Skutull - 01.05.1968, Blaðsíða 5
SKUTULL
5
DREGIÐ í 1 FLOKKI
UM 300 STÓRVINNINGA
Snmaráætlun Flugfélagsins
Sumaráætlun Flugfélags fs-
lands gekk í gildi 1. apríl
sl. og breytast þá brottfarar-
og komutímar flugvélanna og
ferðum fjölgar. Sumaráætlun
in er að þessu sinni í þrem
áföngum og gildir sá fyrsti
frá 1. apríl til 31. maí. Á
þessu tímabili verða daglegar
ferðir til Bretlands og átta
ferðir í viku til Norðurlanda.
Til Kaupmannahafnar verða
ferðir alla daga og tvæ ferð-
ir á föstudögum. Til London
þriðjudaga og föstudaga. Til
Oslo föstudaga, til Bergen
þriðjudaga og föstudaga og
til Glasgow mánudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga, laug-
ardaga og sunnudaga. Til
Færeyja þriðjudaga og föstu-
daga.
Annar áfangi sumaráætlun-
ar hefst 1. júní og endar 30.
september. Þá verða í viku
hverri ferðir sem hér segir:
Til Kaupmannahafnar verða
flognar níu ferðir, til London
fimm ferðir, til Glasgow þrjár
ferðir, og til Oslo, Björgvinjar
og Færeyja tvær ferðir til
hvers staðar. Ferðirnar skipt-
ast þannig:
Til Kaupmannahafnar alla
daga en tvær ferðir á fimmtu-
dögum og föstudögum. Til
London á þriðjudögum, mið-
vikudögum, föstudögum, laug
ardögum og sunnudögum. Til
Oslo á þriðjudögum og föstu-
dögum. Til Færeyja og Berg-
en á þriðjudögum og föstudög
um.
Brottfarartímar til London
eru alla dága kl. 08,00. 1
ferðum til annarra ákvörðun-
arstaða er hægt að velja um
brottfarir að morgni til eða
síðdegis.
Þriðji áfangi sumaráætlun-
ar er svo októbermánuður. Þá
hefir ferðum fækkað og verða
með svipuðu sniði og í fyrsta
áfanga. Þá verða daglegar
ferðir til Bretlands og átta
ferðir til Norðurlanda. At-
hygli skal vakin á því, að
milli íslands og Færeyja eru
áætlaðar tvær ferðir á viku
en milli Færeyja og Kaup-
mannahafnar verður ferða-
fjöldinn fimm ferðir á viku
þegar flest er. Ennfremur
verða ferðir milli Færeyja og
Glasgow.
Dngbarnagæzla
Frá 10. júní til 1. sept.
mun ég taka til gæzlu
börn til eins árs
aldurs, ef næg
þátttaka fæst.
Nánari upplýsingar
í síma 316.
UNA THORODDSEN
Hlíðarveg 16
Is afirð i
AÐALSTRÆTI 9
ÍSAFIRÐI
Siemens:
Eldavélar
Ryksugur
Nilfisk:
Ryksugur
Kjörskrá
Um mánaðamótin verða
lagðar fram kjörskrár við for
setakosningar, sem fram eiga
að fara 30. júní n.k. Er talið,
að á öllu landinu geti tala
kjósenda á kjörskrá orðið um
112 þúsund. Eins og kunnugt
er, hefur kosningaaldurinn nú
verið lækkaður niður í 20 ár.
Hér á ísafirði eru 1542 kjós
endur á kjörskrá við for-
setakosningamar, en kjör-
skráin verður lögð fram 30.
apríl.
Islandsmót í badminton
Tveir þátttakenda í meistaraflokki Einar Valur Krist-
jánsson og Björn Relgason.
Sex Isfirðingar taka þátt
í Islandsmóti í badminton,
sem fram fer í Reykjavík
dagana 4. og 5. þ.m., en Is-
firðingar hafa á undanfömum
árum tekið þátt í þessu móti.
Tveir keppenda em í meistara
flokki em hinir í fyrsta
flokki.
Mikill áhugi ríkir hér fyrir
þessari skemmtilegu íþrótt og
fer þeim stöðugt fjölgandi,
sem iðka hana, enda íþróttin
hinn mesti heilsubmnnur.
Tennis- og badmintonfélag
Isafjarðar gekkst nýverið fyr
ir kynningar- og útbreiðslu-
námskeiði í íþróttinni. Kenn-
ari var Garðar Alfonsson,
kunnur badmintonspilari frá
Reykjavík. Þátttaka var mjög
mikil og komust færri að en
vildu.
Það sem nú háir mest þess-
ari íþrótt hér í bæ, svo og
reyndar öllum inniíþróttum er
húsnæðið. Leikfimisalur skól-
anna er bæði lítill og ásetinn.
Það er íþróttahreyfingunni
því mesta kappsmál, að hið
fyrsta verði komið hér upp
viðunandi húsnæði. Em þau
mál nú þegar á umræðustigi
og er vonandi að draumurinn
um stórt og gott íþróttahús
verði sem fyrst að vemleika.
LANDSHAPPDRÆTTI
W/' af liannaiM happdi'a'tt-
isins roiiiun í Byggingasjóó
aldraós fólks, or styrkja imin
iiúsna'óismál aldraós fólks
um land allt.
AÐEINS STORIR
VINNINGAR
VIRÐUM OG
STYÐJUM
ALDRADA
IBUÐ
FYRIR 1 MILUÓN
“7BÍLA
MILUONIR
IBUÐIR BIFRDDAR .
ÍBÚD og minnst 5 BÍLAR i hverjum