Brautin - 26.10.1937, Qupperneq 3
BRAUTIN
3
Málfluiningur
Ritstjórar Neista hafa Iengi haft
það orð á sér, að þeím sé annað
betur gefið en að geta skrifað
blaðagreinar þannig, að sannleik-
urinn fái að njóta sín, að maður
nú ekki tali um prúðmennskuna í
rithættinum.
í næstsíðasta blaði Neista er
sagt frá því með stórri fyrirsögn,
að Kommúnistar á Alþingi hafi
flutt tillögu um að ísland gengi i
Þjóðabandalagið. Um þetta mál er
skyni að spilla fyrir samvinnu
flokkanna. Óhappamennirnir sem
gert hafa sig seka í þessu athæfi
gegn málstað alþýðunnar hérættu
þó að skilja hvaða áhrif þetta
hefur fyrir Alþýðuflokkinn. Þeir
ættu að muna dæmið frá Reykja-
vík við síðustu • kosningar og fái
þeir að ráða hér munu þeir ekki
fá betri útreið við næstu kosningar.
Hið takmarkalausa kommúnista-
hatur hægri manna Aþýðuflokks-
ins hér verður því heimskulegra
þar sem þeir hafa brotið allar brýr
að baki sér með samvinnu við
Framsóknarflokkinn, en eins og
menn vita hafa ritdeilur þeirra við
Framsóknarflokkinn hér verið með
sama offorsi og ádeilurnar á komm-
únista, nema hvað í tveim til þrem
tilfellum aðrithátturinn hefir gengið
ennþá lengra út fyrir takmörk alls
velsæmis.
Hvað meina nú þessir hægri-
menn? í óþökk meirihluta flokks-
manna sinna nota þeir flokksblað-
ið til æðisgenginna æsinga gegn
kommúnistum og setja á sama
tíma met í dónalegum skrifum um
Framsóknarforingjana. Svona á-
byrgðarleysi Ieiðir Alþýðuflokkinn
hér í hrun og gifíuleysi ef haldið
er áfram á sömu braut. Þessvegna
veiða hinir frjálslyndari og hyggn-
ari menn flokksins að setja stopp
við æfintýramennskunni og starfa
í samráði við alþýðu bæjarins.
Auðvitað kostar þetta átök í flokkn-
um, en flokknum og málstað al-
þýðunnar verður ekki bjargað öðru
vísi. Að forðast átök í flokknum
um þessi mál er sama fyrir vinstri
mennina og þegar strútur stingur
höfðinu ofan í sandinn þegar hann
sér hættuna nálgast.
P. G.
Neista.
svo ritað þannig, að undrun sætir.
Það er talin goðgá, að Kommún-
istar skuli taka sjálfstæðismál þjóð-
arinnar fram yfir önnur mál. Það
er talin goðgá, að Kommúnistar
skuli nú vera með Þjóðabandalag-
inu, af því að þeir hafi verið á
móti því 1929—30. — í fyrsta lagi
þá hafa fulltrúar Kommúnista á
Alþingi ekki flutt neitt frumvarp
um að ísland gengi í Þjóðabanda-
lagið, heldur flutt þingsálykt-
unartillögu þess efnis að skora á
ríkisstjórnina að láta fram fara
rannsókn á því hvort nokkur auk-
in trygging fengist fyrir áfram-
haldandi sjálfstæði okkar með því
að ísland gerðist meðlimur Þjóða-
bandalagsins. Annað, að Iáta rann-
saka þann kostnað, sem af þessu
kynni að leiða. Þriðja, hvaða rétt-
indi fengjust. Fjórða, hvaða skuld-
bindingar ísland yrði að taka á
sig sem meðlimur Þjóðabanda-
lagsins. Árangur þessara rannsókna
yrði svo lagður fyrir næsta reglu-
legt Alþingi.
Þetta kalla ritsjórar Neista að
flytja tillögu um að ganga í
Þjóðbandalagið.
En meðal annara orða. Hvað
segja flokksbræður Jafnaðarmanna
erlendis um þéssa stofnun? Hvað
segir Stauning? Hvað segir Per
Albin Hanson? Hvað segir Ny-
gaardsvold? Og hvað segja yfir-
leitt erlendir og jafnvel sumir inn-
lendir Jafnaðarmenn um Þjóða-
bandalagið.
Eg skora á ritstjóra Neista að
birta ummæli forsætisráðherra
Norðurlanda um Þjóðabandalagið
og það gagn, sem þeir telja að
það hafi unnið í þágu friðarins.
Það er líka hægt að minna á
ummæli eftir Stefán Jóhann um
Þjóðabandalagið, sem eru í hlá-
legri mótsögn við anda ritsmíðar
Neista.
Við Kommúnistar munum telja
það okkar skyldu, áð verja sjálf-
stæði lands okkar, bæði út á við
og inn á við, gegn ásælni og yfir-
gangi erlendra valdhafa, og ef við
teljum að sjálfstæði ísJands sé
betur borgið með því að ganga í
Þjóðabandalagiö, þá beitum viö
okkur fyrir því, hver svo sem
skoðun einstakra manna kann að
hafa verið á þessu máli fyrir sjö
nýja-bíó SS8
sýnir þriðjud. 26. okt. kl. 8|-:
David Copperfield
Hér er á boðstólum mynd
sem hefir farið sigurför um
allan hinn menntaða heim.
árum síðan, eða áður en Komm-
únistaflokkurinn var stofnaður. —
Um það, að fulltrúar okkar á
Alþingi ætli að láta hagsmunamál
verkalýðsins sitja á hakanum skal
það eitt sagt, að nú þegar liggja
frammi tillögur um aukið eftirlit
og nákvæmari skoðun skipa, breyt-
ingar á lögum um greiðslu verka-
kaups, breytingar á alþýðutrygg-
ingarlögunum í anda þeirra krafa
sem verkalýðurinn um allt land
hefir krafist, þrátt fyrir harðvítuga
mótspyrnu sumra aðalforingja Al-
þýðuflokksins, og stórfeldar breyt-
ingar á tekjuöflunarleiðum ríkis-
sjóðs og um leið stórkostlega aukn-
ar verklegar framkvæmdir, sam-
hliða Iækkunum á óbeinum tollum
og sköttum.
Reynslan mun nú sina það, að
sumir af þingmönnum Alþýðufl.
munu heldur tregir til að vera
með þessum eða öðrum hags-
munamálum alþýðunnar, þegar til
atkvæöagreiðslu kemur á Alþingi.
Eftir að þetta var ritaö hefir Al-
þingi samþykkt með 19 gegn 2
atkv. að vísa þingsályktunartillögu
Einars til ríkisstjórnarinnar. Líklega
hafaþessir 19ekki verið búnir að lesa
grein Neista.
Sama blað flutti grein um fylkis-
kosningarnar frönsku. Þar segir að
Jafnaðarmenn hafi stór unnið á
en Kommúnistar tapað. Þarna eru
ósannindin á ferðinni sem fyr. —
Kommúnistar bæítu við sig svo
skifti tuguin þúsunda atkvæða. Þó
var ekki kosið í París þar sem
þeir eiga s/4 hluta allra kjósenda,
eftir síðustu þingkosningum að
dæma.