Vesturland - 28.10.1927, Síða 2
VESTUHLAND.
2
Rakstur meö R O T B A R T-rak-
vélablaði fullnægir kröfum hinna
kröfuhörðustu. Það er heimsins
besta rakvélablaöið.
Notið
við
það
slípivélina „RQTBART T AN K “.
|I heildsölu hjá Vald. Thaulow Kaupmannahöfn. Biðjið kaup-
mann yðar um Rotbart-blöð og Rotbart Tank.
um, svo sem sundurskifting ísa-
fjarðarpresiakalls o. fi.
Að því búnu las liann upp dag-
skrá fundarins, og hðf máls mn
fyrsta lið hennar:
Bráðabirgðatillögur til breytinga
á Helgisiðabók íslensku þjóðkirkj-
unnar.
Umræður urðu alimiklar, og
tóku velflestir fundarmauna til máls.
Samþykt var einróma svohljóðandi
ályktun:
„Héraðsfundur Norður- ísafjarð-
arprófastsdæmis ályktar að lýsa
yfir því, aö hann er samþykkur
þeim bráðabirgðatillögum til breyt-
inga á Helgisiðabók ísiensku þjóð-
kirkjunnar, sem nefnd, er kosin
var á prestasíefnunni 1925, hefir
borið fram, þó að því undanteknu,
að hann fellir sig ekki við, að
breytt sé orðalagi trúarjátningar-
innar: „undir Pontíusi Pílatusi“.“
Annar liöpr dagskrárinnar var:
Barnaheimilsmáiið.
Málshefjandi var síra Páll Sig-
urðsson, prestur í Bolungavík.
Umræður urðu nokkrar, en að
þeim lokrmm var samþykt svo-
látandi ályktun :
„Héraðsfundur Norður-ísafjarð-
arprófastsdæmir ályktar að fela
prestum prófastdæmisins að halda
barnaheimilismálinu vakandi, og
að leggja fram ákveðnar tillögur
fyrir næsta héraðsfund."
Af því aö guösþjónusla átti að
fara fram í kirkjunni kl. 8. síð-
degis, varð nú fundarhié og sungu
fundarmenn sálm nr. 643 áður en
skildu.
Að guðsþjónusfu lokinni koinu
fundarmenn saman aííur á iieimili
prófasts. Var þá tekinn fyrir þriðji
liður dagskrárinnar:
Prestafélag Vestfiröingafjórð-
ungs.
Málshefjandi var prófasturinn.
Sarnþykt var urn það efni þetta:
„Héraösfundurinn hvetur til þess
að stofnað verði prestafélag fyrir
Vestfirðingafjórðung".
Fjórði liðnr dagskrárinnar var:
Launamál.
Málshefjandi síra Óli Ketilsson.
ÍJrðu umræður allmiklar. Var sam-
þykt með öllum greiddum atkvæð-
lim svohljóðandi tillaga:
t „Héraðsfundur Norður ísafjarð-
arprófastsdæmis skorar eindregið
á þing og stjórn að gera þegar
verulegar umbæíur á launakjör-
um presta.“ t
Fimti liður dagskrárinnar var:
Önnur mál, er upp kunna að
verða borin.
Hóf þá saínaðarfulljrúinn úr
i
Unaðsdalssókn, Kolbeinn Jakobs-
son máls á prestsþjónustu í Un-
aðsdalssókn.
| Var um það efni samþykt svo-
j hljóðandi yfirlýsing:
„Héraðsfundurinn lýsir því yfir,
j að hann telnr óhugsandi, að Un-
j aðsdalssókn verði í framtíðinni
þjónað frá Vatnsíirði.“
Fleira var ekki tekið fyrir á
fundinum og sagði því prófastur
j honum shtið.
Sigurgeir Sigurðsson.
Óli Ketiisson
fundarskrifari.
I
Helgi Sigurgeirsson
gullsmiður, ísafírði
smíðar og grefur
enn.
Fréttir.
Inniendar.
Kæra út af ullarmati.
Fyrir nokkru sendi form. Versl-
unarráðsins stjórnarráðinu kæru
i út af ullarmati hjá Ólafi ísleifssyni
j í Þjórsártúni. Lét kærandinn fylgja
; sýnishorn af ull, er metin var til
j i. flokks.
Stjórnarráðið fól Ólafi Benja-
l mínssyni kaupmanni og Jóni Árria-
j syni fratlikvæmdastjóra að meta
| sýnishornin, og töldu þeir þau til
j IV. flokks. Hefir stjórnin lagt fyrir
j viðkomandi yfirvald að rannsaka
j málið.
Tilboð um kaup á síldarverk-
smiðju.
Stjórnarblaðíð Tíminn skýrir frá
j því, að stjórninni hafi borist á-
' kveðið tilboð um kaup á nýbygðri
; síldarbræðsluverksmiðju. Verði til-
; boðið ásanú væntanlegri skýrslu
Jóns Þorlákssonar, lagt fyrir næsta
j þing.
0
ísfisksala.
Fyrri hluta októbermánaðar var
ísfisksala í Eriglandi mjög góð,
en hrapaði snögglega rétt fyrir
miðjan mánuðinn og hefir atla
| 'WtT Tækifærisverí §
í Brauns-Verslun. ~"9i
§§ Léreft frá 0.50 mtr., Flonel frá 0.90 mtr., Dömubuxur 1.50, §§
I Dömunærskyrtur 1.60, Drengjapeysur frá 2.50, Dömusokkar J
J 0.75, 1.00 og 1.50, Manchettskyrtur 5.00, Bindi 0.65, 0.90, |
1 1.25 og 1.50, Karlmannasokkar 0.60, 0.75, 0.90, 1.25 og betri, j
I Enskar húfur 1.25, Handklæði 0.75 og 1.25, Gúmmíflibbar 1
1 0.25, Léreft 0.45, Drengjabuxur fyrir hálfvirði, Sjómannateppi |
| frá 2.00, Vinnuskyrtur frá 4.50, nokkrar Döinukápur fyrir hálf- 1
| virði, Dömuhanskar 1.50, 1.75 og 2.50, Sportbuxur 10.00, I
| Vinnubuxur 7.00, Dömuvesti 4.50, Rúmteppi frá 4.50, Lök frá I
| 3.00, Dömusvuntur frá 1.75. Mikið af taubútum, sem selst j
afar ódýrt, og fjölda margt fleira.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
MEÐ „DRONNING ALEXANDRINEU
komu Vetrapkápup fyrir börn og fullorðna, aðeins
nokkur stykki, sérlega góðar og ódýrar.
Rykfpakkap karla og kvenna, sem nú eru til, verða
seldir fyrir mjög lágt verð.
--- Notið tœkifæriðl -
Verslun Dagsbrún.
♦♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
stund síðan verið afskaplega lág.
Hafa sumir íslensku togararnir
selt tnikinn og góðan afla fyrir
5—6 hundruð pund. Afli togara
er mjög tregur.
Útlendar.
Kosningar í Noregi.
Búist var við í síðustu skeyt-
um, að úrslit kosninganna I Nor-
egi yrðu þessi:
Hægrimenn 33 þingsæti, Vinstri
30, Bændaflokkurinn 26, Verk-
menn 58 og Kommunistar 3. Bú-
ist er við að stjórnarskifti fari
fratn þegar þing ketnur saman í
janúarmánuði.
Blöð Hægrimanna leggja til að
þrír fyrst töldu flokkarnir tnyndi
samsteypustjórn, en Vinstrimenn
virðast helst vilja að verkamenn
myndi stjórn.
Sameiginlegur fundur
presta og sóknarnefnda i Norður-
ísafjarðarprófastsdæmi var haldinn
hér í bænum 12. þ. m.
Fundinn sóttu fulltrúar úr öllutn
prestaköllum prófastsdæmisins,
nema Hólsprestakalli, og prestarnir
allir, að tveim undanteknum, sem
óviðráðanlegra orsaka vegna, ekki
gátu komið.
Fundarstjóri var kjörinn for-
maður sóknarnefndar ísafjarðar
Elías J. Pálsson og ritari síra Páll
Sigurðsson í Bolungavík.
Hófst fundttrinn með því að
fulltrúar sögðu fréttir af safnaðar-
og kirkjulífi, hver úr sinni sókn.
Kom það í ljós, að nýr áhugi
er að vakna á því að fegra og
prýða kirkjurnar og að gera þær
hlýlegar og vistlegar.
Hugsa Hnífsdælingar til að
byggja sér kirkju, jafnskjótt og
ástæður leyfa. Hafa þeir á síðasta
Með
| „Dr. Alexandrine“ |
I kom mikið af nýjum vörum §
svo sem:
| Dömukápur,
I Telpukápur,
Drengjafrakkar,
Matrosafrakkar,
Sængurveraefni, ' 1
Manchettskyrtur, |
Dömuhandskar, I
og margt fleira.
| Brauns-Yerslun.
^lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllF
ári komið sér upp grafreit, og
varið til þess allmiklu fé. Enn-
fremur hafa þeir gert skólahúsið
svo úr garði, að það er hið vand-
aðasta guðsþjónustuhús. Messar
sóknarprestur ísafjarðar þar þriðja
hverti sunnudag, síðan skifting
ísafjarðarprestakalls fór fram.
Staðarprestakalli í Aðalvík hefir
nýlega verið skift í tvær sóknir,
Staðarsókn og Hesteyrarsókn. Er
í ráði að endurbæta kirkjuna á
Hesteyri allmikið á þessu ári.
Rætt var um bráðabirgðatillög-
ur, er komið hafa fram um breyt-
ingar á helgisiðabók þjóðkirkjunn-
ar. Kom fundarmönnum ásamt
uin að tillögur þessar miðuðu vf-
irleitt til bóta, og félst fundurinn
á þær í flestum atriðum.
Þá hófust umræður um afstöðu
þjóðkirkjunnar til nýrri trúmála-
hreyfingar. Málshefjandi var pró-
fastur Sigurgeir Sigurðsson. Urðu
fjörugar og ánægjulegar umræður
um málið, og lýstu þær frjálslyndi
og víðsýni fundarmanna.
Enn var rætt um nauðsyn þess
að sóknarnefndir störfuðu meira
saman en verið hefir hingað til,
og var uefnd kosin til þess að