Vesturland - 27.06.1951, Síða 4
¥
\Vf 2/essrF)<RZxm satiGFsarÆSHsmmtR
XXVIII. árgangur 27. júní 1951. 9. tölublað.
Húsmæðraskólanum slitið.
Þriðjudaginn 12. júní s.l. var Húsmæðraskólanum hér
sagt upp. Við það tækifæri gaf skólastjórinn, ungi'rú Þor-
björg Bjarnadóttir frá Vigur, skýrslú um starf skólans á
s.l. vetri. — Skólinn var f ullskipaður og voru nemendur 36.
Ur bæ og byggð
Fundust meðvitundarlausir
í jeppa.
S.l. föstudag vildi það til, að
tveir litlir drengir, Reynir, sonur
Jóhanns Gunnars Ólafssonar, bæj-
arfógeta, sjö ára og Páll, sonur
Hrólfs Þórarinssonar, sjómanns,
fimm ára, fundust meðvitundar-
lausir í jeppabifreið. Höfðu þeir
farið inn í jeppann, bundið aftur
hurðirnar og opnað slökkvitæki,
sem var í bílnum. Þegar hið eitr-
aða loft fór að streyma út í bílinn
úr slökkvitækinu munu litlu dreng-
imir brátt hafa oltið út af, og ef
ekki hefði viljað svo lánlega til, að
komið var að þeim í tæka tíð,
hefði ef til vill hlotist þarna
hörmulegt slys. Sonur bæjarfóget-
ans hresstist fljótlega eftir að
hann kom út í hreint loft, en
sjúkrahússlæknirinn, Bjarni Sig-
urðsson, varð að gera lífgunartil-
raunir á Páli litla og gefa honum
sprautu áður en hann rankaði við
sér. Það var fósturdóttir Jóns
Finnssonar , lögregluþjóns, sem
fyrst kom að þar, sem litlu dreng-
irnir lágu meðvitundarlausir inni
í bílnum.
Andlát.
Hinn 17. júní s.l. andaðist í
Reykjavík, Kristín Guðmundsdótt-
ir, kona Sigurðar Guðmundssonar,
bakarameistara hér í bæ. Hún
verður jarðsett á morgun.
ísborg landaði í Reykjavík 12.
júní s.l. 340 tonnum í frystingu og
bræðslu og 22. júní 300 tonnum í
bræðslu.
--------O-------
IIÆKKAÐ RAFMAGNSVERÐ.
Framhald af 1. síðu.
um leið Sósíalista botnlausum
skömmum fyrir byggingu hennar.
Undir þessum skömmum sat Har-
aldur Guðmundsson eins og hann
væri keflaður og líktist hann átak-
anlega nafna sínum Steinþórssyni
á undanförnum fundum, þegar
kratarnir hafa verið að svívirða
fyrrverandi meirihluta, Sjálfstæð-
ismenn og Sósíalista, fyrir allar
þær framkvæmdir sem þessir
flokkar stóðu að, því að þá hefir
þessi piltur setið hreyfingarlaus.
og hljóður undir þeim skömmum
og er engu líkara en þessir komrri-
únistar hafi selt sál sína krötunum
að fullu og öllu.
Flokksmenn þessara tveggja
flokka og bæjarbúar almennt fá
vonandi tækifæri til þess, að sýna
þessum mönnum verðugt þakklæti
fyrir þessa stórhöfðinglegu gjöf,
sem sýnir ljóslega áhuga þeirra í
baráttunni fyrir bættum Iífskjör-
um til handa alþýðu þessa bæjar.
Helztu námsgreinar voru: fata-
saumur, útsaumur, vefnaður, mat-
reiðsla, þvottur og ræsting auk
bóklegra námsgreina, íslenzku, bú-
reikninga, manneldisfræði, heilsu-
fræði og vefnaðarfræði. Kennarar
voru auk skólastjóra: Jakobína
Pálmadóttir, Stella Edwald og
Gerður Kristjánsdóttir.
Sýning var haldin á handavinnu
nemenda dagana 8. og 9. júní. Alls
voru unnin í skólanum á þessum
vetri 279 stykki ofin, 122 stykki
útsaumuð, 556 stykki í fatasaum,
149 stykki hekluð og prjónuð.
Kostnaður við skólavist hvers
nemanda reyndist vera tæpar 5
þús. kr. að meðtöldu handavir.nu-
Bræðslusíidarvcrðáð
Atvinnumálaráðherra hefir nú
ákveðið, samkv. tillögum stjórnar
SR, að bræðslusíldarverðið í sum-
ar skuli vera 102 krónur fyrir mál-
ið, en endanlegt verð 110,16 kr., ef
meðalafli á skip reynist minni en
6000 mál. Stjórn SR samþykkti
þessar tillögur með 4 samhljóða
atkvæðum. Þetta er langhæsta
síldarverð, sem verið hefir hingað
til hér á landi og stafar það af
mjög hagstæðu verði á síldarlýsi
á erlendum mörkuðum. Er óhætt
að segja, að allt það síldarlýsi, sem
framleitt verður, sé selt, en aftur
á móti, hefir ekki enn verið samið
um sölu á síldarmjöli.
Þetta háa verð mun eins og eðli-
legt er vera hvatning fyrir útgerð-
efni. 1 þessari tölu er allur kostn-
aður innifalinn. Fæði kostaði kr.
11 á dag fyrir nemanda. Skóla-
stjóri gat þess, að skólanum hefði
undanfarið borizt ýmsar góðar
gjafir frá velunnurum sínum, og
flutti hún gefendum þakkir fyrir
hlýhug þeirra í garð skólans.
Þetta er þriðja starfsár Hús-
mæðraskólans í hinum nýju og
glæsilegu húsakynnum hans. Hef-
ir hann jafnan verið fullskipaður
nemendum og er nær fullráðið í
hann næsta vetur. Skólastjóri
þakkaði nemendum og kennurum
góða samvinnu á skólaárinu og
sagði síðan skólanum slitið. Á
undan og eftir skólaslitaræðunni
voru sungnir sálmar.
102 króimr málið.
armenn og sjómenn til þess, enn
einu sinni, að leggja í síldarútgerð,
þrátt fyrir hið mikla aflaleysi und-
anfarin sex sumur. Ríkisstjórnin
hefir hlutast til um að rannsókn-
arskip verði sent til austur- og
norðurmiðanna, og er því ætlað að
fylgjast með göngum síldarinnar,
ekki aðeins við land, heldur og
langt norður og austur í haf, en
um þær slóðir er talið líklegt, að
síldin hafi lagt leið sína undanfar-
in ár. Ekki er enn vitað, hver þátt-
takan muni verða í síldveiðunum í
sumar, en útlit er fyrir, að hún
verði svipuð og áður, en í fyrra
stunduðu 235 skip veiðarnar en 250
árið áður.
17. júní á Ísaíirði
Þjóðhátíðin hófst kl. 13,30 með
leik Lúðrasveitar Isafjarðar, undir
stjórn Harry Herlufsen, fyrir
framan Gagnfræðaskólann. Þaðan
var haldið í skrúðgöngu upp á
handknattleiksvöll l.B.l. Þar flutti
Guttormur Sigurbjörnsson ávarp.
Matthías Bjarnason, forseti bæjar-
stjórnar, hélt ræðu og lúðrasveitin
lék. Að því loknu kepptu bílstjórar
og opinberir starfsmenn í nagla-
boðhlaupi og sigruðu þeir síðar-
nefndu. Starfstúlkur sjúkrahússins
og stúlkur úr öðrum starfsgrein-
um kepptu í eggjaboðhlaupi og
sigruðu þær fyrrnefndu. Iðnskól-
inn og Gagnfræðaskólinn kepptu í
blaki og sigraði Iðnskólinn. Kl.
16,30 kepptu gamlir knattspyrnu-
menn úr Herði og Vestra í knatt-
spyrnu. Lauk þeim leik með jafn-
tefli 2:2, eftir jafnan og skemmti-
legan leik. Síðan fór fram keppni
í handknattleik kvenna I. fl., um
Hafnarfjarðarbikarinn. Sigraði
Vestri Hörð með 6:1 og vann þar
með bikarinn til eignar. Að lokum
var keppt í knattspyrnu I. f 1., um
Leósbikarinn og sigraði Hörður
Vestra með 6:1. Um kvöldið var
stiginn dans í Alþýðuhúsinu og
Uppsölum. Veður var fagurt allann
daginn, logn og sólskin og blöktu
fánar við hún hvarvetna í bænum.
-------O-------
17 júní í Reykjanesi.
I Reykjanesi fóru fram hátíða-
höld á þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Hófust þau með því, að Gunnar
Valdimarsson, Hörgshlíð, setti sam
komuna og bauð fólk velkomið. Þá
fór fram guðsþjónusta, séra Þor-
steinn Jóhannesson, prófastur í
Vatnsfirði, predikaði. Að guðs-
þjónustunni lokinni flutti Baldur
Bjarnason, Vigur, ræðu fyrir
minni dagsins. Þá flutti Ragnar
Jóhannesson, skólastjóri á Akra-
nesi, ávarp og las upp ættjarðar-
Ijóð eftir Hannes Hafstein. Því
riæst las Ásgeir Guðmundsson í
Æðey upp kvæði. Að lokum var svo
stiginn dans.
Samkoma þessi var mjög fjöl-
sótt og skemmtu menn sér hið
bezta, enda var fagurt veður, sól-
skin og blíða.
Það eru ungmennafélögin í
Djúpinu, sem staðið hafa að há-
tíðahöldum í Reykjanesi nokkur
undanfarin ár þann 17. júní. Er
það mjög að vonum að æska hér-
aðsins skuli þannig verða til þess
að minnast þjóðhátíðardagsins og
vekja menn til umhugsunar um
þjóðleg verðmæti, fortíð og fram-
tíð íslenzku þjóðarinnar.
VIL SELJA 2 rúma skektu 1
ágætu standi.
Guðmundur Jónsson,
Heimabæjarveg 6, Hnífsdal.
■O-----
UTGERÐARMENN! SKIPSTJÖRAR!
Eigum von á spennustillum (ádomötum) fyrir 12 og 32 wolt. Sparar
pcrur, eykur öryggið. Talið við okkur sem fyrst.
Raftækjavinnustofan R A F h.f., sími 28, Isafirði.
Höfðingleg gjöf.
Birgir Finnsson scndi liafnarnefnd fyrir skömmu bréf, þar sem
hann biður hafnarnefnd að gefa Samvinnufélaginu aðeins kr.
78.034,05 — sjötíu og átta þúsund þrjátíu og fjórar krónur og
fimm aura af skuld þessa athafnasaina fyrirtækis.
Hafnarnefnd og bæjarstjórn sáu ekki annars úrkosta, en verða
við þessari beiðni. Kratarnir og kommúnistinn telja sjálfsagt og
eðlilegt að leigja þessu firma eignir haínarsjóðs í Neðstakaup-
stað og gefa svo leiguna eftir í „slumpum“.