Vesturland - 06.10.1927, Side 1
VESTURL
Riistjóri: Sigurður Krisljánsson.
IV. árgangur.
ísafjörður, 6. október 1927.
35. tölublað.
♦
♦
♦
♦
Klœðskerar
EIMAR & KRÍSTJÁN
1. fl. saumastofa.
^ Nýkomið úrval af fata- og frakkaefnum. REGNFRAKK-
^ ARNIR eftirspurðu komnir aflur. Ennfremur skinnkantur,
^ upphlutasilki, cabardine. Efni í drengjaföt og frakka mjög
4 ódýrt. — Alt til fata liveirgi betra.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Síjórnin
brýtur landslög.
Síðasta Alþingi samþykti, með-
al annara laga, tvenn lög um
varðskip ríkisins. Önnur þessi lög
eru prentuð á öðrum stað hér í
blaðinu, hin eru um Iaun skip-
herra og skipverja á Varðeim-
skiputn rikisins.
ilialdsflokkurinn hefir lagt mikla
rækt við landhelgismálið og lagt
mikla stund á að gera landhelg-
isgæsluna sem fullkomnasta og
íslenskasta. bað er hverjum manni
auðsætt núorðið, hver lífs nauðsyn
íslenska ríkinu er það efnalega, að
landhelginnar sé gætt, bæði vegna
þess, að sókn erlendra veiðimanna
eykst altaf til landsins, svo þar
er tniklum vikingaher að mæta,
og einnig hins, að sjórinn ber
blátt áfarm uppi þarfir ríkissjóðs,
auk þess að nál. helmingur lands-
manna lifir á honum. Við þetta
bætist það, að hótfindni erlendra
veiðiþjóða, út af meðferð land-
helgisbrotamála er mikil, svo hið
unga ísl. ríki á þar fullkomlega í
vök að verjast. barf því mjög að
vanda til yfirmanna á varðskip-
unum, gera þá sem stærsta menn
í veruleika og íormi, þvf þeir eiga
ekki einungis að standast áhlaup
og brögð landhelgisbrjóta, heldur
einnig áhlaup og gagnrýni erlendra
stjórnarvalda.
Enn er þó ótalið eitt atriði, sem
veldur allmiklu um áhuga íhalds-
manna í landhelgismálinu. Það er
það atriðið, að landhelgisgæsla
sú, sem íslenska ríkið sjálft fram-
kvætnir, er eitt af því fáa, sem
ber sjálfstæði voru vitni út á við.
Einmitt það atriðið, sem oftast
vekur athygli erlendra þjóða á
þvi, að vér séum sjálfstætt ríki. í
sjálfstæðisbaráttu vorri var það
altaf vakandi og heitt ágreinings-
atriði, að vér lögðutn ntikla áherslu
á skýlaust leyfi til að verja sjálfir
landhelgina, eftir því sem geta
leyfði, en danskir stjórnmálamenn
héldu dauðahaldi í þennan einka-
rétt, sern glegsta vitnið unt ósjálf-
stæði vort, því engum mun til
lnigar kotna, að Dönunt væri ami
í því, að landhelginnar væri vel
gætt. x
Þegar áður nefnd lög utn varð-
skip ríkisins kontu fyrir þingið,
urðu þegar um þau harðar deilur.
Þessar deilur hlutu fram að koma.
Var það og er vitanlegt, að hinir
óþjóðlegu flokkar þingsins, svo
kallaður Alþýðuflokkur og Tíma-
flokkurinn, ntega ekkert heyra á
nafn nefnt, er hnígur í þá átt að
tryggja og auglýsa sjálfstæði is-
lenska ríkisins útávið. Frá þessum
þingflokkum, ýmist í heild eða
einstökum mönnum úr þeim, hef-
ir altaf andað kalt lil landheigis-
málsins, og frá þeint var því altaf
mótspyrnu að vænta. Og frá Al-
þýðuflokksmönnunum og þeint
rauðari úr Títnaflokktium einnig
vegna þess, að þeir eru af skilj-
anlegum ástæðum fjandsatnlegir
öllu þvi, sem gert er til þess að
trvggja það, að lögum og rétti
verði óhlutdrægt uppi haldið, öllu
því, sent með réttu má telja þrösk-
uld á vegi hnefaréttarins.
Alt þetta voru frá sjónarmiði
þeirra félaga, Alþýðuflokksþing-
mannanna og Tímaþingmannanna
ærið nægar ástæður til andblást-
urs gegn lögunum, en þó er enn
ótalið það, sem þyngst var á met-
unum:
í lögum þessutn er ákveðið, að
starfsmenn allir á varðskipunum
skuli vera háðir lögum nr. 33
1915, sent leggja refsingu við þvi,
ef starfsmenu ríkisins taka þátt í
verkfalli.
Og þar segir svo: „Skráning
manna fyrir skráningarstjórum skal
ekki fara fram.“
Þetta er höfuðástæðan fyrir mót-
stöðunni gegn þessum lögum. Það
er verkfallsvopnið, sem þeir rauðu
vilja ekki láta slá úr hendi sér.
í efri deild var Jón Baldvins-
son aðalandmælandi^þessara laga,
en í neðri deild Héðinn Valdi-
marsson. Hvorugur þeirra, og ekki
heldur bræður þeirra úr Tima-
flokknum, nefndu þessa aöalá-
stæðu, né yfir höfuð þorðu að
koma til dyranna, eins og þeir
eru klæddir. Voru lögjn síðan af-
greidd frá þinginu og staðfest af
konungi, og áttu nú að koma ti!
framkvæmda. En þá berst út sú
fregn, að stjórnin neiti að fram-
kvæma lögin.
Fæstir hafa víst trúað þessu I
fyrstu, og margir trúa þvi víst
ekki enn. Og mönnum er vorkun.
Það ketnur einatt fyrir, að lög eru
samþykt gegn vilja einhverra þing-
manna. Og oft eru lög og laga-
ákvæði samþykt gegn vilja lands-
stjórnarinnar. Meta stjórnirnar
þetta alloft svo mikils, að þær
segja heldur af sér, en að taka
að sér að framkvæma slik lög.
En nýja stjórnín er ekki í vanda
stödd. Hún tekur lögin bara ekki
til greina, og lætur skrásetja á
skipin á ný upp á gamla mát-
ann, þegar skráningartiminn var
útrunninn, þótt það sé bannað í
umræddum löguni.
Mörgum mun sýnast þetta ólví-
ræður vottur þess, að stjórnin sé
geggjuð, því ekki verð'ur séð,
hvernig sá ráðherra, sem traðkar
lög Alþingis, kemst hjá því að
lenda undir landsdóm. Er ogfljót-
gert að athuga varnir stjórnarinn-
ar i þessu máli.
i Tímanum tilkynnir dómsmála-
ráðherrann, að utnrædd lög séu
ekki framkvæmd, vegna þess að
þau hafi svo mikinn aukinn kostn-
að í för með sér.*)
Við þetta er fyrst það að at-
huga, að ráðherra er jafn skylt
að framkvæma þau lög, sem hafa
aukinn kostnað í för með sér,
eins og hin, sem ganga í gagn-
stæða átt. Ráðherra hefir engan
rétt til að traðka vilja Alþingis,
þó ekki væri í lagaformi. En lög-
unt landsins verður hann að hlíta
sem aðrir menn, og því frarnar,
sem það er embættisskylda hans, I
að sjá um framkvæntd þeirra.
En svo bætist þaö við, að þetta !
með aukna kostnaðinn er barna-
legur uppspuni, því eftir ákvæðutn
nýju laganna eru launakjör yfir-
manna skipanna talsvert lægri en
þau eru nú. Gersamlegri hausa-
víxl gat stjórnin því ekki haft á
hlutunum.
Það er eftirtektarvert, að í bar-
*) Auk þess segir í tilkynningunni að
Atagnús Ouðmundsson liaii brotið þessi
lög. Auðvitað eru þetta helber óaannindi,
ekkert annað en vandræða þvættingur, til
þess að draga frá sér athygli.
Lögin lilutu að koma til franikvæinda
á tvennan hátt, íyrst þann, að starfsfólkið
hyrfi undir launaákvæði laganna, strax
og þau gengu í gildi, í öðru lagi að
skikpshöfnin yrði ekki skrásett á ný, er
skráningarthni var útrunninn, en yfirmenn
fengju þá skipunarbréf og annað starfs-
íólk ráðningarsainning.
Lögin gengu 1 gildi rétl áður en fyr-
verandi stjórn sagði af sér. Lét hún launa-
ákvæðin þegar koma til framkvæmda og
bjó út skipunarbréf fyrir starfsfólkið, en
skipin koinu ekki heim frá landhelgisgæsl-
umii við Noröurland um slldveiðatfmann,
fyrri cn i septemberbyrjun, og þá er það
að nýja stjórnin ueitar að framkvæma
lögin og lælur skrásetja skipshofnina á
ný.
Hver maður gclur lika séð, að núver-
andi stjórn gal ekki öðlast rétt til að
traðka iög landsins, þótt einhver önnur
hefði áður gert Jiað.
áttu sinni gegn lögunum á þingi
færðu þeir rauðu aðallega fram
þá ástæðu, að launakjör skips-
hafnar yrðu með því óaðgengi-
lega iág. Verkfailsákvæðið var
ekki frambærileg ástæða að þeim
fanst, og satna hefir stjórninni
fundist nú, þótt allir viti að það
er ástæðan.
En hverjir skyldu það nú vera,
sem enn vilja halda því fram, að
þeir rauðu setji stjórninni engin
skilyrði fyrir stuðningnum?
„Lög
um varðskip ríkissjóðs og sýslun-
armenn á þeim.
1. gr.
Varðskipin skulu eiga heimili i
Reykjavik. Þetta þarf ekki að letra
á skipin. Skjaldarmerki íslands
skal á þeim vera. Allir starfsmenn
skipa þessara eru sýslunarmenn
ríkisins, hvort sem þeir eru skip-
aðir, settir eða á annan veg ráðnir
þar til starfa. Skulu þeir allir
slysatrygðir af útgerð skipanna,
eftir svipuðutn reglum og skips-
hafnir á öðruin skipum ríkissjóðs
og Eimskipafélags íslands.
2. gr.
Skipherrar á varðskipunum eru
löggæslumenn ríkisins á land-
helgissvæðinu.*) Stýrimenn eru
aðstoðarmenn þeirra við löggæsl-
una.
3. gr.
Skipherrar, stýrimenn vélstjórar
og loftskeytamenn skulu skipaðir
af ráðuneytinu. Það skipar og
bryta og semur við hann um borg-
un fyrir fæði skipverja, þó ekki
fyrir lengri tíma en eitt ár í senn.
Ráðuneytið getur hvenær sem
er vikið frá sýslan, um stundar-
sakir eða fyrir fult og alt, sérhverj-
um sýslunarmanni á skipunum.
IJm trávikning sýslunarmanna á
varðskipunum, hvort heldur er um
stundarsakir eða fyrir fult og alt,
gilda sömu reglur og um aðra
sýslunarmenn ríkisins.
Skipverjar settir eða skipaðir af
ráðuneytinu geta sagt upp starfi
sínu með 6 mánaða fyrirvara. Með
sama fyrirvara af hálfu beggja
samningsaðilja má segjauppsamn-
ingum þeirra skipverja, sem ekki
eru settir eða skipaðir af ráðu-
neytinu.
4. gr.
Aðra sýslunarmenn en þá, er
um gctur í 3. gr., ræður skipherra
í umboði ráöuneytisins. Þó skulu
kyndarar ávalt ráðnir í samráði
við 1. vélstjóra. Mönnuin þessum
getur skipherra hvenær sem er
*) Leturbreytingar eru blaðsins.