Vesturland

Årgang

Vesturland - 28.09.1935, Side 3

Vesturland - 28.09.1935, Side 3
VÉSTtíftLAND 15! Jarðir til ábúðar. Jarðirnar Eyri, 26 hndr. að fornu mati, og 11 hundruð í Folafæti, eru lausar til ábúðar í næstu fardögum. Báðar jarðirnar eru við Seyð- isfjörð innan Súðavíkurhrepps. Fylgja báðum jörðunum stór og góð tún. Jón Guðmundsson, Eyrardal. smjörlíki er Ijiilfengasta i 3 b 8 u Vitamfn! Vitamín! » p tws4« i alla fæöu hrópa nútímavisindln. Os m í samræmi við það er nú bæði H ÖJ Sólar smj örlíki N, 9f Q °g 1 fe Stj Örnnsm j öriíki Qi & blandað vitamíni eftir nýjustu og i m fullkomnustu aðferðum. H.f. Smjörlfkisgerð ísafjarðar. * kensluna. Ná smlðisgripirnir, sem eru alls um 70, yfir allar greinar eðlisfræðarinnar, en flestír eru 1 sambandi við rafmagnsfræði. Grip- írnir eru allir mjög vel gerðir, enda hafa kennarar sænsku skól- anna lálið svo um mælt, að Gunnar hafi skarað fram úr við nám sitt. Gagnfræðaskólanum bætast því ágætir kenslukraftar með Gunn- ari, og má vænta hins bezta af starfi hans. Nýr uppdráttur af ísaflrði. Enn hafa snillingshendur Jóns Hróbjartssonar kennara unnið mikið verk og þarft með þvf að gera stóran og nákvæman upp- drált af öllum húsum og lóðum i bænum, eins og það er nú. Mælikvarði uppdráttarins er 1:100 og er niarkað greinilega á uppdráttinn, hvert einasta hús, stór og smá, sem nú er f bænum. Einnig sýnir uppdrátturinn úr hverju efni húsin eru bygð (stein- hús eða timburhús, eða steyptir gaflar o. s. frv.) Jón hefir undanfarið unnið að þessum uppdrætti, og unnist það verk furðu fljótt. Uppdrátturinn er ágætur til kensiu um útlit og umhverfi bæj- arins og hefir afarmikið sögulegt gildi fyrir bæinn. Ætti bærinn að kaupa uppdráttinn af Jóni og eiga í saini sínu. Misbeiting veitingavaldsins. Það kemur ekki á óvart nú orðið, að rlkisstjórnin „sorteri" úr sína pólitisku dilka, þegar um stöður og embætti er að ræða. En margir héldu, að hún myndí bera gæfu og blygðunartilfinn- ingu til þess að veita dómara- stöður þær i Hæstarétti, er losn- uðu við brottför þeirra Eggerts Briems og Páls Einarssonar, samkv. lögum um aidurshámark embættismanna, eftir hæfileikum en ekki eftir pólitískri fylgispekt. Þetta hefir þó orðið alt á eina bók lært hjá þessari ríkisstjórn, eins og vænta mátti. Hún gekk fram hjá Magnúsi Guðmundssyni fyrv. ráðherra og hæstaréttarmálafl.m., en veittiem- bættin Þórði Eyjólfssyni prófessor og Gizuri Bergsteinssyni skrif- stofustj. Þeir, sem ekki eru alveg blind- aðir af flokksofstæki, töldu sjálf- sagt, að Magnús hlyti dómara- embættið fyrir jafn óreyndum manni og Gizur er f þeim störfum. Sýnir þessi embættisveiting áþreifanlega, hve stjórnin traðkar sanngirni og réttlæti til þess að koma að sínum fylgifiskum. Hæstiréttur þjóðarinnar verður jafnan að vera búinn því öryggi, að þar sitji reyndir og gætnir dómendur. Viðskiftahjartveiki. Undarleg hjartveiki hefir gripið bolsana i Reykjavik og þá einn- ig dilka þeirra hér út af því, að Sjálfstæðismenn óska, að við- skitti * fari sem mest fratn milli samherja. Er þetta af þvf sprott- ið, að sósar og Frantsókn hafa löngu tekið upp þessa viðskifta- háttu og hafið herferð á allan atvinnurekstur Sjálfstæðismanna. Alkunnugt er, að hér i bæ hefir ein verzlun haft standandi aug- lýsingu i blaði Skytlinga: „Al- þýðufólk verzlið við Kaupfélagið“, og að engin fyrirtæki þeirra hér auglýsa i öðru en einlitum flokks- blöðum. Vcsturland hefir ekkert fjarg- viðrast út af þessu, en telur eðlilegt að Sjálfstæðismenn svari slikum herferðum á sama háttog etli viðskifti sfn innbyrðis eins og ástæður leyta. Til fyrírmyndar. Sigtryggur Guðmundsson vél- smiður hér hefir fengið blett fyrir sumarbústað á kvlabólinu í Tungu. Er það stórgrýtisholt, en hlé fyrir norðri. Hefir Sigtryggur varið tómstundum slnum til þess að taka þar upp grjót og umgirða blettinn, og hefir unnið alt þetta verk einn. Margir sumarbústaðaeigendur i Dagverðardal hafa lagt mikla vinnu og verk í að laga umhverfis bústaði sina. En fáir eða engir hafa unnið þetta alt sjálfir. Landþrengslin umhverfis jsa- fjörð eru ákaflega mikil, en rækt- unaráhugi almennings mun engu minni en annarstaðar. F Frk. Elísabet Sigurðard., I (systir sr. Sigurg. Sigurðssonar próf. hér) druknaði i Ljósafossi f Soginu I þ. m., og fanst lík hennar i fyrradag. Elisabet var mörgum að góðu kunn hér vestra frá námskeiðum i mat- reiðslu, er hún kendi við um nokkurt skeið. Síðustu árin rak hún matstofuna Heitt og kalt i Reykjavik, og ávann sér allra hylli, er þar komu. Elfsabet.var virt og vinsæl af öilum kunnug- um. Atvinnuleysisskráning æskufólks i Reykjavik er ný- lokið; hófst 14. þ. m. Alls voru skráðir 130—140 atvinnulausir, þar af 30—40 stúlkur. Er það vonum minna I svo miklu fjöl- menni; líklega yrði hlutfallstalan hér hærri. Nýtt danskt^ hafransóknarskip. Hið góðkunna hafransóknar- skip „Dana“, sem verið hefir við ransóknir hér við land um mörg ár, sökk 22. júnf sl. sökum ásigl- ingar þýzka botnv. „Pickhuben" frá Cuxhaven. Var tap „Dana“ mjög tilfinnanlegt, því með henni töpuðust 15 ára skýrslur og dag- bækur um rannsóknarstarfið og margskonar visindaleg áhöld. Var skipið með áhöldum metið 750 þús. kr. og var óvátrygt, eins og önnur skip danska ríkisins. Nú hafa Danir hafist handa utn byggingu á nýju skipi í stað „Darta". Verður það 45 metrar á lengd, 8Va á breidd og 4Va 'm. á dýpt. í skipinu verður 500 hestatla Ðieselvél. Raffræðideild Verður sett á stotn við Vélstj.- skólann nú f haust. Fer kenslan fram 1 2 deildum. Kennari verð- ur Jakob Gislason, raffræðingur. Stofnun þessarar kenslu er mesta þarfaverk, sem of iengi hefir dregist að hrinda i framkvæmd. Fjölgað í atvinnubótavinnunni. Atvinnubótanefnd hefir nú fjölg- að nokkuð f atvinnubótavinnu bæjaríns. Verður það aðalverk- efnið fyrst um sinn að vinna að framræzlu á landsvæði þvi, er lýst var i siðasta tbl. Vesturlands og samþ. hefir verið að taka til notkunar. Er gert ráð fyrir, að um 20 manns (máske fleiri) vinni þarna, meðan tlð leyfir. Jafn alment og atvinnuleysið er hér, varð ekki hjá þvf komist að auka atvinnubótavinnuna einmitt nú, og vantar mikið til, að þessi aukning sé jafn mikil og þörf er fyrir. Messað verður hér I kirkjunni kl. 2 e.h. á morgun. Sira Halldór Kolbeinz prédikar. Krónu-útgáfan, heitir ný útgáfa sem flytur sjálf- stæðar smásögur eftir fræga höf- unda, einnig stærri sögur með framhaldi, eftir þvf sem heftin koma út. — Krónuútgáian kemur út einu sinni í mánuði. >— Krónu- útgáfan fæst hjá Helga Guðbjarts- syni, ísafirði. Leyfar sitfustu heimsstyrjaldar. 9 miljónir munaðarleysingja; 10 miljónir heimilislausra; lOmiljónir fallinna; 19 miljónir særðra; 7 miljónir fanga; 4062 bæir og borgir eyðilagðar; 5 milj. ekkna. 10 miljónir manna örkumla. — Verksmiðjur og ibúðarhús voru eyðilögð fyrír 50 miljarða króna; 3250 skipum sökt, að verðmæti 18 miljarðar krónur. 9 þús. flug- vélar skotnar niður. Menningarlegu verðmætin sem töpuðust ná engar tölur eða mál yfir. Styrjöldin stóð 4 ár 3 mátiuði og 10 daga. Alls voru kvaddir til vopna 66 miljónir manna; 42 miljónir af bandamönnum og 24 miijónir af miðveldununi. Frá þessari ægilegu styrjöld eru enn ekki liðin nema rúm 16 ár, og þó er ems og „lexian“ sé gleymd hjá forráðamönnum þjóð- anna — og þeir steypa sér og þjóðum sinum i nýja styrjöld, sem eflaust verður miklu ægilegri. Til sölu með tækiíærisverði: 2 rumstæði, 4 plyds° stólar, 1 plyds-sófi, 1 mahogni-borð o. fl. Aígreiðslan vísar á. Nýleg skekta með seglum og árum til sölu. Katarlnus Jónsson, Arnardal. Ágœtt útvappstœki með leiðslum og batteríum til sölu með tækifærisverði. R. v. á.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.