Skutull

Ukioqatigiit

Skutull - 01.05.1968, Qupperneq 7

Skutull - 01.05.1968, Qupperneq 7
SKUTULL 7 H.f. Eimskipafélag íslands AÐALFUNDUR Aðalfundur Hf. Eimskipafélags Islands verður hald- inn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, föstudaginn 24. maí 1968 kl. 13,30. Dagskrá samkvæmt 13. grein samþykkta Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins félagsins. samkvæmt niðurlagi ákvæða 15. greinar sam- þykktanna (ef tillögur koma fram). Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut- höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins, Reykjavík 21.—22. maí. ' \ Reykjavík, 8. apríl 1968. STJÓRNIN. ÚTBOÐ! Hér með er auglýst eftir tilboðum í sót- hreinsun í kaupstaðnuni. Tilboð miðist við, að sóthreinsunin fari fram í maí/júní ár hvert. Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir 10. maí n.k. Isafirði, 20. apríl 1968. Bæjarstjórinn á Iscifirði. Bifreiðaeigendur athugið! Bremsuborða álíming. Hef bremsuborða á a 11 a r tegundir bifreiða. ODDUR PÉTURSSON Seljalandsveg 38 — Isafirði Sími 398. Auglýsing um styrkveitingar Menningarsjóðs ísafjarðar. Þar sem menningarráði er falið að annast úthlutun styrkja til menningarmála og list- kynningar 1968, samkvæmt fjárhagsáætlun kr. 125.000,00 er hér með beint að hlutað- eigandi aðilum að umsóknir um styrki þurfa að berast menningarráði fyrir 15. maí n.k. F.h. menningarráðs Isafjarðar SIGURÐUR KRISTJÁNSSON. Samkomulag um Færesrjaflug í gær lauk í Stokkhólmi samningafundi Flugfélags ís- lands og Scandinavian Air- lines System um áframhald á samvinnu félaganna um flug- ferðir milli Færeyja, Bergen og Kaupmannahafnar. Samkomulag þetta gildir frá 1. apríl sL, í þrjú ár eða til 31. marz 1971. 1 samkomulagi félaganna felst meðal annars, að SAS er nú virkur þátttakandi í kaupum á flugvél til ferða á þessum flugleiðum í sambandi við nýja Fokker Friendship flugvél sem Flugfélag íslands átti í pöntun. Flugfélag íslands mun sjá um rekstur og viðhald flug- vélarinnar. Samkomulag Flug félagsins og SAS er gertmeð það fyrir augum að hægt sé aö bjóða aðilum í Fær- eyjum þátttöku í flugrekstr- inum. Þá er ákveðið að milli Færeyja og Skandinavíu verði fimm ferðir í viku á sumrin, en að auki flognar aukaferðir eftir því sem þurfa þykir. Að vetri til eru áætlaðar þrjár ferðir. Rækjuveiðarnar í marz Frá verstöðvunum við Djúp voru gerir út 23 bát- ar til rækjuveiða í Isa- fjarðardjúpi, og varð heildarafli þeirra í mán- uðinum 180 lestir. Var afli góður allan mánuðinn og mokafli í lok mánaðarins. Aflahæstu bátarnir voru: Gissur hviti 12,9 lestir, Þór veig 11,1 1., Farsæll 11,0 1., Ver 10,7 1. og Jódís 10,7 lestir. Frá Bíldudal voru gerðir út 5 bátar til rækjuveiða i Arnarfirði, og varð heildar afli þeirra í mánuðinum 57 lestir. Aflahæstir voru: Freyja með 12,3 lestir, Pétur Guðmundsson 12,3 lestir og Jörundur Bjarna- son 12,0 lestir. Frá Drangsnesi og Hólmavik voru gerðir út 8 hátar til rækjuveiða, og nam afli þeirra 50 lestum i mánuðinum. Voru 23 lest ir teknar til vinnslu á Drangsnesi, en 27 á Hólma vík. Aflahæstu bátarnir voru: Pólstjarnan 9,7 1., Guðrún 8,0 1. og Guðm. frá Bæ 7,9 lestir. Tilkynning um aðstöðugjöld á ísafirði 1968. Ákveðið er að innheimta á Isafirði aðstöðugjöld á árinu 1968 samkvæmt heimild í m. kafla laga nr. 51/1964 um tekjustofna sveitarfélaga og reglugerð nr. 81/1962 um aðstöðugjöld. Hefur bæjarstjóm ákveðið eftirfarandi gjaldskrá: 14%: Verzlun með nýmjólk, skyr og rjóma. y2 %: Rekstur fiskiskipa og flugvéla. % %: Verzlun með óunnið timbur, sement, steypu- styrktarjám, þakjám, kol og salt. 1%: Fiskvinnsla og sjávarafurðir, fiskimjöl, fóður- bætir. Rekstur verzlunarskipa. Skipaafgreiðsl- ur, Tryggingafélög, Bifreiðarekstur. Rekstur kvikmyndahúsa. Iðnaður ótalinn annars staðar. 1Yí%: Verzlun með matvömr og hreinlætisvömr. U/2%: Verzlun með vefnaðarvömr búsáhöld, skó- fatnað, bækur, ritföng. Matsala, Rekstur vinnu véla. 2%: Lyfjaverzlun, skartgripir, úr og klukkur, list- munir, sportvörur, leikföng hljóðfæri, sælgæti, sælgætis- og efnagerðir. Rakara- og hárgreiðslu stofur. Sjoppur og önnur skyld starfsemi. Billi- ardstofur. Leigustarfsemi með bifreiðir og ýmiss konar vinnutæki. Umboðsverzlun. Hvers konar persónuleg þjónusta og önnur gjaldskyld starfsemi ótalin annars staðar. Með skírskotun til framangreindra laga og reglugerðar er aðstöðugjaldskyldum aðilum bent á ákvæði 7., 8. og 14. gr. reglugerðarinnar um sérstök aðstöðugjaldfram- töl, þar sem það á við, og um tilkynningarskyldu til skattstjóra, en þau gögn ber að senda undirrituðum fyrir 20. apríl n.k. lsafirði, 20. marz 1968. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi. Linomat Vökvadrifna handfæravindan Eftir gagngerðar endurbætur er LINOMAT- handfæravindan fullkomnasta handfæravinda, sem völ er á í dag. Sýning á vindunni verður á lsafirði einhvern næstu daga og verður tilkynnt um það með götuauglýsingum. Allar upplýsingar um LINOMAT-vinduna veittar í síma 119 — Isafirði. Alúðar þakkir færi ég ykkur öllum, sem sýnduð mér margvíslega vinsemd á sjötugsafmæli mínu 24. febrúar s.l. Lifið heil. Gísli Hjaltason.

x

Skutull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.