Vesturland - 22.05.1974, Blaðsíða 4
4
&cns a/csariKxxxn safiaFxr/Exisxiocm
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
I i
| V ! Sjena afesmiizxm sattúFsamsismmm §
1 Útgefandi: Kjördæmisráö Sjálfstæðisflokksins í Vest- |
| fjarðakjöræmi. |
| Blaðnefnd: Ólafur Pórðarson, Isafirði, Guðmundur Agn- |
= arsson, Bolungarvík, Halldór Bernódusson, Suðureyri, =
= Hafsteinn Davíðsson, Patreksfirði, Sigurður Sv. Guð- |
| mundsson, Hnífsdal. |
| Ábyrgðarmaður: Finnur Th. Jónsson. |
| Afgreiðsla: Uppsölum — Sími 3232 |
Prentstofan Isrún lif., Isafirði. |
'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiinTi
Framtíö ísafjarðar
Við bæjarstjórnarkosningarnar, sem fram eiga að fara á
sunnudaginn kemur, eiga ísfirðingar kost á að velja á milli
fjögurra framboðslista. Anars vegar lista Sjálfstæðisflokks-
ins og hins vegar þriggja framboðslista hinna svonefndu
vinstri manna.
Vinstri flokkarnir hafa nú stjórnað landinu í tæp þrjú
ár og með þeim árangri að við blasa ferlegir erfiðleikar
í efnahagsmálum þrátt fyrir árgæsku til lands og sjávar
og hagstæðara verð á útflutningsafurðum okkar en áður
eru dæmi til. Sundrung, stjórnleysi og óheilindi milli þessara
flokka og innan þeirra hvers fyrir sig hafa gert það að
verkum að fólk, sem áður kaus þá, treystir þeim ekki lengur.
Eina leiðin til að koma á styrkri og ábyrgri stjórn á ísa-
fjarðarkaupstað er að efla Sjálfstæðisflokkinn og fá honum
í hendur stjórn og ábyrgð bæjarmálanna næsta kjörtímabil.
Á því kjörtímabili, sem nú er að líða, hefur mikið verið
gert til þess að undirbúa margar mikilvægar framkvæmdir
í bæjarfélaginu, og eru sumar þeirra mikilvægustu komnar
að framkvæmdastigi. Þar ber fyrst og fremst að nefna
byggingu heilsuverndarstöðvarinnar, sem væntanlega verða
hafnar framkvæmdir við á þessu hausti, og framhald að
undirbúningi að byggingu sjúkrahúss og dvalarheimilis
aldraðra.
Þá er að Ijúka undirbúningi að stórfelldu átaki við gatna-
gerð hér í kaupstaðnum og er þess að vænta að framkvæmdir
við gatnagerð hefjist á þessu sumri. Gatnagerðarvélarnar
hafa verið keyptar og koma til bæjarins í næsta mánuði.
Sorphreinsunarstöð hefur þegar verið keypt og verður
reist á þessu sumri.
ísafjörður hefur tekið miklum framförum á liðnum árum.
Hér hefur verið mikil og góð atvinna í samfellt tvo ára-
tugi. Sjávarútvegurinn er höfuð atvinnugreinin, fiskiskipa-
flotinn er í sífelldri endurnýjun, hraðfrystihúsin eru þau
bestu og fullkomnustu á landinu, hér eru myndarlegar rækju-
verksmiðjur og önnur skelfiskvinnsla.
Það er eftirtektarvert, að allur þessi atvinnurekstur er
í einkarekstri. Hér hefur einstaklingshyggjan byggt upp
atvinnulífið og hér hafa lifað og starfað traust og áreiðan-
leg fyrirtæki og einstaklingar, sem lagt hafa hornstein að
sjálfstæðu atvinnulífi þessa bæjar. Iðnaður er í uppbygg-
ingu, en brýna nauðsyn ber til að hraða uppbyggingu hans
og auka fjölbreytni hans og bæta alla þjónustustarfsemi,
sem áfátt er í mörgum greinum.
Það er stefna okkar sjálfstæðismanna að ein-
staklingar og félög þeirra eigi að standa undir
atvinnurekstrinum, en bæjarfélagið eigi að hafa
forystu um framkvæmdir til sameiginlegra þarfa
bæjarbúa, og einstaklingurinn eigi að greiða til
þess skatta innan skynsamlegra takmarka.
Framboðslisti sjálfstæðismanna er skipaður
ungu og frjálslyndu fólki, sem er staðráðið í að
vinna saman af einurð, festu og dugnaði til þess
að hrinda í framkvæmd þeim verkefnum, sem
þegar hafa verið undirbúin eða eru í undirbún-
ingi.
Góðir Isfirðingar, sameinumst um að tryggja
sigur D-listans á sunnudaginn kemur og tryggj-
um á þann hátt framfarir og athafnir í bænum
okkar. — Kjósum ísafirði bjarta framtíð.
Kjósum Sjálfstæðisflokkinn.
Stuðlum að...
Framhald af 3. síðu
ir því við Karvel Pálmason,
alþingismann, að hann leitaði
eftir svari, — en honum tókst
ekki heldur að fá nein svör
svo vitað sé.
FERÐA- og HÓTELMÁL
Ég tel að varla verði hjá
því komist' að byggt verði
nýtt hótel í Bolungarvík,
vegna sívaxandi ferðamanna-
straums hingað, sérstaklega
yfir sumartímann. Er nauð-
synlegt að þjónusta við ferða-
fólk sé í góðu lagi, en tals-
vert skortir nú á að svo sé.
Ég vil þó þakka þeim ein-
staklingum, sem staðið hafa
fyrir þessari þjónustu hér hin
síðari ár, við erfiðar og ó-
fullnægjandi aðstæður. En
skilyrðislaust þarf að stuðla
að því að þessir einstaklingar
eða aðrir fái aðstöðu til að
reisa nýtt og myndariegt
hótel.
STUÐLUM AÐ ÁFRAM-
HALDANDI UPPBYGGINGU
Ég hef aðeins drepið hér
stuttlega á nokkra mála-
flckka, sem forsvarsmenn
sveitarfélagsins koma til með
að vinna að.
Sjálfstæðismenn, sem hafa
haft forystu í bæjarmálum
Bolungarvíkur um 30 ára
skeið, hafa sýnt að þeir hafa
trú á framtíð Bolungarvíkur.
Þeir hafa ráðist í hverja stór-
framkvæmdina af annari, og
uppbyggingin hér hefur verið
stórstígari en víða annars-
staðar.
Bolvíkingar munu nú sem
fyrr sýna, þegar að kjörborð-
inu kemur, að þeir treysta
sjálfstæðismönnum öðrum
betur til að vinna að áfram-
haldandi uppbyggingu Bol-
ungarvíkur — og kjósa D-
listann.
Guðm. B. Jónsson
Æskan er...
Framhald af 7. síðu
ina áður en sú nýja tók til
starfa og hafa staðinn alger-
lega sundlaugarlausan árum
saman. Það var æskulýðs-
heimilið sem gerði mér kleift
að starfa að æskulýðsmálum
í Bolungarvík. Það er því
misráðið að hafa ráðist í þær
framkvæmdir, sem nú standa
yfir, að taka það fyrir bóka-
safn, barnagæslu, verkstæði
og áhaldageymslu, áður en
æskan er búin að fá inni í
öðru húsi. Hreppsnefndin átti
að sjá svo um, að æskan væri
komin í fullt starf í öðru húsi,
áður en hún heimilaði að taka
æskulýðsheimilið til annara
þarfa. Það var rétt ráðið þeg-
ar byrjað var að byggja nýja
sundlaug, það var rétt ráðið,
þegar gamli skólinn var af-
hentur til æskulýðsstarfa,
þetta hús sem er stolt æsk-
unnar í Bolungarvík, það var
rétt ráðið, þegar byrjað var
á unglingavinnu á vorin við
hreinsun, það var rétt ráðið,
þegar hreppsfélagið stuðlaði
að kaupum á skíðalyftunni,
Kosningaskritstofa
er opin að Uppsölum, miðhæð, alla daga
frá kl. 13—22 (1—10).
Allir sem geta starfað einhvern tíma til kjördags,
eru beðnir að koma eða hringja strax.
SÍMINN E R 3232
Mikið starf er óunnið. — Starfsandinn er frábær.
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
AÐALFUNDUB
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykja-
vík fimmtudaginn 30. maí 1974, kl. 13,30.
DAGSKRÁ:
I. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein sam-
þykkta félagsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins
samkvæmt 15. grein samþykktanna (ef tillög-
ur koma fram).
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu
félagsins, Reykjavík 24.—28. maí.
Reykjavík, 26. marz 1974.
STJÓRNIN.
Isafjarðarkaupstaður
Aiþingiskosningar
30. júní 1974
Kjörskrá vegna alþingiskosninganna 30. júní n.k.
liggur frammi á Bæjarskrifstofunni 16. maí til
8. júní n.k.
Kærur vegna kjörskrárinnar skal senda undirrit-
uðum fyrir kl. 24,00 8. júní n.k.
ísafirði, 14. maí 1974.
BÆJARSTJÓRI.
þessum líísneista æskulýðsins,
það var rétt ráðið að byggja
íþrótta- og knattspyrnuvöll.
Að lokum, sjálfstæðismenn.
Undir ykkar forystu hefur
Bolungarvík vel farnast. Það
hefur verið styrk stjórn, sem
hefur leitt hreppsfélagið fram
til þeirrar stöðu sem það nú
er í. Sjálfstæðismenn, beitið
ykkur fyrir málefnum æsk-
unnar og stuðlið að félagsmál-
um aldraðra. Ég óska hinu
nýstofnaða bæjarfélagi þess,
að það megi lúta jafn styrkri
stjórn og Hólshreppur hefur
gert fram að þessu.
Guðmundur Halldórsson.
Tapað-Fundið
Tapast hefur rauður kassi
með skolphreinsunar-
tækjum.
Finnandi vinsamlega
láti vita í áhaldahús
bæjarins.