Vesturland

Árgangur

Vesturland - 15.05.1962, Blaðsíða 1

Vesturland - 15.05.1962, Blaðsíða 1
Skuíulmenii klæðasí í dainla búnindinn þroskað fólk fordæmlr persónuníðið BLAÐIÐ SKUTULL, sem út kom s.l. laugardag, er komið í gamla búninginn, iþann búning sem það klæddist á velmektardögum AI- þýðuflokksins, þegar Alþýðuflokk- urinn réði hér einn öllu, og hver sá sem leyfði sér að gagnrýna gerðir hans var ofsóttur af þeirri grimmd og ómannlegu hatri, sem réði gerðum allt of margna for- ystumanna flokksins á liðnum ár- um. Nú er aftur gripið til þessa gamla baráttutækis, persónuníðs- ins, og eru þeir menn sem skrifum blaðsins ráða að sýna að þeir hafa ekki gleymt neinu og ekkert lært. Ábyrgðarmaður blaðsins er Birgir Finnsson, og meðreiðar- sveinar hans eru Björgvin Sig- hvatsson og Jón H. Guðmundsson, sem ég leyfði mér eitt sinn að kalla einu nafni Skutulskennarana. Aðalkjarni baráttu þessara virðu- legu manna er að koma því inn hjá fólki að ég og þá um leið allir efstu menn á D-listanum séu ó- ráðvandir og glæframenn mestu í öllum fjármálum. En þó er gerð sú breyting að Marsellíus Bern- harðsson er nú undanskilin, en sú var tíðin að á hann var ráðizt í Skutli, og er þessi breyting eina batamerkið hjá þeim félögum og er sjálfsagt að gleyma því ekki. Þeir Högni Þórðarson, Kristján Jónsson og Samúel Jónsson, sem skipa 3.—5. sæti D-listans eru af öllum sem þá þekkja taldir grand- varir menn í öllum fjármálum og hafa ekki heyrzt um þá slíkar dylgjur nema í blaðinu Skutli. Um sjálfan mig læt ég nægja að visa til allra þeirra mörgu sem við mig hafa skipt, hvort ég hafi svikið þá í fjármálum,og sömuleiðis þau fyr- irtæki, sem ég hefi haft reksturs- stjórn fyrir, hvað athugavert hefur verið við mín reikningsskil þar. Birgi Finnssyni er því hér með bent á að birta í Skutli sínum rök- studdar ákærur á mig, og hætta dólgslegum aðdróttunum um óráð- vendni hjá mér og meðframbjóð- endum mínum. Slikur málflutn- ingur sæmir varla virðulegum al- þingismanni, sem hann vill vafa- lítið og eðlilega vera talinn. Ég skal taka fram að þau fyrir- tæki sem ég hefi veitt forstöðu hafa árlega haldið aðalfund og lagt fyrir eigendur sína endurskoð- aða reikninga og þeir verið sam- þykktir athugasemdalaust. Birgir Finnsson er mjög hrifinn af samstarfi Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins og kommún- ista, ■— og verði honum að góðu. Alþýðuflokliurinn fékk í bæjar- stjórnarkosningunum 1942 714 at- kvæði og 5 fulltrúa. Síðan hefur gengi flokksins sífellt farið minnk- BLAÐIÐ Vestfirðingur, sem út kom 10. þ.m. fer með vísvitandi blekkingar um hafnarmálin, og eru menn furðu lostnir yfir svo ó- skamnifeilnum fréttafölsunum og þar eru bornar á borð fyrir kjós- endur. í forsíðugrein blaðsins „Góð höfn er undirstaða sjávarútvegs og siglinga" er rætt um stækkun báta- hafnarinnar, og segir þar í undir- fyrirsögn: „Öruggt er að það verk verður unnið í sumar.“ 1 grein- inni segir m.a.: Undirbúningur þessa nauðsynjaverks er líka það vel á veg kominn, að framkvæmdir liefjast örugglega á þessu sumri. VERKFRÆÐILEGUM UNDIR- BÚNINGI ER AD FULLU LOKIÐ, vitamálaskrifstofan hefur tekið að sér efnispöntun og lofað að lána stórvirk tæki til að vinna verkið." Ennfremur segir: „Mestu máli skiptir þó, að tíminn var notaður til að undirbúa rækilega það verk, sem nú skal hefja, og það með þeiin árangri, sem lýst er hér að frainan.“ (Leturbr. Vesturlands). Allar þessar fullyrðingar blaðs- ins eru gjörsamlega úr lausu lofti gripnar og- vísvitandi settar fram andi og í bæjarstjórnarkosningun- um 1946 tapar flokkurinn fimmta manni sínurn. 1958 kastar Alþýðu- flokkurinn fjórða manni sínum fyrir borð fyrir kommúnista, og nú við þessar kosningar fer einn fulltrúi Alþýðuflokksins úr öðru sæti niður í fimmta. Síðustu atkvæðatölur Alþýðu- flokksins á Isafirði eru frá alþing- iskosningunnin 1959, en þá fékk flokkurinn 269 atkvæði, og svo hræddur er Alþýðuflokkurinn nú, að hann þorir ekki að bjóða fram sjálfstætt og ber það ljósan vott um að hann telur sig ekki geta náð einn og sér 269 atkvæðum eins og hann fékk sumarið 1959. Framsókn gleypti fylgið af Al- í þeim tilgangi einum að blekkja kjósendur. Á fundi hafnarnefndar 2. desem- ber s.l. var lagt fram bréf Guðm. Gunnarssonar verkfræðings vita- málaskrifstofunnar og er í bréfinu „rætt um aðstöðu og möguleika til hafnargerðar á ísafirði.“ Verkfræðingurinn telur þar vera um tvo möguleika að ræða: „A, stækkun núverandi bátahafnar og B, nýja höfn Sundamegin á eyr- inni.“ Hafnarnefnd frestaði á- kvörðun. Málið er síðan ekki tekið upp í hafnarnefnd fyrr en í marz s. 1. og leggur hafnarnefnd þá til að bátahöfnin verði stækkuð og var sú tillaga samþykkt samhljóða í bæjarstjórn. Guðm. Gunnarsson verkfræðing- ur mætti á fundi bæjarráðs 7. maí s.I. eða þrem dögum áður en Vest- firðingur kom út. Á þeim fundi var Halldór frá Gjögri einnig mættur. Aðspurður gaf verkfræðingurinn l»ær upplýsingar, að ekkert væri farið að vinna að teikningum varð- andi stækkun bátahafnarinnar, engin efnisupptalning farið fram og þar af leiðandi liefði engin efn- ispöntun í stálþil verið gerð. þýðuflokknum þá, eftir hið nána samstarf í bæjarstjórnarkosning- unum 1958, og ef til vill tekst henni nú að klára þann tæting sem enn er eftir, og þá þurfa Birgir Finnsson og félagar hans engar áhyggjur lengur að hafa af Al- þýðuflokknum. Hvernig stendur á því að Al- þýðuflokkurinn er að veslast upp, þegar þessir menn eru svona stjórnsamir og duglegir eins og Skutull vill vera láta? Kjarni málsins er að bæjarbúar eru almennt búnir að sjá að Al- þýðuflökkurinn með núverandi for- ystumenn dugar ekki. Þessvegna hefur fylgið hrunið af honum. I Framhald á 3. síðu. Ákveðið var að fá Marsellíus Bernharðsson til að taka sýnishorn úr stálþilinu, sem nú er í bátahöfn- inni, til þess að hægt yrði að rann- saka hvaða tegund af stáli hefði verið notað þar, því að athugun hefur leitt í ljós að tæringin í því stáli er minni, en allsstaðar annars staðar, þar sem slík athugun hefur farið fram á stálþilum hérlendis. Rætt var um framlengingu stálþilsins meðfram götunni í átt- ina að Edinborg, en verkfræðing- urinn sagði, að ekkert væri enn ákveðið um uppfyllingu framan við Edinborgarhúsin né heldur um lengingu á fremri armi bátahafn- arinnar. Kom greinilega fram hjá verk- fræðingnum, að hann persónulega lagði meiri áherzlu á hafnargerð Sundamegin en stækkun bátahafn- arinnar, sem bæjarstjórn hefur á- kveðið með samhljóða atkvæðum. Vesturland skorar liér með á Halldór frá Gjögri að hrekja þess- ar upplýsingar frá bæjarráðsfund- inum ef hann getur, enda verður þá leitað eftir staðfestingu verk- fræðingsins ef Halldór mótmælir framansögðu. Fi’amhald á 2. síðu. iar blekkindar llallirs frá Giöðri

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.