Skutull - 11.02.1949, Síða 3
S K U T U L L
3
landsins og hafa úrslit orðið þessi.
Kaupgjaldssamningar í Bolungarvík
Svo seni frá1 var sagt í síðasta
blaði hefur verkalýðsfélagið í Bol-
ungarvík náð samkoinulagi við at-
vinnurekendur þar um breytingar
á gildandi kaupgjalds- og kjara-
samningm.
Breytingar eru þessar:
Skipavinna, almenn hækki í kr.
2,90 grunnkaup (var kr. 2,75).
Skipavinna við kol, salt og sement
verði kr. 3,25 í grunnkaup.
Kauptrygging sjómanna á vetrar-
síldveiðum og reknetum verði kr.
578,00 í grunnk. á mánuði.
Fyrsti maí skal vera frídagur og
þá ekki róið.
Orlof sé greitt af kauptryggingu
sé hún hærri en hlutur.
Samningar voru framlengdir til
1. okt. n. Jc., þó með þeim fyrirvara
að verði á þeim tíma kaupgjalds-
breyting á Isafirði, gildi hún jafn-
framt í Bolungarvík.
Vinnustöövun.
Trúnaðarráðsfundur Sjómanna-
félags Isfirðinga samþykkti ein-
róma 8. febr. s.l. að vinnustöðvun
skuli hefjast hjá Isfirðing. h.f.,
þegar togarinn Isborg hefur lokið
yfirstandandi veiðiför, ef samning-
ar hafa þá eigi náðst um kaup og
kjör togarasjómanna á íslenzka tog-
araflotanuin.
Nýlokið er stjórnarkjöri í nokkr-
um fjölmennustu verkalýðsfélögum
Tíminn birti eftirfarandi greinar
stúf 26. f.in.
„Þjöðviljinn hefur orðið mjög
reiður Sigurði frá Vigur fyrir grein
lians í Mbl., er sagt var frá hér í
röddunum í gær. Forustugrein Þjóð
viljans í gær er lielguð Sigurði og
segir þar m.a., að Sigurði liafi ver-
ið gerður ritstjóri Mbl. við burtför
Jóns Kjartanssonar, en þó bafi
liann ekki fengið að liafa nafn sitt
á blaðinu.
Síðan segir:
„Hins vegar snart þetta fyrir-
komulag illilega liégómleika Sigurð-
ar, það var lítið gaman að skrifa
greinar undir nafni Valtýs Stefáns-
sonar. Sigurður sótti það því fast
að fá nafn sitt á prent, og fyrir
nokkrum mánuðum var honum
leyft að birta undir nafni viðtal
við smáfugl, og félck fyrir það lof
í Mánudagsblaðinu. Og loks í fyrra-
dag er hann sleginn til riddara með
því að hann fær að skrifa land-
ráðagrein — undir nafni.— á land-
ráðasíðu Morgunblaðsins, og er
þannig kominn í fremstu röð ísl.
Bandaríkjaagenta. Grein Sigurðar
er ekki svaraverð — venjulegur
Morgunblaðsvaðall. En ferill hans
er alhyglisverður, hvernig hann
sígur dýpra og dýpra i svaðið. Það
eru menn eins og hann, litlir menn
i öllum skilningi, sem agentarnir
eiga auðveldast með að klófesta og
hagnýta."
Agentar kommúnista þykjast víst
tala liér af reynslu, því að fáir
studdu stjórn Olafs Thors og komm
únista betur en Sigurður, og enn er
hann í náinni samvinnu við komm-
únista vestur á Isafirði. „Litlir
Bilstjórafélagið Hreyfill, Reykjavík.
Um síðustu mánaðarmót fór fram
allsherjaratkvæðagreiðsla til stjórn-
ar og trúnaðarráðskjörs. Kosið var
um tvo lista, hlaut listi lýðræðis-
sinna 355 atkvæði og alla menn í
stjórn og trúnaðarráð, en listi
kommúnista fékk 272 atkv. Aður
voru tveir kommúnistar í stjórn
Hreyfils en nú er þar enginn.
VörubílstjórafélagiS Þrótlur, Rvík.
Undanfarin ár hafa kommúnistar
haft meirihluta í stjórn, en töpuðu
nú meirihlutanum. Listi lýðræðis-
sinna hlaut 131 atkv., en kommún-
istar 126 atkv. Kjörsókn var mjög
mikil og kosningin harðsótt.
VcrkamannafélagiS Dagsbrún, Rvik
Með austrænum lýðræðisreglum
tókst kommúnistum að halda völd-
um. Strikuðu þeir um félags-
manna, eða um 800, útaf kjörskrá.
Er kosið var til Alþýðusambands-
þings var talið að 3200 fullgildir
félagar væru í Dagsbrún, en nú
voru á kjörskrá 2580.
Stjórnin var endurkjörin með
1317 atkv., en andstæðingalistinn
lilaut 602 atkv.
I verkamannafélaginu Hlíf í Hafn
arfirði, Þrótti í Siglufirði, Iðju, fé-
lagi verksmiðjufólks í Reykjavík og
Sjómannafélagi Reykjavíkur voru
stjórnir og trúnaðarráð endurkjör-
inenn í öllum skilningi" er vitnis-
burður Þjóðviljans um þá, sem
kommúnistum tekst að lokka til
fylgis við sig, og liefur Þjóðviljinn
vafalaust sagt margt ósannara."
------—O-------
BÆKUR
Ægir,
mánaðarrit Fiskifélags Islands,
okt.—nóv. hefti 1948 hefur nýlega
borist Skutli. Blaðið flytur margar
athyglisverðar greinar, má þar
nefna: Fiskmagn og liagnýting eft-
ir Lúðvík Kristjánsson. Skipasmíða
stöðvar, viðgerðir og nýsmíði stál-
skipa eftir Hjálmar R. Bárðarson,
skipaverlcfræðing. Togaraútgerð
Færeyinga, frásagnir af 4 ára áætl-
unum Islendinga og Norðmanna og
hvalveiðum Islendinga síðastliðið
sumar. Auk þess eru skýrslur um
útflutning sjávarafurða og afla-
brögð til 31. ágúst 1948. Ægir er
hið læsilegasta rit, en óafsakanleg-
ur seinagangur er um útgáfu blaðs-
ins, þar sem okt..—nóv. hefti árs-
ins 1948 kom ekki hingað fyrr en i
febrúarbyrjun 1949.
Heilsuvernd
tímarit Náttúrulækningafélags Is-
lands, 4. hefti 3. árgangs, er nýkom
ið út. Efni ritsins er þetta: Litið
um öxl og fram á leið, eftir Jónas
Kristjánsson, læknir. Náttúrulækn-
ingafélag Islands 10 ára og upp-
haf náttúrulækninga á Islandi, eftir
Björn Kristjánsson. Nýjar ræktunar
aðferðir, eftir Björn L. Jónsson.
Hvað er heilbrigði? Hvernig á að
geyma heilhveiti? Aspirín er hættu
Slys.
Það slys varð síðastliðinn mánu-
dag í hraðfrystihúsinu Snæfell á
Flateyri að ammoniak-leiðsla
sprakk og tveir starfsmenn hrað-
frystihúsins brenndust í andliti.
Annar maðurinn, Jón Þorbjarnar-
son, verkstjóri, brenndist allmikið
og er nú rúmliggjandi, en hinn,
Guðmundur Albertsson, vélstjóri,
skaddaðist minna og hefur aftur
tekið við störfum sínum við hrað-
frystihúsið.
Hjónabönd:
Síðastliðnnn föstudag voru gefin
saman af séra Guðmundi Guð-
mundssyni, ungfrú Islaug Aðal-
steinsdóttir og Jóhann Björnsson
frá Reykjavík.
I gær voru gefin saman í Reykja-
vík, ungfrú Aslaug Matthíasdótlir
og Hans Svane, læknir.
Mænuveikin.
breiðist enn út og eru veikinda-
tilfelli nú um 45.
Andlát.
Ingibjörg Eiríksdóttir, Vallar-
borg, andaðist í Reykjavík 7. þ.m.
Ingibjörg var gift Guðjóni Sigurðs-
syni, verkamanni, og átti hún við
langvarandi vanheilsu að búa.
Niræfiisafmæli.
Elínborg Benediktsdóttir, fyrv.
ljósmóðir i Súðavík, varð níræð í
gær.
Stórhöfðingleg gjöf.
Þann 17. janúar 1949 barst sjúkra
hússlækninum eftirfarandi bréf:
Herra læknir, Bjarni Sig-
urðsson, Isafirði.
Eg og kona mín höfum ákveðið
að stofna minningarsjóð um dótt-
ur okkar Ingibjörgu Geirþrúði
(Stellu), sem andaðist í Reykjavík
sumarið 1946, nítján ára að aldri.
Stella, en svo var liún ævinlega
kölluð, var fædd á Isafirði árið
1927 og átti þar heima meginhlut-
ann af sinni stuttu æfi ög við Isa-
fjörð voru allar hennar bernsku-
minningar tengdar. Hún þjáðist af
ólæknandi sjúkdómi frá 8 ára aldri
og var oft og löngum þungt haldin.
Okkur finnst því bezt viðeigandi að
sjóður, sem stofnaður er til minn-
ingar um hana, vinni að því að
létta þeim að einhverju leyti lífið,
sem sömu örlögum vérða að sæta.
Sjóðurinn er að upphæð krónur
10.000,00 og höfum við ákveðið að
legt. Saga Onnu Lísu-Olsen. Deilan
um tóbakið. Súrmjólk og grænmeti.
Læknavísindin og matarsaltið.
Mænuveiki og matarræði. Tennur
græddar í góm. Hollir drykkir o.fl.
Nokrar myndir prýða ritið, sem að
venju er hið vandaðasta að öllum
frágangi.
Rafmagnsskömmtun afnumin.
Rafveitustjórn samþykkti s.l.
miðvikudag að afnema rafmagns-
skömmtunina, vegna þess, að vatns-
forði í Fossavatni og Nónvatni hef-
ur aukist nokkuð. Talsvert vantar
þó til þess að vötnin séu full, og
áætlaði rafveitustjóri, að miðað við
óskammtað rafmagn, mundi vatns-
forðinn endast í h.u.b. mánuð. Get-
ur því hæglega svo farið, að taka
verði upp skömmtun á ný, og hefur
rafveitustjórn beðið blaðið að
livetja fólk til að forðast óþarfa
rafmagnseyðslu,
Sparnaður á rafinagninu er sér-
staklega nauðsynlegur vegna óviss-
unnar uin aukið vatn, í öðru lagi
vegna þess að við afnám skömmt-
unarinnar má búast við að út-
keyrsla frá rafstöðinni í Engidal tvö
faldist, frá því sem verið hefur, og
í þriðja lagi vegna þess, að nú verð
ur hætt við næturlokun í vatns-
aflsstöðinni, og sá sparnaður á
vatni, sem hefur fengist við það
að nota díeselsamstæðuna á Torf-
nesi, kemur nú ekki lengur að
gagni.
Sparið þessvegna rafmagnið !!
I nnflúenzufaral dur
gengur nú á Þingeyri. Fjöldi
fólks hefur tekið veikina og fengið
mjög liáan hita en flestir legið fáa
daga.
Birgir Finnsson,
Neðstakaupstað, Isafirði, annað-
ist um útgáfu þessa tölublaðs.
hann starfi við Sjúkrahús Isafjarð-
ar. Sé tekjum hans varið til árlegr-
ar útlilutunar til þess eða þeirra
sjúklinga, sem mestir einstæðingar
eru eða af öðrum ástæðum mest
hjálparþurfi að áliti sjúkrahúss-
læknis og yfirhjúkrunarkonu.
Til þess að þurfa ekki að skerða
vaxtartekjur sjóðsins fyrst í stað
munum við, meðan okkur endist
líf og erum. þess umkomin, leggja
fram hinn árlega styrk. Við leggj-
um hér með kr. 500,00, sem við
óskum að verði úthlutað í fyrsta
sinn á 22. afmælisdegi Stellu sál.
hinn 26. þ. m.
Sparisjóðsbók með sjóðsupp-
liæðinni fylgir hér með og óskast
hún geymd í yðar vörslum, þar til
skipulagsskrá hefur verið samin
fyrir sjóðinn.
Virðingarfyllst,
Guðm. Pétursson.
Fyrir hönd Sjúkrahússins þakka
ég hr. Guðm. Péturssyni og konu
hans þessa höfðinglegu gjöf, sem
mun verða mörgum bágstöddum
sjúklingi til ánægju og gleði, og
lialda uppi minningu hinnar ást-
kæru dóttur þeirra, sem þau misstu
þegar hún var á blómaskeiði lífsins.
Isafirði, 2. febr. 1949.
Bjarni Sigurfisson.
Prentstofan Isrún h.f.
in.
Svo segja liin blöðin.