Skutull - 22.10.1949, Síða 1
Gjalddagi SKUTULS
var 1. júli.
Árgangurinn kostar
kr. 20.00.
XXVII. árg.
Isafjörður, 22. október 1949.
34. tölublað.
Kjördagur:
Kosið milli umbóta og afturhalds,
milli lýðræðis og einræðis.
Á morgun er örlagaríkur dagur í lífi þjóðarinnar: Al-
þingi kosið til fjögra ára. Þá ákveður þú, kjósandi góður,
hvaða stefna í félagsmálum, fjármálum, viðskiptamálum
og landsmálum skuli ráða næstu 4 ár. Margir eru e.t.v.
í vafa um, hvaða flokki þeir skuli greiða atkvæði, og
þeim til glöggvunar skulum við minnast þessa:
Framsókn, þá skapar þú íhaldinu,
sem býr á bak við glansmyndina
af Kjartani, möguleika til að byrja
niðurrif sitt á því, sem lýst hefir
verið hér að framan.
Vertu minnugur þessa og kjóstu
frambjóðanda Alþýðuflokksins,
Finn Jónsson.
SÉRT I>Ú UNGUR, milli 21 og 35.
ára, þá hugleiddu, hvernig á því
stendur, áð þér, svo ungum,
skuli veitast réttui til að hafa
áhrif á stjóm landsins meö at-
kvæði þínu. Þú munt þá kom-
ast að raun um, að trú Alþýðu-
flokksins á unga fóikið áttu
þennan rétt þinn að þakka.
Þaö var Alþýöuflokkurinn
sem féklc lögleiddan 21 árs
kosningarétt.
SÉRT ÞU GAMALL, 67 ára eða
eldri, þá athugaðu liversvegna
þjóðfélagið greiðir þér ellilaun.
Þaö er vegna þess, aS Alþýöu-
flokkurinn kom á injggingalög-
gjöfinni.
SÉRT ÞU ÖRYRKI, þá hugleiddu,
hvernig á því stendur, að þjóð-
félagið greiðir þér örorkubætur.
Það áttu tryggingalöggjöf Al-
þýðuflokksins að þakka.
ÞYGGIR ÞU AF SVEIT, þá kynntu
þér, hvernig réttur þurfalinga
var fyrir. ekki ýkja longu. Þeir
höfðu ekki kosningarétt, eíns og
þú, og það var hægt að flytja þá
nauðuga milli staða.
Breytingin á þessu er verk
Alþýðuflokksins.
VINNIR ÞÚ Á TOGARA, þá spyrðu
eldri skipsfélaga þína, hvað
vinnutími þeirra hafi verið lang
ur, þegar þeir voru ungir. „AU-
ur sólarhringurinn, og áfram,
þangað til við sofnuðum i fisk-
kösinni“, munu þeir svara.
Að þetta er ekki lengur svo,
má þakka togaravökulögum At-
þýöuflokksins. -
BÚIR ÞÚ I VERKAMANNA-
BÚSTÖÐUM, samvinnubyggingar-
félagshúsi eða Fjarðarstrætis-
húsi þá inundu, að þessi liús eru
hyggð samkvæmt lagabálki Al-
þýðuflokksins um verkamanna-
bústaði og opinbera aðstoð við
byggingar íbúðarhúsa í kaup-
stöðum og kauptúnum.
SÉRT ÞÚ OPINBER
STARFSMAÐUR, vinnir t.d. á op-
inberri skrifstofu, eða sért kenn-
ari, þá gerðu þér grein fyrir
hvernig á því stendur, að kaup
þitt er nú sambærilegt við það,
sem einkafyrirtæki borga.
Það er vegna launalaganna,
sem Alþýðuflokkurinn fékk sett.
SÉRT ÞÚ 1 STÉTTAR-
SAMBÖNDUM verkamann, sjó-
manna eða iðnaðarmanna þá
grennslastu eftir, hvernig á því
stendur að félag þitt er viður-
kenndur jafn rélthár aðili við
samningsgerð og vinnuveitandi
þinn.
Þaö er fyrir þrautseiga bar-
áttu Alþýöuflokksins, að stétt
þin hefir þennan rétl.
VINNIR ÞU Á NÝSKÖP-
UNARSKIPI, þá kannaðu, hvernig
á því stendur, að við Islendingar
eigúm sítk skip.
Það er vegna þess, að Alþýðu-
flokkúrinn setti það að skilyrði
fyrir þátttöku sinni í ríkisstjórn,
að 300 miljónufn króna skýldi
varið til kaupa á þeim.
Þannig mættiTengi halda áfram,
en er nú ekki komið ærið íhugun-
arefni? Eða þarft þú, kjósandi góð-
ur, að liugsa þig lengur um?
Þá skalt þú athuga það, sem er
næst þér hér í bænum. Ef þú ert
ungur, þá leitaðu fræðslu hjá gamla
fólkinu um kjör þess, meðan íhald-
ið var allsráðandi. Það ltunna marg
ir að lýsa þeim timum, og enginn,
sem hefir lifað þá, vill að þeir komi
aftur, og gamla fólkið mun ráð-
leggja þér að greiða atkvæði gegn
íhaldinu, með Sjálfstæðisflokks-
nafnið. Því ráði er þér óhætt að
fylgja. En þú greiðir aðeins atkv.
gegn íhaldinu með einu móti, og
það skalt þú atliuga vel. Þú gerir
það aðeins með því að greiða Al-
ljýðuflokknum atkvæði. Ef þú greið
ir atkvæði með kommúnistum eða
Uppljóstran Morgunblaðsins
Skip Björgvins Bjarnasonar gerð út frá Ný-
fundnalandi. Áhafnirnar þarlendir menn.
Hinn 20. þ. m. skýrir Morgunblaðið frá því, að
flugvélar Loftleiða fari til Nýfundnalands, þann
sama dag, til þess að sækja rúmlega 50 sjómenn og
segir orðrétt:
„Sjómenn þessir sigldu þangað fjórum bát-
um Björgvins Bjarnasonar útgerðarmanns á
Isafirði, en þeir verða gerðir út frá Nýfundna-
landi í vetur og munu áhafnir þeirra vera þar-
lendir menn“.
Þetta kallar Vesturland 19. þ. m. „viðleitni einstakl-
inganna til þess að brjóta nýjar leiðir“, og er hreyk
ið af fyrir hönd Sjálfstæðismanna á ísafirði. Það er
svo sem eitthvað annað en „hið algera dáðleysi“
Samvinnufélags ísfirðinga er Vesturland kallar,
sem hjarir hér heima á ísafirði og reynir. að halda
uppi atvinnu í bænum, þrátt fyrir hina miklu Örðug-
leika. - -
I vétur vill Vesturland láta bæjarmenn lifa á Arn-
arnesútgerð Kjartans læknis og Nýfundnalandsút-
gerð Björgvins. Áhöfnin verður „þarlendir menn“,
segir Morgunblaðið og áhöfnin á Arnarnesinu eru
Reykvíkingar.
Hitaveita Jóns Gauta,
Arnarnesútgerð,
Skógrækt,
Útgerð við Nýfundnaland, eru úrræði Kjartans
og foringja Sjálfstæðisflokksins á ísafirði í at-
vinnumálunum.
ísfirðingar! Aldrei hefir dáðlausara og ráðlaus-
ara lið haldið til Alþingiskosninga hér í bænum.
Isfirðingar! Látið Kjartan lækni sitja heima.
Kjósið þann mann á þing, sem líklegastur er til að
leggja lið atvinnumálum kaupstaðarins.
KJÖSIÐ FINN JÓNSSON!