Skutull

Árgangur

Skutull - 28.01.1949, Síða 4

Skutull - 28.01.1949, Síða 4
4 S K U T U L L Kaldar nýjárskveðjur. Aflaleysi og óáran í íslenzkum sjávarútvegsmálum á síðasta ári og árum hafa komið hart við sjó- mannastéttina eigi síður en útgerð- ina. Það er ekki einasta að sjómenn irnir hafi haft mjög litlar tekjur, heldur hefur gengið afar treglega hjá þeim að fá hlut sinn og kaup greitt hjá útgerðarfyrirtækjum. Þetta hefur þó verið alveg sérstak- lega tilfinnanlegt í sambandi við uppgjör síðustu sildarvertíðar, sem mislánaðist svo herfilega eins og kunnugt er. Það var eigi fyrr en nú eftir áramótin, að útgerðarfyrir- tækin fóru almennt að geta greitt sjómönnum síldarhlutinn. Mun þá eflaust margur hafa verið orðinn langþreyttur á biðinni, a.m.k. ýms- ir fjölskyldufeður, sem lítið hafa borið úr býtum allt s.l. haust. Allir munu því hafa tekið fegins hendi ávísunum útgerðarfyrirtækjanna á bankaútibúin hér í bænum. En Adam var ekki lengi í Paradís, því að í stað þess að fá nokkrar krónur fyrir ávísunina í bankanum handa þurfandi heimilum, var þeim rétt- ur útsvarsseðillinn sem tákn þess, að nú hefðu þeir, að þessu sinni, greitt sitt gjald til hinna landfrægu „fjármálamanna" bæjarstjórnar- meirihlutans. Nú skal að sjálfsögðu viðurkennt, l---------------------------------- að slík innheimta sem þessi á opin- berum gjöldum er auðvitað heimil. En aftur á móti má benda sjómönn- um á þá staðreynd, að spákaup- mennska og fjármálaglæfrar núver- andi meirihluta birtast meðal ann- ars í iítsvarsseSlum, sem gleypa alla „hýruna," þegar lítiö aflast. Á þessum kuldalegu nýjárskveðj- urn geta nú sjómenn séð, hversu útsvarsuppliæð síðasta árs var fjarri því að vera áætluð með nokkru tilliti til gjaldþols bæjarbúa. En um þær mundir sagði Hannes Halldórsson, að tekjur verkamanna og sjómanna færu sifellt vaxandi og því væri sjálfsagt að hækka út- svörin. Og Ásberg 1., nú 2. ritstjóri „Vesturlands án nafnsbótar,“ sagði við sama tækifæri, að nú gætu barnamennirnir greitt há útsvör, því að nú fengju þeir svo iniklar hætur frá Almannatryggingum. Þessi og þvilík ummæli ábyrgð- arlausra manna er biturt háð í garð fátækra alþýðumanna meðan út- svarsseðillinn er fjarri, en verður svíðandi svipuhögg, beint í and- litið, ]>egar hann birtist á sama hátt og 'nú eftir áramótin, þegar ísfirzku sjómennirnir voru Iátnir sækja liann í bankann. Sjómannafélagi. ■ - Þakkarávarp. Þakka innilega hiria stórhöfðinglegu peningagjöf, sem formaður Vélstjórafélags Isaf jarðar færði mér, frá félög- um þess. Megi hagur þeirra og félagsins ávallt hlómgast. Sigurður Pétursson. ----------------------------------------------------------> Greiðsluörðugleik ar bæjarsjóðs. / !r. tbl. Veslurlands er rétti- lega frá því skýrt aS miklir greiSsluörSugleikar séu hjá bæj- arsjóSi. Sagt er aS um síSustu áramót hafi vcriS óinnheimt af útsvörum 600 þús. kr. VróSlegt væri aS vita lwort bæjarsjóSur hefSi ekki fengiS reksturslán cr greiSast ættu meS útsvörum um leiS og þau yrSu innheimt, og hvort eitthvaS mundi ógreitt af slikum lánum. Væri svo mun þaS sem fyrst innheimtist vænt- anlega ganga til greiSslu eftir- stöSva, en innheimt útsvör þá fyrst bæta úr öSrum greiSslu- örSugleikum bæjarsjóSs er þessi reksturslán væru aS fullu greidd. önnur er sú skýring Vestur- lands á greiSsluörSugleikum bæjarsjóSs, aS ríkissjóSur eigi ógreitt framlag vegna mennta- bygginganna viS Austurveg er nemi 700 þús. kr. Ekki vill Skut- ull neitt um þaS fullyrSa áS þessi tala sé rétt, en hvort held- ur er, mun ekki hafa gleymst aS gela þess aS fengin hafa veriS bráSabirgSalán út á væntanleg- an ríkisslyrk til bygginganna, og um leiS og ríkissjóSsstyrkirnir greiSast gangi þeir til greiSslu þessara bráSabirgSalána? Hið rétta andlit. „Einræðis og ofbeldisstefna komm únista á hér raunverulega aðeins örfáa fylgjendur, enda þótt all- margir kjósendur hafi undanfarin ár greitt þeim atkvæði við kosn- ingar. En það sprettur af því að kominúnistum hefur tekizt að villa á sér heimildir, telja fólki trú um að þeir væru sannir lýðræðissinn- ar. En því fólki fer óðum fækkandi sem á það leggur trúnað. Klór íslepzkra kommúnista yfir ofbeld- isverk flokksbræðra sinna í Rúss- landi og öðrum löndum austan við járntjaldið, hefur sýnt framan í hið rétta andlil þeirra.“ Þannig lýsir blað ísfirzkra í- haldsmanna, Vesturland, brjóst- milkingum þeirra, kommúnistum, í leiðara blaðsins 20. jan. 1949. Ótrúlegt er að þeir breiði ekki fyrir „hið rétta andlit“ kommún- istanna, og leggi þá ekki aftur á hrjóst sér. Hús til sölu á góðum stað í Hnífsdal. Þrjú herberi og eldhús með kjallara. Allt í góðu standi. Upplýsingar gefur: Hannes Bergmann. TIL SÖLU stór tauskápur og „toa!et“ kommóða. Upplýsingar á Austurveg 12, (niðri). miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiu 1 ískassar. | Viljum selja nokkra stóra ískassa. | Samvinnufélag Isfirðinga. | =11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111; Getum af sérstökum ástæðum selt ca. 3 tonn af gosuU, einangrunarefni. Bökunarfélag ísflrðinga. HVERGI er betra að verzla en í KAUPFÉLA6INU. Orðsending | frá | Samvinnutryggingum s Á s. 1. ári fengu um 1000 bifreiðar, sem ■ tryggðar eru hjá oss, lækkuð iðgjöld, þar ■ sem þær höfðu ekki orsakað neina skaða- 5 bótaskyldu í eitt ár. Lækkunin nam um 40 000 krónum. Þessi upphæð er ekki aðeins verðlaun til ■ þeirra bifreiðastjóra, sem ekki hafa valdið ■ neinu tjóni, heldur einnig ávöxtur af sam- £ tökum, sem stuðla að bættum hag fólltsins. Samvinnutryggingar eru tryggingar- ■ stofnun, sem tryggendurnir eiga sjálfir ■ og hafa stofnað með sér til þess að efla £ hag sinn og öryggi. Samvinnutryggingarf j

x

Skutull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.