Vesturland - 21.04.1953, Side 4
Ur bæ og byggð.
Afmæli.
Guðmundur Einarsson, fyrrv.
fiskimatsmaður í Hnífsdal átti átt-
ræðisafmæli 13. apríl s.l. Guð-
mundur var í mörg ár verkstjóri
hjá Guðmundi Sveinssyni. Hann
hefur ávallt verið verkhygginn
maður, skyldurækinn og duglegur.
Guðmundur átti í mörg ár sæti í
hreppsnefnd. Kona hans er Bjarn-
veig Magnúsdóttir.
Hjúskapur.
Þann 1. apríl s.l. voru gefin sam-
an í hjónaband í Reykjavík
Petrína Þorvarðardóttir, hjúkrun-
arkona og Daniel Sigmundsson,
húsasmíðameistari, ísafirði.
Þann 4. þ.m. voru gefin saman
í hjónaband af sóknarpresti, séra,
Sigurði Kristjánssyni, ungfrú Guð-
ríður Matthíasdóttir og Jóhannes
Jónsson, bílstjóri, ísafirði.
Samþykkt að loka
áfengisútsölunni.
S.l. sunnudag fór fram atkvæða-
greiðsla um það hvort loka skuli
áfengisútsölunni hér í bænum. I
gær voru atkvæði talin og féllu
þau þannig:
Já sögðu 562, nei sögðu 357,
auðir voru 16 og ógildir 3.
Skíðaskáli Skiðafélagsins eyði-
leggst í snjóflóði.
Á Pálmasunnudag urðu skíða-
menn þess varir að skíðaskáli
Skíðafélags ísafjarðar á Seljalands
dal hafði brotnað af grunni, og
eyðilagðist áð mestu, af völdum
snjóflóðs, sem hafði fallið á skál-
ann, sennilega kvöldið áður.
Skálinn var byggður 1939, en
stækkaður nokkru síðar og var hin
myndarlegasta bygging. Hefur
Skíðafélagið orðið fyrir miklu
tjóni sem vafalaust er a.m.k. 200
króna.
Afmæli.
Frú Bjamey Guðmundsdóttir
átti 60 ára afmæli 25. marz s.l.
Bjarney er kona Líkafróns Sigur-
garðssonar, verkamanns hér í bæ.
Þau hjón hafa eignast 14 börn.
Bjamey er fædd á Höfða í Gmnna-
víkurhreppi, en lengst hefur hún
og maður hennar átt heima á
Hrafnfjarðareyri, eða í 24 ár ó-
slitið. Hingað til Isafjarðar fluttu
þau hjón fyrir 10 árum.
Söfnun fyrir Krabbameinsfélag
lslands.
Ekkert Krabbameinsfélag er hér
starfandi en viðkomandi skátafé-
lög og frú Ingibjörg Guðmunds-
dóttir buðust til þess að annast
söfnunina, sem bar mjög góðan ár-
angur, og sýnir skilning almenn-
ings á þessu mikla nauðsynjamáli.
Alls safnaðist kr. 22.500,00, sem
skiptist þannig: Suðureyri kr.
1.900,00, Bolungarvík kr. 3.750,00,
ísafjörður kr. 12.850,00 og frú
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Hnífs-
dal, sem safnaði kr. 3.500,00.
Mikil staríræksla
Vinnulaun hjá ísfirðing og Harð-
fiskstöðinni í landi hafa verið
sem segir að undanförnu:
Frá 1.—7. marz kr. 19.197,00.
Frá 8.—14. marz kr. 36.931,00.
Frá 15.—21. marz kr. 32.134,00.
Frá 22. marz til 4. apríl 81.727,00
kr. Frá 5.—11. apríl kr. 64.320,00.
Samtals em greidd vinnulaun
þennan tíma kr. 234,309,00.
Oft á þessum tíma hafa unnið
um 100 verkamenn samtímis.
um leið ósvífið hnefahögg í andlit
verkafólks sem trúir og vonar að
með framkvæmdum ísfirðings h.f.
verði því tryggð ömggari lífskjör.
Nokkrar topphúfur krataflokks-
ins hata ísfirðing h.f. og óska fé-
lagið feigt. Þessvegna hafa þeir á-
kveðið að ráðast gegn því og gera
því allt til bölvunar, sem hægt er.
Þessum mönnum varðar ekkert
um hagsmuni ísafjarðar, þeim er
fyrir öllu að þjóna lymskulegu og
illu innræti. Eru slíkir menn til
þess fallnir að hafa forystu mála?
Nei, slíkir menn eru alls staðar til
skaða og skammar.
Hafnarnefndarmennirnir sem
samþykktu þessa pólitízku árásar-
tillögu reyna vafalaust að koma
sér á bak við hina fáheyrðu grein-
argerð bæjarstjórans sem nú verð-
ur vikið að.
Hvernig er Ióðarleigan fengin?
Lóðarleiga þessi er fenginn með
ósvífinni og blygðunarlausri fölsun
og blekkingum bæjarstjórans Jóns
Guðjónssonar. Hann slær því föstu,
að kostnaðarverð hafnarmannvirkj
anna sé 4 milj. kr. að frádregnu
ríkisframlagi. Þetta er hin herfi-
legasta blekking. Til þess að fá
þessar 4 miljónir verður hann að
áætla kostnað við að fullgera hafn-
arbakkann sé 1 millj. kr., sem er
allt of hátt og óvíst nema ríkis-
sjóður kosti það að verulegu leyti,
vegna mistaka við staðsetningu
bakkans, sem er á ábyrgð vitamála-
stjórnarinnar.
Það má hiklaust fullyrða að bæj-
arstjórnin áætli kostnaðarverð
hafnarmannvirkisins a.m.k. einni
miljón of hátt. Að kostnaðarverð
þess sé ca. 3 miljónir en ekki 4
milj. kr., sem er strax ágæt byrj-
un, en endirinn er þó sízt lakari.
Til að finna kostnaðarverð á land-
ið pr. fermeter þarf hann að finna
út stærð landsins, sem skapazt hef-
ur með byggingu hafnarbakkans
hjá ísíirðing h.í.
Isborg landaði hér 4. þ.m. 108
tonnum af saltfiski, 22 tonnum af
ísfiski og 19 tonnum af ýsu í Rvík.
Sólborg landaði hér 11. þ.m. 108
tonnum af saltfiski, 22 tonnum ís-
fiski, og 10 tonnum fiskimjöl.
Nýlega tók danskt skip s/s
Lorna um 4300 pakka af söltuðum
upsa hjá ísfirðing.
Selfoss kom með efni í 30 fisk-
hjalla fyrir rúmri viku og er langt
komin uppsetning á þeim.
af 1. síðu.
og bátahafnarinnar. Þetta er auð-
velt reikningsdæmi, sem bæjar-
stjórinn flaskar þó viljandi á.
Herfilegur reikningsfeill
bæjarstjórans.
Bæjarstjóranum reiknast lands-
stærðin 16 700m- en sanni nær
mun hún vera 20 0003 .
Ef þessir 20 0002 kosta 3 milj.
króna kostar hver fermeter um
150 kr., þ.e. að segja, ef hver fer-
meter væri jafn dýr. Svo er þó
ekki. Dýrasti hluti hafnarmann-
virkisins er að sjálfsögðu stálþilið
sjálft og bygging þess. Steypta
platan og uppfyllingin næst þilinu
er líka mörgum sinnum dýrari en
malarfyllingin þar sem fyllingin
er grynnst.
Framhjá þessum staðreyndum
sneyðir bæjarstjóri viljandi að
mestu leyti. Honum þóknast þó af
vísdómi sínum að áætla fermeter-
inn í viðleguplássinu næst þilinu
tvöfalt hærri en annars staðar á
uppfyllingunni.
Á móti þeirri rausn þóknast
honum hinsvegar að telja viðlegu-
plássið við hafnarbakkan 2600 m2
í stað 4840 m2' eða 2240 m2'
minna en það raunverulega er á-
kveðið með götubreidd 22 metra.
Sömu sögu er að segja um viðlegu-
plássið við bátahöfnina. Kostnað
við uppfyllingu lands undir þver-
götu frá hafnarbakkanum á hins-
vegar að jafna algerlega á lóðirn-
ar, sem leigja á út.
Bæjarstjórinn fær hvergi fótað
sig í blekkingarútreikningum sín-
um. Hann hefur líka leitað langt
yfir skammt til þess að finna út,
hvað fermeterinn í uppfyllingunni
á hafnarbakkanum kostar. Um það
þarf engum blöðum að fletta, að
mat Marzellíusar Bernharðssonar á
kostnaðarverði lóðanna er rétt, en
hann metur fermeterinn á kr. 54,00
þegar framlag ríkissjóðs 2/5 hefur
verið dregið frá. Það skal að lokum
SKEMMDARVERK KRATA OG KOMMA.
Framhald
Elínu S. Jónsdóttur
ljóðmóður
færðar heiðursgjafir.
Fyrir skömmu síðan færðu ís-
firzkar konur frú Elínu S. Jóns-
dóttur, ljósmóður, vandað gullúr
að gjöf, sem vott þakklætis og
virðingar fyrir langa og dygga
þjónustu sem ljósmóðir hér í bæn-
um. Ennfremur færði Bæjarráð
ísafjarðar henni heiðursgjöf, vand-
aðan standlampa, frá Bæjarsjóði
Isafjarðar og flutti henni þakkir
bæjarstjórnar fyrir störf hennar
sem Ijósmóður í um þrjá áratugi.
Þau ár sem Elín starfaði hér sem
ljósmóðir mun hún 'hafa tekið á
móti um 2000 börnum. Hún sagði,
eins og kunnugt er, starfi sínu
lausu frá síðustu áramótum.
Heiðursgjafir þessar sýna það,
að hið langa og giftudrjúga starf
sem þessi mæta kona hefur hér
unnið er vissulega metið eins og
vera ber.
--------O--------
Skíðainót íslands 1953.
Frá Skíðaráði ísafjarðar fóru
13 keppendur á Skíðamót íslands,
sem haldið var á Akureyri 1.—6.
þ.m. Frammistaða ísfirzku skíða-
mannanna var með ágætum eins
og vænta mátti. Sé viðhafður stiga
útreikningur, sem venja er um
stórmót verður útkoman þessi:
ísafjörður 69 stig, Siglufjörður 41,
Reykjavík 33, Þingeyingar 32, Ak-
ureyri 15 og Strandamenn 5. Far-
arstjóri ísfirðinganna var Albert
K. Sanders.
1 ...*
Átti að afgreiða
lóðamál ísfirðings
á lokuðum fundi.
Bæjarstjórnarfundur verður
í kvöld kl. 8. Kemur þá til af-
greiðslu hin íurðulega tillaga
meirihluta hafnarnefndar um
kr. 12,00 lóðaleigu á fermeter á
hafnaruppfyllingunni. Kratarn-
ir boðuðu til þessa íundar á
skrifstofu bæjarstjóra kl. 4 í
dag, en Sjálfstæðismenn mót-
mæltu því, að mál þetta sé af-
greitt fyrir lokuðum dyrum. Lét
bæjarstjóri þá undan, og boð-
aði til fundar í Alþýðuhúsinu
kl. 8 í kvöld.
______________________________
TIL SÖLU. — 8” vélhefill (afrétt-
ari).
óli J. Siginuudsson.
fullyrt, að hafnarsjóður hefði ver-
ið fullsæmdur af þeirri lóðarleigu,
sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
í hafnarnefnd lögðu til, en það var
kr. 3,24 fyrir fermeterinn.