Skutull - 12.05.1962, Page 2
2
SKUTULL
„Þó er tðnnin eftir ein“
Frambaldssaga
VESTUBLANDS
K J ÓSEND AFUNDUR D-listans
var boðaður að Uppsölum síðastl.
fimmtudagskköld með miklum
glæsibrag. Skrautritaðar götuaug-
lýsingar með nöfnum ræðumanna
blöstu við vegfarendum og prent-
aðar auglýsingar voru bornar í
hvert hús í bænum. — En fyrir-
tækið misheppnaðist.
Bæjarbúar mættu ekki til fund-
arins.
Miili 20 og 30 sálir að ræðu-
mönnum meðtöldum sveimuðu
lengi vel um fundarsalinn, án þess
fundur hæfist.
Ljósmyndari var iþarna til stað-
ar að taka myndir af hinu glæsi-
lega fylgi listans!! Þær myndir
birtast sennilega í næsta Vestur-
landi, enda hefur blaðið búið til
framhaldssögu um þennan átakan-
lega fund eymdarinnar og von-
leysisins!
„Hverju reiddnsí
00ðin“
ÞAÐ ER SKILJANLEGT, að tals-
menn Matthíasar-listans eigi nú í
erfiðu sálarstríði vegna gjaldiþrots
ísfirðings h.f., svo mjög er þeim
það þungt í skauti.
Hitt er furðulegra og athyglis-
verðara, að helzta gremjuefni
þeirra félaga virðist vera það,
að bæjarfélagið hafi eliki tapað
nógu miklu á gjaidþrotinu.
Út af þessu, að bærinn skyldi ekki
tapa meiru en raun er á, eru þeir
bæði sárir og reiðir.
1 augum okkar, sem útsvörin
greiðum og lítum á hagsmuni bæj-
arins sem hagsmuni almennings og
okkar eigin hag, er þessi afstaða
ekki aðeins undarleg, heldur óaf-
sakanleg með öllu. Þetta sjónar-
mið gæti verið skiljanlegt frá
sjónarsviði f jármálamanna, sem
þyrftu að ná sem mestu upp í
milljónatöp, en svona geta alls
ekki bæjarfulltrúar hugsað, —
hvað þá látið slíkt uppskátt.
Hitt er öllum fsfirðingum ljóst,
að ef þessir félagar hefðu stjómað
■ ■
S K U T U L L
Cftgefa ndi:
Alþýðuflokkurinn á tsafirði
Ábyrgðarmaður:
fíirf/ir Finnsson
Neðstnknupstnð, Tsof. — Sími 13
Innheimtumaður:
Haraldur Jónsson
Þvrrgöhi 3, hnfiröi
•________________ J
ÉG SÉ ÞAÐ á Vesturlandi, sem út
kom í gærdag, að blaðið er eitthvað
sárt út í mig þessa dagana. Það
hefur því gripið til sinna gömlu
kjörvopna, og trúir því máske enn,
að ódrengskapur og rangar ásak-
anir geti styrkt vondan og von-
lausan málstað.
Vesturland segir: „að íþrótta-
menn hafi gengið á fund forráða-
manna Alþýðuhússins og óskað
eftir að fá leigða eina íbúð af
þremur á efstu hæð hússins".
Blaðið segir einnig, að tveir af
ráðamönnum hússins hafi tekið
beiðninni vel, en einn, -— þ.e. und-
irritaður, — hafi ekki mátt heyra
á það minnzt.
Um sannleiksgildi frásagnarinn-
ar veit ég ekki til fulls, nema hvað
mig sjálfan snertir. Engir fulltrú-
ar hafa á minn fund gengið þeirra
erinda, sem hér um ræðir. Auk
mín eru tveir af fjórum húsnefnd-
armönnum Alþýðuhússins í bæn-
um. Mér er kunnugt um, að ekkert
hefur verið við annan þeirra rætt,
hinn hefur ekki á þetta mál minnst
við mig, svo ekki virðist mikið
hafa verið til hans leitað um fyr-
irgreiðslu. Fjórði húsnefndarmað-
urinn hefur dvalið í vetur í Kefla-
vík, og geri ég ekki ráð fyrir, að
til hans hafi verið leitað.
Þess skal þó getið, að Friðrik
Bjarnason spurði mig að því
skömmu eftir áramótin síðustu,
hvort íbúð væri til leigu í Alþýðu-
Jíilíns lii'iriniiiiilssiiii
fyrrum bóndi að Atlastöðum í
I,''ljótavík andaðist í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu 6. þ.m.
Hann var fæddur 26. maí 1884
í Stakkadal í Sléttuhreppi. Á Atla-
stöðum bjó hann með konu sinni,
Guðrúnu Jónsdóttur, til ársins
1946, er þau fluttust til Isafjarðar,
þar sem hún lézt 1951.
Þau hjón eignuðust 12 böm, og
eru 10 þeirra á lífi. Tveir synir
þeirra eru búsettir hér í bæ, Þórð-
ur og Jóhann.
bænum s.l. 4 ár, að þá hefði bær-
inn tapað margfalt hærri upphæð
við gjaldþrotið. Þá hefðu forkólfar
Matthíasar-listans líka verið glað-
ari, en ekki er nú líklegt, að gjald-
endurnir í bænum hefðu samfagn-
að þeim félögum, því almenningur
hefði orðið að borga Isfirðings-
tapið.
Ekki einu sinni kjósendur Sjálf-
stæðisflokksins vilja taka á sig
slíkar greiðslur, jafnvel þótt þær
gætu eitthvað minnkað geðvonzk-
una í Vesturlandi.
húsinu. Sagði ég honum þá, að
húsnefndin hefði ákveðið, — á
fundi 6. jan. s.l. — að leigja ekki
íbúðarhúsnæði fyrst um sinn. Á-
stæðan er sú, að það kostar stórfé
að setja umrætt húsnæði í viðun-
andi horf, auk annarra áforma,
sem í athugun eru í sambandi við
hagnýtingu efstu hæðarinnar.
Fyrir ca. hálfum mánuði spurð-
ist Sigurður Jóhannsson fyrir um
það, hvort Friðrik Bjarnason
mætti athuga ákveðið húsnæði í
húsinu, og var það að sjálfsögðu
fúslega veitt, en Friðrik hefur enn
ekki látið sjá sig.
Þetta er sannleikur málsins,
enda kveðst Friðrik ekki hafa veitt
Vesturlandi neinar þær upplýsing-
ar, sem gætu gefið blaðinu ti'lefni
til þessa fréttaflutnings.
Það er því greinilegt, að hér eru
Vesturlandspiltamir sjálfir að
verki og hika hkki við í gremju-
fullu vonleysi sínu að vega að and-
stæðingum sínum á svona ó-
drengilegan hátt, svipur þeirra
segir til sín.
Furðufréttinni, að ég vilji leggja
niður íþróttakennslu í ísfirzkum
skólum, ætla ég alls ekki að svara,
enda er hún heimatilbúningur
þeirra Vesturlandsmanna. Enda
hygg ég, að framlag mitt til skóla-
málanna í bænum, bæði um það
atriði og önnur, jaifnist fyllilega
á við þeirra hlut í þeim málum,
enda þarf Iþar ekki mikið til.
Viö sliiran aíl sakasi
i VESTURLANDI í gær er þessi
broslega málsgrein: ,, — höfuð-
kjarninn í baráttu þeirra (þ. e.
samstarfsflokkanna) er, að úti-
loka stærsta flokkinn í bænum frá
því að hafa áhrif á bæjarmálin."!
Það mætti næstum skilja þessa
eymdarklausu þannig, að D-lista-
menn séu svo svartsýnir, að þeir
búist ekki einu sinni við að koma
einum fulltrúa inn í bæjarstjórn-
ina.
Eða hvað meina piltarnir? Ætl-
ast þeir til, að þeim verði færður
meirihlutinn í bæjarstjórn næstu
4 ár á silfurdiski og það meira að
segja fyrir kosningar?
Það geta engir flokkar útilokað
Matthíasarliðið úr bæjarstjórn.
Þeir einir, sem það geta gert, eru
kjósendumir í bænum, og þeir
munu vissulega hugsa sig tvisvar
um, áður en þeir fela Matthíasar-
liðinu umsjá og forræði bæjarfé-
lagsins næstu 4 árin.
Það var einu sinni gert og gafst
svo illa, að slíkt mun um langa
framtíð verða talið stórslys.
En lítilmannlegt er nú það að
ljúga upp slíkum fréttum í þeirri
von, að níðið kunni að bíta. Slíkur
verknaður dæmir sig sjálfur.
Björgvin Sighvatsson.
x H
Stuðningsfólk H-listans á
Isafirði er hvatt til þess að
kjósa hjá bæj arí'ógetanum,
ef það fer úr bænum og ger-
ir ráð fyrir að vera ekki
heima á kjördegi.
x H
Framhald af 1. síðu.
Og þess er skemmst að minnast,
að í vetur greiddi hann einn sjálf-
stæðismanna atkvæði með 425 þús.
króna lántöku, sem bæjarstjóri
útvegaði til malbikunar gatna.
Hinir voru með hundshaus yfir
því, að bæjarstjóra skyldi takast
að fá þetta lán og höfðu ekki geð
í sér til að samþykkja lántökuna.
Marsellíus er sjálfur athafna-
maður og stjórnar sínum rekstri
þannig, að allt er í röð og reglu
og stendur traustum fótum.
Hann mun því kunna vel að
mefca Jón Guðjónsson, bæjarstjóra,
sem um langt árabil hefur unnið
ómetanlegt starf fyrir bæjarfélag-
ið.
Hitt er svo annað mál, að
Marsellíus fær sjálfsagt ekki að
láta slíkar skoðanir uppi.
Það er ómetanlegt fyrir hvert
bæjarfélag að hafa traustan og
góðan bæjarstjóra eins og Jón
Guðjónsson, — mann sem er sí-
starfandi að velferðar- og fram-
faramálum bæjarins og kappkost-
ar að ávinna honum tiltrú og
traust innávið og útávið.
íhaldið hafði hér á sínum tíma
þrjá bæjarstjóra í röð, sem ekki
reyndust starfi sínu vaxnir, — og
því fór sem fór.
Jóni Guðjónssyni geta allir bæj-
arbúar treyst. Og hans störf meta
ailir sanngjarnir menn þeim mun
meira, sem þeir kynnast þeim bet-
ur. Hann er afburða starfsmaður
og bæjarfélaginu til mikils sóma.
Þess vegna er skynsamlegast fyrir
Matt-híasarliðið að leggja á hilluna
hinn ómaklega og andstyggilega
rógburð um bæjarstjórann, því iað
slíkur ódrengskapur mun hitta þá
sjálfa, en ekki bæjarstjórann.