Skutull

Ukioqatigiit

Skutull - 24.12.1953, Qupperneq 13

Skutull - 24.12.1953, Qupperneq 13
SKUTULL 13 Þakkarorð. Fyrir hönd móður minnar, syst- kina og nánustu aðstandenda vil ég færa söfnuðum Isafjarðar- prestakalls einlægar þakliir fyrir samúðina, er þeir sýndu á svo margan hátt, er faðir minn, bisk- upinn yfir Islandi, lézt og var jarðsunginn frá Dómkirkjunni. — Sérstaklega þökkum vér yður fyr- ir þá virðulegu athöfn, sem fór fram í ísafjarðarkirkju til minn- ingar um hann. — Þegar syrtir, og sorgin kemur, er gott að finna og eiga samúðar- hug og skilning þeirra, er nær standa. — Isfirðingar og Hnífs- dælingar hafa alla tíð verið hjarta voru nær. Á Isafirði var dvalið í svo mörg ár, þar liðu flest starfs- ár föður míns, og þaðan er kom- inn dýr sjóður minninga um ham- ingjusamar stundir. — Enda þótt Isafjörður væri kvaddur og faðir minn tæki við hinu veglega biskupsembætti þjóð- arinnar, hvarflaði hugur hans marga stundina til safnaðanna vestra, fólksins, sem honum þótti svo vænt um og hann hafði þjón- að svo lengi. — Vér erum yður þakklát fyrir virðinguna, sem þér hafið sýnt minningu hans. — Pétur Sigurgeirsson. -------O-------- ■ llllllllllllllllllMllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllIlllllllllllllllllIllllllllllllllllllllllllllIllllllllllllllllllíÍIIIIIIIIllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllKIIIIIIIIllltlllllllIlllllllllillllB ÍSLENDINGART | Árið um kring halda skip vor uppi reglubundnum samgöngum á milli hinna | dreifðu liafna á landinu, og yfir veturinn eru þetta oft einu samgöngutækin, sem fólk getur treyst til að skila farþegum og farmi heilum og óskemmdum í | höfn. Þess á milli eru fjölþættir möguleikar til flutninga, sem fela þó ekki í sér neitt varanlegt öryggi um samgöngur, og er það því hagsmunamál landsbúa sjálfra að beina sem mest viðskiptum til vor. Með því styðja þeir og styrkja | þjónustustarf vort og stuðla að því, að það geti aukizt og batnað. Taxtar vorir fyrir vöruflutninga eru yfirleitt án tillits til vegarlengdar, þar | eð þjónusta vor miðar að því að jafna nokkuð aðstöðu landsbúa til samgangna, | og er þess vænzt, að þeir, sem betur eru settir varðandi samgöngur, skilji þetta og meti. Skip vor eru traust og vel búin og skipshafnirnar þaulæfðar, og er | þetta mikils virði fyrir viðskiptamennina, enda viðurkennt af tryggingarfélög- | unum, sem reikna þeim, er vátryggja, lægsta iðgjald fyrir vörur sendar með | skipum vorum. Þetta fyrirtæki er eign stærsta félagsins á landinu, þjóðfélagsins. Sumuin finnst það félag svo stórt, að þeir finna vart til skyldleika eða tengsla við það, | en sá hugsunarháttur þarf að breytast. | SKIPAÚTGERÐ RIKISINS. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIMIMIÍIIIIIIIIIIIIIIMIMIMIIIIIIIMIIIIIIIMIMIMIMIMIMIMIMIMIIIIMEIIIMIIIIIIIIIIIIIMIMIMIIIIMIMIIIIMIMIMIMIMIMIIIIIIIIIIIIMIMIIIIMIMIIIIMIIIIMIMIMIIIIIIIMIMIMIMIIIIMIMIM Baðvarðarstaða kvenmanns, við Sundliöll Isafjarðar, er hér með auglýst til um- sóknar. Urasóknarfrestur er til 31. desember. Nánari upplýsingar fást í bæjarskrifstoíunni. ísafirði, 10. desember 1953. BÆJARSTJÓRI. MIÐSTÖÐVARKATLAR, olíukynntir og brennarar oftast fyrirliggjandi. OLIUGEYMAR smíðaðir eftir pöntun. Reynið viðskiptin. VÉLSMIÐJAN ÞÓR H.F. ÍSAFIRÐI. Sími 41 og 111. Styrktarsjóðir stéttarfélaganna: Áramótadansleikir stéttarfélaganna verða sem hér segir: í ALÞÝÐUHÚSINU, nýju dansarnir. I I.O.G.T.-húsinu, g'ömlu dansarnir. Dansleikirnir hefjast kl. 12 á miðnætti, gamlárskvöld. Aðgöngumiðar verða seldir í húsunum sama dag kl,4-6. Verð aðgöngumiða kr. 25,00. Isfirðingar! Skemmtið ykkur á áramótadansleikjum stéttarfélaganna. Styrktarsjóðirnir. IIIIMIMIIIKIIIIIIIIIlllIllllilKIIIIIMIIIIIIIMIIIIIIIMIMIMIMKIIIIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIMIMIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIh

x

Skutull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.