Vesturland - 15.05.1962, Blaðsíða 3
VESTURLAND
3
SEXTUGCE:
Daniel Rögnvaldsson, smiður
Grenjavinnsla
Bjarni Kr. Pétursson Grænagarði ísafirði hefur verið ráðinn til
þess að annast grenjavinnslu í Sléttuhreppi 1962.
Er öllum öðrum bannað að stunda grenjavinnslu í hreppnum.
Sýslumaðurinn í Isafjarðarsýslu 8. maí 1962.
ÞANN 11. maí átti Daníel Rögn-
valdsson smiður sextíu ára af-
mæli.
Daníel er fæddur að Uppsölum í
Seyðisfirði og voru foreldrar hans
Kristín Guðmundsdóttir og Rögn-
valdur Guðmundsson er þar
bjuggu. Þau hjón áttu 12 böm,
og var Daníel yngstur bama
þeirra.
Hann ólst upp að Uppsölum og
fluttist síðar til Súðavíkur og
stundaði alla algenga vinnu til
lands og sjávar. Til ísafjarðar
flytur hann árið 1934 og hefur
verið búsettur hér síðan. Lengst
af hefur hann hér unnið við smíð-
ar, og í næstum tvo ánatugi hefur
hann unnið á skipasmíðastöð M.
Bernharðssonar. Daníel er góður
verkmaður, traustur og áreiðan-
legur í öllum skiptum, dagfars-
prúður og manna óáreitnastur við
aðra. Hann er fastur fyrir í skoð-
unum og trúir að sjálfstæði ein-
staklinga sé fyrir beztu fyrir hvern
mann. Daníel er myndarlegur og
karlmannlegur maður, fremur
dulur og lætur ekki mikið á sér
bera. Hann er starfsmaður mikill
til þessa ekki haft neitt húsnæði
fyrir sig sérstaklega, til funda-
halda og skemmtana. Nú loksins
mun vera á döfinni bygging félags-
heimilis, eða stækkun á húsnæði
sem þegar er til, en hefur verið
notað til annars. Þetta er mikið
nauðsynjamál, og þarf að flýta
fyrir því sem mest. Einnig þar á
að vera samvinna milli bæjarfé-
lagsins og unga fólksins, og skiln-
ingur frá hendi forráðamanna
bæjarins á, að iþarna sé mál, sem
enga bið þolir. Það má mikið bæta,
og það þarf að gera fljótt, því að
of lengi hafa þeir gleymst, sem
sízt má gleyma. Flutningur fólks
úr bænum hefur verið ör undan-
farin ár. Við getum engum láð,
sem flytur sig búferlum þangað
sem hann telur afkomu sinni og
sinna betur borgið. Mundi ekki
ein af mörgum ástæðum fyrir
brottflutningi fólks vera sú, að
það er ekki nógu vel búið í haginn
fyrir börn og unglinga hér.
Börnin eru dýrmæfasta eign for-
eldranna. Bæjarfélaginu eru þau
líka dýrmætasta eignin. Þessvegna
verður að snúa við blaðinu, fylgj-
ast með tímanum, og skilja hvers
er þörf á hverjum tíma.
Kjósendur eiga að taka í taum-
ana á kjördegi og fela þeim mönn-
um þessi mál í hendur, sem vilja
bæta úr, og sem skilja að hér þarf
mikið að gera.
Kristjana Magnúsdóttir.
og nýtur trausts og virðingar allra
samverkamanna sinna og sam-
borgara sem hann þekkja.
Daníel kvæntist 18. desember
1929 Soffíu Helgadóttur frá Súða-
vík, myndarlegri og dugmikilli
konu, og eiga þau hjón þrjú böm:
Ragnhildur, gift Engilbert Ingvars-
syni bónda á Mýri í Snæfjalla-
hreppi, Halldóra, gift Magnúsi
Jónssyni húsgagnasmið, búsett í
Reykjavik, og Haukur, kvæntur
Valgerði Jakobsdóttur frá Reykja-
firði, búsett hér á ísafirði.
Með þessum fáu orðum vil ég
flytja Daníel mínar beztu ham-
ingjuóskir og áma honum, konu
hans, börnum og öðru skylduliði
heilla og blessunar um ókomin ár.
Það er mikil gæfa fyrir hvert
bæjarfélag að eiga eins trausta og
áreiðanlega borgara og Daníel
Rögnvaldsson er.
M. Bj.
—□—
Framhald af 1. síðu.
Skutulmi...
örvæntingu sinni grípa þeir því til
níðsins um andstæðinga sína og
hanga einu sinni ennþá í því háim-
strái, að kalla mesta framfara-
tímabil í sögu bæjarins, það „nöt-
urlegasta sem um getur í sögu
bæjarstjórnar ísafjarðar“ eins og
B.F. kemst svo smekklega að orði.
Að þessu sinni vil ég aðeins
minna þessa menn á nokkur atriði:
Bærinn hafði forgöngu um stofn-
un togarafélags, sem keypti tvo
togara. Það félag greiddi hér tugi
milljóna króna í vinnulaun og
færði frystihúsunum mikið hrá-
efni. Bærinn styrkti félög til báta-
kaupa og greiddi kr. 37.500,00 til
hvers báts, sem þá var keyptur
liingað, en þeir voru fimm talsins.
Þessi styrkur mun nú jafngilda
kr. 250.000,00 framlagi á bát mið-
að við byggingarkostnað. Nú greið-
ir bæjarsjóður ekkert til skipa-
kaupa, og það hefur hvað eftir
annað komið fram hjá sumum
þessara manna að það þurfi ekki
fleiri skip. Fjögur skipanna sem
key[)t voru hingað á þeim árum
voru seld á nauðungaruppboði eftir
að Alþýðuflokkurinn tók aftur við
forystu bæjarmálanna. Bærinn
byggði 12 íbúða hús við Fjarðar-
stræti og styrkti einstaklinga til
að koma upp húsum sínum.
Hafnarbakkinn í Neðstakaupstað
var byggður, en í 11 ár hefur Al-
þýðuflokkurinn ekki lokið við að
steypa plötuna á hafnarsvæðinu.
Lögð var ný vatnsveita frá Tungu-
á til bæjarins og innanbæjarkerf-
ið var stórlega endurbætt. Stórfé
var varið til byggingar mennta-
stofnana, svo sem íþróttahúss,
húsmæðraskóla, bókasafns og
stækkunar gagnfræðaskóla.
Þetta er nöturlegasta tímabilið
í sögu bæjarins segir Birgir Finns-
son.
Allt sem gert var á þessum árum
reyndu forystumenn Alþýðuflokks-
ins að bregða fæti fyrir nema
styrtkinn til bátakaupanna vegna
þess að þeir stóðu að verulegu leyti
að þeim bátakaupum sjálfir. Þeir
hleyptu upp bæjarstjórnarfundum
og hlupu af fundum. Framkoma
þeirra var með þeim hætti að allir
hugsandi menn fordæmdu hana og
Alþýðuflokkurinn hélt áfram að
týna fylgi sínu.
Við sem nú höfum verið í minni-
hluta í bæjarstjóm höfum staðið
með meirihlutanum í fjölmörgum
málum og marg oft þurft að ýta
við honum. Okkur er Ijóst að sí-
felldur ófriður hefur skaðað þenn-
an bæ, og við viljum aukið sam-
starf. Nú ráðast málgögn meiri-
hlutans á okkur fyrir þetta og
telja slíka stefnu með öllu óhæfa.
En fólkið í bænum er farið að
skilja það, að sífelld illindi eru
engum til góðs. Talsmenn illinda-
stefnunnar heyra fortíðinni til.
Við verðum að stöðva fólksflótt-
ann, auka trú bæjarbúa á framtíð
kaupstaðarins, vera bjartsýn og
dugleg að framkvæma aðkallandi
verkefni og hika ekki við að leita
samstarfs við alla góða og skyn-
sama menn, hvar svo sem þeir eru
í flokki. Við þurfum athafnasam-
an, framsýnan og duglegan bæjar-
stjóra, sem vinnur fyrir bæjarfé-
lagið í heild en lítur ekki á sig sem
starfsmann pólitískrar klíku. Við
eigum að nýta betur alla góða
starfskrafta og láta þröng flokks-
pólitísk sjónarmið hverfa úr bæj-
armálunum.
Árásir og aurkast er engum til
gagns. En því verður svarað af
fullri einurð, og rangfærslur ill-
indastefnunnar verða leiðréttar
jafnóðum og þær birtast. Persónu-
níðið mun harðast koma niður á
þeim sjálfum sem því beita.
Matthías Bjamason.
TIL SÖLU
er 8 tonna mótorbátur með eða
án veiðarfærum.
Upplýsingar gefur
JÓN GRIMSSON.
ÍBUÐ TIL SÖLU.
Ibúð mín í Brunngötu 12 A.,
efri hæð, er til sölu nú þegar.
ARINBJÖRN GUÐNASON
x D