Skutull

Årgang

Skutull - 01.05.1968, Side 1

Skutull - 01.05.1968, Side 1
Enn einu sinni er hátíðlegur haldinn hinn alþjóðlegi baráttu- og hátíðisdagur frjálsrar verkalýðshreyfingar. Enn einu sinni flykkjast milljónir manna undir merki samtakanna. Brautryðjandanna er minnst, bar- áttu þeirra og fómfýsi, og þeirra sigra, er unnist hafa fyrir látlaust starf. Islenzk verkalýðshreyfing hefir nú starfað í liðlega hálfa öld. Hvarvetna í þjóðlífinu gætir áhrifa þessa starfs. Á engan er hallað þó fullyrt sé, að'án baráttu verkalýðshreyfingarinnar byggjum við ekki við það þjóðfélagslega öryggi, sem nú búum við. Þessari bar- áttu hefir verið haldið uppi á tveim vígstöðvum: Með löggjafarstarfsemi á Alþingi og beinni kjarabaráttu verkalýðsfélaganna. Það hefir verið gæfa verkalýðs- hreyfingarinnar, að hún hefir átt góðum forustumönn- um á að skipa, mönnum sem skildu eðli hennar og tilgang og voru þess umkomnir að leiða hagsmuna- málin farsællega til lykta. „Eðli verkalýðsbaráttunnar er ekki skyndiupphlaup, hávaðafundir og ævintýri, heldur markvíst, sleitulaust strit fyrir málefnunum sjálfum“, sagði hinn vitri for- ustumaður Jón Baldvinsson, einn mikilhæfasti leiðtogi, sem aðlþýðusamtökin hafa átt. Þessara orða minnumst við í dag, sem þess boðskapar sem bezt hefir dugað í baráttu íslenzkrar alþýðu fyrir betra þjóðfélagi. Og bezt vinnum við okkur með því að starfa áfram í anda þeirra, landi okkar og þjóð til heilla. Þrátt fyrir farsælt hálfrar aldar starf, á verka- lýðshreyfingin við fjölmörg og margvísleg verkefni að glíma. Starf slíkrar hreyfingar tekur ekld enda heldur skapast ný verkefni með nýjum tímum. Og eldri markmið og viðfangsefni breytast með nýjum þjóðfélagsháttum. Megin viðfangsefni frjálsrar verkalýðshreyfingar í dag eru því enn, sem fyrr, að stuðla að samháefingu efnahagsstarfseminnar á skynsamlegum grundvelli þannig að tryggt verði, að allt vinnuafl og hráefni sé hagnýtt í þjóðnýtri framleiðslu. Sérhverjum þjóð- félagsþegn sé tryggt að stunda hagnýta atvinnu. Enginn vinnufær maður eða kona á gegn vilja sínum að þurfa að vera atvinnulaus í lengri tíma en óhjá- kvæmilegt hlýtur að verða, þegar launþegi fer úr einum starfa í annann, eða hverfur frá vinnu til að fullnema sig og mennta. Kröfur verkalýðshreyfingarinnar í dag eru margar, þar eð margra úrbóta er þörf. Við krefjumst: Fullkomins atvinnuöryggis Mannsæmandi lífskjara af dagvinnu einni saman IJrbóta í húsnæðismálum svo fátt eitt sé nefnt af því, sem verkalýðshreyfingin berst fyrir. Á 1. maí verður ekki minnst, svo eltki sé hugurinn leiddur að friði og frelsi. Frjáls verkalýðshreyfing fordæmir alla kúgun og heftun mannlegs frelsis. I dag hugsum við því til þeirra, sem þrátt fyrir fram- farir tuttugustu aldarinnar búa við áþján skoðana- kúgunar og andlegs ófrelsis í hvívetna. Frjáls verka- lýðshreyfing fordæmir styrjaldir en hvetur til friðar og bræðralags þjóða á meðal. Frjáls verkalýðshreyfing fylkir sér því undir kjör- orðin Friflur - Frelsi - Bræðrala

x

Skutull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.