Vesturland - 31.10.1949, Blaðsíða 1
EINSTÆÐ KOSNINGAÚRSLIT:
Kjartan fékk fleiri atkvæði en Finnur.
Krataframbjóðandinn skreið inn á atkvæðum fólks,
sem vildi hann ekki.
Glæsiiegur sigur Kjartans læknis
og Sjálfstæðisflokksins á ísafirði.
Sá einstæði atburður gerðist í kosningunum hér á Isa-
firði, að enda þótt frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins
fengi 19 persónulegum atkvæðum fleira en Finnur Jónsson
þá skreið krataframbjóðandinn inn á Alþingi á atkvæðum
fólks, sem ekki kaus hann heldur landslista Alþýðuflokks-
ins. Er það háðulegasta hlutskipti, sem vitað er um, að
nokkur þingmaður í lýðræðislandi hafi nokkurn tíman
hlotið.
Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Kjartan J. Jóhanns-
son, læknir, er hinn raunverulegi sigurvegari þessara
kosninga. Hann hlaut 598 persónuleg atkvæði og 18 á
landslista, samtals 616 atkv. Finnur Jónsson hlaut aðeins
579 persónuleg atkvæði eða 19 atkv. færra en Kjartan.
Landslisti Alþýðuflokksins hlaut hinsvegar 49 atkvæði,
sem samkv. kosningalögunum dugði til þess að fleyta
þessum „hugsjónalausa, gamla og værukæra“ ríkisheild-
sala enn einu sinni inn á þing. En þetta verður áreiðanlega
í síðasta skipti, sem „maðurinn á leiksviðinua kemst á
þing fyrir Isfirðinga. Svik hans við mál bæjarbúa og hin
háðulegu kosningaúrslit ættu að hafa sannfært hann uin,
að Isfirðingar þekkja hann nægilega vel til þess, að fram-
boð hans við næstu kosningar er gjörsamlega vonlaust.
Vakti athygli.
Hinn glæsilegi kosningasigur
Kjartans læknis og Sjálfstæð-
isflokksins vakti mikla athygli
um land allt. Hann stakk
greinilega í stúf við rógsskrif
Alþýðublaðsins uni stjórn
Sjálfstæðismanna á bænum,
kærumálin og hótunina um op-
inbert eftirlit. Enginn kaup-
staður hefur verið rægður jafn
miskunárlaust og Isafjörður,
en aldrei befur þingmaður
kaupstaðarins séð ástæðu til að
mótmæla eða leiðrétta þau
skril'.
Isfirðingar þekkja
Finn.
Ai' skrifum AlþýðuWaðsins
og aðgerðaleysi þingmannsins i
málum Isafjarðar, innan þings
og utan, hafa Isfirðingar lært,
að þekkja Finn Jónsson. Þessi
maður hefur ekki aðeins gerl
sig beran að aðgerðarleysi held
ur beinum skemmdarstörfum í
málum Isafjarðar, eins og
flokksmenn hans í bæjarstjórn
inni.
Makleg málagjöld.
Sigur Sj álfstæðisflokksins
kom krötunum á óvart. Þeir
höfðu ekkert til sparað við
kosningaundirhúninginn.
Smalar flokksins gengu hús
úr lnisi síðustu vikurnar fyrir
kosningarnar. Félagasamtök-
um var beitt af fremsta, megni.
I áróðrinum var forðast að
tala um landsmál eða störf
þingmannsins. Hinsvegar varð
smölunum tíðrætt uin bæjar-
málin og þau afflutt og rang-
færð, en allt kom fyrir ekki.
Fylgið hrundi af Finni og
flokki hans. Isfirðingar eru
orðnir dauðleiðir á rógi þeirra
og blekkingum og sárgramir
þeim yfir því að flytja þennan
róg um ísafjörð vit um.allt
land og upp í stjórnarráð. Þeir
fyrirlíta slik vinnubrögð, sem
til þess eins eru fallin, að skaða
bæjarfélagið. Svar þeirra, var
hin háðulega útreið Finns. Það
mun heimsmet að fá þingsæti
með minna fylgi en andstæð-
ingurinn. Það eru makleg mála
gjöld.
Sjaldan er ein bára stök
Þetta er þriðji sigur Sjálf-
stæðisflokksins á Isafirði í röð.
I bæj arst j órnarkosningunum
1946 fékk hann 533 atkvæði
í alþingiskosningunum 1946
fékk hann 564 atkvæði og nú
616 atkvæði. Hann hefur því á
tæpum 4 árum bætt við sig 83
atkvæðum, en Alþýðuflokkur-
inn hefur tapað 85 atkvæðum
l'rá alþingiskosningunum 1946.
Allir sjá hvert stefnir. Kratarn-
ir eru að missa hér allt traust
og áhrif.
Hin jákvæða stefna
sigrar.
Það sem veldur fylgisaukn-
ingu S j álfstæðisflokksins á
Isafirði er hin jákvæða um-
bótastefna hans. Á Isafirði, sem
annars staðar, hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn fært með sér um-
bætur og framfarir.
Þetta sjá og viðurkenna Is-
firðingar. Skólar, vatnsveita og
rafstöð, hafnarframkvæmdir,
togari og bátar er tákn þessa,
Allt eru þetta frumstæðar þarf
ir, en þær hafa verið leystar
undir stjórn Sjálfstæðismanna.
Isfirðingar vilja auknar fram-
farir. Þess vegna skipa þeir sér
undir merki Sjálfstæðisstefn-
unnar.
Ávarp til ísfirðinga;
Góðir Isfirðingar!
Ég þakka ykkur öllum, i
sem á einn eða annan hátt
unnuð að hinum glæsi-í
; lega árangri, sem við náð- í
um hinn 23. okt. s.l. ogj
sýndu mér traust og vin- j
áttu. Ég mun ábyggilega j
gera mitt ítrasta, til að j
bregðast ekki því trausti j
og halda áfram að vinna j
af alefli að framgangij
þeirra mála sem ég tel að i
séu okkur til heilla ogi
hagsbóta.
Herðum enn róðurinn.
Það má enginn liggja áj
liði sínu. Vinnum af al-j
efli að enn glæsilegri ár-
angri næst.
Kjartan J. Jóhannsson.j