Skutull - 08.04.1949, Blaðsíða 2
2
S K U T U L L
Spéspegill Vesturlands.
Vesturland, sem virðist haldið
hálfgerðri uppdráttarsýki, kemur
nú orðið ekki út nema aðra hverja
viku, eða þegar búfræðingarnir hafa
lagt því til fóður, og er það sú
kjarnfæða, sem upp á síðkastið
hefir haldið við líftórunni i blað-
inu. Skrásetti ritstjórinn leggur því
ekkert til, og nafnlausi niðursetn-
ingurinn er ekki mikið duglegri við
skriftirnar, en fyrri störf. Eina nýj-
ung hefir hann þó innleitt í blað
sitt sem sé þá, að hirta á 2. síðu
blaðsins tvídálka leiðara, sem vel
mætti kalla spéspegil Vesturlands.
1 þessum leiðurum er nokkuð ann-
ar tónn en í öðrum skrifum hins
afdankaða bæjarstjóra, og í hinum
síðasta þeirra, er hann nefnir „Lit-
ið til baka,“ mundi margur geta
haldið, að hann væri að gera grín
að sjálfum sér og flokki sínum. Það
er þó. ekki alveg víst að svo sé, og
skal nú greinarkorn þetta athug-
að lítillega.
Tvennskonar áróður.
Það er alkunna, að í einræðis-
ríkjum eins og Þýzkalandi á tím-
um nazistanna og Rússlandi undir
stjórn kommúnista, er viðhafður
tvennskonar áróður: I fyrsta lagi
áróður, sem ætlaður er heima-
mönnum, og í öðru lagi áróður,
sem eingöngu á að vera fyrir út-
lendinga. Er l>á eftir megni reynt
að gæta þess, að heimamenn sjái
ekki áróðurinn, sem útlendingun-
um er ætlaður, og reynt er að forð-
ast það, að útlendingarnir kynnist
áróðrinum, sem framleiddur er fyr-
ir innanlands markað, því óneitan-
lega getur þessi tvennskonar áróð-
ur oft stangast á, ef hægt er að
gera á honum samanburð. Þessa
áróðursaðferð virðist leiðara-
höfundur Vesturlands hafa tekið
sér til fyrirrnyndar, og er greina-
flokki þessum ætlað að glepja ó-
kunnuga. Lítill inunur er þó á leið-
urunum og venjulegum áróðri blaðs
ins, sem ætlaður er heimamönn-
um, annar en sá, að orðbragðinu
er betur stillt í hóf, og minna ber
á geðvonzkunni og taugaóstyrknum
en endranær.
Eitt sést höfundi leiðaranna þó
yfir: Hann hefir ekki sömu aðstöðu
og fyrirmyndir hans, einvaldarnir,
til að aðskilja lesendahópa sína, og
bæjarmenn lesa það, sem utanbæj-
armönnum er ætlað og vice versa.
1 augum bæjarbúa verða leiðararn-
ir því einskonar spéspegill, þar
sem bæjarstjórinn fyrverandi sýnir
sjálfan sig og flokk sinn teygðan
og togaðann á ýmsa vegu, og munu
margir ekki geta varist brosi yfir
tilburðunum. Utanbæjarmenn geta
svo jöfnum höndum lesíð óhefluðu
greinarnar, og kynnst af eigin raun
geðvonzkunni og taugaóstyrknum,
og sjálfir dæmt um, að ekki fer of-
sögum af því. Af því, sem nú hefir
verið sagt, má ráða, að frá höfund-
arins hendi er leiðurum Vestur-
lands ekki ætlað að vera neitt grín,
heldur eru þeir meintir í fúlustu al-
vöru, enda þótt lesendum þeirra
finnist þeir hlægilegir.
„Litið til baka.“
Leiðarinn með þessu nafni í 12.
tbl. Vesturlands þ.á. er ágætt sýnis-
horn af þessum áróðri. Hann hefst
á mannalegri yfirlýsingu um það,
að við afgreiðslu síðustu fjárhags-
áætlunar í bæjarstjórn hafi bæjar-
fulltrúar Alþýðuflokksins algjörlega
gefist upp við að reyna að „rök-
styðja“ br^ytingartillögur sínar,
sem þó hafi verið með hóflegasta
móti. — Síðan segir orðrétt: „Betri
sönnun er ekki liægt að fá fyrir því,
að allt brölt þeirra með stórfelldar
lækkunartillögur á undanförnum
árum var markleysa ein og yfir-
varp, eins og meirihlutaflokkarnir
liafa sannað bæjarbúum á hverju
ári og reynslan staðfest." Athugum
nú þetta. Bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins skila breyingartillögum
sínum við fjárhagsáætlun til bæjar-
ráðs nokkrum dögum áður en síð-
ari umræða um áætlunina fer fram.
1 bæjarráði fjalla fulltrúar meiri-
hluta og minnihluta um tillögurn-
ar. Þar tekur meirihlutinn afstöðu
til þeirra, sem gera má ráð fyrir,
að ekki verði haggað. Þó er við
síðari umræðu enn reynt að fá
meirihlutann til að fallast á þær,
en án árangurs. Hér í blaðinu hafa
svo tillögurnar verið birtar og sagt
frá afgreiðslu þeirra. Þær hafa að
vísu ekki verið settar með mjög
stóru letri, því það notar Skutull
sjaldan og ekki sérlega mikil á-
lierzla lögð á að sannfæra lesend-
ur blaðsins um ágæti þeirra, því
þær voru ekki fram settar til augna
gamans fyrir háttvirta lesendur,
heldur til þess að reyna að hafa
áhrif á meirihluta bæjarstjórnar.
Allt hafði verið gert til að ná þeim
tilgangi, en án árangurs, og því
þýðingarlaust að gera frekari til-
raunir til að koma vitinu fyrir
meirihlutann. — Hvað reynsluna
snertir gagnvart tillögum bæjarfull-
trúa Alþ.fl. í sambandi við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar bæjarins
á þessu kjörtímabili, þá er sann-
leikurinn vitanlega sá, að reynsl-
an af þeim tillögum í framkvæmd
er engin, vegna þess að þær hafa
yfirleitl allar verið felldar. — það,
sem við höfum fengið að reyna með
þeim árangri, að bærinn hefir kom-
ist í greiðsluþrot Iivað eftir annað,
og safnað lausaskuldum upp í
1.200.000,00 kr. er áætlunarhnoð
meirihlutans og liagsýni þeirra
manna, sem stjórnað hafa fram-
kvæmd fjárhagsáætlana síðustu
þriggja ára.. Það, sem meirihluta-
flokkarnir og reynslan hafa sann-
að bæjarbúum er það, að stjórn
íhaldskomma er á góðri leið með
að sliga bæjarfélagið.
Afstaða Isafjarðar og
annarra bæja.
Vestmannaeyjar, Siglufjörður og
Akureyri, segir Vesturland, að hafi
ráðist í ýmsan bæjarrekstur, sem
jafnvel megi kalla fjárglæfra, og
tapað stórfé á þessum rekstri. Svo
ber blaðið ísafjörð, undir stjórn I-
haldskomma, saman við þessa bæi,
og segir, að Isafjörður sé vel sam-
bærilegur, hvað útsvör og fjárhags-
afkomu snertir, og að jafnvel séu
útsvör lægri hér en á Siglufirði.
Þetta síðasta er eins og hver ann-
ar bæjarstjórasannleikur, þegar bor
in eru sainan útsvör einstaklinga
hér og á Siglufirði fram að þessu.
Og ef sá aðstöðumunur, sem Vestur-
land talar um, væri réttur, þá ætti
ekki afkoma Isafjarðar að vera
bara sambærileg við hina staðina
heldur iniklu betri. Leiðarliöfund-
urinn fullyrðir að bæjartogararnir
í Vestmannaeyjum hafi verið boðn-
ir upp vegna tapreksturs og óreiðu-
skulda. Hér er aftur á ferðinni
bæjarstjórasannleikur. Bæjarútgerð
Vestmannaeyja mun að vísu standa
höllum fæti eins og fleiri útgerðar-
fyrirtæki, og mun hafa átt erfitt
með að standa í skilum við Stofn-
lánadeild Sjávarútvegsins, en mun
nú hafa fengið samninga um
greiðslufrest á afborgunum og
vöxtum, hliðstæða samningum ým-
issra annarra togaraútgerðarfyrir-
tækja. Þá hefir Skutull það fyrir
satt, að tekjuafgangur af bæjarút-
gerð Vestmannaeyja um s.l. ára-
mót sé um 150 þúsund krónur, áð-
ur en afskrifað hefir verið af skip-
unum. Hér á Isafirði liöfum við
einn togara, sem inun engu skila
til afskrifta. Kr. 150 þús. til af-
skrifta á 2 nýsköpunartogurum er
að visu hverfandi lítil upphæð, en
þó skárri en ekkert.
Eftir rökum Vesturlands ætti
lsafjörður að standa sig mun betur
en binir bæirnir, þar eð við erum
enn lausir við bæjarútgerð á tog-
urum og bæjarrekstur á síldarverk-
smiðjum.
Nokkrar myndir úr
spéspeglinum.
„Þeir (þ.e. núverandi ráðamenn
bæjarins) hafa lagt kapp á að
styðja atvinnulifið með því að
styrkja félög til báta- og togara-
kaupa,“ segir spéspegillinn.
Allmikið er þessi mynd stækkuð.
Þeir styrkir eða lán, sem greiddir
hafa verið ti) bátakaupa voru allir
ákveðnir áður en íhaldskoinmar
náðu meirihluta, og síðan hafa þeir
gert það eitt að greiða út þær upp-
hæðir, sem um ræðir, af fé sem
var fyrir Iiendi þegar þeir tóku við.
Til togarakaupanna hafa verið
greiddar kr. 100 þúsund, af 200
þúsundum sem ráðgert hefir verið
í fjárhagsáætlunvim að leggja fram.
Ekki er þó grunlaust um, að öll
upphæðin, kr. 200 þúsund, hafi
verið tekin af bæjarbúum í útsvör-
um.
„Þeir (þ.e. sömu ráðamenn og
áður) hafa ráðist gegn böli hús-
næðisleysisins með meiri myndar-
brag en flest, ef ekki öll önnur
bæjarfélög landsins, bæði með því
að styrkja einstaklinga til húsbygg-
inga og láta bæinn byggja íbúðir
-sic).“
Þarna ýkir spéspegillinn á alla
vegu. Menn þekkja byggingar-
styrkjaúthlutunarsögu Ásbergs til
húsanna, sem enn sést ekki móta
fyrir. Flestir munu líka vita, að
af byggingarkostnaði við Fjarðar-
strætishúsið leggur bærinn aðeins
fram 15% eða um 195 þús. kr. og
þar af á hann ógreiddar um 55
þús. kr.
Til þess að aðrir bæir njóti sann-
mælis skal þess getið, að ýmsir
þeirra veita árlega í fjárhagsáætl-
unum sínum ákveðnar upphæðir til
húsabygginga umfram það sem lög-
boðið er, en Isafjörður skuldar
frainlag sitt til byggingarsjóðs
verkamannabústaða fyrir s.l. 2 ár.
„Sólabyggingarnar eru t'ujlgerð-
ar.“
Með þessari setningu er spéspeg-
ilshöfundurinn sennilega óviljandi
að skopast að sjálfum sér. Vegna
ókunnugra skal það eitt fram tekið,
að allar umræddar byggingar voru
komnar áleiðis um síðustu bæjar-
stjórnarkosningar, og ein þeirra,
sundhöllin, var vígð þegar að af-
Loknð skrifstofa.
Margir bæjarbúar, sem upp
á síðkastið hafa átt erindi á
skrifstofu raíveitunnar, hafa
komið þar að luktum dyrum
hvað eftir annað á venjulegum
skrifstofutíma. Ekki liefir
heldur verið svarað i síma
skrifstofunnar, og hefir þetta
komið sér illa fyrir marga.
Hvergi hefir jtað þó sézt aug-
lýst, að afgreiðslutíma á skrif-
stofunni hafi verið breytt eða
bann verið takmarkaður. —
Allir hlutir eiga sér orsök, að
þvi er sagt er, og orsök þessa
vandræða ástands á skrifstofu
rafveitunnar mun vera sú, að
skrifstofustjórinn hefir undan-
farnar 7 vilcur legið í mænu-
veiki, og skrifstofustúlkan hef-
ir einnig verið frá vinnu vegna
veikinda. Á síðasta rafveitu-
stjórnarfundi var þetta mál
rætt, og bar Birgir Finnsson
fram þá tillögu, að rafveitu-
stjóra yrði falið að gera. nauð-
synlega ráðstafanir til að liafa
skrifstofu rafveitunnar opna á
venj ulegum afgreiðslutíma í
veikindaforföllum starfsfólks
ins. Rafveitustjóri kvaðst hafa
reynt að fá fólk, en gengið illa,
og sjálfur þyrfti hann að vera
svo mikið úti, að hann gæti
ekki setið á skrifstofunni. Ekki
mun rafveitustjóri ])ó hafa
auglýst eftir fólki. Eftir þessar
upplýsingar var tillaga Birgis
borin undir atkvæði og felld af
meirihlutanum. — Þarf því
engan að undra, þótt skrifstof-
an verði lokuð áfram, þar til
starfsfólkið hefir fengið heilsu
sína á ný, eða útistörf rafveitu-
stjórans taka að niinnka.
stöðnum kosniiigum. Hinar eru
gagnfræðaskóli, (viðbygging), bús-
mæðraskóli og íþróttahús.
„Myndarlegt hafnarmannvirki og
ný vatnsveita er í byggingu.“
Rélt er nú það. Sagan af fram-
kvæmdum þessum er kapítuli út af
fyrir sig. Bygging hafnarmann-
virkisins var raunar undirbúin að
mestu fyrir síðustu bæjarstjórnar-
kosningar. Síðan liefir einn bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðismanna verið lát-
inn hafa framkvæmd verksins með
höndum sem ígripastarf. Fyrsta
sumarið af þeiin þrem, sem liðin
eru af kjörtímabilinu var verkið al-
veg látið bíða, af því að þá liafði
þessi maður nóg að gera við annað.
S.l. tvö sumur hefir einn vinnu-
flokkur unnið þarna, og verkinu því
ekki miðað áfram sem skyldi, því
hæglega hefði mátt koma að því
fleiri vinnuflokkum, svo sem títt
er um stórframkvæmdir. Samning-
urinn við þennan verktaka skal
ekki ræddur hér að þessu sinni.
Það liefir verið gert itarlega áður.
— Vatnsveituframkvæmdirnar
munu verða dýrar áður en lýkur.
Þær byrjuðu með hinni frægu Stór-
urðargryfju, sem kostaði um 100
þúsund krónur, og verður aldrei
notuð. Botninn fannst þar ekki frek