Vesturland - 13.06.1946, Qupperneq 3
VESTURLAND
3
Hvar og hvernig er heppi-
legast að byggja
Framhald af 3. síðu.
enn hér á landi svo ég viti til.
En í Svíþjóð hefir farið fram
margháttuð athugun á þessu
máli. Merlcust athugun, sem
hefir farið fram á þessu síðan
1939 er talin sú, sefn fram-
kvæmd hefir verið af Félagi
sænskra húsameistara og
Handíðafélaginu sænska.
Takmark þessarar rann-
sóknar var að komast að raun
um hvaða stærðir og gerðir i-
búða væru hentugar. Þeir, sem
framleiða skófatnað eða tilbú-
in föt hafa fyrir löngu upp-
götvað að nauðsynlegt er að
athuga og mæla allmargt fólk
til þess að finna meðaltals-
málin og algengustu hreyting-
ar frá þeim.
1 byggingum hefir hins vegar
verið farið þannig að, að byggt
hefir verið meira og minna
af handahófi. Hefir þvi bygg-
ingarefni og vinnuafl það, sem
til bygginganna liefir farið
notast mun ver en skyldi. Auk
þess hafa margar ihúðirnar
orðið óhentugar, vinnufrekar
og erfiðar.
Ef byggðar verða 100 íbúðir
og hver kostar að meðaltali 60
þús. kr. þá sparast 600 þús.
krónur, þótt ekki væri hægt að
hagnýta húsnæðið nema 10%
betur en með þeim hætti, sem
verið hefir á íbúðarbyggingum
til þessa.
1 verksmiðjum hefir hins-
vegar oft tekizt að fá allt upp
í 15—20% betri hagnýtingu, er
húsameistarar og verkfræðing-
ar hafa verið kvaddir til. —
Til þess að byggingarkostnaður
geti lækkað verulega er talið
að ákveða þurfi gerð einstakra
hluta íbúðar svo hægt sé að
- koma við ódýrri fjöldafram-
leiðslu. Þetta þarf ekki að
verða til þess að íbúðirnar
verði hver annarri líkari en
verið hefir.
Þvert á móti gæti það, vegna
þess hvað húsin yrðu ódýrari
með þessum hætti, orðið til
þess að fá meiri tilbreytingu i
stærð íbúða og gerð.
Heimilin eru sá vettvangur,
þar sem fleiri vinna heldur en
við nokkra aðra starfsgrein. —
Það skiptir þvi mjög miklu
máli að heimilunum sé eins
haganlega fyrirkomið og auð-
ið er.
Auk áðurtaldra félaga hefir
samband húsmæðrafélaga og
fleiri félög aðstoðað við þessar
rannsóknir.
Niðurstaða þessarra rann-
sókna varð sú að í Svíþjóð
þurfi meðalfjölskylda íbúð,
sem sé 57 fermetrar að flatar-
máli, sem skiptist í eftirtalin
herbergi: Eldhús, dagstofa,
svefnherbergi og „betrilí stofa.
Jafn nauðsynlegt og það er,
að finna hver gerð íbúða er
heppilegust, er það, aðvita hver
gerð húsa er henlugust. Þar
m
eru þrjú atriði sem skipta
miklu máli:
1. Hvernig hús mönnum eru
geðfelldust.
■ 2. Skipulag og fjöldi þeiri*a
ibúða, sem byggja þarf.
3. Byggingarkostnaður.
Venjulega ræður þó bygg-
ingakostnaðurinn mestu um
gerð þeirra húsa, sem valin er.
Til þess að fá úr því skorið
báru Sviarnir saman:
1. einstök einnar hæðar hús.
2. sambyggð hús, 1 hæð.
3. Sambyggð hús 2—3 hæðir.
4. 2—3 hæða hús, á hverri
hæð margar íbúðir.
Þá kom i ljós að ef verð í-
búðar í 2—3 hæðar liúsi sam-
byggð eða margar á hæð (3—
4) er talin 100, og húsaleigan
í sama húsi er talin 100, þá er
byggingarkostnaður íbúðar i
einstöku einnar hæðar húsi 145
og húsaleigan 150. En bygging-
arkostnaður íbúðar í sam-
byggðu 1 hæðar húsi eða ein-
stæðu 2ja liæða húsi 114 og
húsaleigan 127.
Enginn vafi er á að þessu er
líkt háttað hér.
Sumir hafa á móti slikum
húsum af því að þeir þurfi að
sínum hluta að annast eftirlit
og þrif á stórum stigum og
göngum, en erlendis er venja
að húsvörður annist þrif og
eftirlit sameiginlegra stiga og
ganga, og yfirumsjón þvotta-
hússins o. s. frv. og er þá sú
mótbára úr sögunni.
Þá þykir öðrum erfitt að
ganga stiga upp á aðra eða
þriðju hæð. Á móti þvi gæti
það vegið ef hægt' væri að
finna slíku húsi stað þar sem
það væri v(ri sett í bænum.
Styttist leiðin í verzlanir o. s.
frv. þá sem því næmi, er stig-
arnir væru erfiðari á efri hæð-
um húsanna.
Þá er einnig nauðsynlegt
að skipuleggja skynsamlega
byggðina, svo útgjöld til vega,
skolps, vatns, rafmagns, raf«-
veitu o. s. frv. verði ekki ó-
þarflega mikil vegna handa-
hófs, sem engum er til gagns.
Kjartan J. Jóhannsson.
-------O-------
Öruggt fylgi Sjálfstæðis-
manna í Norðursýslunni.
Framboðsfundir í Norður-
Isafjarðarsýslu hófust þann 2.
júní. Allir hafa fundirnir ver-
ið vel sóttir nema Arngerðar-
eyrarfundurinn.
Fundirnir hafa yfirleitt farið
vel fram.
Hafa Norður-lsfirðingar al-
mennt hlegið að mannalátum
Hannibals, sem hefur haldið
því fram, að hann yrði kosinn.
Hvarvetna í sýslunni telja
menn kosningu Sigurðar frá
Vigur örugga, enda hefur hann
fengið hinar ágætustu móttök-
ur á öllum fundunum.
Sérstaka óbeit hafa bændur
á skjalli Hannibals, sem þekkt-
ur er að fjáridskap við bænda-
stéttina.
Hjónin, sem fórnst í eldinum, þegar
Fell brann.
Guðrún Árnadóttir Sigurvin Veturliðason
Myndir frá stórbrunanum á tsafirði|
3. júni síðastliðinn.
Þessi mynd sýnir þegar húsin beggja megin við götuna eru orðin al-
elda. Til liægri á myndinni er húsið Fell. Ilúsin liinum megin við göt-
una sjást ekki fyrir reykjarmekki. (Ljósmynd: M. Simson)
Hér sjást sambyggingarnar, sem eldurinn harst í um kl. 6. Myndin er
tekin að húsabaki, og sézt að farið er að loga upp um þakgluggana.
(Ljósmynd: M. Simson)
LEIÐRÉTTING.
Eftirfaraiidi villur slæddust inn
í greinina um húsbrunann í síð-
asta blaði:
1. 1 fyrirsögn greinarinnar stóð
húsbrun í stað húsbruni.
2. Elísabet, móðir Kristjáns
Kristjánssonar var sögð Kristjáns-
dóttir í stað Hermannsdóttir.
3. Nöfnin á dætrum þeirra Ein-
ars Guðmundssohar og Kristjáns
Tryggvasonar klæðskerameistara
liöfðu ruglast.
Viðkomendur eru heðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum, sem
leiðréttast hér með. Ritstj.
\