Vesturland

Árgangur

Vesturland - 04.11.1939, Síða 3

Vesturland - 04.11.1939, Síða 3
VESTURLAND 175 Bækur. Hagalín segir fra. Skemtilegar og skrítnar minningar frá Noregi. Prentstofan ísrún, ísafjörður 1939. Hagalín hefir verið einn stór- virkasti rithöfundurinn siðustu árin. Og vaxið að verkefnum. Um það ber skáldsaga hans Sturla í Vogutn ljósan vott. Hagalin hefir líka opið auga fyrir fleiru en skáldskap sjálfs síns. Hugurinn reikar oft til þjóðfræða eldri og yngri, og þó liklega mest til „kúnstugra" karla og kerlinga, sem hann hefir þekkt eða rekist á á eftir- minnilegan hátt. í hinni nýju bók sinni: Haga- lin segir frá, nær hann sér enn á sporið með lifandi Iýsingum úr norsku alþýðulífi, sem allt eins gæru verið íslenzkar. Þótt allar frásagnir bókarinnar séu skemtilegar er Hagalin í essinu sinu I köfiunum: Hún heitir bara Hansína og Djúpar rætur. Þar hefir hann fyrir sér karl og kerlingu I ætt við hamrafjöllin, sem hvort um sig geta ekki bognað, bara brotnað. Ekki gefist upp við að ná settu marki meðan þau draga andann. Hagalín segir frá, opnar ó- kunnugum nýja innsýn i skáld- eðli hans. Sú bók sýnir, að hann á marga strengi til þess að leika á og bregða fyrir sig, og mikia stílgáfu. Vafalaust verð- ur því þessi nýja bók hans mikið keypt og lesin, enda á hún skilið að verða ekki sett í neinn krókbekk hjá öðrum verk- um Hagalíns. Árbók Ferðafélagsins 1939. Enn ný ágætis árbók Perða- félags íslands. Hún fjallar samt ekki um ferða- lög manna eða landlýsingar, heldur um ferðalög og bústaði allra íslenzkra fugla, og er prýdd fjölda ágætra mynda, efninu til skýringar. Magnús Björnsson náttúrufræðingur hefir samið bókina og segist í for- mála hafa tekið það eitt fram í bók þessari, sem vitað sé og viðurkent um líf og háttu islenzkra fugia. Er því óhætt að reiða sig á frásögn og fróðleik bókarinnar. Má bæði þakka höfundi og Ferðafélaginu þessa ágætu bók, sem lýkur upp óþektuin eða lítt þektum heimi fyrir mörgum les- anda og kennir honum að þekkja þann mikiisverða hlut af náttúru landsins, sem fuglalifið er. Næsta árbók Ferðafélagsins verður uin Vestfirði. Það ætti vel við að fagna henni með fjöl- mennri ferðafélagsdeild hér á ísafirði. Nýjar kosningar. Það virðist fara illa í taug- arnar á þeim sósfalistum, að talað er um nýjar kosningar. Það er rétt eins og þeim finnist þeir eiga skilið, að kjósendur hýði þá við kjörborðið fyrir öll loforðasvikin við alþýðu og hvernig þeir um ieið hafa út- vegað sér fé, embætti og völd á kostnað aimennings. Fæstir munu telja yfirst. tíma hentugan til kosninga. En hvert ker verður að lokum svo fult að út af flóir. Þolinmæðin getur þrotið og á að þrjóta þegar ástandið verður óþolandi. Fáist engin lagfæring á ástandinu eins og það hefir verið nú og er enn i flestum greinum er það óþol- andi frá sjónarmiði Sjálfstæðis- manna og ekki annað fyrir hendi en að ráðherrar þeirra hverfi úr rikisstjórninni og flokkurinn geri kröfur til nýrra kosninga. Mun Sjálfstæðisflokkurinn i þeim efn- um ekkert glúpna við grátstafi þeirra rauðu vesalinga, sem vænta sér að fá maklegan skell í kosningunum. Útlánstími bókasafnsins. Ýmsir sjómenn hér i bænum hafa haft orð á því, að fá breytt útlánstíma bókasafnsins sem nú er kl. 8—9 að kveldi. Telja þeir heppilegastan timann kl. 6—7 siðd. Erþessu hér með kornið áleiðis til bókavarðar eða bókasafns- nefndar. Ætti það að vera útláta- laust fyrir alla, að útlánstíma bókasafnsins yrði breytt í það horf, sem óskað er eftir. Tíðarfar er enn sem sumar væri; snjó- laust upp á fjallabrúnir. Tún, sem ekki eru beitt, spretta enn. Mætti vel slá sum þeirra nú i nóvember, i fjórða sinn. Bifreiðarstjórar, sem fara yfir Breiðadalsheiði segja að akfæri sé nú eins og bezt gerist að sumri til. Slik árgæzka og nú er einstök hér á landi. í siðustu viku voru miklir kuld- ar sumstaðar í Evrópu; t. d. eyðilagðist vínberjauppskera i Norður-ítalfu sökum frosta. Til kaupenda Vestur- lands i ísafj.sýslum. Þeir kaupendur Vesturlands í Isafjarðarsýslum, sem skulda yfirstandandi árgang eða eldri árganga Vesturlands, eru vin- samlegast beðnir að gera skil nú fyrir áramót. Eins og annað, hækkar nú alit er að prentunarkostnaði lýtur og blaðinu þvi áriðandi, að kaupendur þess reynist skilvísir. Vinsamlegast, Arngr. Fr. Bjarnason. eru beztu vinir hag- sýnnra húsmæðra. Sólar- og Stjörnu-smjörlíki og Sólar-jurtafeiti ern uppáhald allra hús- . mæðra, sem hafa reynt það. Merkjasala stórstúkunnar. Stórstúka íslands hefir fengið leyfi til merkjasölu til ágóða fyrir bindindisstarfsemi. Eru merk- in seid í dag og á morgun. Aliir bindindisvinir ættu að kaupa merki þessi. Huginn III. hefir stundað reknetaveiðar í Faxaflóa frá þvi seint í septem- ber. Hafði hann aflað nú um mánaðamótin 650 tn. í salt og nokkur mál í bræðslu, eða alls um 700 tunnur. Hefir annað veifið verið tals- verð sfidveiði i Faxafióa. Búist er þó við að sildveiðarnar þar hætti innan skamms. Þykir ekki þorandi að salta meiri sild um sinn fyrir Ameriku-markað, en flestir aðrir síldarmarkaðir lok- £fðir fyrir okkur íslendingum sem stendur vegna styrjaldar- ástandsins- 10—15°|o afslátt gef eg af allri álna- vöru og útsaumsvör- um næstu viku. Guðbjörg Guðjónsdóttir. Talsverð síldargengd hefir verið hér á Pollinum I alt haust, og hefir sildin veiðst mest grunt. Síðustu dagana hefir verið ágæt veiði á leirunum, innanvert við Skipeyri. Síldin er stór og feit og hlýtur að vera ágæt útflutningsvara. Hjúskapur: 28 f. m. giftu sig hér i bæn- um: frk. Unnur Hermannsdóttir og Ólafur Ólafsson fulltrúi á sýsluskrifstofunni, og frk. Helga Pálsdóttir (Heimabæ í Hnífsdal) og Skúii Hermannsson sjóm. Þarna er pabbi þinn tryggður. Umboð á ísafirði: Verzlun J. S. Edwald. Innlendar [bækur: Hagalín segir frá, G. G. Hagalín. Ljósið í kotinu, Óskar Aðal- steinn Guðjónsson. Baugabrot, Indriði Þorkelsson á Fjalli. Á heimleið, leikrit, Guðr. Láiusd. Systkinin, [.Davíð Jóhannesson. Bergmál I—III, leikrit. í ljósaskiftum, Friðrik H. Berg. Prestasögur, Óskar Clausen. Þýddar bækur: Sól og syndir, Sigurd Hoel. Fegrun og snyrting, þýtt hefir frú Kristln Ólafsdóttir, læknir. Danmörk, Færeyjar, Grænland. Barnabækur: Ný útgáfa með myndum af Rauðhettu og Öskubusku. Sjálfstæðiskvenfélagið Brynja hélt aðalfund sinn 27. f. m. Formaður var kosinn í stað frú Ásu Theodors, sem flutt er bú- ferlum úr bænum, frú Anna Jónsdóttir, og meðstjórnendur: frúrnar Guðlaug Dahlmann, Sig- riður Þórðardóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Guðrún Bjarnadóttir.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.