Skutull - 13.11.1954, Qupperneq 4
4
S K U T U LL
Bæjarmálaspjall
snýr að sjálfstæðismönnum sjálf-
um og þeirra bæjarfulltrúum.
Eða hafa kannske engir bæjar-
fulltrúar þeirra, varamenn eða
aðalmenn, tekið að sér verk fyrir
bæinn og bæjarstofnanir?
Vesturland virðist boða það nú,
að slík verktaka bæjarfulltrúa sé
óviðurkvæmileg, en það mundi
þýða sama sem það, að eftirleiðis
mundu engir iðnaðarmenn gefa
kost á sér í bæjarstjórn, og ætti,
samkvæmt þessu, einn aðalfulltrúi
þeirra fyrstur manna að segja af
sér. Verður þetta tilskrif þannig
að skoðast sem óbein vísbending
frá Matthíasi til Marsellíusar,
augsýnilega í þeim tilgangi gerð
að hinn fyrnefndi fái aukin völd
með því að færa, t.d. Alla Kalla,
upp í sæti Marsellíusar. Mundi
þó margur sjálfstæðismaðurinn
segja, að völd Matthíasar í
flokknum væru nógu mikil fyrir,
en Skutull segir bara: Þeir um
það.
En tekið skal fram, að sjálf-
stæðismenn þurfa ekki að halda
það, að það séu aðeins í þeirra
flokki vel færir menn, sem geti
tekið að sér verk fyrir bæinn og
bæjarstofnanir á ýmsum sviðum.
Það er alveg sama hvaða flokki
slíkir menn tilheyra. Ef þeim er
á annað borð treyst fyrir verkinu,
þá er þess eins að gæta í samn-
ingum við þá af hálfu bæjar-
stjómar, að hagsmunir bæjarins
og bæjarstofnana séu ekki fyrir
borð bomir. Það er eingöngu, þeg-
ar þetta hefir þótt við brenna hjá
sjálfstæðismönnum, sem þeir hafa
verið gagnrýndir hér í blaðinu
fyrir að semja um verk við M.
Bemharsson, en aldrei fyrir það
eitt að hann væri sjálfstæðis-
maður.
Þá er nú nóg komið um þetta
atriði, en vonandi fá verkamenn
bæjarins bráðum að njóta ylsins
frá miðstöðinni, sem bæjarfulltrú-
anum Marsellíusi Bemharðssyni
hefir verið falið að leggja í
verkamannaskýlið.
Austurvöllur.
Það fer ekki fremur venju mik-
ið fyrir heilindum sjálfstæðis-
manna í afstöðu þeirra til Austur-
vallar. Fyrst greiða þeir atkvæði
í bæjarstjórn með því að skipu-
leggja völlinn samkvæmt teikn-
ingu Jóns Bjömssonar, skrúð-
garðaarkitekts, en síðan hrópa
þeir upp í blaði sínu um þann
kostnað, sem þessi samþykkt hef-
ir i för með sér og óhjákvæmi-
lega hlýtur að verða talsverður.
En það eru fleiri aðilar en bæjar-
stjóm, sem hug hafa á þessu
máli, og ber þar fyrst að nefna
kvenfélögin 1 bænum, sem boðið
hafa fram aðstoð sína við fegrun
vallarins. Þessi samtök munu
i Framhald af 1. síðu.
ekki láta nein íhaldsóp aftra sér
frá því að fylgja málinu eftir,
og koma vellinum í rækt eins og
ákveðið hefir verið, þannig að
bæjarbúar eignist þarna fagran
reit, er verði bænum til sóma og
prýði.
Barnaskólinn.
í sumar hefir farið fram við-
gerð og endumýjun á barnaskóla-
húsinu, en raunar hefði sú við-
gerð löngu þurft að vera fram-
kvæmd, þar sem viðhaldi skólans
hefir verið ábótavant árum saman,
enda útlit skólans slíkt, að alls
ekki var lengur við það unandi.
Það hefir verið skipt um gólf-
dúka, stiginn smíðaður að nýju,
kennslustofurnar strigaklæddar og
málaðar í hólf og gólf, veggir á
efri gangi og meðfram stiganum
og í innri forstofu, klæddir með
birkikrossviði og málaðir.
Hreinlætisherbergjum algerlega
breytt og sett ný salerni og kom-
ið fyrir fjórum handlaugum. Raf-
lagnir endurnýjaðar og sett upp
fluorecentljós í kennslustofur og
á ganga. Nýjar veggtöflur hafa
verið settar upp.
Til að afstýra hættu af eldi,
verða settar nýjar útgöngudyr á
forstofuna, auk þess hefir hurð-
um , sem áður féllu inn, verið
snúið, þá er miðstöðvarherbergið
klætt innan með asbestplötum,
svo og bak stigans, sem liggur
upp á efri hæðina.
Auk þess verður settur neyðar-
útgangur af efri hæðinni út á
forstofuþakið, en þar verða settar
svalir með traustum og smekk-
legum járngrindum umhverfis og
ofan af svölunum verður breiður
og góður stigi.
Eftir þessar gagngerðu endur-
bætur verður húsið alveg óþekkj-
anlegt og eins og nýtt og mjög
vistlegt og stendur fáum skóla-
húsum landsins að baki hvað
innra útlit snertir.
Þar sem viðgerðinni á skólahús-
inu var ekki að fullu lokið þegar
aðalskólinn átti að byrja þ.e.a.s.
um mánaðamótin sept. okt., voru
börnin kölluð saman í Alþýðu-
húsinu 4. okt. s.l. og skólaskoðun
fór fram í íþróttahúsinu dagana
6.—9. f.m. Kennsla hófst 25. okt.
---------O--------
GÓÐIR ÍSFIRDINGAR.
Úrslit samnorrænu sundkeppn-
innar voru tilkynnt um síðustu
mánaðamót. Var frammistaða ís-
lendinga þeim til hins mesta
sóma, en alls syntu 38254, eða
25,2% landsmanna.
Við viljum færa bæjarbúum
þakkir fyrir ágæta þátttöku í
sundkeppni þessari, en alls syntu
1045 eða 38,2% ísfirðinga. Varð
Isafjörður þriðji hæsti af kaup-
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Guðjóns Jóhanns Bjarnasonar.
Vandamenn.
Auglýsing um lögtak.
Lögtak hefur verið úrskurðað fyrir ógreiddum útsvörum, fasteigna-
skatti, vatnsskatti, lóðaleigu og erfðafestugjöldum til bæjarsjóðs Isa-
fjarðar fyrir árið 1954. Samkvæmt úrskurðinum má lögtak fara fram
fyrir gjöldum þessum eftir að átta dagar eru liðnir frá birtingu
þessarar auglýsingar.
Skrifstofa bæjarstjórans á Isafirði
4. nóvember 1954.
Auglýsing um lausar stöður.
Tvær stúlkur óskast til baðvörzlu við Sundhöll Isafjarðar. Umsóknar-
frestur er til 15. nóvember n.k. Umsóknir ber að afhenda á bæjar-
skrifstöfuna.
ísafirði, 23. október 1954.
BÆJARSTJ ÓRI.
Orðsending.
Tekið á móti brunatryggingaiðgjöldum í skrifstofu Samvinnufélagsins,
kaupfélagshúsinu, alla virka daga kl. 4—7 e.h. Einnig á öðrum tímum,
ef óskað er.
Gjalddagi iðgjaldanna var 15. október s.l. og eru tryggjendur vin-
samlega ámiimtir um að greiða þau hið allra fyrsta.
F.h. Brunabótafélags lslands
Birgir Finnsson,
umboðsmaður.
Alþýðuflokksfólk.
Munið fyrsta spilalcvöld vetrarins í Alþýðuhúskjallaranum á morgun.
— Byrjað kl. 21. — Hljómsveit Villa Valla.
SKEMMTINEFNDIN.
HUSNÆÐI!
Herbergi óskast nú þegar til
leigu, má vera kjallaraherbergi.
Upplýsingar gefur Sigurður
Jóhannsson, Smiðjugötu 9.
stöðum og sýslum landsins. Við
sigruðum með miklum yfirburð-
um í héraðakeppni við Vest-
mannaeyinga og Siglfirðinga, sem
efnt hafði verið til, þar sem bæir
þessir eru svipaðir að stærð og
aðstöðu. Ætti þessi árangur að
vera bæjarbúum ánægjuefni.
Þá viljum við færa þeim Gísla
Kristjánssyni, Maríu Gunnarsdótt-
ur og Konráði Jakobssyni þakk-
læti fyrir ötula forustu og ó-
eigingjarnt starf er þau stjórn-
uðu sundt eppninni hér í ba.-.
íþrottabandalag Isfirðir.ga.
Nýkomnir 6 volta rafgeymar
120 og 135 ampertíma.
RAF li.f. Isafirði.
Höfum nú fengið hringfluore-
sentljós fyrir eldhús.
RAF h.f. lsafirði.
Höfum nú fengið aftur hina
viðurkenndu Linnschift hringofna
til að baka og steikja í.
RAF h.f. Isafirði.
Nýkomið: Vöflujárn, hraðsuðu-
katlar, straujárn, hitapokar,
vasaljósabatterí, — ásamt ýmsu
fleiru.
RAF h.f. Isafirði.
J E P P I til sölu.
Jón Jónsson, Hafnarstræti 33.