Vesturland - 10.09.1971, Side 3
3
Aðalfnodnr
Aðalfundur í Muninn hf. verður haldinn í húsi
Vélsmiðjunnar Þór hf., uppi, laugardaginn 25.
september 1971, kl. 16.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til sam-
þykktar.
3. Lögð fram tillaga um félagsslit og kosningu
skilanefndarmanna.
4. Önnur mál.
ísafjörður, 8, september, 1971.
STJÓRNIN.
Isafjarðarkaupstaður
Hér með er auglýst eftir umsóknum um lán úr
Byggingalánasjóði ísafjarðar.
Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni og
skal umsóknum skilað þangað fyrir 20. sept. 1971.
ísafirði, 15. ágúst 1971
BÆJ ARSTJÓRI.
§Utanlíjðrfmidar-
atkvieðagreiOsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla við bæjarstjórnarkosning-
arnar hinn 3. okt. er hafin.
Stuðningsmenn D-listans, lista Sjálfstæðisflokksins á ísa-
firði hafa opnað kosningaskrifstofu að Uppsölum. Skrif-
stofan er opin allan daginn. Sími 3232.
Stuðningsfólk D-listans er vinsamlegast beðið að hafa sam-
band við skrifstofuna, gefa henni upplýsingar um kjósend-
ur, sem fjarverandi verða á kjördegi og annað, sem að gagni
kemur í kosningabaráttunni.
Þeir stuðningsmenn D-listans á Isafirði og í
Eyrarhreppi, sem vilja vinna sem sjálfboðaliðar
á kjördegi eru vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við skrifstofuna að Uppsölum.
Stuðningsmenn D-listans! Sameinumst í barátt-
unni fyrir auknum áhrifum sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Isafjarðar.
Frá Húsmæðrashólanum
Ný garðlond
Á sl. vori voru hinum mörgu
garðleigjendum á Torfnes-
svæðinu send bréf frá bæjar-
skrifstofunni, þar sem þeim
var sagt upp öllum garðlönd-
um þar, vegna þess að nú
átti að hefja þar framkvæmd-
ir að fyrirhugaðri mennta-
skólabyggingu.
Þetta vissu allir að stóð
til, en hitt kom mönnum á
óvart, að í bréfinu stóð einn-
ig á þá leið, að ekki væri
hægt að þessu sinni að brjóta
nýtt land til að leigja bæjar-
búum. Þá fylgdi það einnig
með, að mönnum væri heim-
ilt að setja niður á eigin
ábyrgð, því uppsögnin kom
svo seint að fólk hafði látið
útsæði sitt spíra og var því
tilbúið til niðursetnings. Það
gerðu svo nokkrir upp á von
cg óvon. Að minnsta kosti
einn varð svo fyrir því, að
garður hans var rifinn upp
eftir að hann var búinn að
setja niður.
Hvers vegna var ekki þá þeg
ar brotið nýtt land þegar á-
kveðið var að taka þessi garð
lönd frá fólkinu? Hvað var
í veginum? Allir sem komið
hafa nálægt garðrækt vita þó
að nýir garðar gefa hvað
bezta uppskeru ef rétt er að
farið.
En hvað er þá um undir-
búning þessa máls. Hvaða
landsvæði hefir verið ákveðið
í þessu skyni, og væri þá
ekki tíinabært að plægja það
og girða í haust, svo hægt
væri að leigja það fullunnið
til niðursetningar næsta vor.
Á þetta er minnzt hér í
fullu trausti þess að bæjar-
stjórnin hefjist nú þegar
handa til framkvæmda í þessu
mikla nauðsynjamáli margra
bæjarbúa.
Ég trúi ekki að óreyndu, að
ísfirðingar þurfi að búa við
lakari skilyrði í þessum efn-
um en víða er annars staðar
td. í Reykjavík.
Garðleigjandi.
MESSAÐ í ísafjarðarkirkju
n.k. sunnudag 12. sept. í
sambandi við héraðsfund.
Sr. Stefán Eggertsson,
Þingeyri prédikar.
Sóknarprestur.
ALLAR ALMENNAR
MYNDATÖKUR
LJÓSMYNDASTOFAN
Engjavegi 28 — ísafirði
Sími 3 770
Húsmæðraskólinn verður sett
ur 22. sept. n.k. og eiga nem-
endur að mæta í skólann dag-
inn áður.
Aðsókn hefur nú aftur auk-
izt til muna og eru líkur til
að hann verði fullskipaður.
Þá er ætlunin að gefa kon-
um og ungum stúlkum í bæ-
num og nágrenninu, tækifæri
á að sækja lengri og skemmri
námskeið í saumum, vefnaði
og hússtjórn, eftir því sem
kennsluhúsnæði leyfir. Voru
slík námskeið haldin sl. vetur
og vöktu almenna ánægju
þátttakenda.
Kennsla á þessum námskeið-
um fylgir fastri kennslu í
skólanum og byrjar kl. 10
alla virka daga og stendur til
kl. 3,30 fjóra daga vikunnar
að frádregnu 1 klst matar-
hléi, en til kl. 12 á laugardög-
um og þriðjud. Utanbæjar-
stúlkur á námskeiðunum geta
fengið að búa í skólanum ef
þær vilja. Einnig mun Or-
lofsnefndum húsmæðra á Vest
f jörðum verða gefinn kostur á
að senda nokkrar konur til
viku dvalar eftir áramót, ef
áhugi er fyrir hendi. Orlofs-
vika húsmæðra á ísafirði og
á svæðinu til Patreksfjarðar
var haldin í skólanum í sum
ar og þótti takast afbragðs
vel. Allar upplýsingar um
starfsemi skólans gefur skóla-
stj. Þorbjörg Bjarnadóttir.
Tilkynning
frá Barnaskóla Isafjarðar
Börn í IV., V. og VI. bekk B.í. komi í skólann
mánudaginn 13. september n. k.
sem hér segir:
IV. bekkur- börn fædd 1961- klukkan 10,00.
V. bekkur- börn fædd 1960- klukkan 10,30.
VI. bekkur- börn fædd 1959- klukkan 11,00.
ísafirði, 9. sept. 1971.
Skólastjóri.
Útboð
Tilboð óskast í að byggja 1. áfanga
heimavistarhúss Menntaskólans á Isa-
firði.
TJtboðsgögn verða afhent frá 8. þ.m.
á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, R.vík
og hjá skólameistara á Isafirði, gegn
5.000,00 króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð 24. sept. 1971.
INNKAUPASTOFNUN RlKISINS
Borgartúni 7 — Sími 26844.
Laust starf karlmanns
Baðvörður við íþróttahús og Sundhöll ísafjarðar
(vaktavinna).
Innifalin: kynding, þrif og húsvarzla á móti öðrum.
Umsóknir óskast fyrir 15. september n.k.
FORSTÖÐUMAÐUR.