Vesturland - 04.10.1933, Blaðsíða 2
98
VESTURLAND
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og hluttekn-
ingu við fráfall og jarðarför konu minnar Hólmfríðar
Guðmundsdóttur.
Bárður Guðmundsson.
Nýlíomið:
Tekex, í pökkum.
Asíur, í glösum.
Grænar baunir.
Ól. Kárason.
Frá Dýrfirðingum.
Vegaframkvæmdir hafa verið
miklar í Þingeyrarhreppi siðustu
árin. Er nú orðið bilfært inn fyrir
Hvamm og bílfær vegur alla leið
út í Haukadal langt kominn. Á að
byggja brú á Sandá nú f haust,
ef tið leyfir, og er nokkuð af brú-
arefninu nýkomið til Þingeyrar.
Prestssetrið er nú flutt frá Sönd-
um, hinu aldagamla höfuðbóli
vestan Dýrafjarðar, til Þingeyrar.
Hefír þar verið reist nýtt fbúðar-
hús fyrir prestinn. Er það bygt úr
steinsteypu, 8,3x7,6 m. að stærð
og búið öllum nýtízkuþægindum.
Er húsið mjög traust og vandað,
t. d. eru öll loft úr járnbentri
steypu. Sandar féllu nú s. I. vor
undir umsjón hreppstjóra sem
kirkjuiörð. Hafa Þingeyrarbúar
skákir úr túninu á leigu og önnur
landsnot. Vffr það einnig svo síð-
ustu árin er prestur bjó á Söndum.
Hreppsnefndin vill fá jörðina keypta
handa þorpsbúum til ræktunarog
til beitar fyrir búfénað þorpsbúa,
sem eiga nú um 400 fjár og 20 kýr.
Má búast við þvf, að jörðin verði
hreppseign innan skamms, enda
hefir kauptúnið mikla þörf fyrir
landið.
Nýrækt eykst mjög f hreppnum
og eiu nýjar sáðsléttur á flestum
bæjum. Þorpsbúar hafa einnig fært
mikið út ræktunina I hlíðinni fyrir
ofan kauptúnið. Umhverfis nokkyr
hús innan til á eyrinni hefir og
verið brotið talsvert land.
H. f. Doíri, forstj. Anton Proppé,
hefir reist f sumar viðbótarbygg-
ingu við frystihús sitt og sett þar
nýjar frystivélar til þess að frysta
beitu o. fl., sem vaxandi útgerð
krefur.
3 línuveiðaskip eiga nú heima
á Þingeyri, Fróði, Fjölnirog Venus;
sá sfðasttaldi keyptur s. 1. vetur.
Fiskverkun á Þingeyri hefir verið
mikil f sumar hjá h. f. Dofri og
Þorbergur Steinsson rekur einnig
nokkra fiskverkun á útgerðarstöð
sem Útvegsbankinn á.
Dragnótaveiði hefir verið stund-
uð nokkuð f Dýrafirði af ýmsum
aðkomubátum, bæði s. 1. haustog
nú undanfarið. Þykir mönnum mik-
i!l vágestur að veiði þessari og
hefir fiskur inni á firðinum þorrið
jafnskjótt og dragnótabátarnir hafa
verið lítinti tfma að veiðum. Er
það alment áhugamál, að fá fjörð-
inn alfriðaðan fyrir veiðumþessum.
í Mýrahreppi var dálftil fisk-
verkun í sumar við Alviðru-vör.
Lögðu bátar úr hreppnum, -er
stunduðu sjósókn á Fjallaskaga í
vor, afla sinn þar á iand til verk-
unar. Tókst verkunin vel og færði
nokkur vinnulaun inn i hreppinn.
Garðyrkja hefir aukist talsvert
hér i firðinum síðustu árin og öllu
meira í Mýrahreppi, enda er þar
vfða gott land til garðræktar. En
tregt hefir gengið hjá mörgum með
sölu garðávaxtanna. Væri eflaust
heppilegast, að mynda félagsskap,
er hefði söluna á hendi, þvf með-
an kjötverð er svo lágt sem nú er,
gefur garðyrkjan, ef hún er stund-
uð með alúð, snögtum meiri tekj-
ur en kjötframleiðsla.
Kreppulánasjóðsnefnd sýslunnar
er nýtekin til starfa. En hana skipa:
Kr. Guðlaugsson, Jóh. Davfðsson
og Kristján Jóhanness. (úr sýslu-
nefnd). Hafa allmargir bændur
leitað aðstoðar nefndarinnar, eink-
um úr Auðkúluhreppi.. f sumum
hreppum hafa fáir eða engir bænd-
ur sótt um kreppulán eða aðstoð.
Mikið má það vera, ef öll þessi
löggjöf reynist ekki andvana fædd
og verði misnotuð. En hvað sem
þvf líður eru nú ýms tákn þess,
að hagur sveitafólks fari fremur
batnandi, enda er verð á slátur-
afurðum töluvert hærra A haust en
verið hefir tvö sfðustu árin, þó
þess gæti oflitið á Þingeyri.
S.
Rafmagnsmálið.
Jakob Gfslason raffræðingur var
hér á ferðinni fyrir mánaðamótin,
til þess að ræða við rafveitunefnd
bæjarins um væntanlega virkjun í
Fossá. Réði hann til, að gerðar
yrðu ýtarlegri mælingur við Seló,
að þvl er snertir fallhæð og miðl-
unarmöguleika úr Nónhornsvatni,
áður en tekin er fullnaðarákvörð-
un um hversu mikið afl skuli
virkjað f ánum. Jafnfr. lagði Jakob
til, að gerðar yrðu vatnsmælingar
f öllum ánum einu sinni á viku,
til áramóta.
Jakob taldi og nauðsynfegt, að
nú þegar séu gerðar fuilnaðar-
mælingar og jarðvegsrannsóknir
á báðum pipustæðum og nákvæm-
ar hæðamælingar við Fossavatn
og á haftinu, sé hugsað til virkjun-
arframkvæmda að vori.
Enn hefir ekkert tilboð borist
um lánsfé. En taldar líkur fyrir
þvi, að það fáist.
Alheimsböliö,
baráttan gegn kynsjúkdómum,hefir
verið sýnd i Bfóhúsinu nokkur
kvöld undanfarið og síðast f gær-
kvöld. Ágóði af sýningunum hefir
runnið til Gagnfræðaskóians.