Skutull - 08.06.1956, Page 1
XXXTV. árgangur. ísafjörður 8. júní 1956.
11.— 12.. tölublað.
VEKKAFÓLK!
Ný kaupgjaldsskrá er
komin út.
Hún er afgreidd í skrif-
stofu félagsins.
V.I.Í. Baldur.
Aki Jakobsson gerir npp reikningana við kommnnista
í ýtarlegri og athyglisverðri grein, sem Áki
Jakobsson, fyrrverandi alþingismaður og ráð-
herra og um langt skeið miðstjórnarmaður í
Sósíalistaflokknum, birti í „Neista“, blaði Al-
þýðuflokksins á Siglufirði, segir hann frá at-
burðum þem, sem leiddu til þess að hann sagði
sig úr Sósíalistaflokknum vegna einræðis og
ofríkis Einars Olgeirssonar og Brynjólfs
Bjarnasonar.
Einnig gerir Áki grein fyrir því, hvers
vegna hann er nú í framboði fyrir Alþýðu-
flokkinn í Siglufirði.
Niðurstaða hans er sú, að Alþýðuflokkurinn
sé betur til þess fallinn en aðrir flokkar að
beita sér fyrir lausn á efnahagsmálum þjóðar-
innar æsingalaust og af réttsýni.
Ennfremur, að bandalag Alþýðuflokksins
og Framsóknarflokksins sé eina alvarlega til-
raunin, sem gerð hefir verið í mörg ár ti þess
að skapa meirihluta á Alþingi, sem sé þess
umkominn að leysa vandamál þau, sem þjóðin
hefir átt við að stríða á sviði atvinnu- og
efnahagsmála.
(Sökum rúmleysis í blaðinu er ekki unnt að
birta greinina í heild og verða því aðeins birt-
ir helztu hlutar hennar).
Nokknr orð til Norður-
ísfirðinpa.
Þegar þess var farið á leit við
mig, að ég gæfi kost á mér til
framboðs í N-lsafjarðarsýslu í
kosningunum í sumar, var mér
helzt í hug að hafna því boði. Ég
hafði enga löngun til þess að taka
beinan þátt í stjórnmálum að sinni,
þó að ég hafi um alllangt skeið lát-
ið mig landsmál nokkru skipta.
En við nánari athugun, og eft-
ir að hafa talað við f jölmarga sýsl-
unga mína úr öllum stjórnmála-
flokkum, ákvað ég að taka boðinu
og bjóða mig fram fyrir Alþýðu-
flokkinn, með fullum stuðningi
Framsóknarflokksins. Ástæður
þær, sem lágu til grundvallar
ákvörðun minni, voru fyrst og
fremst þær, sem nú skal greina:
Engin sýsla á landinu hefur ver-
ið eins afskipt og N-ísafjarðar-
sýsla, hvað snertir aðstoð frá rík-
isvaldsins hálfu til að halda uppi
viðunandi Iífskjörum fólksins, at-
vinnu handa þeim, sem vilja og
geta unnið, bættum samgöngum
og yfirleitt þeim hlutum, sem óhjá-
kvæmilegir eru í nútíma þjóðfé-
lagi. Mér fannst það skylda mín
að leggja krafta mína fram til við-
reisnar heimabyggð minni, þó að
örlögin hafi hagað því svo, að ég
hef um skeið verið búsettur fjarri
átthögunum.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur
haft veg og vanda af kjördæminu
s.l. fjórtán ár, hefur gersamlega
brugðizt og þingmaður hans sýnt
dæmalaust skeytingarleysi um
velferð sýslunnar. Er þetta nú við-
urkennt af fylgismönnum allra
flokka, jafnt þeim, sem eru per-
sónulegir vinir þingmannsins, en
þeir eru margir.
Það er því ekki um annað að
ræða en að skipta um þingmann í
kosningunum í sumar og gefa nýj-
um kröftum tækifæri til þess að
reyna sig í glímunni við vandarnái-
in í samræmi við samstillta krafta
héraðsbúa sjálfra.
Æ fleirum verður það nú ljóst,
að samvinna Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins, er líklegasta
tækifærið til þess að mynda ríkis-
Friðfinnur Ólafsson.
stjórn, sem vinnur með hagsmuni
dreifbýlisins ekki síður en byggð-
anna við Faxaflóa fyrir augum.
Ég er því þeirrar skoðunar, að
Norður-ísfirðingar eigi nú að
stuðla að því með atkvæði sínu, að
unnt verði að mynda slíka ríkis-
stjóm, en það verður ekki gert á
annan hátt en mér sé falið þing-
mennskuumboðið í sýslunni.
Ég tel ekki viðeigandi að vera
hér með nein kosningaloforð, en vil
þó heita kjósendum því að sofna
ekki á verðinum fyrir hagsmunum
þeirra og héraðsins, verði ég kos-
inn á þing. Mér er ljós nauðsyn
þess, að myndarlega þarf að taka
til höndunum og margvíslegar ráð-
stafanir þarf að gera, ef ekki á
illa að fara.
Ekki þarf að fara mörgum orð-
um um sprengiframboð Þjóðvarn-
arflokksins og kommúnista. Öllum
er ljóst, að það er sama og nota
atkvæðakassana fyrir bréfakörfu
að kasta atkvæði á þá flokka í
Norður-lsafjarðarsýslu. Baráttan
stendur um það, hvort sinnuleysi
íhaldsins á að ríkja áfram í sýsl-
unni eða ekki, hún stendur um það,
hvort meirihlutinn vill frjálslynda
umbótastjórn eða íhaldsstjórn
sama marki brennda og allar aðr-
ar íhaldsstjórnir og þá, sem Is-
lendingar hafa nú fengið sig full-
sadda af.
Góðir Norður-ísfirðingar. Ég
Framhald á 2. síðu.
Skoðanaágreiningur.
í upphafi greinarinnar rekur Áki
Jakobsson að ýmsir eldri stuðn-
ingsmenn hans í Siglufirði hafi lát-
ið sér koma á óvart framboð hans
fyrir Alþýðuflokkinn, og minnir á,
að hann hafi ekki gert opinberlega
grein fyrir því, hvers vegna hann
sagði skilið við flokkinn haustið
1953. En ástæðan hafi ekki verið
deila við siglfirzka sósíalista held-
ur skoðanalegur ágreiningur við
Brynjólf og Einar.
„Samvirk stjórn“
Einars og Brynjólfs.
„ . . . Þeir Brynjólfur og Einar
hafa einir algerlega markað stefnu
Sósíalistaflokksins á undanförnum
árum og töldu sig ekki þurfa að
hafa samráð við aðra í því efni.
Völd þeirra í flokknum hafa mátt
sín meira en flokksþing og mið-
stjórn flokksins og hver sá, sem
hreyfir andmælum gegn skoðun-
um þeirra og vilja, er talinn and-
vígur flokknum. Meðan Sigfúsar
Sigurhjartarsonar naut við, sáu
þeir Brynjólfur og Einar sér ekki
annað fært en að taka tillit til
hans skoðanalega og þorðu heldur
ekki eins til við þá menn, er voru
þeim ósammála. En þegar Sigfús
féll frá, breyttist þetta og sneru
þeir Brynjólfur og Einar sér' þá
að því með oddi og egg að tryggja
sér alger yfirráð í flokknum og
ýta þeim til hliðar, sem kynnu að
verða þeim einhver þröskuldur á
þeirri braut. Ráðstafanir voru
gerðar af hálfu þeirra til þess að
hafa áhrif á skipun flokksþings,
hverjir yrðu kosnir í flokksstjórn,
miðstjóm og framkvæmdanefnd
flokksins eða ráðnir við blað
flokksins. Leituðust þeir Brynjólf-
ur og Einar við að hafa þá menn
eina í þessum störfum, sem þeir
töldu sig geta treyst að fylgdu
þeim að málum, ef í odda skærist".
Abyrgðarleysi, ofstæki og
kreddufesta.
„Ég hafði lengi verið mjög
óánægður með stefnu þeirra Brynj-
ólfs og Einars og var raunar ekki
einn um það, t. d. vorum við Sig-
fús heitinn Sigurhjartarson oft
sammála. Ég taldi þá marka
flokknum neikvæða stefnu,
sem einkenndist af óraunsæi og
Framhald á 2. síðu.