Vesturland - 09.06.1951, Side 1
fflSB m :® a/essíFm m zxm sd> M ÚGFS37£$»m i *rmtm
XXVIII. árgangur ísafjör ður 9. júní 1951. 7. tölublað.
Krataklíkan stjórnar ísafirði.
Aldrei minni bæjarvinna.
Síðan kratarnir tóku við stjórn bæjarins hafa engar atvinnufram-
kvæmdir átt sér stað. Sementið í hafnargerðina og pípurnar í vatns-
veituna er látið ónotað. Þýðingarlitlir fundir í nefndum og bæjarstjórn
algerrar kyrrstöðu og athafnaieysis.
Nú hefur Alþýðuflokkurinn tek-
ið við forystu bæjarmálanna hér á
Isafirði í samstarfi við kommún-
ista. f hálfan annan mánuð hafa
þessir flokkar stjómað bænum.
Hafa hinir nýju stjórnendur
ekki bætt atvinnuástandið, greitt
starfsmönnunum laun sín og hafið
markvissa baráttu til eflingar og
uppbyggingar atvinnulífinu í bæn-
um?
Nei, aldeilis ekki. Hinir nýju
stjómendur hafa ekkert nýtt eða
nýtilegt mál flutt til þessa, hvorki
í nefndum eða bæjarstjórn. Aðeins
eitt mál hefir verið leyst, sem sé
leigan á kúabúum bæjarins, sem
Sjálfstæðismenn höfðu beitt sér
fyrir á þriðja ár.
Fyrsta verk kratanna varð því
að ganga á milli bols og höfuðs á
ástfóstri sínu — bæjarrekstrinum.
Þegar aðrir stjórna á allt að vera
í bæjarrekstri, en sjálfir treystast
þeir ekki lengur til að framkvæma
þetta stefnuatriði sitt. Slíkur er
manndómur þeirra. Nú hafa þeir
selt fyrir stórfé kýmar og áhöldin
á búunum og verður gaman að sjá,
hvernig þeir ráðstafa því fé. Ætli
andvirðinu verði ekki varið á líkan
hátt og peningunum, sem þeir
fengu fyrir togarann Skutul, sællar
minningar.
Fyrir andvirði Skutuls lofuðu
þeir að byggja upp atvinnulífið á
ísafirði hér um árið, en það fórst
einhvemveginn fyrir, eins og flest
annað, sem þeir lofuðu.
Ekkert atvinnuleysi ?
öllum er ljóst, að atvinnuástand-
ið í bænum er mjög slæmt. I vetur
er stórhríðar geisuðu dag eftir dag
og allt var á kafi í snjó, heimtuðu
kratarnir tafarlaust atvinnubóta-
vinnu fyrir a.m.k. 50 menn, og áttu
þeir að vinna við grjótnám uppi í
hlíð til mulning'sgerðar og flutn-
ings til varnar landbroti í Krók og
Suðurtanga. Grímur rakari vatnaði
músum á bæjarstjórnarfundi yfir
mannvonzku þáverandi meirihluta
í garð atvinnuleysingjanna.
Vissulega var full þörf á auk-
inni atvinnu í vetur, en hinsvegar
var öllum ljóst, nema ef til vill
Grími rakara, að ógerningur var,
eins og tíðarfarið var þá, að halda
uppi slíkri vinnu. Enn er hér mikið
atvinnuleysi. í maí og júní er hvað
mest um laust vinnuafl og einna
beztur tími til hverskonar fram-
kvæmda. Tala kratarnir nú um
vinnu fyrir a.m.k 50 menn? Tala
þeir nú um grjótnám til mulnings-
gerðar og flutnings til varnar land-
broti í Krók og Suðurtanga? Nei,
það er sennilega engin hætta á
landbroti úr því að þeir eru komnir
til valda!!
Grímur rakari grætur nú ekki
lengur sínum krókódílatárum. Nú
er hann spertur, sæll og ánægður.
Nú mega verkamenn vera at-
vinnulitlir og atvinnulausir. Bæj-
arvinna hefir verið með alminnsta
móti til þessa. Ekki er unnið að
neinum nýjum framkvæmdum, að-
eins öskuhreinsun og venjuleg vor-
vinna.
Engin merki eru á því, að um
aðra og meiri vinnu verði að ræða
á næstunni.
Hafnarframkvæmdir.
Kratarnir hafa oft og mörgum
sinnum gagnrýnt það, hvað hafn-
arframkvæmdunum hafi miðað
seint áfram. Það hefði því mátt
búast við, að þeir legðu áherslu á
að hraða hafnargerðinni. Tveir
fundir hafa verið haldnir í hafnar-
nefnd, síðan kratarnir tóku við, en
á þeim hefur ekki verið minnst
einu orði á framhald hafnarfram-
kvæmdanna í sumar. Bæjarstjór-
inn hefir ekki gert tilraun til að
auglýsa sölu á hafnarskuldabréf-
um, hvað þá heldur til útvegunar
fjár til framkvæmdanna. Tíminn
líður í fullkomnu aðgerðarleysi.
Sementið, sem keypt var s.l. haust
til hafnargerðarinnar, bíður ónot-
að, bifreiðasjórana vantar vinnu og
verkamennirnir ganga atvinnu-
lausir. Það þolir enga bið að hafn-
arbakkinn verði fullgerður.
Vatnsveitan.
Enn er vatnsveitu bæjarins ekki
fulllokið. Efni í innanbæjarkerfið
keypti fyrrverandi meirihluti, svo
það fé, sem varið er í frekari vatns-
veituframkvæmdir fer nær ein-
göngu til vinnulauna. Hvenær ætla
hinir nýju stjórnendur að byrja á
að nota það efni, sem fyrir liggur
og halda áfram með vatnsveituna?
Það verk er alveg sérstaklega til-
valið til atvinnuaukningar. Þá er
og kominn tími til að bæta vatns-
miðlun bæjarins með byggingu
hins fyrirhugaða vatnsgeymis í
Stórurð. í vetur tæmdist núverandi
vatnsgeymir hvað eftir annað síð-
ari hluta dags, svo fyrirsjáanleg-
ur vatnsskortur verður, ef vatns-
notkun eykst í sambandi við nýja
starfrækslu. Búið er að grafa fyrir
fyrirhuguðum vatnsgeymi og kem-
ur það hér í góðar þarfir, hvað sem
kratarnir hafa til þessa sagt um
gryfjuna í Stórurð.
Sporin hræða.
Verkefni bíða hvarvetna. Vatns-
veitan og hafnarframkvæmdimar
hafa þegar verið framkvæmdar að
mestu leyti af fyrrverandi meiri-
hluta. Það er aðeins eftir að leggja
síðustu hönd á verkið. Nú er eftir
að sjá, hve röggsamlegir kratamir
verða um að fullgera þær. Fortíð
þeirra í sambandi við framkvæmd-
ir er ekki glæsileg. Þeir voru meist-
arar í að framkvæma allt öfugt.
Hvert axarskaftið öðru verra henti
þá síðasta kjörtímabilið, sem þeir
stjórnuðu þessum bæ. Þeir seldu
togarann úr bænum, byggðu ónot-
hæfa vatnsvirkjun við Nónhorns-
vatn, vatnsveitu, sem varð ónýt á
5 árum og skiluðu ísafirði af sér
eftir 24 ára stjórn togaralausum,
vatnslausum og rafmagnslausum.
Annar eins viðskilnaður hefir
hvergi þekkst.
Spor þeirra hræða. Hafa þeir
nokkuð lært og nokkru gleymt?
Er líklegt að nýliðar þeirra Guð-
mundur Kristjánsson og Stefán
Stefánsson séu þeim mun mikil-
hæfari sveitarstjórnarmenn en
Hagalín, Helgi Hannesson og
Hannibal, að mikils sé af þessum
flokki að vænta um stjórn þessa
bæjar.
Finnur Jónsson og fylgifiskar
hans munu hér eftir sem hingað
til láta sér það nægja að vera hér
við stjórn til þess eins að geta
fullnægt persónulegum metnaði
sínum og valdagræðgi. Hagur Isa-
fjarðar er þeim aukaatriði.
Bitur reynsla ætti að geta kennt
ísfirðingum, að hagur Isafjarðar
nær ekki að blómgast fyrr en tek-
ist hefir að losa sig við þann drag-
bít, sem Finnur Jónsson og flokkur
hans eru á þessu bæjarfélagi.
-------O----
Hörmulegt slys.
Þegar togarinn Marz frá Keykja-
vík var að fara frá fsafirði í fyrra-
kvöld, vildi til það sorglega slys,
að einn hásetinn, Hafsteinn Hall-
dórsson, til lieimilis að Suðurgötu
67 í Hafnarfirði, féll fyrir borð og
drukknaði.
Þegar slysið vildi til, var togar-
inn kominn rétt út fyrir Norður-
tangabryggjuna. Tveir skipverjar
á Marz, þeir Hafliði Stefánsson og
Eyjólfur Þorsteinsson, fleygðu sér
í sjóinn þegar skipinu hafði verið
snúið við, en áður en þeir gætu náð
til mannsins, var hann sokkinn.
Var mannsins þá leitað á trillu-
bát,sem kom frá landi, og um nótt-
ina slæddi björgunarsveitin á Poli-
inum og í Sundunum, og skátar
gengu með f jörum, en sú leit bar
engan árangur.
Hafsteinn Halldórsson var 22
ára gamall og lætur eftir sig móð-
ur á lífi.