Vesturland

Volume

Vesturland - 10.08.1926, Page 4

Vesturland - 10.08.1926, Page 4
4 VÉSTURLAND. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^ 4 Kaupið aöeins kaííibætirinn + ! Sóley | ♦ Styðjið íslenskan iðnað. ♦ Hráolíu-hreyfillinn „GREI“ frá A. Guilowsen A.S. Oslo er tvígengisvél, traustbygð, úr úr- valsefni, óbrotin gangviss og olíu- spör. Hefir hverfistillir, aðskiljan- leg rammastykki og heilt botnhylki. Er hitaður með glóðarhaus, en fæst líka með rafkveikju. Skrúfan með sviftiblöðum eða snarvend. Hreiflarnir fást í öllum stærðum til hverskonar notkunar á sjó og landi. Einnig fást margskonar akkeris- nóta- og lóðaspli af nýjustu og fullkomnustu gerð. Hreiflasmiðja Gullowsens er hin elsta og langstærsta i Noregi. Hefir þegar smíðað 4000 vélar og hlotið 30 verðlaun frá ýmsra landa sýningum. Biðjið um verðlista með myndum og fáið tilboð áður en þér festið kaup annarstaðar. Ábyggilegir umboðsmenn óskast. Aðalumboð fyrir ísland hefir P. A. Úlafsson Reykjavík. Símn. Pedro. Allir, sem vilja fá verulega góð eldfæri kaupa Svendborgarofna og eldavélar hjá Elíasi J. Pálssyni, sem einnig er birgur af ofnrörum, ristum, hringum, eldföstum leir og steini o. fl. þess háttar. Áttavitar. Undirritaður hefir lil sölu áttvita al ýmsum stærðum týrir stærri og smærri mótorbáta og róðrarbáta frá viðurkendri verksmiðju í Dan- mör-ku. Verðið sanngjarnt. Jón Brynjólfsson. Ferðamolar frá Noregi. [Frh.] 4. Þorskveiðar á Mæri o. fl. Að veiðistöðvunum í Lófót og á Finntnörku sleptutn, eru stærstu þorskveiðistöðvarnar í Noregi á Mæri (Möre). Svæðið það nær frá Kristjánssundi, spölkorn sunn- an við Þrándheimsfjörð og suður fyrir Alasund. Það eru fjölmenn héruð, og þar eru þrír stórir bæir; Alasund með um 20 þús. íbúa. Kristjánssund með um 1.7 þús. fbúa og Molde með 6 þús. íbúa. Svæðið kringum Kristjánssund er nefnt Norðmæri (Nordmöre). Þar er mikil fiskverkun og mjög mik- ið þurkað af saltfiski í bænum og eyjununi þar í kring. — Molde er ekki eiginlegur fiskibær; hann liggur nokkuð afsíðis fisksvæðinu og verstöðvunum í Raumdalsfirð- inum. En Álasund er aðalfiskveiða- bærinn og mesti fjöldi skipa þaðan er á veiðum hvervetna við Noreg, við ísland, bæði á þorsk- og síld- veiðum, svo eru og Álasunds- menn teknir að stunda þorsk- veiðar við Grænland eins og kunnugt er. Þorskveiðarnar hefjast þarna venjulega í febrúar. í ár var fyr byrjað á þorskveiðum vegna hins lága síldarverðs, því eigi þótti borga sig að gera út á þær veið- ar. Eftir skýrslum blaðanna stund- uðu í vor fiskveiðar á þessusvæði skip sem hér segir: Frá Norð- mæri 222 vélbátar með þilfari, 227 opnir vélbátar og 155róðrar- bátar. Úr Raumsdal 210 vélbátar með þilfari og 13 opnir vélbátar. Af Sunnmæri (svæðinu kringum Álasund) 7 gufuskip, 851 vélb. með þilfari, 166 opnir vélbátar og 806 róðrarbátar. Als hafa því stundað fiskveiðar í vor frá Mæri: 7 gúfuskip, 1283 vélbátar með þilfari 426 opnir vélbátar og 806 róðrarbátar. Tala fiskimanna á skipum þessum 10576. — Þorsk- aflinn var talinn á þessu svæði um 9l/s miljón fiska, af því afl- aðist á Sunnmæri um ö1/^ milj. Aðalveiðiplássið á Sunnmæri er talið Borgundfjörðurinn, sem ligg- ur inn frá Álasundi. Safnast þang- að mesti sægur af fiskibátum hvaðanæfa frá. í pistli í „Bergens Tidende" utn lífið á vertíðinni í Borgundfirðinum segir meðal ann- ars: „Strax og fiskurinn gengur í Borgundfjörðinn færist líf ífólkið. Það eru ekki einungis vaskir karl- menn, sem standa í bátiintim, heldur ltka gráhærðir öldungar, sent fyrir löngu hafa kvatt hafið, en þegar um það er að ræða að róa i Borgundfjörðinn, færist fjör t karlana. Þar eru yngismeyjar og rosknar konur, og loks eru þar strákar á skólaaldri, sem er gefið frí úr skólunum tit þess að hjálpa við fiskveiðarnar. Þúsundir manna þarna byggja von sína á Þorsk- veiðunum." í verstöðvunum i Noregi eru strangar fiskveiðisamþyktir, sem kveða á um hve nær leggja megt veiðarfæri i sjó, hvenær megi byrja að draga línu o. s. frv. Úr fiskiveiðasamþyktinni við Álasund tilfæri eg þetta: 1. Ekki má byrja að draga veiðarfæri úr sjó fyr en sól kem- ur upp. 2. Hætt skal að draga veiðar- færi þegar sól gengur undir. Sömu- leiðis skal bannað að leggja veið- arfæri í sjó hálftíma eftir að sól er gengin undir. 3. Þegar veiðarfæri hafa legið í sjó 3 sólarhringa vegna óveðurs, sem hamlað hefir aö ná þeim, er leyfilegt að halda áfram að draga þau í eina kl. stund eftir að vitar eru tendraðir. 4. Bátar frá gufuskipum, mót- orskipum og stærri skútum mega ekki að morgni fara frá skipum sínum fyr en merki er gefið um að draga veiðarfærin o. s. frv. Gæti eg trúað að íslenskum fiskimönnum þætti skert sitt „frelsi“ við svona samþyktir. í hverri verstöð er eftirlitsmað- ur (opsynsbetjent) er hefir gætur á að öllum þessum reglum sé hlýtt og beitir sektum ef þurfa þykir. Þeir hafa og á hendi söfn- un afla skýrslna. í hverju fylki er svo eftirlitsstjóri (opsynschef) sem dregur saman fiskiskýrslurnar og hefir yfir umsjón með eftirlits- mönnunum. Hann birtir prentaða skýrslu um aflann o. fl. að ver- tíð lokinni. Síldveiðarnar minnist eg ekki á hér. Þær eru stundaðar frá miðj- um vetr-i og fram á vorið. Hauga- sund er talinn einhver mesti síld- veiðabærinn, en fjöldi skipa geng- ur einnig á síldveiðar frá Krist- jánssundi og Álasundi, og mjög víða fra vesturströndinni. Alt sutharið eru og stundaðar grunnfiskveiðar (Bankfiske) hver- vetna við vesturströndina, en þó einna mest frá Mæri. Þær fisk- veiðar eru að vísu nokkuð stund- aðar á vélbátum, en líka af smá- bátum og af alskonar fólki. Fisk- urinn er seldur nýr á torginu í bæjunum, og sendur ísvarinn með bátum og járnbrautum hver- vetna um land. Þegar farið er suður með Noregi má hvervetna og þó einkum kringum Bergen — sjá fjölda smábáta streyma frá eyjunum á kvöldin, og oft eru eingöngu kvenfólk og unglingar í bátunum. Þetta fólk er á ufsa- veiðum, sem fiskast mikið á færi á þessum slóðum. Á torginu í Bergen í maí og júní, var mest af ufsa, allmikið af lúðu, en minst af þorski, nokkuð af karfa. Makrlllinn var nýbyrjaður að veiðast, í byrjun júní. Makríll er á stæró við smáufsa, nokkuð stærri en hafsild, feitur og dágóður til matar. Mikið af makril er neytt innan lands, en þegar fram á sumarið kemur, er hann saltaður og fluttur út, til Ameríku hygg eg aðallega. Brislingsveiði var og byrjuð í júní. Brislingurinn er að mestu seldur í niðursuðu verksmiðjurnar, sem flestar eru í Stavangri, en nokkuð er og borðað nýtt. Allmikið veiðst og af humar (Hummer) í nánd við Bergen og vtðar. Humarinn er veiddur með styngjum likt og hrognkelsi eru veidd, þar sem fellur út úr fjarðarbotnútn (i Önundarfirði til dæmis.) Þá eru „ræker“ veiðarnar all mikil tekjugrein, og er einkum stunduð úr suðurhluta Noregs. „Ræker“ er áþekkur eða sami fiskur og sá sem hér er nefndur kampalampi. „Rækerinn" er veidd- ur með netum, svipuðunt botn- vörpum. Strax og varpan er kom- inn upp er fiskurinn settur í pott og soðinn, og síðan seldur soð- inn daginn eftir, stundum yfir í Englandi, en ltka af mörgutn í bæjunum í sunnanverðum Noregi. Árnar í Noregi, einkum norð- anverðum, eru sagðar mjög auð- ugar af laxi og silungi, og eru mikið leigðar erlendum ferða- mönnum ofl. til stangaveiða. Frh. Prentsmiðja Vesturlands.

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.