og ensku. Þetta var
um kl. 18. Brátt náðist samband við
b.v. Egil Skallagrímsson, sem var
staddur út af Isafjarðardjúpi, og
hélt hann þegar áleiðis til strand-
staðarins. Ennfremur náðist sam-
band við brezká togarann Gregory,
seift mun hafa verið staddur 7—10
sjómílur frá staðnum, og lagði
hann einnig af stað til hjálpar hinu
nauðstadda skipi. B.v. Hvalfell fór
ennfremur á staðinn og fleiri skip
voru á leiðinni þangað, þar á með-
al m.b. Finnbjörn, sem staddur var
á Dýrafirði, þegar fréttist um
strandið og m.b. Hafdís, eign h. f.
Njarðar, bar þar einnig að. Meðan
skipin voru á leið til strandstaðar-
ins hafði stöðin hér stöðugt sam-
band við þau og við hið strand-
aða skip. Dimmt var i veðri
og þungur sjór og aðstaða öll til
björgunar af sjó talin mjög erfið.
B.v. Agli Skallagrímssyni tókst að
finna m.s. Gunnvöru með miðunar-
tækjum sínum og reyndist hún
hafa strandað á 66° 22' n. 1. og
22° 57' v.br. Á tímabili var talið
að ekki mundi þýða fyrir önnur
skip eu þau, sem hefðu radar, að
fara nálægt himi strandaða skipi,
en eitthvað mun hafa rofað til, og
komu brezki togarinn og b. v. Egill
Skallagrímsson fyrstir á strandstað-
inn. Mun það hafa verið um kl. 20.
Taldi þá skipstjórinn á Gunnvöru
að óhætt mundi að koma á björg-
unarbáti upp að Gunnvöru, og
kvað sig hafa misst lífbát skipsins
strax eftir strandið. Varð það úr,
að lífbátur var sendur frá b.v. Agli
Skallagrímssyni, undir stjórn stýri-
manns, útbúinn með línubyssu o.fl.
tækjum. Báturinn lagði frá Agli
laust fyrir kl. 21 og eftir tæpan hálf
tíma tilkynnti skipstjórinn á Gunn-
'VA<»iir»^»mmM*œjmwusxmmmJ*m*mmKammma^^mm*mtm«*+
Sunnukórinn fært Isfirðingum
margar sólskinsstundir en þó, því
miður, hafa bæjarbúar sýnt honum
nokkuð tómlæti og ekki ætíð sótt
söngskemmtanir hans svo vel sem
skyldi. Söngstjórinn og söngvarar
allir eiga miklar þakkir skilið fyrir
það óeigingjarna menningarstarf,
sem þeir hafa unnið í tómstundum
sínum og mætti það vera Isfirðing-
um einlægt metnaðarmál að auð-
velda þeim störfin og mun Sunnu-
kórinn þá enn lengi koma bæjar-
búum í sólskinsskap. E. J.
vör, að báturinn væri kominn að
hlið hennar, skipsmenn væru að
að fara í hann, og hann væri að
yfirgefa talstöðina. Um kl. 22 var
svo björguninni að fullu lokið og
áhöfn Gunnvarar, 7 menn, komnir
um borð í Egil heilu og höldnu. Á
leið bátsins milli skipanna aðstoð-
uðu b.v. Hvalfell og m.b. Hafdís
með því að lýsa upp leiðina með
ljóskösturum sínum. M.b. Hafdís
var um kyrrt á staðnum fram und-
ir morgun næsta dags, og segja
skipverjar á henni, að skömmu eft-
ir að björgunin hafði tekizt, hafi
aðstaða öll versnað svo að björgu'n
af sjó hefði verið óhugsandi. Þyk-
ir skipshöfn b.v. Egils Skalla-
grímssonar hafa unnið þarna mik-
ið afrek. Skipstjóri Egils er Rol-
beinn Sigurðsson, en skipstjóri m.
s. Gunnvarar í þessari ferð var Ól-
afur Stefánsson.
Vegna þess, hversu björgun af
sjó var talin tvísýn um tíma, hafði
karladeild Slysavarnafélagsins hér,
viðbúnað til að reyna björgun úr
landi. Var m.b. Gunnbjörn fengin
til þess að fara héðan með sveit
sjálfboðaliða og björgunartæki.
Atti sveit þessi að ganga á land í
Fljótavík og freista að komast með
björgunartækin á strandstaðinn.
Strandstaðurinn var fyrst talinn
vera austan til við Kögur en reynd-
ist vera vestan til við hann, eða
inni á sjálfri Fljótavík.
M.s. Gunnvör hafði ætlað að
stunda vetrarsildveiðar syðra, en
var nú á leið til Siglufjarðar. Hún
hafði innanborðs 2 nýjar vetrarsíld
arnætur, að verðmæti um 130 þús.
kr., og krossvið fyrir um 10 þús. kr.
Þessum verðmætum hefur verið
reynt að bjarga úr skipinu, en ekki
tekizt vegna óhagstæðrar veðráttu.
Ólíklegt er að skipinu verði bjarg-
að.
Nýir vitar.
Um síðustu helgi tilkynnti vita-
málastjórnin að kveikt hefði verið
á yitanum á Langanesi í Arnar-
firði.
Undanfarið hefur verið unnið að
því að koma ljósatækjura í Langa-
nesvitann, og eftir því sem blaðið
hefur frétt verða næst sett ljóstæki
í vitahúsið á Sléttu í Jökulfjörðum
og standa vonir til að á honum
verði kveikt einhvern næstu daga.
Að báðum þessum vitum mun
mikil siglingabót hér vestra, en vita
húsið i Æðey vantar enn ljóstækin
og er þess að vænta að fljótlega
takizt að fá ljósatæki einnig í þann
vita.