Vesturland - 26.05.1962, Page 8
Til fflinnis iyrir kjósendur
£ Kratarnir hafa einir, eða í samstarfi við aðra vinstriflokka haft
meirihlutaaðstöðu hér á lsafirði í áratugi, að undanteknum þeim
rúmlega fimm árum, sem sjálfstæðismenn stjórnuðu bænum ásamt
ko mmúnistum.
A valdaárum vinstriflokkanna hefur bæjarbúum sífellt farið fækk-
andi. Bæjarstjómarmeirihlutinn hefur ekkert gert ennþá til að reyna
að stöðva fólksflóttann.
£ Fylgi vinstriflokkanna hefur farið þverrandi í öllum bæjarstjómar-
kosningum hér á fsafirði frá 1942. Vinstrimenn höfðu samtals 971
atkvæði árið 1942, en aðeins 699 atkvæði árið 1958.
Þannig mun stjarna þeirra ennþá lækka mikið á himni ísfirzkra
stjórnmála. Isfirðingar eru staðráðnir í því að gefa „kássuimi1 hvíldina.
Þeir kjósa ísafirði bjarta framtíð.
I>eir kjósa D-listann.
^ Vinstriflokkamir telja sig eina borna til þess að fara með stjórn
bæjarmálanna hér. Hver á að fara með stjórn bæjarfélagsins þegar
þeir falla fyrir sigð hins mikla sláttumanns, eða telja þeir sig vera
ódauðiega?
£ Stefnuskrá sjálfstæðismanna mótast af bjartsýni og trú á fram-
tíð fsaf jarðar. Frambjóðendur þríflokkanna kalla hana „himnastig-
ann“ (þó segja þeir, að hún líkist sinni stefnuskrá). Þeir hafa ennþá
ekki öðlast þá trú, að hér sé hægt að lifa menningarlífi, eins og í öðr-
um bæjarfélögum á fslandi.
£ Sjálfstæðismenn vilja að vélbátaútgerðin verði aukin og reynt
verði eftir megni að greiða fyrir vexti hennar. Með því vilja þeir
tryggja, að fiskvinnslustöðvarnar í bænum hafi jafnan nægilegt hrá-
efni til að vinna úr. Þá vilja þeir bæta aðstöðu smáútgerðarinnar og
að aukinn verði niðursuðuiðnaður.
Þeir vilja að bæjarfélagið reyni að greiða fyrir því, að komið verði
upp fjölbreyttari iðnaði hér og efld þau iðnfyrirtæki, sem íyrir eru.
Þeir vilja, að hafin verði stækkun bátahafnarinnar og lokið við hafn-
argarðinn í Neðstakaupstað.
Þeir vilja endurbyggingu bæjarbryggjuimar, halda áfram byggingu
sjóvarnargarða og hefja imdirbúning á byggingu verbúða. Verbúða-
málið hefur strandað á því, að bæjarstjórinn stakk því niður í skúffu
hjá sér.
£ Sjálfstæðismenn vilja halda áfram gatnagerð úr varanlegu efni.
Þeir vilja að styrkur ríkissjóðs til varanlegrar gatnagerðar verði
stóriega hækkaður til þess að unnt verði að hraða þessu verki, eins og
þörf er á.
Þeir vilja vinna að endurbyggingu á innanbæjarkerfi vatnsveitunnar,
sem nú er í mesta ólestri. Þeir vilja vinna að aukinni fegrun bæjarins,
hef ja undirbúing að byggingu sorpeyðingarstöðvar og vinna að kaupum
á sorpflutningabifreið fyrir bæinn.
Þeir vilja hraða skipulagningu bæjarins, girða bæjarlandið og vilja
að öli stærri verk, sem unnin eru á vegum bæjarins verði boðin út,
til hagsbóta fyrir bæjarbúa.
^ Sjálfstæðismenn viija gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess
að laða ungu kynslóðina að ísafirði. Þeir hyggjast m.a. gera það
með aukinni aðstoð við húsbyggjendur. Þeir vilja leggja fram ríflegt
Framhald á 3. síðu.
Orka og æska
ÞAÐ blandast engum hugur um að
eitt aðalvandamál ísafjarðar í
framtíðinni verður að útvega eða
koma auga á orku, sem íbúamir
geta keypt og notfært sér til Ijósa,
hita og hreyfiafls, því að með ári
hverju eykst orkuþörf hvers ein-
staklings eftir því sem hann tekur
fleiri vélar í þjónustu sína, og er
nú svo komið að á næsta ári fer
okkur að vanta rafmagn ef ein-
vörðungu þarf að treysta á þær
orkustöðvar, sem eru fyrir hendi
í -dag.
Fyrst af öllu þarf að finna
vatnsafl til framleiðslu rafmagns,
en ef það tekur of langan tíma,
þá verðum við að koma upp di-
esel-aflstöð eða annari hentugri
olíuaflstöð, en hvert kw. kostar í
dag í framleiðslu frá diesel-aflstöð
kr. 1,20. Til þess að ísafjörður
dragist ekki aftur úr öðrum bæj-
um, er nauðsynlegt að hafizt verði
handa á næstunni um að rannsaka
hvort ekki finnist 'heitt vatn til
upphitunar og annara þarfa, eins
og flestir bæir keppast nú um að
gjöra, og ef ekkert heitt vatn
finnst í jörðu, þá væri athugandi
hvort ekki væri hægt að virkja
strauminn í Sundunum eða með
öðrum orðum sjávarföllin.
Virkjun Sundanna.
Ef maður reiknar með að Poll-
urinn sé 2 ferkílómetrar að flatar-
máli og meðal hæðarmismunur á
flóði og fjöru sé yfir árið á hverj-
um 6 stundum 1 metri, þá fer
sjávarmagn um Sundin á sólar-
hring ca. 10 milljón tonn, eða 400
þúsund tonn á klukkustund, eða
111 þúsund sek.lítrar, og er þetta
ekki reiknað ríflega. Þá er ekki úr
vegi að velta því fyrir sér, hvort
ekki sé möguleiki á að virkja
þessa orku í framtíðinni til hitun-
ar á vatni til upphitunar, og í
sambandi við þá virkjun yrði
byggð brú yfir Sundin og báta-
höfn og skipaafgreiðsla staðsett
Sundamegin, og þar með væri flug-
völlurinn kominn svo að segja að
bæjardyrum okkar, eða þeirra,
sem þá byggðu þennan bæ. Nú, ef
þetta teldist óframkvæmanlegt, þá
væri ekki úr vegi að líta til fjall-
anna, og staðsetja þar öflugar
vindrafstöðvar til frcunleiðslu raf-
magns. Ég slæ þessu svona fram
til umhugsunar, áður en við kom-
um okkur upp atomorkuveri.
Orkan og æskan.
Þá eigum við eitt afl í viðbót,
sem við þurfum öll að hafa vak-
andi auga með að sé notað, og á
ég þar við starfslöngun og þrótt
æskufólks eða unglinga. Flestir
muna eftir því, þegar þeir voru
ungir, hve mikla gleði og ánægju
það veitti þeim, ef þeir voru látnir
vinna verk við þeirra hæfi og gátu
leyst það vel af hendi, og í hverj-
um einasta ungling býr starfs-
löngun og sköpunargleði, sem þarf
að fá útrás, þannig að þeim finnist
þeir ekki verða utangátta í starfi
lífsins. Það er leiðinlegt að þurfa
að neita ungling um vinnu, sem
kemur til manns fullur starfslöng-
unar.
Þessvegna þurfum við öll í þess-
um bæ að reyna að ráða fram úr
þeim vanda að sjá unglingum fyrir
vinnu við sitt hæfi, og munu þeir
minnast þess, þegar þeir verða
fullorðnir, hversu mikillar gleði og
uppeldisáhrifa þeir urðu fyrir í
æsku með því að vinna, og þar
að auki tengjast þeim stað, sem
veitti þeim slíkt tækifæri, órjúf-
andi böndum.
Ég er sannfærður um að allir
eru sammála um, að án starfs sé
ekkert líf.
Samúel Jónsson.
Eflir 24 iíra sljórn
kratanna
I lok 24 ára valdatímabils Al-
þýðuflokksins var bærinn svo
til vatnslaus og rafmagnsskort-
ur tilfinnanlegur að vetrinum.
„Ástandið í húsnæðis-
málum bæjarins er hörm-
ulegt“ sagði Jón Guðjóns-
son í bréfi til Nýbygging-
arráðs 18. sept. 1945.
„ ... Hafnarmannvirki
við ísafjarðarhöfn eru
mjög úr sér gengin.
. . . Neðsakaupstaðar-
bryggjan er alveg að falla
saman. ... Bæjarbryggj-
an þarfnast enn stórkost-
legrar viðgerðar.
. . . Eins og ástatt er um
hafnarmannvirki á ísa-
firði verður ekki komizt
hjá stórmiklum fram-
kvæmdum á næstu árum“
sagði sami bæjarstjóri í
desember 1945 í bréfi til
samgöngumálaráðherra.
Ástandið í atvinnumál-
um var í svipuðum dúr.
Þetta er lýsing Alþýðu-
flokksins sjálfs á ástand-
inu hér á ísafirði, þegar
hann skildi við eftir 24
ára stjórn.
I...... jj