Skutull - 18.05.1967, Blaðsíða 4
4
SKUTULL
Betrl afkoma fyrir aldraðra
Alþýðuflokkurinn hefur frá
öndverðu barizt fyrir ellilaun-
um. Okkur ber skylda til að
sjá vel fyrir því fólki, sem
hefur lagt fram fyrir þjóðina
ævistarf sitt og krafta. Mik-
ill árangur hefur náðst á þessu
sviði, og sérstaklega batnaði
Aflabrögðin...
Framhald af 6. síðu.
Súðavík 273 - ( 358 -)
8.767 1 ( 9.567 1)
Jan/marz 15.579 - (19.298-)
24.3461 (28.8651)
Rækjuveiðar á innanverðu
ísafjarðardjúpi voru stöðvað-
ar 16. apríl, en þá afturkall-
aði sjávarútvegsmálaráðuneyt
ið, að tillögu Hafrannsóknar-
stofnunarinnar, öll rækjuleyfi
fyrir þetta svæði. Frá sama
tima voru einnig stöðvaðar
rækjuveiðar í Arnarfirði.
Fram til þess tíma stunduðu
að jafnaði 23 bátar rækju-
veiðar í ísafjarðardjúpi, og
varð heildarafli þeirra í mán-
uðinum 127 lestir. Er heildar-
aflinn frá vertíðarbyrjun þá
orðinn 1060 lestir.
Aflahæstu bátamir voru:
Gissur hvíti 9.0 lestir, Mummi
8.6 lestir, Dynjandi 8.1 lest,
Þórveig 7.7 lestir og Hrím-
nir 7.0 lestir.
Nokkru fyrir mánaðarmótin
voru veitt leyfi til rækjuveiða
á utanverðu Isafjarðardjúpi,
utan línu, sem hugsast dregin
frá óshólum í Bjarnarnúp.
Einnig var leyft að veiða
rækju út af Vestfjörðum á
öllu svæðinu frá Drangaskörð
um á Húnaflóa, suður um að
Látrabjargi. Reyndu nokkrir
bátar í utanverðu Djúpinu og
Jökulfjörðunum, en fengu lít-
inn afla.
Frá Bíldudal voru gerðir
út 5 bátar til rækjuveiða, og
fengu þeir 25 lestir í mánuð-
inum. Varð heildarafli Bíldu-
dalsbáta frá vertíðarbyrjun
því 239 lestir. Aflahæst í
apríl var Freyja með 6.8
lestir.
Frá Drangsnesi vom gerðir
út 3 bátar til rækjuveiða og
öfluðu þeir alls 31 lest, Pól-
stjarnan 10.6 lestir, Smári
10.5 lestir og Sólrún 9.8 lestir.
Frá Hólmavík stunduðu 6
bátar rækjuveiðar og öfluðu
41 lest.
Aflahæstur var Guðmundur
frá Bæ með 8.1 lest.
hagur ellilaunþega eftir að
núverandi ríkisstjórn kom til
valda og Alþýðuflokkurinn
fékk framgengt stóraukningu
almannatrygginga.
Samt sem áður er ljóst, að
kjör gamla fólksins þurfa að
batna verulega. Núverandi
ellilaun eru aðeins áfangi á
langri leið. Framundan er að
bæta við nýju kerfi lífeyris
fyrir alla og tryggja hinum
öldruðu samborgurum jafn
góð lífskjör og þeir höfðu á
beztu starfsárum sínum.
Haraldur Guðmundsson,
fyrrverandi formaður Alþýðu
flokksins, þekkir trygginga-
mál öllum betur. Rikisstjómin
fékk hann, eftir að hann lét
af störfum ambassadors í
Osló, til að gera undirbúnings
athugun á lífeyrissjóði fyrir
alla landsmenn.
Haraldur taldi slíkt kerfi
tímabært. og Eggert G.
Þorsteinsson félagsmálaráð-
herra lagði skýrslu hans
fyrir Alþingi. Síðan var skip-
uð undirbúningsnefnd sér-
fróðra manna, sem vinnur að
málinu.
Líklega verður núverandi
ellilaunakerfi áfram, jafnt fyr
ir alla, eins konar grunntrygg
ing. Síðan bætist ofan á það
annar lífeyrir, sem verður
mismunandi eftir því, hver
laun fólks hafa verið á beztu
starfsárum þess, og hve mik-
ið það hefur greitt til kerfis-
ins. Takmarkið er, að allir
geti á þennan hátt tryggt
sér 60—70% af þeim tekjum,
sem þeir liöfðu í blóma líís-
ins, en það ætti að sjá fyrir
nokkum veginn óbreyttum
lífskjörum.
Þetta er mikið mál, sem
mundi gerbreyta hlutskipti
aldraðra og fjarlægja allar
áhyggjur vegna afkomu á elli-
árum. Þetta er eitt mesta
réttlætismál, sem Alþýðu-
flokkurinn hefur barizt fyrir.
Kerfið er ekki einfalt í fram
kvæmd og krefst mikilla fjár
muna. Það safnar gildum sjóð
um, sem nota má til lánveit-
inga, til þarfra mála, til dæm-
is íbúðabygginga. Þetta er
mál næstu framtíðar, mál Al-
þýðuflokksins. Til þess að
koma því í framkvæmd hér,
eins og á hinum Norðurlönd-
unum, þarf flokkurinn aukinn
stuðning og meiri styrk á AI-
þingi.
Með því að kjósa Alþýðu-
flokkinn stuðla kjósendur að
farsælli lausn þessa máls.
PAPPlR
PRENTUN
MYNDAMÓT
ISRUN HF.
TRYGGilMG
XÍm 1 v'nnu
JÆ í frítíma
/ H í ferOalögum
Trygging þessi er olmenn slysotrygging ó einstakling baeði við vinnu, í fritímo og ferðolögum. Hún er bundin
við ókveðið nofn og baetur þær, sem hægt er oð tryggja sér eru dónorbætur, örorkubætur og dogpeningo-
greiðslur í eitt ór. Hægf er oð fó mismunondi hóor upphæðir fyrir hvert fyrir sig, en dogpeningogreiðslur ætti
oð miða við þoð koup, sem viðkomondi verður of, ef honn er fró vinnu vegno slyss. Með slysotryggingu er
leitozt við oð létto fjórhogslego erfiðleiko, sem verða, ef fyrirvinno slosost og verður óvinnufær. Þetta er
frjóls trygging og koma bætur úr henni til viðbótor hugsonlegum bótum úr öðrum tryggingum.
‘ SLYSATRYGGING ER ÓDÝR, KOSTAR KR. 1500.00—2000.00 Á ÁRI, EFTIR ATVINNUGREINUM,
UPPHÆÐUM OG HVERSU VÍÐTÆK TRYGGINGIN A AÐ VERA.
LEITIÐ NANARI UPPLÝSINGA HJÁ AÐALSKRIFSTOFUNNI i REYKJAVÍK EÐA HJÁ UMBOÐS-
MONKIIJM ÚTI UM LAND
SAJMVirMMJTRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500
Dómur um kaupgjaldsgreiðslu-
skyldu i veikindaforfollum
Siglfirzkum verkamanni dæmt yfirvinnukaup
í veikindaforföllum, og’ dagvinnukaup samkvæmt
þeim taxta er hann hefði unnið eftir, ef hann
hefði starfað veikindatímann.
Hinn 16. jan. sl. kvað bæjar
fógetinn í Siglufirði, Elías
Elíasson, upp dóm í máli,
sem Siglfirzkur verkamaður,
Stefán heitinn Friðleifsson,
höfðaði árið 1964 gegn Síldar
verksmiðjum ríkisins vegna
ágreinings um skilning á lög
unum frá 1958 um greiðslur
kaups í veikinda- og slysa
tilfellum.
Tilefni málshöfðunarinnar
var það, að Stefán heitinn,
sem um langt skeið hafði
verið starfsmaður S.R., varð
fyrir slysi við vinnu haustið
1962, og var af þeim sökum
frá vinnu um tíma.
S.R. töldu sér bera að
greiða Stefáni 14 daga dag-
vinnukaup samkvæmt lág
markstaxta, en ekki meira.
Krafa hans var hins vegar, að
hann fengi þessa 14 daga
greidda samkvæmt þeim kaup
taxta, sem hann vann eftir
Erlent...
Framhald af 1. síðu
austan járntjalds, leita nú
eftir erlendu l'jármagni, sér-
þekkingu og tæknihjálp á ein-
hverjum sviðum eða í einhv.
íormi. Það væri fásinna af
íslendingum að notfæra sér
ekki þessa leið til framfara.
I þeim efnum eigum við að
koma fram sem frjálsir og
framsýnir menn, en hafna
minnimáttarkennd og einangr
unarstefnu.
Alþýðuflokkurinn hefur í
þessu máli vísað á bug öfgum
til beggja handa, en mótað
sér ábyrga, íslenzka stefnu,
sem þjóðin getur óhrædd til-
einkað sér.
þegar hann forfallaðist, og
fengi auk þess greidda yfir-
vinnu eins og vinnufélagar
hans fengu þennan tíma.
Dómur féll þannig, að S.R.
voru dæmdar til að greiða
stefnanda sama kaup og
vinnuflokkur hans fékk greitt
14 daga eftir slysið, eftir
sömu töxtum, og sömu yfir-
vinnu, auk vaxta og máls-
kostnaðar.
Dómsniðurstaðan byggist
á 4. grein áðumefndra laga
frá 1958, erí þar segir: „Fast-
ir starfsmenn og tíma- og
vikukaupsmenn, sem rétt eiga
á uppsagnarfresti skv. 1. gr.
laga þessara, skulu eigi missa
neins í af launum sínum, í
hverju sem þau eru greidd,
fyrstu 14 dagana eftir að
þeir forfallast frá vinnu sök-
um sjúkdóma eða slysa“.
Verkamannafélagið Þróttur
og verkal.fél. Vaka fóru með
rekstur málsins fyrir hönd
stefnanda, enda var til þess
stofnað að frumkvæði félag-
anna til að fá lagaúrskurð
um skilning á lögunum frá
1958.
Blaðinu er ekki kunnugt
um, hvort málinu verður af
hálfu S.R. áfrýjað til hæsta-
réttar, en ekki er það senni-
legt, þar sem hæstiréttur hef
ur þegar fellt hliðstæðan úr-
skurð.
Með þessum dómi, og öðr-
um, sem dæmdir hafa verið,
um skilning þessara laga,
mætti ætla, að bundinn væri
endir é deilu út af þeim. —
Hins vegar eru allar líkur á,
að bið verði á því að atvinnu-
rekendastéttin endurgreiði
þær fjárfúlgur, sem hún hef-
ur haldið eftir með því að
þrjóskast við að fara eftir
lögunum.
Laus staða
Staða aðstoðarmanns við héraðs- og bæjar-
bókasafn Isafjarðar er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. júní n.k.
Er hér um að ræða 1/2 til 2/3 af fullu starfi.
Eaun samkv. 18. launaflokki í hlutfalli við
starfsaldur og starfstíma.
Isafirði, 3. maí 1967.
BÆJARSTÓRI.