Skutull - 10.01.1962, Side 4
4
SKUTULL
llýir vcrkiiriianaliúMaðir
á hfirði
t— ......... •>
SKUTULL
Úlgefandi:
Alþýðuflokkurinn á Isafirði
Ábyrgðarmaður:
Birgir Finnsson
Neðstakaupstað, Isaf. — Sími 13
Innheimtumaður:
Haraldur Jónsson
Þvergötu 3, ísafiröi
-
„Mér leiðist þú“
1 TVEIMUR blöðum Vesturlands,
sem út hafa komið fyrir skömmu,
er hægt að finna afkáralegustu
tilburði til blaðamennsku á Islandi
fyrr og síðar, og er þó þar af
ýmsu að taka.
Tilburðir þessa b-blaðamanns,
sem nú hefur tekið að sér að skrifa
Vesturlandið, eru í stuttu máli á
þessa leið:
£ Hann reynir að sýna manna-
mannalæti, en þau reynast aðeins
lélegustu strákapör.
^ Þá reynir hann að bregða
fyrir sig lögspeki, en þar reynist
þá botninn vera suður í Borgar-
firði, svo að fáfræðin, krydduð til-
heyrandi ósannindum og blekking-
um, lekur niður síður blaðsins,
eins og lapþunnur hafragrautur.
Síðan reynir aumingja mað-
urinn að vera fyndinn, en þar fer
allt á sömu leið og áður. Útkoman
verður sviplaus geðvonzka og fýla.
£ Mest er þó áberandi, hve b-
maðurinn gerir margar tilraunir
til að skammast. Sú íþrótt hefur
löngum verið talin láta íslenzkum
blöðum vel, — ekki sízt Vestur-
landi. En þetta vesalings blað er
jafnvel svo illa komið í höndum
nýja blaðamannsins, að það getur
ekki einusinn flutt hressilegar
skammir, heldur aðeins lágkúru-
legt og hundleiðinlegt nöldur eða
þá í annan stað ruddalegustu fúk-
yrði.
Þessar háskóluðu og ,,fínu“
skammir hljóða til dæmis á þessa
leið:
£ Bæjarfulltrúar meirihlutans
eru ,,landsfífl.“
Og orðrétt úr síðasta Vestur-
landi:
0 ,,Það er ýmislegt líkt með
óaldarflokknum „Rauða höndin“ á
ítalíu og bæjarstjómarmeirihlut-
anum á ísafirði. — Til dæmis
valda báðir fólksfækkun. —“
g) Það er ekki víst, að lesend-
ur hafi áttað sig á þessum smekk-
lega samanburði, af því að þeir
eru svo blessunar fjarlægir glæpa-
mannasamtökum stórþjóðanna úti
í heimi, og Skutull er svo fáfróð-
ur, að hann veit hreint ekki neitt
um þessa ítölsku kunningja Vest-
urlands. Hinsvegar gefur blaðið í
BYGGINGARFÉLAG verkamanna
hefur að undanförnu haft í smíð-
um 12 íbúða hús við Fjarðarstræti,
norðan við núverandi íþróttavöll.
Er þetta fyrsta húsið, sem byggt
er í nýlega skipulögðu hverfi, þar
sem byggja á alis 90 íbúðir
Ibúðir Byggingafélags verka-
manna í hinu nýja húsi þess voru
allar teknar í notkun fyrir jólin.
Eru sex þeirra fjögurra herbergja
um 108 fermetrar auk geymslu, en
sex hafa sama herbergjafjölda, en
eru nokkru minni, eða um 100 fer-
metrar auk geymslu.
1 kjallara er sameiginlegt
þvottahús, straustofa og reiðhjóla-
og bamavagnageymslur. Húsið er
steinsteypt, mjög vel einangrað og
tvöfalt gler í öllum gluggum. Ein
kynding er fyrir allt húsið, en hita-
stillingar og hitamælar fyrir
hverja íbúð.
Húsið er þrjár hæðir og kjallari.
Á því eru tveir inngangar og eru
sex íbúðir um hvorn inngang.
Kostnaðarverð íbúðanna mun
verða um 400 þúsund krónur. Yfir-
smiður var Ágúst Guðmundsson,
húsasmíðameistari, en teikningar
skyn, að hér sé um venjuleg glæpa-
samtök að ræða, sem þá auðvitað
stunda m.a. eiturlyfjasmygl, laun-
morð og barnarán í fjárkúgunar-
skyni.
Hér þarf svo engu við að bæta,
enda nennir Skutull ekki að eyða
meira rúmi á þessar ritsmíðar b-
mannsins.
„Mér leiðist þú“, sagði oft kunn-
ur ísfirðingur við kunningja sína,
þegar því var að skipta.
Þessi Isfirðingur er látinn fyrir
mörgum árum, en orðtæki hans
lifir, og eldri bæjarbúar muna
meira að segja tóninn, sem fylgdi
þeim, — Það var vingjarnlegur
vorkunnartónn.
Lesendur Vesturlands ljúka allir
upp einum munni um þessar mund-
ir og segja í sama tóni og gamli
maðurinn:
„Mér leiðist þú“.
Fólksflutninginn
úr bænum ætlar Skutull að ræða
í næsta blaði.
Það er alvarlegt íhugunarefni,
jafnvel þótt það stafi ekki af
skipulögðum mannvígum, eins og
litla béið í Vesturlandi hefur gefið
í skyn.
voru fengnar frá Húsnæðismála-
stofnun ríkisins.
Tuttugu og fimm ára.
Byggingafélag verkamanna á
Isafirði hefur starfað í um það
bil aldarfjórðung og alls byggt
þrjú hús með 46 íbúðum. Eldri
húsin eru með 16 íbúðum og 18 í-
búðum hvort. Er nú mikil eftir-
spurn eftir íbúðum á vegum fé-
lagsins og hefur það hug á að
halda áfram byggingum á hinu ný-
lega skipulagða íbúðarhúsahverfi
milli Fjarðarstrætis og Eyrargötu.
Fyrsti formaður félagsins var
Guðmundur G. Kristjánsson, skrif-
stofustjóri hjá Rafveitu ísafjarð-
ar, og sá hann um byggingu fyrsta
húss félagsins, sem er við Grund-
götu. Næsti formaður var Jón
Guðjónsson, bæjarstjóri, og hafði
hann umsjón með húsbyggingu fé-
lagsins við Hlíðarveg, en núver-
andi formaður er Rafn Gestsson,
bankaritari, og hefur hann haft
umsjón með byggingu hússins við
Fjarðarstræti. Yfirsmiður við eldri
húsin bæði var hinn kunni húsa-
smíðameistari Jón heitinn Sig-
mundsson. Hafa þau hús reynzt
afbragðs vel.
★
Hryiileift slys
Á gamlársdag skeði það hörmu-
lega slys á ísafirði, að 10 ára
telpa, Helga María, dóttir hjón-
anna Finnborgar Jónsdóttur og
Friðriks Bjarnasonar, málara-
meistara, slasaðist á skíðasleða og
beið bana af.
Svo virðist sem telpan hafi
misst stjórn á sleðanum, og skall
hann á fleygiferð á steinsteyptan
ljósastaur, en við það varð telpan
fyrir áverka af öðru dragjárni
sleðans með framangreindum af-
leiðingum.
Telpan var nærri samstundis
flutt á sjúkrahúsið, þar sem hún
lézt eftir stutta stund.
Jarðarför hennar var gerð frá
ísafjarðarkirkju 6. janúar.
Mikið fjölmenni fylgdi litlu
telpunni til hinztu hvílu, þar á
meðal bekkjarsytskini hennar í
einum hóp.
Nemendur í 1. bekk Gagnfræða-
skólans sungu Ó, Jesú bróðir bezti
við jarðarförina.
Blaðið vottar foreldrunum
dýpstu samúð, vegna þessa skyndi-
lega og sorglega atburðar.
ÚTFÆRSLA íslenzkra fiskveiði-
takmarka hefur löngum verið
þyrnir í augum togaraútgerðar-
manna hér á landi, enda þótt þeir
hafi ekki mikið látið á sér bera í
því efni.
Þessi afstaða þeirra til land-
helgismálsins er mjög skiljanleg
að vissu marki, þar sem aðstaða
íslenzkra togara til fiskveiða á
grunnslóðum er úr sögunni jafnt
og erlendra togskipa.
Það hefur nú heyrzt, að togara-
eigendur herði nú mjög róðurinn
í þá átt, að íslenzku togaramir fái
að fiska innan línunnar upp að 4
mílum. Hyggjast 'þeir geta með
slíkri ráðstöfun bjargað togara-
flotanum úr því aflaleysishallæri,
sem steðjar nú óneitanlega að
honum.
Slíkt tiltæki væri hinsvegar hið
mesta örþrifaráð, sem ekki kemur
til mála að grípa til, enda þótt um
framtíð togaraútgerðar á Islandi
væri að tefla.
-Ef ekki reynist unnt að finna
grundvöll fyrir togaraútgerð á Is-
landi utan fiskveiðitakmarkanna,
þá verðum við að leggja árar í bát
með þennan atvinnurekstur, enda.
þótt skarð verði fyrir skildi fyrst
um sinn.
Að hleypa íslenzkum togurum
inn að 4 mílum væri skaðleg og
skammsýn ráðstöfun og þar að
auki engin framtíðarlausn fyrir
togaraflotann.
Togaraútgerðarmenn verða
að gera sér ljóst, að slíkt kem-
ur ekki til mála.
★
Leiðrétting.
1 grein Birgis Finnssonar í jóla-
blaði Skutuls „Sameinuðu þjóðirn-
ar“ varð línubrengl. Þær setningar,
sem brengluðust, eiga að vera
þannig:
„Og óneitanlega hefur dofnað
yfir björtustu vonum, sem tengdar
voru við stofnunina í upphafi. . .“
„Hinsvegar er fengin reynsla fyrir
því í sambandi við umræður um
bann við notkun kjarnorkuvopna,
að Rússar hafa notað slíkar við-
ræður sem skálkaskjól til þess að
efla vígbúnað sinn, og þessvegna
er ef til vill ekki alltof mikið upp
úr því leggjandi, þótt nú verði
farið að ræða víðtækari afvopnun.
Orðin verða þó til alls fyrst, og
meðan viðræðum er haldið áfram,
má gera sér von um árangur."
í sömu grein slæddist einnig sú
villa, að upphaflega hafi aðildar-
ríki S.Þ. verið 61. Á að vera 51.
Þetta leiðréttist hér með.
★ ★ °