Vesturland

Árgangur

Vesturland - 24.12.1958, Blaðsíða 15

Vesturland - 24.12.1958, Blaðsíða 15
14 VESTURLAND VESTURLAND 15 Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Matthías Bjamason og Sigurður Bjamason frá Vigur. Skrifstofa Uppsölum, sími 193. Afgreiðsla og auglýsingar: Hafsteinn O. Hannesson, Hafnarstræti 12 (Uppsaiir). Heimasími: 10. — Verð árgangsins kr. 20,00. _____________________________________________________________________1 J Ó L Nú rennur jólastjarna og stafaó geislum lætur á strák í nýjum buxum og telpu í nýjum kjól. Hve kertaljósin skína og sykurinn er sætur og söngurinn er fagur, er börnin halda jól. Og mitt í allri dýrðinni krakkakríli grætur — það kemur stundum fyrir, að börnin gráta um jól — en bráðum gleymist sorgin, og barnið huggast lætur og brosir gegn um tárin sem fífill móti sól. Þá klappa litlar hendur, og dansa fimir fætur, og fögrum jólagjöfum er dreift um borð og stól. Nú rætast margar vonir og draumar dags og nætur. Ó, dæmalaust er gaman að lifa svona jól. Og ellin tekur hlutdeild í helgi jólanætur, er heimur skrýðist ljóma frá barnsins jólasól. En innst í hugans leynum er lítið barn, sem grætur - og litla barnið grætur, að það fær engin jól. örn Arnarson. r Feðgarnir Jakob Þorláksson og Finnbogi Jakobsson, sem er yngsti nemandinn á námskeiðinu. Þeir nemendur námskeiðsins sem hafa verið formenn og stýrimenn. Nemendur og kennarar. ZTn.ŒSLkt Bóndi, sem átti tuttugu svín sendi írska vinnumanninn sinn til þess að telja þau. Vinnumaðurinn var lengi í burtu. Þegar hann kom aftur sagði húsbóndi hans. „Þú varst lengi, eru þau ekki öll?“ „Jú, sagði vinnumaðurinn, mér gekk vel að telja nítján, en einn litli grísinn hljóp svo hratt um að ég gat aldrei talið hann.'í Hann: Viltu giftast mér? Hún: Nei, ég get það ekki, en ég skal alltaf muna hvað þú hefur góðan smekk. Rödd í símanum: „Er þetta Elísabet.“ 7,Já.“ „Viltu giftast mér?“ „Já, elskan, hver talar?“ Tveir heyrnardaufir öldungar mættust á götu: „Ertu að koma frá jarðarför ?“ „Nei, ég er að koma frá jarðar- för.“ „Nú, ég hélt að þú værir að koma frá jarðarför." Abstraktmálarinn sýndi vini sín- um mynd, sem hann hafði málað af kú á beit. Vinurinn horfði þegjandi á myndina dálitla stund og sagði svo: „Mér finnst nú skipið ekki sem verst, en þú hefur málað sjó- inn allt of grænan." „Hvað meinarðu með því að færa mér skó sitt af hverju tagi,“ sagði húsbóndinn og sýndi þjóninum annan skóinn brúnan en hinn svartan. „Mér þykir það leitt, herra,“ sagði nýi írski þjónninn, „en það skrítnasta er, að það eru aðrir skór niðri, sem eru alveg eins.“ ----------------o----- Bið þú þess ekki, að allt gerist svo sem þú villt, heldur skal það vera vilji þinn, að allir hlutir gér- ist svo sem þeir gerast, og þá munt þú verða hamingjusamur. Svo sem markið er ekki reist til þess að skyttan missi þess, er ekk- ert í heimi illt í sjálfu sér. Ef þú hefur gengizt undir hlut- verk, sem þér er ofvaxið, er þér ekki aðeins vansi að því, heldur hefur þú einnig vanrækt hitt, sem þú hafðir. Epiktets. Bjargarlausir eiginmenn. 1 saumaklúbb voru konurnar að tala um eiginmenn sína, eins og títt er. „Maðurinn minn er alveg bjarg- arlaus án mín,“ sagði sú fyrsta. „Minn líka,“ sagði önnur. „Ég veit bara ekki hvernig hann færi að ef ég færi frá honum í viku.“ „Maðurinn minn er alveg eins og barn,“ sagði sú þriðja. „Þegar hann er að gera við fötin sín, festa tölu á skyrtuna eða stoppa í sokkana sína, verð ég alltaf að þræða nálina fyrir hann.“ Rangeygur dómari var að yfir- heyra þrjá menn. Hvað heitirðu, sagði hann við þann fyrsta. Þá svaraðí annar: „Jóhannes“. Dóm- arinn leit ávítandi á annan mann- inn: „Ég var ekki að ávarpa þig.“ Þá sagði sá þriðji: „Ég sagði ekk- ert, herra.“ Nemandi kom upp í mannkyns- sögu og kunni harla lítið. Tók hann því það ráð að jánka við öllu sem kennarinn sagði. Gekk svo um hríð. Rætt var um páfana og komst kennarinn að þeirri niðurstöðu, að þeir myndu vera orðnir allmarg- ir og r.efndi einhverja tölu í því sambandi. — Já, já, sagði nemandinn. — Þetta er orðin ærið löng tradisjón. — Já, já, sagði strákur með sannfæringu. Þá brosti kennarinn góðlátlega um leið og hann skotraði augunum til stráksa og sagði: — Já, góði, það hefir mörgu vit- lausara verið játað um dagana. HátlðaonO sþj ónustar tsaf jörður: Aðfangadagskvöld kl. 8 Jóladagur kl. 2 Jóladagur kl. 3 Sjúkrahúsið. Gamlárskvöld kl. 8 Hníf sdalur: Aðfangadagskvöld kl. 6 Jóladagur kl. 5 Gamlárskvöld kl. 6 Sunnud. 4. jan. 1959 Ellih. kl. 2 Ögur: Annan jóladag kl. 2 Súðavík: Nýársdag kl. 2 Skutulsfjörður: Sunnud. milli jóla og nýárs kl. 2.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.