Vesturland - 23.09.1966, Side 4
Vatnið óhæft til neyzlu
„Vatnið er óhæft til neyzlu“
Þannig hljóðar hinn alvarlegi
dómur gerlarannsóknardeildar
Fiskifélags lslands um það
vatn, sem fsfirðingar verða
að leggja sér til munns daginn
út og daginn inn.
Karl Proppé læknir, sem
starfar hér í bæ um þessar
mundir, tók í sumar sýnishorn
af vatninu í vatnsbólinu hér
og sendi til gerlarannsóknar-
deildar Fiskifélags Islands.
Þar rannsakaði Sigurður
Pétursson gerlafræðingur
þessi sýnishom og segir í
annar. skýrslu hans orðrétt:
„í vatninu er mikið af „fecal“,
coligerlum og talsverður gróð-
ur annar. Vatnið er óhæft til
neyzlu“.
Ef reynt er að færa þessa
skýrslu vísindamannsins yfir
á mælt mál, kemur í ljós, að
orðið „fecal“ getur náð yfir
grugg, botnfall eða jafnvel
saur, svo skemmtileg, sem
sú tilhugsun er nú. Svonefndir
,,coligerlar“ munu hafa sér
það helzt til ágætis, að geta
valdið magakveisu, og er
blaðinu kunnugt um, af af-
spurn, að veruleg brögð hafa
verið að þeim' kvilla hér í
bæ undanfarnar vikur.
Skýrsla gerlarannsóknar-
deildarinnar var rædd á fundi
bæjarráðs 12. september sl.
og var þar samþykkt að fela
bæjarstjóra að athuga um
málið. Mun hann hafa rætt
við Sigurð Pétursson gerla-
fræðing, sem væntanlegur er
hingað til bæjarins innan
skamms, og mun þá kanna
þetta mál frekar.
ísfirðingar hafa raunar vit-
að lengi að neyzluvatn þeirra
var langt frá því að vera gott
og manna á milli hefur verið
sagt, að það væri ekki hæft
til neyzlu. Nú hefur það verið
staðfest af viðurkenndri rann-
sóknarstofnun, og er hér mik-
ið alvörumál á ferðinni. Hætta
á mengun neyzluvatns er víða
fyrir hendi í vatnsbólum hér
á landi þar sem víðast hvar
er um yfirborðsvatn að ræða.
Vandséð er hverjar úrbætur
hægt að gera á þessu aðrar
en að setja klór í vatnið,
sem er mesta neyðarúrræði,
en þess verður að vænta, að
bæjaryfirvöldin taki þetta mál
föstum tökum og vinni að
lausn þess hið skjótasta.
Borað verði eftir gasi i Neðstakaupstað
Á fundi bæjarstjómar ísa-
fjarðar sl. miðvikudagskvöld
kvaddi Marzellíus Bemharðs-
son bæjarfulltrúi sér hljóðs
utan dagskrár og lagði á-
herzlu á nauðsyn þess, að
borað væri í Neðstaksupstað
til þess að kanna gasupp-
streymi, sem þar hefur orðið
vart við.
Marzellíus vakti athygli á
því, að Vegagerð ríkissins
hefði að undanförnu haft í
notkun í Breiðadalsheiði jarð-
bor í sambandi við athugun
á berglögum vegna fyrirhug-
aðra jarðgangna í Breiðadals
heiði. Bor þessi gæti borað
niður á 130 m. dýpi, og taldi
Marzellíus æskilegt, að borinn
yrði fenginn til þess að bora
í Neðstakaupstað, þar sem
mikið gasuppstreymi hefur
verið nú síðustu árin..
Mætti með þeim borunum
ganga úr skugga um, hvort
hér væri um verðmætt gas að
ræða. Tekin hafa verið sýnis
horn af þessu gasuppstreymi
og rannsökuð, og er talið að
hér sé um svokallað „methan-
gas“ að ræða, en fullnægjandi
rannsókn á því hefur ekki
farið fram. Hlaut tillaga
Marzellíusar ágætar undirtekt
ir.
Agæt síldveiði Vestfjarðabáta
Hafa fenglð 41.389 lestir
Samkvæmt skýrslu Fiski-
félags íslands um síldveiðam-
ar fyrir norðan og austan,
nam heildarafli Vestfjarða-
báta á miðnætti laugardaginn
10. sept. sl. 41.389 lestum,
eða tæplega 414 þúsund tunn-
um. 21 bátur frá Vestfjörðum
hefur fengið afla og er Haf-
rún frá Bolungarvík aflahæst
með 4.180 lestir. Næsthæst
er Helga Guðmundsdóttir frá
Patreksfirði með 3.974 1. Hér
fer á eftir skrá um afla vest-
firzku bátanna, talinn í lest-
um:
Dan ísafirði 590
Einar Hálfdáns, Bol. 475
Framnes, Þingeyri 2.023
Guðbjartur Kristj. Is. 3.385
Guðm. Péturs, Bol. 3.572
Guðbjörg ís. 2.499
Guðrún Guðleifsd., Hn. 2.745
Guðrún Jónsd., Is. 2.690
Hafrún, Bol. 4.180
Heiðrún II, Bol. 656
Helga Guðm., Pat. 3.974
Hugrún, Bol. 1.992
Jón Þórðars., Pat. 458
Mímir, Hnífsdal 661
Ólafur Friðberts., Súg. 2.945
Pétur Thorsteins., Bíld. 690
Sóley, Flateyri 2.131
Sólrún, Bol. 2.655
Svanur, Súðav. 489
Sæúlfur, Tálknaf. 1.499
Þrymur, Pat. 1.180
Samtals 21 skip með 41.389
^estir.
Safna myndum
fyrir
sjónvarpið
Sjónvarpsdeild ríkisútvarps-
ins fór þess á leit í sumar við
bæjarstjómir og sveitarstjórn-
ir víða um land, að þær út-
veguðu Ijósmyndir úr kaup-
stöðum og sveitum landsins,
sem notaðar yrðu í sjónvarp-
inu þegar um væri að ræða
frásagnir af viðkomandi stöð-
um í fréttum, en kvikmyndir
væm ekki tiltækar.
Bæjarstjóm ísafjarðar
hefur nú auglýst eftir mynd-
um, sem gætu komið sjónvarp
inu að gagni og birtist sú aug-
lýsing hér í blaðinu.
—□—
Vilja sameina kanpstaðinn
og hiuta Eyrarhrepps
Á fundi bæjarstjórnar Isa-
fjarðar sl. miðvikudag var
kjörin fimm manna nefnd til
þess að hefja og hafa með
höndum viðræður við hrepps-
nefnd Eyrarhrepps um
sameiningu ísaf jarðarkaupst.
og þess hluta Eyrarhrepps,
sem er í Skutulsfirði.
1 ncfndina hlutu kosningu
Sverrir Guðmundsson, Guð,
bjarni Þorvaldsson, Einar
Gunnar Einarsson, Daníel
Kristjánsson og Guðfinnur
Magnússon.
Þetta mál hefur nokkuð
verið rætt í blöðum manna á
meðal á undaförnum ámm
og virðist af beggja hálfu,
Isfirðinga og Eyrhreppinga,
vera talsverður áhugi fyrir
sameiningu sveitarfélaganna,
hvort sem þar væri um að
ræða að Eyrarhreppur allur
eða hluti hans sameinaðist Isa
firði, en ýmsir annmarkar em
á þessu og má búast við að
viðræður og undirbúningur
málsins verði nokkuð tíma-
frekur. Minna má á, að starf-
andi er á vegum ríkisstjórnar
innar nefnd til að undibúa
nýskipan og sameiningu
sveitarfélaga.
Hafnargerð að ijúka
Um þessar mundir er verið
að steypa plötu á hafnargarð-
ana á Þingeyri og er þar með
komið að síðasta áfanganum
við þessa. miklu hafnargerð,
sem hófst vorið 1965. 1 sumar
hefur verið unnið að því að
ganga frá stálþili, steypa kant
og koma fyrir vatns- og raf-
lögnum, og hefur því verki
miðað vel áfram. Er ætlunin
að ljúka hafnargerðinni fyrir
veturinn.
Á Þingeyri hefur verið
gerður hafnargarður fyrir inn
an gömlu bryggjuna, sem er
um 130 metra lankur og gerð
mikil uppfylling, en síðan
var rekið niður stálþil um 60
m. langt hornrétt á garðinn.
Þessi hafnargerð á Þing-
eyri er til mikilla hagsbóta
fyrir útveginn frá staðnum
og mikið stórvirki þar á
staðnum. Er talið að með þess
ari hafnargerð, sem er liður
í samgönguáætlun Vestfjarða,
sé vel séð fyrir þörfum út-
vegsins frá Þingeyri næsta
áratuginn eða meira.
Ekkert er róið frá Þingeyri
þessa dagana, enda er slátr-
un hafin hjá Kaupfélagi Dýr-
firðinga og er búizt við að
slátrað verði 6—7000 fjár.
—□—
Viðræður um iækuamiðstoð
Hafinn er nokkur undirbún-
ingur að stofnun svokallaðrar
læknamiðstöðvar á Isafirði
þótt enn sé það mál mjög í
deiglunni. I suinar fóru fram
viðræður milli fulltrúa bæjar-
stjórnar og sveitarstjórna
Súðavíkurlæknishéraðs um
stofnun læknamiðstöðvar fyrir
ísaf jörð og nágrenni.
Var á þeim fundi rætt um
þann möguleika, að sameina
Iæknishéruðin Isafjörð og
Súðavíkurhérað í eitt læknis-
hérað, eins og heimild er fyrir
í lögum, og yrðu þá tveir
héraðslæknar starfandi liér á
Isafirði, sem gegna myndu
læknislijónustu í kaupstaðnum
og Súðavíkurhéraði.
Hefur sú hugmynd síðan
verið rædd hjá viðkomandi
sveitarstjórnum og nú hefur
verið ákveðið að efna til
annars fundar með þessum að
ilum innan skamms til þess
að undibúa þetta mál frekar.
o o o
Kvikmyndaði bátiðaholdin
Kjartan Ó. Bjarnason, kvik-
myndari kom hingað til ísa-
fjarðar í sumar og var við-
staddur hátíðahöldin í tilefni
af aldarafmæli kaupstaðarins.
Kjartan kvikmyndaði ýms
helztu atriði hátíðahaldana, og
tjáði hann blaðinu nýlega, að
sú mynd hefði heppnazt vel.
Kjartan er nú búin að ganga
frá myndinni og hefur nú að
undanförnu sýnt hana vestur
í fjörðum ásamt eldri mynd-
um frá Isafirði og nokkrum
fleiri kvikmyndum og hefur
aðsókn verið ágæt og undir-
tek+ir mjög góðar.
Kjartan sýnir i kvöld í
Hnífsdal og á sunnudag í Bol-
ungarvík, en á ísafirði verða
sýningar fyrstu dagana í okt-
óber.