Skutull - 24.12.1953, Blaðsíða 9
SKUTULL
9
ÞÓKLEIFUR BJARNASON:
Undir stjörnum og sól.
Því hefur verið haldið fram, að
hér á landi væri orðið erfitt að
ná því takmarki, að verða það
ljóðskáld, sem vekti aðdáun al-
mennings og stæðist listrænar
kröfur um ljóðagerð. Ég hygg þó,
að séra Sigurði Einarssyni hafi
tekizt þetta með tveim seinustu
ljóðabókum sínum, en sérstaklega
þó með hinni seinustu — Undir
stjörnum og sól.
1 meira en tuttugu ár hefur
séra Sigurður staðið í fremstu
röð þeirra manna, sem mest hef-
ur kveðið að í andlegu lífi okkar.
Hann hefur verið meistari hins
talaða og ritaða orðs, og segja
má, að fátt hafi hann látið sér
óviðkomandi. Skyggnum augum
hefur hann séð refskák þeirra
reginafla, sem ráðið hafa örlög-
um miljónanna í stríðandi heimi.
Af næmleik hefur hann skynjað
seið þeirra gerninga, sem grófu
um sig manni og menningu til
falls, og hann hefur sjaldnast lát-
ið undir höfuð leggjast að benda
á hættuna, vitandi það, að — sál
vor á meiri aðild í heimsins harmi
en heyrn vor og sýn af mannlegu
böli reynir — eins og hann sjálf-
ur kemst að orði í einu kvæði
sínu í hinni nýju ljóðabók. En
Sigurði hefur ekki brugðizt trúin
á lífið, þótt hann hafi skynjað
betur en aðrir váleg veður í lofti
og ofurþunga óttans í mannleg-
um hjörtum. Hann hefur barizt
hart fyrir réttindum þeirra, sem
minnst hafa mátt sín. Af þrótt-
mikilli mælsku og orðkynngi hef-
ur hann varið málstað hins um-
komulausu, en einnig dáð ham-
ingju starfsins í sveit og við sjó.
Það var snemma vitað, að séra
Sigurður væri skáld, sem réði yf-
ir mikilli orðgnótt og frjórri
hugsun. Árið 1930 gaf hann út
fyrstu ljóðabók sína — Hamar og
sigð. — Ljóðin í þeirri bók báru
vitni um orðsnjallan höfund, sem
lá svo mikið á hjarta, að hann
gaf sér ekki tíma til þess að
sverfa ljóð sín til fullkominnar
listar. Hann varð að flýta sér að
segja almenningi sannleikann um
rétt hans og skyldur í átökum
nýrra tíma. — Og árin liðu. Séra
Sigurður flutti fjölda útvarpser-
inda, skrifaði óteljandi blaða og
tímaritsgreinir, gaf út bækur og
hélt sér jafnan þar sem orustan
var hörðust í þjóðfélags- og
dauðanp. Við lifum nú þegar í ei-
lífðinni. Við hverfum aðeins yfir
í annað form þess ástands, sem
kallast líf, — og ég er þess full-
viss, að breytingin er til hins
betra.
Lausl. þýtt.
menningarmálum. En það var eins
og hann hefði ýtt frá sér þörfinni
að tjá sig í Ijóði eða gæfi sér
enn ekki tíma til þeirrar vand-
gerðu iðju, sem ljóðagerð verður
vandlátu skáldi. Loks tók að birt-
ast eitt og eitt kvæði eftir hann
í tímaritum. Yrkisefnin voru fjöl-
breyttari en áður og meiri dýpt
og fágun í ljóði hans en fyrr.
Haustið 1952 kom svo út önnur
ljóðabók séra Sigurðar — Yndi
unaðsstunda — tuttugu og tveim
árum eftir að Hamar og sigð kom
Sigurður Einarsson.
út. Ljóðvinir flestir fögnuðu —
Yndi unaðsstunda. — Bókin fékk
hina beztu dóma vandlátra fagur-
kera í ljóðagerð. Skáldið hafði
vaxið til afreka í glímunni við
hugsun og fágað form. En
skemmra reyndist stórra högga
milli hjá höfundinum en nokkurn
hafði grunað. Þegar fréttist í
sumar, að ný ljóðabók eftir séra
Sigurð mundi koma út í haust,
var ekki trútt um að kvíða gætti
hjá einstaka aðdáenda skáldsins
um það, að nú hefði það gerzt of
ákaft í ljóðagerð og ekki gætt
nógsamlega þeirrar vandvirkni,
sem af því varð að krefjast. En
kvíðinn reyndist ástæðulaus. Sig-
urður hafði aldrei kveðið betur.
Bókin kom út í byrjun nóvember
í haust og nefndist — Undir
stjörnum og sól. —
1 bókinni eru 26 kvæði auk
sögulegs ljóðabálks um Þórdísi
Toddu. Flest eru kvæðin ort á
árunum 1952—1953 eftir því sem
skáldið sjálft segir í stuttum eft-
irmála við bókina. Það er skemmst
frá að segja um þessa bók, að við
lestur hennar munu flestir ljóð-
vinir, sem á annað borð eru við
fulla andlega heilsu, óska þess, að
þeir væru höfundar þessara ljóða.
Yrkisefni séra Sigurðar í hinni
nýju bók eru fjölbreytt og víð-
tæk. Þar eru meitlaðar mannlýs-
ingar í minningarljóðum. í all-
mörgum kvæðum heyrist niður
lækja og linda í dulræðum stefj-
um, sem bera angan vors og ilm
úr jörðu. Þar eru hvatningarljóð
til æskumanna og á þá heitið til
drengskapar og manndóms.
Vitaskuld eru kvæðin í bókinni
ekki öll jöfn að skáldskap og
hugsun, en ég hygg að varla sé
hægt að segja með nokkurri sann-
girni, að þar finnist lélegt kvæði.
Hins vegar eru þar nokkur af-
burða góð kvæði og allmörg, sem
nálgast það.
Boðskapur margra beztu ljóða
skáldsins í þessari bók er trúin
á lífið og lotningin fyrir fegurð
þess og undraverðum dásemdum.
Séra Sigurði Einarssyni mun þó
kunnugra mannlegt böl og harm-
ur lífsins en mörgum þeim, sem
skrumskælast af uppgerðar böl-
móði og kreista upp úr sér feikn-
legum kvalastunum undan mis-
þyrmingu lífsins, sem þeir helzt
hafa kynnzt á kaffihúsum.
Ljóðabókin — Undir stjörnum
og sól — er óður til lífsins — Og
söngur vors lífs er um ilminn af
daganna starfi — eru lokaorð
skáldsins í einu fegursta kvæði
hans í bókinni. Höfundurinn yrkir
um lokið dagsverk — um hey
um sumarnóttina, — er moldin
og döggin mælast við töfraorð-
um.—
En fögnuður skáldsins og trú
þess á lífið grundvallast á mikilli
lífsreynslu og djúpri íhugun á
rökum lífs og dauða. í kvæðinu
— Lífstregans gáta — ræðir
skáldið þau rök af orðsnilld og
dýpt í hugsun. Það hefur fundið í
eigin brjósti þá skelfingu, er
dauðinn skapar í hjörtum mann-
anna. —
En mannsbamið horfir
á heimana blindandi augum
með hrikasögu alls lífs
í skjálfandi taugum. —
En sigur lífsins verður skáld-
inu hinn ótæmandi fögnuður í
kvæðislok.
Ég hef aðeins getið nokkurra
kvæða í hinni nýju ljóðabók séra
Sigurðar Einarssonar. Mörg þeirra
er unað veita við lestur, eru ó-
nefnd. Sigurður Einarsson er nú
meðal beztu ljóðskálda okkar. Og
enginn, sem vill fylgjast með því,
er bezt er kveðið, getur látið hjá
líða að lesa ljóð hans.
| ISHÚSFÉLAG ISFIRÐINGA H.F. |
óskar öllu starfsfólki sínu og viðskiptavinum |
GLEÐILEGRA JÓLA OG GÓÐS NÝÁRS! 1
Þökkum viðskiptin á líðandi ári. -
= iiiii 1111111111111111111111111111111111 iiiii■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiiiiiiiiiiiIII|||| ..
Kvenfélag Alþýðuflokksins á Isafirði |
| óskar öllum meðlimum sínum |
GLEÐILEGRA JÓLA OG GÖÐS NÝÁRS.
^llllillllllllllllllllIIIIIIIilIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllIillllllllHIIlli =
1 GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NITT ÁR! 1
= Alþýðuflokksfélag Isafjarðar.
! [iiiiriiíiiiiiiiiiiiiiíiíiiiiiiii (iijiiiiiMÉiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiif itiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii ■
NORÐURPÖLLINN ;
óskar öllum viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla ■
| og farsæls komandi árs.
| Þökkum viðskiptin á líðandi ári. |
- illiliiii.iiiliiiiiiiiiiiililiiriiiiiiiiiiiillilliiliiiiiiiiiniilliiliiliiliiiiiliiliiliiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiliiliiliiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiii _
HRAÐFRYSTIHÚSIÐ H.F., Hnífsdal
| óskar öllu starfsfólki sínu og viðskiptavinum |
| GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLS NÝÁRS!
^'lltllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllltlllllllltlllllllllllllllllllltllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll S
KAUPFÉLAG ISFIRÐINGA
| flytur öllum félagsmönnum sínum, og öðrum viðskiptavinum, |
| beztu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. i
| Þökkum viðskiptin á líðandi ári. ;
ll■llllllllllllll■llllllllpllllllll■llllllllllllllllllllílllllllllll■ll■lllllllllll■lllllllllllllllllllllllllllll||||||||l||||||||ll)|ill||||||||||||||||||||||||