Vesturland

Årgang

Vesturland - 02.02.1953, Side 4

Vesturland - 02.02.1953, Side 4
XXX. árgangur. 2. febrúar 1953. 2. tölublað. ! Gleyminn bæjarstjóri. | | Bæjarbúum rekur minni til, að hér var kosin nefnd til þess að rann-1 Isaka og gera tillögur um að bæta rekstur bæjarsjóðs og bæjarstofn-i |ana. Nefnd þessi lauk störfum í nóvember 1951 og í áliti hennar | Ivarðandi rekstur hafnarsjóðs kemur það fram að henni blöskrar all-| |ar þær upphæðir sem hafnarsjóður hefur tapað, þó sérstaklega leigaf |eftir fasteignir sjóðsins, einkum í Neðstakaupstað, sem nema gegnum| fárln hundruð þúsunda. Segir orðrétt í áliti nefndarinnar: | | „Þá telur nefndin rétt að endurskoðað verði nákvæmlega á hvem| |hátt Hafnarsjóður fái, sem mest upp úr eignum sínum og bendir á, | = að ekki geti lengur komið til mála að leigja út fasteignir hafnarsjóðs, | |án þess að fá húsaleigu skilvíslega greidda. Sérstaklega hefur leiga| leftir Neðstakaupstað verið lítil, því hún hefur að miklu leyti tapazt“ i | Og síðar segir í nefndarálitinu: | | „Við teljum rétt að þeim leigutökum hafnarinnar, sem ekki hafa| fstaðið í skilum með leiguna verði sagt upp leigunni og auglýst verði| '|á ný eftir leigutilboðum“. | | En bæjarstjóri Alþýðuflokksins, Jón Guðjónsson, hefur ekki lagt| |það á sig þó liðið sé á annað ár, að taka þessar tillögur fyrir hvað| Iþá að láta til framkvæmda koma. | = En hafnarsjóður er þegar kominn á fátækraframfæri hjá ríkinu. = | Mikið lán er það fyrir Alþýðuflokkinn að eiga þennan bæjarstjóra. 1 iiiiiiiiiii«iiiiiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiii>iiiii!iiiiriiiiiiii!ii!iiiiii|iiiiiiiiiiiiii)iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Ur bæ og byggð. Fiskhjallar verða settir hér upp. Harðfiskstöðin h.f. hefur fest kaup á efni í 40 fiskhjalla og er efnið væntanlegt næstu daga með skipinu Bes. Fyrirhugað er að reisa hjallana á Hauganesinu, sem er í landi Hafrafells. Áætlað er að um 400 tonn af fiski komist á hjallana. Stokkfisk- ur er nú eftirsótt útflutningsvara. Þá áformar félagið að kaupa efni í 60 hjalla til viðbótar á þessu ári. Isfixðingur h.f. er aðaleigandi Harðfiskstöðvarinnar. Ríkissjóður greiðir bætur vegna slyssins á Óshlíð. Alþingi hefur samþ. tillögu þess efnis að ríkissjóður verji allt að 140 þús. kr. til þess að bæta þeim er urðu fyrir slysi og tjóni á Bol- ungarvíkurvegi sumarið 1951, þeg- ar steinn lenti á áætlunarbifreið með þeim afleiðingum að tveir far- þegar biðu bana og tveir slösuðust alvarlega. — Fyrsti flutningsmað- ur tillögunnar var Sigurður Bjarnason. Knattspyrnuflokkur frá Færeyjum kemur til isaf jarðar í sumar. í fréttum útvarpsins nýlega var frá því skýrt að knattspyrnumenn frá Færeyjum myndu fara til ís- lands að sumri og keppa bæði í Reykjavík og á ísafirði. Blaðið hefur fregnað að undirbúningur sé nú að byrja hér í bæ undir komu þeirra og eru um 20 knattspymu- menn um þessar mundir að hefja æfingar. Knattspyrnufélögin hér í bæ, Hörður og Vestri, munu sjá um móttöku Færeysku knatt- spymumannanna. Aðalfundur Kvennadeild Slysavarnafélags- ins á Isafirði hélt aðalfund sinn 23. þ.m. Stjórn félagsins var endur- kosin, en hana skipa: Sigríður Jónsdóttir, formaður, Guðrún Bjamadóttir, varaform., Þuriður Vigfúsdóttir, ritari, Iðunn Eiríks- dóttir, gjaldkeri og Lára Eðvarðs- dóttir meðstjórnandi. Deildin hef- ur tekið að sér að sjá um útbúnað og vistir til skipbrotsmannaskýlis á Sæbóli í Aðalvík. Fundurinn var fjölmennur og skemmtu konumar sér, að loknum fundarstörfum, við dans fram eftir kvöldi. Mikið annríki hjá Leikfélagi Isafjarðar. Innan skamms mun það sýna hið vinsæla leikrit Sommerset Maugham, Loginn helgi. Var leik- rit þetta sýnt í Reykjavík fyrir fá- einum árum og naut mikilla vin- sælda. Leikfélagið hefur fengið hingað Harald Á. Sigurðsson, leik- ara, og n\un hann annast leik- stjórn. Standa æfingar nú yfir. Einnig hefur Leikfélagið í hyggju að halda hér skemmti- kvöld, (Kabarett), og mun Harald- ur einnig annast uppsetningu. Verksmiðjan Þann 22. janúar voru 15 ár liðin síðan verksmiðjan Hektor tók til starfa. Stofnendur verksmiðjunnar og eigendur hafa alla tíð verið þau systkinin Sigríður Jónsdóttir, kaup kona og Kristján H. Jónsson, yfir- hafnsögumaður, en Kristján hefur vei’ið framkvæmdastjóri verk- smiðjunnar frá byrjun. Guðrún Stefánsdóttir fór á veg- um stofnenda fyrirtækisins til London 1937 og lærði þar húfu- saum og festi um leið kaup á vél- um til húfuframleiðslu. Vinna hófst í verksmiðjunni 22. janúar og var Guðrún forstöðukona, þar til hún lézt 23. apríl 1945. Núverandi forstöðukona er María Benediktsdóttir. Verksmiðjan hefur framleitt um 250,000 húfur og hefur auk þess unnið ýmsar aðrar vörur, svo sem gólfklúta, vasaklúta og herrabindi. Forstjórinn bauð fréttamönnum blaða og útvarps að skoða verk- þess, leggja til efni og leika með. Þar mun vera á boðstólum fimm smáleikrit, gamanvísur, einsöngur og annað skemmtiefni. Að skemmti atriðum loknum verður stiginn dans. Verður þessi skemmtun með líku sniði og þær skemmtanir, sem Bláa stjárnan hefur haft undan- fama vetur í Reykjavík, og hlotið hafa miklar vinsældir, og reynst snar þáttur í skemmtalalífi höfuð- staðarins. - • • • Hektor 15 ára smiðjuna og við það tækifæri sagði hann, að verð og gæði á húfufram- leiðslu verksmiðjunnar hefði ávallt verið sambærilegt við erlendar húf- ur, og hefur verksmiðjan aldrei fengið kvörtun um galla á fram- leiðslu sinni. Verksmiðjuhúsið er hið vistleg- asta, á efri hæð er rúmgóður vinnusalur, en á neðri hæð er vöru- geymslur, skrifstofa og íbúð for- stöðukonu. Kaupgreiðslur verksmiðjunnar hafa frá upphafi numið rúml. 800 þús. kr. og opinber gjöld rúml. 140 þús. kr. Nú vinna í verksmiðjunni Hektor 6 stúlkur, en þegar flest er hafa 12 stúlkur unnið þar. Vesturland óskar þessu 15 ára iðnfyrirtæki til hamingju með starfsafmælið og vonar að það megi auka og efla framleiðslu sína á ókomnum árum. VERÐJÖFNUN Á OLIU ER RÉTTLÆriSMÁL. Framhald af 1. síðu. og nágreimis hennar, en íólkið þar og þó einkum ráðamenn þess, verða að sína betri skilning á hagsmunii’n okkar en þeir hafa gert í ve’ðjöfnunarmálinu á olí- unni. Ef það breytist ekki þá breikkar sundið á milli fólksins við Faxaílía og annara íbúa lands- ins. Fjárhagsáætlun bæj- arsjóðs 1953. Frumvarp að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs var lagt fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn s.l. miðviku- dagskvöld. Samkvæmt því nema heildarútgjöld bæjarsjóðs krónum 4.906.000,00, en tekjur krónur 1.875.800,00 Það sem á vantar eru útsvör „aðeins“ kf. 3.032.200,00. Þess skal getið að nýr útgjalda- liður er nú lagður á bæjarbúa vegna kaupa bæjarsjóðs á íshús- félagi Isfirðinga að upphæð krónur 196.000,00 — eitt hundrað níutíu og sex þúsund krónur, en tekna- megin er tekið inn kr. 133.000,00, en kr. 63.000,00 ætlar meirihlutinn að leggja á okkur í útsvörum. í sambandi við útsvörin lögðu Sjálfstæðismenn fram svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjóm samþykkir að leggja fyrir niðurjöfnunarnefnd, að jafna niður útsvörum eftir eigi hærri útsvarsstiga en notaður verður við álagningu útsvara í Reykjavík á þessu ári. Matthías Bjamason Kjartan J. Jóhannsson M. Bernharðsson Ásberg Sigurðsson“. Þessari tillögu var vísað til bæj- arráðs og kemur hún þaðan til af- greiðslu við síðari umræðu fjár- hagsáætlunarinnar á miðvikudags- kvöld. Fjárhagsáætlunin verður ítar- Iega rædd í næsta blaði og af- greiðsla hennar. -------O-------- Togararnir. Sólborg landaði hér 20. jan. rúm- lega 100 tonn af saltfiski, 42 tonn ísaður fiskur, 11,5 tonn fiskimjöl. Skipið kom aftur inn 29. f.m. og landaði þá 25 tonnum af ísuðum fiski. ísborg kom úr slipp 20. jan. og fór jafnskjótt á saltfiskveiðar. Afli Jínubáta. Línubátar hafa aflað illa að und- anförnu. Héðan frá Isafirði eru gerðir út 8 bátar með línu. Hæstan afla af Isafjarðarbátum hefur Pólstjarnan, 75 tonn. Árshátíð Sunnukórsins. Sunnukórinn efndi til sinnar ár- legu sólarhátíðar laugardaginn 24. jan. Formaður kórsins, sr. Sigurð- ur Kristjánsson flutti ávarp. Sunnukórinn söng nokkur lög. Sig- urður Jónsson söng einsöng við undirleik Ragnar H. Ragnar. Al- bert K. Sanders og Jónas Magnús- son fluttu gamanþátt. Að lokum var dansað. Skemmtunin fór mjög vel fram og var f jölsótt. Arsþing íþróttabandalags ísfirðinga hefst hér í bæ á morgun. Innan bandalagsins eru nú 7 félög.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.