Vesturland

Árgangur

Vesturland - 29.08.1947, Síða 3

Vesturland - 29.08.1947, Síða 3
VESTURLAND 3 Auglýsing frá Viðskiptanefnd um takmörkun á sölu, dreifingu og toll- afgreiðslu nokurra vörutegunda. V 1 því skyni að jafna á milli manna vörubirgðum þeim, sem til eru i landinu og væntanlegar eru til landsins, hefir viðskipta- nefnd í undirbúningi reglur um skömmtun á nokkrum vöru- tegundum. Til bráðabirgða er því eftirfarandi ákveðið sam- kvæmt heimild í reglugerð útgefinni í dag: Frá og með deginum í dag er smásöluverzlunum óheimilt að selja hverjum viðskiptamanni sínum fyrir hærri upphæð eða meira magn en hér segir af þessum vörutegundum: af korn- vöru sem næst vikuforða, af vefnaðarvörum, búsáhöldum og hreinlætisvörum, sem nægir til brýnustu nauðsynja, og skal miðað við fyrri venjuleg viðskipti. Frá sama tíma er óheimilt að tollafgreiða þessar vörur, nema kornvörur, ef Skömmtunar- skrifstofa ríkisins veitir heimild til. Ennfremur er heildsölu- verzlunum óheimilt að selja og afhenda smásöluverzlunum umræddar vörur. Smásöluverzlanir skvdu skrá sérstaklega öll viðskipti, senv eiga sér stað með umræddar vörutegundir. Skal skrá nafn og heimilisfang hvers kaupanda, er kvitti fyrir við- skiptin, og skýrslur þessar síðan sendar Skömmtunarskrif- stofu ríkisins, og verða viðskiptin dregin frá, þegar skömmtun- arseðlar verða afhentir síðar fyrir vörutegundir þessar, ef skömmtun á þeim verður ákveðin. Verzlunum skal ennfremur á það bent, að með tilvísun til 12. gr. laga nr. 70, 1947, um fjárhagsráð, verður tekið til at- hugunar að miða innflutnings- og gjaldeyrisleyfi til verzlana við næstu úthlutun leyfa, að einhverju leyti við skilaða skömmt- unarseðla frá leyfisumsækjanda. Vörutegundir þær, sem um ræðir, eru þær, er nú skal greina: Tilvitnanir í tollsskrá: Kornvörur: 10. kafli nr. 1—7 11. kafli nr. 1—23 Hreinlætisvörur: 32. kafli nr. 1—5 Vefnaðarvörur: 46. kafli A nr. 3—5 og - 46. kafli B nr. 4—6 og 12 47. kafli nr. 5—6 og 13 48. kafli nr. 5, 7, 8, 16, 17 og 18 49. kafli nr. 6, 11, 21, 23, 25 til 30 51. kafli nr. 1 til 30 52 kafli nr.l til 2 og 3 a til 15 52. kafli nr. 20 til 27 * Búsáhöld: 59. kafli nr. 9 60. kafli nr. 20 til 21 63. kafli nr. 83 til 84 64. kafli nr. 23 til 24 65. kafli nr. 5 til 6 66. kafli nr. 9 til 10 68. kafli nr. 6 69. kafli nr. 6 71. kafli nr. 2, 7. 9 og 10 72. kafli nr. 6 til 9 73. kafli nr. 37 til 45 40. kafli nr. 58 44. kafli nr. 44 Reykjavík, 17. ágúst 1947. VIÐSKIPTANEFNDIN Reglugerð um takmörkun á sölu, dreifingu og tollafgreiðslu nokkurra vörutegunda. Samkvæmt heimild í 2. mgr. 11. gr. laga nr. 70, 1947 svo og laga nr. 37, 1939 og laga nr. 59, 1940, er hér með sett eftirfar- andi reglugerð: 1. gr. Frá og með deginum i dag er fyrst um sinn, unz öðruvísi verður ákveðið bannað að tollafgreiða hverskonar vefnaðar- vöru, búsáhöld, hreinlætisvörur og kornvörur. 2. gr. Engin heildsöluverzlun eða iðnfyrirtæki má, unz öðruvísi verður ákveðið selja eða afgreiða neina þeirra vörutegund, sem Um ræðir í 1. gr. Skömmtunarskrifstofa ríkisins getur veitt undanþágu frá á- kvæðum 1. mgr. um kornvörur, ef sérstaklega stendur á. 3. gr. Viðskiptanefnd getur ákveðið með auglýsingu,. að smásölu- verzlunum sé bannað að afgreiða til viðskiptamanna sinna, nema tiltekið magn eða verðmæti af framangreindum vörum, og sé þeim jafnframt skylt að skrá sérstaklega þau viðskipti eftir reglum, sem viðskiptanefnd auglýsir. 4. gr. Viðskiptanefnd'skilgreinir með auglýsingu nánar, hvaða vör- ur falli undir 1. gr. 5. gr. Viðskiptanefnd getur fyrirskipað birgðatalningu á framan- greindum vörum, hvenær sem hún telur ástæðu til, og er henni heimilt án dómsúrskurðar að láta rannsaka birgðir verzlana og iðnfyrirtækja og einstakra manna af þeim. 6. gr Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar og reglum settum samkvæmt þeim, varða sektum allt að 200 þús. kr. Ef miklar sakir eru eða brot er ítrekað, má svipta sökunaut atvinnu- rétti um stundarsakir eða lyrir fullt og allt. Upptaka eigna samkv. 69 gr. almennra hegningarlaga skal og heimil vera. 7. gr. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. VIÐSKIPTAMÁlARÁÐUNEYTIÐ, Reykjavík, 17. ágúst 1947. Emil Jónsson (sign.) Sigtr. Klemenzsson (sign.) AUGLÝSING til innflytjenda um flutning á vörum til Islands. Viðskiptanefndin hefir ákveðið að óheimilt sé að taka vörur til flutnings í erlendri höfn nema tilgreind séu númer á inn- flutningsleyfum hér heima. Hefur þetta verið tilkynnt öllum skipafélögum er hlut eiga að máli. Gildir þetta um allar vörur, sem hér eftir verða tilkynntar til flutnings. Innflytjendum er því bent á að gera nú þegar ráðstafanir til þess að tilkynna erlendum seljendum leyfisnúmer sin. Reykjavík, 19. ágúst 1947. VIÐSKIPTANEFNDIN.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.