Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 23.11.1940, Qupperneq 1

Vesturland - 23.11.1940, Qupperneq 1
VESTURLAND BLAÐ VESTFIRZKRA SJÁLFSTÆÐISMANNA RITSTJÓRI: ARNGR. F R. BJARNASON XVII. árgangur. ísafjörður, 23. nóvember 1940. 46. tölublað. Vill halda völdunum Grikkir vinna stórsigra í Al- fram i andlátið. baniu og taka mikið herfang. Það er nokkurn veginn aug- ljóst mál, að hinn áður ört vax- andi Alþýðuflokkur hefir verið á híiiðri niðurgöngu síðustu árin. -Sjálfsagt hefir engum verið þetta ljósara en foringjunum sjálfum. Þeir eru kunnugastirog hafa allstaðar eða vfðast hvar fundið nágustinn anda á móti sér. Þess vegna hafa foringjarnir viljað sýna myndugleik sinn með þvf, að láta „fólkið finna fyrir valdinu". Það átti að kenna því að hlýða foringjunum með stríðu úr þvf það ekki tókst með bliðu. Þetta tókst þó ekki heldur. Fólkið fjarlægðist foringjana meira og meira, hló stundum að öllum ærslaganginum og umsig- slættinum. Það sá foringjana, sem sögðust „gera alt fyrir al- þýðuna", sem nýríka burgeisa, feitt embætti í dag, annað á morgun og þriðja hinn daginn, Ieika smákonga við alþýðuna, þegar þeir þóttust nógu fastir f sessi. Þá var nú ekki talað um lýðræði og frelsi, heldur var ein- ræðið efst á baugi, og vægðar- laus útskúfun beið þeirra, sem ekki vildu beygja sig og kyssa á fót kúgarans. íslenzk alþýða lét ekki kúgast. Hún vill frelsi og lýðræði, en fordæmir einræði og kúgun. — Fleiri og fleiri sneru baki við foringjunum. Sumir gengu beint til andstöðu við þessa nýju ein- ræðispostula, en allur fjöldinn lét sér nægja afskiftaleysið af öllu þessu brambolti foringjanna, sem þeir fyrirfitu í hjarta sfnu. Svo langt var komið að sópa burt allri gyllingunni, að stærstu verkalýðsfélögin sögðu skilið við Alþýðusambandið vegna óþolandi einræðis, og fleiri og fleiri félög fetuðu I þeirra spor. Einræði Alþýðusambandsins varð ekki varið lengur, að því var sótt úr öllum áttum. Foringjamir neyddust til þess að breyta til, og afneita einræðinu, en Adam þeirra alþýðuforingjanna var ekki lengi í þeirri Paradís. Þetia kom greinilega fram á nýafstöðnu þingi Alþýðusam- bandsins. Svo að segja allir full- trúar þingsins afneituðu hinu gamla einræði, og vildu sverja sig sem lengst frá þvl. Nú var ráðin ný skipan, þar sem lýð- ræðið á að ráða, og pólitlskir fjötrar að vera fordæmdir. En þegar ráða á framkvæmdarstjórn er alt komið I gamla horfið aftur hjá fulltrúunum á Alþýðusam- bandsþingu. Ekki má slaka á einni einustu fjöturskrúfu ein- ræðisins. Völdunum Viljum við halda alveg fram í andlátið, segja foringjarnir. í framkvæmdastjórn- inní verða eingöngu að sitja okkur pólitísku þægu lömb eða harðsvfraður bitlingalýður. Hvað varðar um lýðræði? Hvað varðar um samstarf og samheldni? Jú, það er .alveg rétt, að dýr- tfðin hefir bitnað þyngst og al- varlegast á verkalýðnum, og að einingar og samheldni er full þörf í kaupgjaldsbaráttu þeirri, sem fyrir dyrum stendur. Þetta er ekki númer eitt hjá alþýðuforingjunum heldur hitt, að halda völdunum eins lengi og mögulegt er, helzt alveg fram í andlátið. Eru völdin svona sæt, eða er einræðið svo fast þeim í blóðið borið, að þeir hafa ekkert lært af reynslu Alþýðuflokksins undan- farin ár. Mætti þó hverjum vera augljóst, að honum hefir orðið einræðið að falli. Og meðan Alþýðuflokkurinn afneitar ekki einræði og ofbeldi í orði og verki heldur hann vissulega áfram að visna og deyja. Fylkingin kringum for- ingjana smáþynnist. Alþýðan sér að hún hefir fengið steina fyrir brauð og kúgun fyrir frelsi. Valdhafarnir treysta á lifvörð sinn. Hann á að halda allri óá- nægju niðri með harðri hendi, ef á þarf að halda. Bitlingaliðið er lifvörður Alþýðuflokksins. Það á að halda niðri óánægju ai- þýðunnar, ýmist með harðri hendi eða fagurgaia og blekkingum. Þetta er samhent og samvalin sveit, sem viða hefir beitt hnú- um og hnefum undanfarið, en þetta málalið mun iíka verða ótrygt þegar opinn pólitiskur dauði blasir við, og alþýðan ritar „mene tekel“ yfir „foringjunum* sem hanga við völd í skjóli ein- ræðisins. Harðir bardagar hafa staðið yfir undanfarið á vigstöðvunum í Qrikklandi. Hefir Qrikkjum veitt hvarvetna betur og i fyrra dag náðu þeir borginni Koritza úr höndum ítala, og tóku þar mikið herfang. Hefir lengi verið barist um Koritza, oglögðu ítalir mikið kapp á að halda borginni, enda er hún hernaðarlega mikii- væg. Hafa ítölsku hersveitirnar nú tekið sér varnarstöðu vestan við borgina, og vænta þangað hjálparliðs. ítaiir hafa lfka orðið að láta undan síga á öðrum vigstöðv- um i Grikklandi. Segjast Grikkir nú hafa hrakið ítali algerlega úr landi sfnu, og einnig hafa náð suðausturhorni Albaniu á sitt vald. Mið-Evrópuráðstefna. Um miðja vikuna stóð yfir mikil ráðstefna ráðandi stjórn- málamanna á meginlandiEvrópu. Var ráðstefnan í Vinarborg, og fór Hitler rikisleiðtogi Þýzkalands þangað, og margt stórmenni annað. Ráðstefnan hefir verið nefndMið Evrópuráðstefnan. Að ráðstefnu þessari gerðist Ung- verjaland aðili að þriveldasátt- málanum svonefnda, og i gær gerðist Rúnenía einnig aðili að sama sáttmála, og búist er við að Jugoslavía fylgi í sömu slóð- ina. Talið er að öxulveldin hafi unnið mikla stjórnmálasigra með þessari ráðstefnu. Mikil vináttumál hafa lika farið milli Þjóðverja og Rússa. Var Molotov, utanrikismálaráðherra Rússa, tekið með kostum og kynjum, þegar hann kom f heim- sókn til Berlínar fyrir skemstu. Lofthernaðurinn er i sama algleymirtgi og áð- ur, og færist þó heldur í aukana. Hafa brezkar flugsveitir gert magnaðar árásir á margar borgir og herstöðvar f ítalfu, og segj- ast hafa valdið miklu tjóni. Þýzkar flugsveitir gera nú stöðugar árásir á Bretland. Segjast Þjóðverjar hafa valdið stórkostlegri eyðileggingu í mik- ilvægustu iðnaðarborgum Bret- lands. Þessir sigurvinningar hafa að vonum vakið mikinn fögnuð í Grikklandi fyrst og fremst, en einnig í Bretlandi, Hafa Bretar stutt Grikki með ráðum og dáð f bardögunum við ítali, og eiga Bretar eflaust mikinn þátt í sigr- um Grikkja. Stjórnmálamönnum þykir enn vant að sjá, hvernig málum skipast á Balkanskaga. Vilja Tyrkir sjáanlega vera viðbúnir óvæntri árás. Samþykti tyrk- neska stjórnin á fundi sinum í nótt er leið, að herlög skuii gilda i héruðunum umhverfis Bospörus og Dardanellasund. Er ákveðið að herlög þessi gildi fyrst um sinn í mánuð. Búlgarar hafa hinsvegar engar slíkar ráðstafanir gert. Svona til einskonar tilbreyt- ingar skiftast svo Bretar og Þjóðverjar á skotum yfir Dower- sund með hinum langdrægu fallbyssum. 16. þing Alþýðusambands íslands lauk nú í vikunni. Samþykt var með yfirgnæfandi meiri- hluta að aðskilja Alþýðusam- bandið og Alþýðuflokkinn. Bar Magnús H. Jónsson, formaður H. í. P., fram rökstudda dag- skrá um að visa lagabreytingun- um frá, en hún fékk aðeins 7 atkvæði, er til kom. Forseti hins nýja Sambands var kosinn Sigurjón Á. Ólafsson, formaður Sjómannafélags Reykja- vikur, og með honum i stjórn- ina einlit hjörð. Verður sam- starfið hér á landi sifeit minna en áður var, í stað þess að I Noregi og Danmörku, þar sem líkt stendur á og hér, er sam- starfið alt af að aukast, og hin gamla flokkabarátta má heita horfin. Bera þeir þunga ábyrgð, sem með einræði sínu koma i veg fyrir eðlilega samvinnu. Hér á landi er not fyrir alla krafta, og nóg eru nauðsynjamálin til þess að reyna kraftana á.

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.