Vesturland - 06.09.1933, Side 1
VESTURLAND
X. árgangur.
ísafjörður, 6. sept. 1933.
17. tölublað.
Fæði
Stjórnmál.
Enda þótt nú sé búið að ákveða
um aukaþinghald 1. nóv. n. k.,
eins og áður hefir verið frá skýrt,
ef enn mesti urgur i andstöðu-
blöðum Sjálfstæðisflokksins út af
því máli, sem ekki er sjáanlegt
að stafi af neinu öðru en þvl að
krafa Sjálfstæðisflokksins sigraði,
þó ekki væri óbreytt eins og hún
var fyrst borin fram.
„Tíminn" frá 26. f. m. segir að
Framsóknarflokknum hafi tekist
að koma í veg fyrir vetrarþing-
kosningar, sem Sjálfstæðismenn
hafi sótt mjög fasttil þess að geta
svikið þjóðina.
Er þetta tekið sem sýnishorn af
bardagaaðferðum andstöðublað-
anna, en er að engu leyti óvenju-
legt. Er svo að sjá sem þessi blöð
hafi þá trú, að hægt sé að kald-
hamra lygina inn f fólkið, ef hún
er endurtekin nógu oft og með
taumlausri óskammfeilni.
En allir sem eitthvað fylgjast
tneð í málum þessum og ekki lesa
eingönguflokksblöðþessara banda
manna vita að þetta eru ósann-
indi, sem hljóta að vera sögð vis-
vitandi f þeim tilgangi einum, að
afflytja starf og stefnu Sjálfstæöis-
flokksins hjá þeim sem fátt lesa
og því rninna hugsa.
Er það einkennilegt, að þessir
tnenn, sem látast hafa trú á vax-
andi mentun og þekkingu lands-
nianna, skuli stöðugt leitast viö að
íiska í heimsku manna ogfáfræöi.
En þegar menn hafa vondan mál-
stað að verja nota þeir sem ófyr-
iríeitnir eru öll brögð til að verja
hann.
Það sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefir gert í aukaþingsmálinu ætti
að vera svo lýðutn Ijóst af um-
ræðum blaðanna, að frekari skýr-
ingum væri ofaukiö. Þó er rétt að
geta þess, að iniðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins tók það skýrt fram I
fyrsta bréfi sfnu til forsætisráð-
herra, sem birt er í heilu Iagi i
11. bl. þ á., 5. f. m., að hún legði
áherzlu á það, að aukaþingið
kæmi saman 15. f. m., svo að nýj-
ar kosníngar færu eigi síðar fram
en 1. vetrardag n. k. og að reglu-
legt Atþingi kæmi saman að af-
stöðnum kosningum sem næst
venjulegum tíma.
En einmitt 1. vetrardag lög-
leiddu Framsóknartnenn sem kosn-
ingadag fyrir nokkrum árum og
átti hann þá að vera langhentug-
asti timinn vegna sveitanna.
Það sýnir því mikla óskamrn-
feilni, að ásaka Sjálfstæðismenn
nú fyrir það, að hafa stiklað á
þeim degi til kosninga nú, þegar
afgreiða þurfti til fulls eitt af aðal-
málum undanfarinna þinga og fá
síðan fullnaðarúrskurð þjóðarinnar
um það, hverjum hún vill fela
forsjá vandamála sinna næsta
kjörtimabil.
Og það er áreiðanlega að bregð-
ast trausti þjóðarinnar og þeim
vilja sem kom fram í kosningun-
um 16. júlf s. 1., að sýna andslöðu
og tómlæti um það, að úr þessu
verði skorið til fulls. Það er ein-
göngu valdstreita, tilraun til þess
að halda sem lengst t völdin vegna
flokkshagsmuna. Það igæti „Tlm-
inn“ með réttu kallað „að svikj-
ast að þjóðinni“.
Afstaða Sjálfstæðisflokksins I
stjórnarskrármálinu og kröfunni
um aukaþinghald hefir verið skýr
og ákveðin. Hann þarf þar engu
að leyna cða brögðum að beita
til þess að villa sýn. Hann tók
þaö strax íram í upphafi, að hann
væri mótfaliinn vetrarkosningum.
Það mun því tæpast duga hjá
„Tímanum” til þess að festa hinar
riðluðu fylkingar Frantsóknar, að
bera ftant fráleitar og ósanttar
staðhæfingar utn Sjálfstæðisflokk-
inn.
fæst keypt hjá
Unni Guðmundsdóttur,
Fjarðarstræti 27.
Samvinnufélagsbátarnir
komu af sildveiðum í gærkveldi,
nema ísbjörn og Ásbjörn. Hefir
afli þeirra verið þannig:
mál tn. alls tn.
Auðbjörn 4783 2250 9424
Vébjörn 4984 2892 10368
Gunnbjörn 7018 2175 12702
Sæbjörn 12370
Afla Valbjörns hefir blaðið eigi
fengið uppgefinn enn þá.
Percy
kom heim af sildveiðum í gær-
morgun, blaðinu ókunnugt um afia
skipsins enn þá.
Þórður Þorbjarnarson
fiskiiðnfræðingur er á ferð bér í
bænum áleiðis til Siglufj. Þórður
heftr undanfarin 4 ár stundað
fiskiðnaðarnám við fiskiháskólann
I Halifax í Atneríku með styrk frá
Fiskiféi. íslands og gengur nú f
þjótiustu þess.
Er mikll þörf á því að fá sér-
fróðan islenzkan mann um fiski-
iðnað, þvl ekki skotta verkefnin
hér á iandi til slikra hluta. Og
er það vænlegast til vaxandi verð-
tnætis á fiskiafla okkar. Má vænta
mikils af Þórði í þessum efnum,
því maöurinn er vel mentaður í
sinni grein og fulltir áhuga um
verkefni sitt.
Þórður er sonur þeirra hjóna
Þorbjarnar hétaðslæknis á Bildu-
dal og Guðrúnar Pálsdóttir (Ólafs-
sonar próf. í Vatnsf.)
Athygli
skal vakin á augl. sóknarnefttdar
ísafjarðar i bl. I dag utn lögtak
á ógreiddum sóknargjöldum. Eru
það vinsamleg en alvarleg tilmæli
nefndarinnar ti! allra gjaldenda,
sem ógreitt eiga, að þeir greiði
gjöld sírt næstu daga, svo ekki
þurfi að konta til lögtaks.