Vesturland

Årgang

Vesturland - 23.09.1966, Side 2

Vesturland - 23.09.1966, Side 2
2 sum& aTes'JFrRzxxn sattoFSjævixmxim mm^\ sunv aíesjFiRzxnn s3itoFSjœ»)SMxm Útgefandi Kjördæmisráð Sjálfstæðis- 1 flokksins í Vestfjarðakjör- dæmi. Ritst jóri: Högni Torfason. Ritstjórn og afgreiðsla: Uppsölum. Sími 232. Prentstofan Isrún hf. Byoflðastefnan hefur sigrað Miklu framkvæmdasumri er nú að ljúka hér á landi. Dag- lega má lesa í blöðunum um stórfelldar framkvæmdir á ýmsum sviðum, sem ýmist er verið ;að hefja, eins og t.d. Búrfellsvirkjun, eða þá að ljúka, eins og t.d. hinar merku umbætur í samgöngumálum Norðlendinga; Múlavegur og Strákagöngin. Hér á Vestfjörðum hafa menn áþreifanlega orðið var- ir við hinar stórmiklu fram- kvæmdir í samgöngumálum kjördæmisins, ekki aðeins á þessu sumri, heldur á kjör- tímabilinu öllu. Ilvert stórvirkið af öðru hefur verið unnið, og nægir þar að minna á flugvöllinn á Patreksfirði, tvo flugvelli í Vestur-lsafjarðarsýslu, flug- stöðvarbyggingu og fjarskipta miðstöð á Isafirði, hafnargarð á Þingeyri, Patreksfirði, Bíldu dal og víðar, svo að ekki sé minnzt á þær miklu fram- kvæmdir, sem unnið hefur verið að í vegamálunum, svo sem í Trostansfirði, yfir Hálf dán, í Breiðadalsheiði, norður í Árnes, og svo mætti lengi telja, þótt hér sé aðeins stikl- að á því stærsta. Ríkisstjórnin og þingmenn stjórnarflokkanna hafa mark- að eindregna framkvæmda- stefnu í málum þjóðarinnar og verklegar framkvæmdir hafa aldrei verið meiri en ein- mitt á þessu kjörtímabili. Hér á Vestfjörðum hefur þessi þróttmikla stefna vakið verðskuldaða athygli og ekki leikur á tveim tungum, að Vestfirðingar kunna vel að meta þær öru og stórstígu framkvæmdir, sem unnið hef- ur verið að nú á síðustu árum undir forystu ríkisstjómar- innar og þingmanna Vest- fjarða, sem beitt hafa sér af Sorpbrennsla á ísafirði 1 sumar hefur verið gerð athugun á því, hver kostnaður yrði við að koma upp sorp- brenns'ustöð fyrir Isafjörð. Verkfræðiskrifstofa Sigurðar Thoroddsen hefur athugað þetta mál og Innkaupastofn- un ríkisins leitaði upplýsinga frá fimm erlendum framleið- endum um verð á slíkum brennslustöðvum. Bárust svör frá þremur og er lægst verð- ið hjá sænsku fyrirtæki, sem býður brennsluofna fyrir 670 þús ísl. kr. að meðtöldum tollum og flutningsgjöldum. Þýzkt firma býður brennslu- ofna fyrir 690 þús. og enskt fyrirtæki hefur á boðstólum brennsluofna fyrir rösklega 2 millj. kr. Verkfræðingarnir telja sænska ofninn helzt koma til greina. 1 kostnaðaráætlun þeirra er talið að sorpbrennslu stöð myndi kosta rösklega 2 millj. kr. og árlegur reksturs- kostnaður verða um 500 þús. kr. alefli fyrir því, að uppbygg- ingin í dreifbýlinu haldist í hendur við framfarir og við- gang fjölbýlisins. Byggðastefna núverandi ríkisstjórnar hefur þegar sýnt ágæti sitt og allur almenning- ur gerir sér grein fyrir því, að aldrei hefur framfarasókn dreifbýlisins verið meiri en einmitt nú síðustu árin, hvað sem líður nöldri úrtöluseggja stjórnarandstöðunnar. Með lagasetningu á þessu kjörtímabili hefur ríkisstjórn in beitt sér fyrir því, að efla hina ýmsu lánasjóði, sem gegna því hlutverki að efla atvinnulíf og afkomu þeirra, sem í strjálbýlinu búa, og hún leggur sig alla fram um að hamla gegn þeirri öfug- þróun, sem lýst hefur sér til skamms tíma í stórfelld- um fólksflótta í fjölbýlið. Samgönguáætlun Vestfjarða var upphafið að stórfelldari framkvæmdum en nokkru sinni hafa þekkzt hér vestra. Nú er stefnt að því að aðrir þættir hennar; — atvinnu-, félags- og menningarmál, komi hið fyrsta til fram- kvæmda. Þegar að því kemur, hefur byggðastefna núverandi ríkis- stjórnar unnið fullan sigur í málum Vestfjarða, og að því marki verður unnið af festu í náinni framtíð. ÍSRÚN stofnar myndamótagerð I sumar má segja að bylt- ing liafi orðið hér í prent- smiðjunni þegar ISRÚN lif. festi kaup á myndamótavél af gerðinni Fairchild Scan-A- Graver, sem er mjög fullkom- in, bandarísk vél til að gera rafmyndamót. Þau 80 ár, sem liðin eru frá því að prentlistin kom til ísafjarðar og hafin var þar bóka- og blaðaútgáfa, hefur einatt orðið að sækja til Reykjavíkur til að fá mynda- mót, og hefur þetta. valdið miklum erfiðleikum, einkum í blaðaútgáfu, þegar samgöng ur hafa verið stopular. Eru þeir erfiðleikar nú úr sög- unni. f myndamótavél þessari er hægt að gera hvers konar myndamót fyrir blöð og bækur og jaíníramt mynda- mót af merkjum eða teikn- uðum myndum fyrirtækja, sem mjög færast nú í vöxt í öllum auglýsingum. Fyrsta verkefnið, sem unn- ið var í þessari nýju vél voru inyndamót öll í hinn smekk- lega bækling, sem afinælis- liátíðarnefndin gaf út í sumar með dagskrá hátíðahaldanna. Þótti hann mjög vel úr garði gerður af hálfu prentsmiðj- unnar. Rafveifnfnnilur á ísafirði 24. aðalfundur Sambands islenzkra rafveitna var hald- inn á Isafirði dagana 19. og 20. ágúst sl. Auk venjulegra aðalfundar- starfa voru flutt erindi um rafvæðingarmál á fundinum. Takob Gíslason raforkumála- stjóri flutti erindi um raf- veitumál Vestfjarða, Jóhann ndriðason, verkfræðingur, flutti erindi um frumáætlun um rafveitu í Barðastranda- og Rauðasandshrepp og Hauk- ur Pálmason, verkfræðingur, flutti erindi um samrekstur dieselstöðva og vætuafls- stöðva á Vestfjörðum. Þá voru umræður á fundinum um endurskoðun raforkulaga. í stjórn sambandsins eru nú Jakob Guðjohnsen, raf- magnsstjóri, formaður,, Rvík, Baldur Steingrímsson, diesel- verkfræðingur, Rvík, Garðar Sigurjónsson, rafveitustjóri, Vestmannaeyjum, Gísli Jóns- son, rafveitustjóri, Hafnar- firði og Guðjón Guðmundsson, rekstrarstjóri, Reykjavík. Stefnan mörknð Framhald af 1. síðu Fylgi S j álf stæðisf lokksins Við Sjálfstæðismenn á Vestfjörðum höfum haldið héraðsmót okkar og aðrar samkomur í kjördæminu í sumar með venjulegum liætti. Þessar samkoinur hafa verið frábærlega vel sóttar og undir tektir fólksins góðar undir mál ráðherra og þingmanna flokksins. Vitanlega hefur fólk úr öðrum flokkum einnig sótt þessi mót. Það er okkur fagnaðarefni að hafa náð eyr- um þessa fólks, sem áreiðan- lega gerir sér flest Ijóst, að ]»ær miku umbætur, sem nú eru unnar á Vestfjörðum gerast undir okkar forystu og fyrir okkar frumkvæði. Stefnan hefur verið mörkuð. Framkvæmdir halda áfram. Meginmáli skiptir að sem flestir Vestfirðingar skipi sér nú undir merki liinnar já- kvæðu uppbyggingar og fram- farastefnu — byggðastefn- unnar, sem eyðir einangrun, tengir fólkið og byggðarlögin saman og skapar þar með bætt skilyrði til nýrra átaka á sviði atvinnu, félags- og menningarmála. Sigurður Bjarnason frá Vigur. NIOURSUQUVERK SMIOJA DN.0LSEN Hér á myndinni má sjá næsta óvenjulegt fyrirbæri, en það eru tveir bílar með sama númeri, 1—721. Það er ekki alltaf, sem vinstri höndin veit það, sem sú hægri gerir, og hefur sú raunin orðið á hér. Ole N. Olsen for- stjóri hér í bæ keypti sér Bronco-bifreið í sumar og fékk númer 1-721 á hana í Reykjavík. Baldur Sigurbaldurs- son skipstjóri fékk Opel-bifreið og númer á hana hér fyrir vestan, einnig 1—721. Voru báðir bílarnir tryggðir og teknir í notkun og voru þessi númer á báðum nokk- uð á annan mánuð, en loksins hefur rætzt úr þessum vanda og bílarnir hafa fengið hvor sitt númer. Mstur Sandfells hf. gckk vel á sl. ári Aðalfundur Sandfells hf., umboðs- og heildverzlunar, var haldinn á ísafirði 25. ág. 1966. Fundarstjóri var Einar Guðfinnsson, Bolungarvík. Formaður stjómar félagsins, Bogi Þórðarson, framkvæmda stjóri, Patreksfirði, flutti skýrslu stjómarinnar og skýrði frá rekstri félagsins síðastliðið ár, sem var fyrsta starfsár félagsins. Flest útgerðarfyrirtæki á Vest fjörðum eiga nú viðskipti við félagið og sér Sandfell hf. nú að miklu leyti um útvegun veiðarfæra fyrir Vestfirðinga. Einnig hefur Sandfell hf. nú nokkur viðskipti í öðmm landshlutum. Hefur félagið nú komið sér upp erlendum við- skiptasamböndum í flestum tegundum veiðarfæra og eykst starfsemin nú ört. Formaður félagsins skýrði frá því að hlutafé félagsins væri nú 1.200.000,00 kr. Fram- kvæmdastjóri félagsins, Bragi Ragnarsson, las upp og skýrði reikninga félagsins og voru þeir samþykktir samhljóða. Síðan urðu nokkrar umræður um önnur mál og vom hlut- hafar ánægðir með árangur félagsins, þann stutta tíma sem það hefur starfað og töldu að hér heíði verið far- ið inn á rétta braut. Stjórn Sandfells hf. var endurkjórin, en hana skipa: Bogi Þórðarson, framkvæmda- stjóri, Patreksfirði, form., Matthías Bjarnason, alþingis- maður, Isafirði Rögnvaldur Sigurðsson, kaup- féiagsstjóri, Þingeyri.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.