Vesturland

Árgangur

Vesturland - 12.08.1939, Blaðsíða 1

Vesturland - 12.08.1939, Blaðsíða 1
VESTURLAND BLAÐ VESTFIRZKRA SJÁLFSTÆÐISMANNA RITSTJÓRI: ARNGR. F R. BJARNASON XVI. árgangur. ísafjörður, 12. ágúst 1939. 33. tölublað. Rétta leiðin til að vinna markaði fyrir islenzk- ar vörur er að íslendingar annist það sjálfir Merkileg tillaga frá Ludvig Storr. Það er víðar en hjá okkur ís- lendingum, sem erlitt gengur að selja framleiðsluvörurnar. En flestar aðrar þjóðir fylgja sjálfar fram sölu afurðanna með enn meira kappi og krafti en við gerum. T. d. senda Norðmenn, frændur vorir, sem eru mestu og erfiðustu keppinautar okkar um fisksölu alla, fjölda manna til markaðslandanna, sem ýmist er komið I þjönustu góðra firma í þvi landi, er þeir starfa, eða starfa þar á eigin hönd. Undan- farin ár hefir fjöldi slfkra norskra manna starfað bæði á Spáni og I Portugal, og má ekki sízt þakka starfi þeirra hvað áunnist hefir með aukna fisksölu. Nú starfar fjöldi Norðmanna vlðsvegar um alla Ameríku, beint í þeim tilgangi, að ryðja norsk- um vörum til markaðar þar. Danir og Svíar fara að likt þessu. Og oft láta þessar og aðrar þjóðir sér ekki nægja að eiga þátt I heildsöluviðskiftun- um, heldur taka og sölu vör- unnar beint til neytenda til þess á þann hátt að ryðja braut nýjum og óþektum vörutegundum. Þann- ig höfðu Danir um eða yfir 1 þúsund útsölur eða verzlanir I enskum borgum meðan þeir voru að vinna fastan markað fyrir smjör sitt, ilesk og fleiri land- búnaðarvörur. í sambandi við hinn óhagstæða verzlunarjöfnuð undanfarin ár milli íslands og Danmerkur og hve erfiðlega gengur með sölu margra íslenzkra afurða í Dan- mörku hefir Ludvig Storr kaup- maður í Reykjavík komið fram með þá tillögu, að íslendingar komi upp nokkrum útsölustöðum fslenzkra afurða I Kaupmanna- höfn og annist rekstur þeirra sjálfir. Telur hann víst, að á þennan hátt myndi smátt og smátt opnast víðtækur markaður fyrir ýmsar islenzkar framleiðslu- vörur I Danmörku, einkum ef bygt yrði eða leigt kælihús á hentugum stað, svo alt af væri greiður aðgangur tií geymslu á vörunum. Enginn efi er á þvi, að rétta og öruggasta leiðin til þess að vinna markaði fyrir íslenzkar vörur er sú, að íslendingar ann- ist það sjálffr. Ekki eingöngu í Danmörku, heldur hvar sem er I heiminum. Á þann hátt fær fslenzk verzlunarstétt nauösyn- lega reynslu og þjálfun, og möguleikar til stærri og meiri viðskifta opnast jafn harðan eftir þvi framleiðslan eykst eða verð- ur fjölbreyttari. Sumir telja, að við höfum litið og fábreytt að selja. En sann- leikurinn er sá, að við höfum miklar og fjölbreyttar vörur að selja — ekki eingöngu hlutfalls- lega eftir mannfjölda — heldur á miklu stærri mælikvarða. En til þess þarf enn að breyta framleiðsluháttunum,einkumhvað fiskveiðarnar snertir, og færa verk- un aflans meira til fiskiðnaðar. Á því sviði er mest að læra af Þjóðverjum og tækni þeirra þarf að verða okkur til fyrir- myndar. Margskonar verksmiðju- rekstur I sambandi við fiskveið- arnar á fullan tilverurétt og Iffsskilyrði hér á landi, til þess að skapa meira verðmæti og vinnu við aflann, sem ætti að verða öllum aukinn gróði: Út- gerðinni, sjómönnunum og verka- fólki I landi. Það eru engir draumórar, að verksmiðjur til þess að vinna ullarlíki og eggjahvftuefni úr fiski geti starfað hér á landi'með ekki lakari árangri en I Þýzkalandi, þar sem allur fiskur er dýr vara. Okkur vantar enn þekkinguna. Þegar hún er fyrir hendi mun fé fást til framkvæmdanna. Eg hefi lika trú á því, að fisk- réttir úr möluðum fiski eigi I bráðri framtíð eftir að vinna sér viða markaði. Allur matur sem er nærandi, bragðgóður og til- tækur hvar sem er, hlýtur að eiga góðar söluvonir. Þetta eru nú framtíðarbolla- leggingar, segja menn. — Það er rétt. En þær verða að veru- leika fyr en varir. Og útgerðin hér við land er orðin svo dýr og kostnaðarsöm á allan máta, að hún getur ekki staðist nema með auknu verðmæti fyrir aflann. En þessar hugleiðingar eiga aðallega að snúast um sölu fs- lenzkra framleiðsluvara, eins og hún liggur nú fyrir. Hvað getum við selt, t. d. I Danmörku, þótt við færum að setja þar upp sölu- búðir. Við getum I fyrsta lagi selt talsvert af sild, ýmislega verkaðri, segjum 50 þúsund tunnur eftir skamman tima. Við getum selt meiri saltfisk til inn- anlandsneyzlu, fryst fiskflök og mikið af niðursoðnu fiskmeti. Einnig sildarmjöl og lýsi. Af Iandbúnaðarvörum hefir hraðfrysta dilkakjötið þegar unn- ið sér svo mikið álit í Danmörku, að danskir bændur kvarta und- an þvl sem skæðum keppinaut við innlenda kjötið. Er þvi vanda- laust að selja meira af frystu íslenzku kjöti til Danmerkur. Af öðrum landbúnaðarvörum, sem liklegt er að nái góðum markaði í Danmörku má nefna skyr og ber. Þótt þær vörur hossi ekki háu sem stendur gætu þær gefið drjúgan skilding I þjóðarbúið. Þá er og engan veginn óhugs- andi, að við gætum selt Dönum talsvert af ávöxtum, ræktuðum hér við hverahita, svo og ýms jarðefni til húsaskreytingar. Og eitt er ónefnt enn. Það er prjón- lesið. Fyrir gott prjónles er tals- verður markaður nú þegar í Danmörku og má vafalaust auka hann mikið. En þótt dvalið hafi verið um stund við það, er við gætum selt Dönum, þar sem við höfum samkvæmt sambandslögunum jafnan rétt við þá um atvinnu- rekstur I Danmörku, eiga verzl- unarleiðir okkar að liggja til stærri markaða, og fyrst og fremst að beinast að auknum viðskift- um I Englandi, Þýzkalandi og Amerlku. Að því þurfa margar islenzk- ar hendur að vinna. Fjöldi ungra og reglusamra íslendinga þarf skipulega að dreifast um þessi fyrnefndu lönd og mörg önnur, t. d. Spán, Portugal og ítalfu. Þeir eiga að vera I einskonar viking. Fyrst og fremst til þess að afla sér þekkingar og reynslu til ávaxtar fyrir ættjörðina. Með eldlegum áhuga og dugnaði verða þeir að ganga að störfun- um, hvort sem þau eru unnin I skjóli eða ábyrgð annara eða á eigin hönd. Námsmannafjöldinn siðustu ár- in er talinn óhóflegur fyrir heima- störfin, og þó hafa langflestir þeirra snúið hér að störfum eða starfsleysi. Með þeirri tilhögun, sem hér er rædd, fá hinir ungu námsmenn mikið verkefni, sem engan veginn verður tæmt eða fullskipað fyrstu árin. Með þvl fá þeir ábyrgðarmikið starf og útsýn yfir lif og háttu annara þjóða, sem alt á að skoðast I þvi Ijósi, sem gagnað getur landi þeirra þjóð. Þeir eiga að menta og auðga sjálfa sig til þess, að geta helgað velferðarmálumþjóð- arinnar krafta sina og þekkingu alla, svo að íslendingar geti rutt sér nægilegt alnbogarúm I al- þjóðaviðskiftum. Þótt sumt af sendimönnunum kynni að bregðast, sem engin ástæða er til að ætla að óreyndu, er vafalaust að margir og flestir þeirra myndu færa þjóðinni marg- falda ávexti. Það er víst að með þessu eina móti er unt að vinna bug á sölutregðu fslenzkra afurða, sem öll þjóöin llður nú við. For- göngu að þvl að hrinda þessu til framkvæmda eiga að hafa i fullri og einlægri.samvinnu Verzl- unarráð íslands og samband Is- lenzkra samvinnufélaga. Ekki I neinni samkepni heldur fullu samstarfi. Að því er snertir sölu- meðferð fiskafurða ælti sölusam- band íslenzkra fiskframleiðenda að vera I samráðum og styrkja framkvæmdirnar, en búnaðarfé- lagið að þvi er snertir landbún- aðarafurðir. Fyrst I stað yrði liklega að snúa sér aðallega að þeirri leið, að útvega Islenzkum verzlunar- mönnum atvinnu hjá erlendum firmum I þessu augnamiði. Mætti t. d. byrja á þvi að koma að efnilegum mönnum I Englandi og Þýzkalandi, svo sem 20 I hvoru landi um sig og enn fleiri i Ameriku, ef þess væri kostur. Jafn sjálfsagt er og að gefa aukn- um viðskiftum hvervetna annar- staðar fullan gaum, og sérstak- lega við Norðurlandaþjóðirnar og athuga möguleika fyrir þvi, að íslendingar geti náð fótfestu til verzlunar I Danmörku. Leiðin út úr erfiðleikum at- vinnumálanna liggur I meira samstarfi allra aðila, en jafnframt meiri stórhug til nauðsynlegra breytinga og ákveðnu takmarki, einkum að þvf er snertir aukna og hagkvæmari sölu afurðanna, sem er þýðingarmesta atriðið eins og nú stendur.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.