Vesturland - 19.08.1981, Blaðsíða 1
„Ríkisstjórnin hefur
valdið vonbrigðum“
— Þjóðmálaspjall við Matthías Bjarnason, alþingismann
Ýmis tíðindi hafa orðið á stjórnmálasviðinu, frá
því að Alþingi var slitið síðastliðið vor. Nú styttist
óðum í að þing verði kvatt saman að nýju.
Ýmsir aðrir viðburðir eru iíka á döfinni í ís-
lenskum stjórnmálum. Fyrir Sjálfstæðismenn ber
sennilega hæst landsfundur Sjálfstæðisflokksins
sem haldinn verður um mánaðamótin október
nóvember.
Vesturland, ræddi fyrir skemmstu við Matthías
Bjarnason, fyrsta þingmann Vestfjarða, um þjóð-
málin, og fer það viðtal hér á eftir.
Aldursforsetar ferðarlnnar, Gísll Hjaltason, 83 ára Bolvíklngur
og Hinrik Guðmundsson, 84 ára ísfirðlngur.
Ljósm. Einar K. Guðfinnsson.
Telur þú að ríkisstjórnin hafi
staðið sig betur en þú gerðir
ráð fyrir þegar hún var
mynduð, í upphafi árs 1980?
„Ég gerði mér nú ekki háar
hugmyndir um afrek hennar í
upphafi, en þó taldi ég að hún
myndi takast á í alvöru við verð-
bólguna en ekki velta á undan sér
vandanum, eins og hún hefur gert
og safna saman erfiðleikum, sem
brjóta á okkur einn góðan veður-
dag. En nú verð ég að segja að
ríkisstjórnin hefur brugðist þeim
vonum sem ég þó batt við getu
hennar. Ástæðan er augljós. Þar
ráða öllu, ábyrgðarlausir komm-
únistar. Framsókn hefur verið
teymd í bandi og fallið frá sinni
stefnu og látið lönd og leið þau
loforð, sem hún gaf fyrir síðustu
kosningar.
Hvað er það sem þér finnst
helst að við starf núverandi
rfkisstjómar?
í fyrsta lagi það að hún tekur
ekki á hlutunum. Það er sagt af
stuðningsmönnum ríkisstjórnar-
innar að verðbólgan sé minni en
hún var áður og slíkt kemur vissu-
lega heim og saman við opinberar
skýrslur og reikninga. Ástæðan
fyrir þessu er þó ekki aðgerðir
núverandi ríkisstjórnar. Þar er
fyrst og fremst að þakka að doll-
arinn sem er helsta gjaldeyris-
mynt okkar Islendinga, hefur
styrkts með tilkomu nýrrar ríkis-
stjórnar í Bandaríkjunum. Það
má því segja að Reagan-stjórnin
hafi verið besti stuðningsmaður
núverandi ríkisstjórnar. — Hvort
sem henni er það ljúft eða leitt.
Hins vegar er því ekki að leyna að
allir hljótum við að vera ánægðir
yfir því. Því vegna styrkingar
bandaríkjadalsins fáum við fleiri
krónur fyrir þær vörur sem við
flytjum út og greitt er fyrir í þeirri
mynt, en það er meirihluti okkar
útflutnings.
Við megum hins vegar ekki líta
fram hjá því að ríkisstjórnin hefur
sjálf ekkert gert til þess að treysta
Ánægjuleg skemmtiferð
um Snæfellsnes
Sjálfstæðismenn víðs veg-
ar að af Vestfjörðum fóru í
skemmtiferð um Snæfells-
nes, helgina 24.—26. júlí s.l.
Tókst ferðin með miklum
ágætum.
Skemmtiferð sem þessi var
einnig farin í fyrra og var þá ekið
um Strandasýslu, eins og sagt var
frá í Vesturlandi. Að þessu sinni
var hins vegar ákveðið að fara út
fyrir kjördæmið.
Tvær rútur fluttu ferðalangana.
önnur þeirra var af Snæfellsnes-
inu, en hin frá Flateyri. Flateyrar-
rútan ók frá Flateyri á föstudag,
26. júlí og fór vestari leiðina svo
nefndu yfir heiðarnar. Auk Flat-
eyringa flutti hún Barðstrendinga.
Hin rútan fór frá ísafirði um
Djúp.
I Bjarkarlundi var áð sem
snöggvast. Síðan var ekið af stað
undir leiðsögn Þórarins Sveins-
sonar ráðunauts á Hólum. Á
sýslumörkum Dalasýslu og
Barðastrandarsýslu, í botni Gils-
fjarðar fór Þórarinn úr bílnum, en
ferðahópurinn hélt áfram að
Laugum í Sælingsdal, þar sem
gist var um nóttina.
Á laugardaginn var ekið um
Snæfellsnes. í upphafi ferðarinn-
ar voru leiðsögumenn, þeir Jó-
hann Pétursson í Stóru Tungu og
Jóhann Sæmundsson, Ási í Búð-
ardal. Síðar tóku við af þeim, Páll
Pálsson á Borg í Miklholtshreppi
og Þráinn Bjarnason í Hlíðarholti.
Allir voru þeir afbragðs leiðsögu-
menn og kunnu góð skil á því
sem fyrir augu bar.
Á laugardagskvöldið var slegið
upp kvöldvöku, þar sem menn
skemmtu hver sem betur gat við
vísnakveðskap, sögur og söng. Að
því búnu var haldið ball, þar sem
Halldór Þórðarson á Breiðabóls-
stað, lék á harmoniku ásamt fleir-
um, lengi nætur.
Daginn eftir ók Halldór ferða-
löngunum um Strandir, Fells-
strönd og Skarðsströnd, ásamt
Jóhanni Péturssyni í Stóru Tungu.
Það var einróma álit allra
þeirra er tóku þátt í ferðinni að
hún hefði tekist hið besta. Sér-
stakar þakkir á Engilbert Ingvars-
son, formaður Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörð-
um, skildar. Hann hafði veg og
vanda af undirbúningnum og
stjórnaði ferðinni á sinn lipra og
örugga hátt.
sölu á öðrum útflutningsvörum til
Evrópulandanna. Þar er þó orðið
mjög erfitt og alvarlegt ástand.
Þetta á við sjávarafurðir sem seld-
ar eru á Evrópumarkaði og auð-
vitað ekki síður aðrar iðnaðarvör-
ur. Þessi fyrirtæki standa öll
frammi fyrir rekstrarstöðvun. Því
að segja má að þó að bandaríkja-
dollar hafi hækkað í verði þá hafa
sumar Evrópumyntir ekki lækkað
gagnvart íslenskri krónu. Hér er
því um ranga gengisskráningu að
ræða, sem stjórnin grípur til, í því
skyni að blekkja almenning til að
trúa því að verulega sé dregið úr
verðbólgu. Á sama tíma er ríkis-
stjórnin að skapa mörgum at-
vinnugreinum mikinn vanda. í
því sambandi vil ég sérstaklega
vekja athygli á rækjuframleiðsl-
unni, sem snertir okkur Vestfirð-
inga æði mikið.
Á sama tíma og þessi þróun
hefur orðið á Evrópumarkaði
hefur verð á fiskafurðum okkar á
mörkuðum í Bandaríkjunum
heldur hækkað. Þessi verðhækk-
un var nauðsynleg, vegna þeirrar
miklu verðbólgu sem hér hefur
geisað.
Annað er það sem þessi ríkis-
stjórn hefur gert. Velflest fyrir-
tæki ríkisins, sem eru I B hluta
fjárlaga, eru rekin með stórum
halla og þar er verið að velta á
undan sér síauknum vanda.
Hið sama er uppi á teningnum
í atvinnurekstrinum sjálfum. Þar
er vaxandi hallarekstur sem er
færður á milli ára. Þjóðhagsstofn-
un framreiknar til dæmis stöðu
sjávarútvegsins, en tekur ekki
með í reikninginn, það tap sem
velt er á milli ára. Að vísu eru
vinnslugreinarnar mismunandi
Matthfas Bjarnason
settar. Saltfiskur og skreiðarverk-
un hafa gengið vel á undanförn-
um árum, vegna hagstæðrar sölu
á mörkuðum erlendis, en frysting-
in hefur verið mjög bágborin. —
Og þrátt fyrir styrkingu dollarans
og verðhækkanir erlendis, þá full-
yrði ég að þau fyrirtæki sem
byggja afkomu sína að verulegu
leyti á frystingu, standi illa að
vígi.
Nú styttist í það að farið verður
að undirbúa kjarasamninga,
sem Ijóst er að geta skipt
sköpum í þróun efnahagsmála
á næstu misserum. Hvað vilt
þú segja um þau mál?
Það er auðvitað ákaflega erfitt
að tala um ákveðna stefnu í
kjarasamningum. Það byggist
mjög á hver er stefna stjórnvalda,
hvað atvinnuvegirnir þola miklar
launahækkanir og svo auðvitað
hvað launþegarnir geta unað við.
Framhald á bls. 2
Aðalfundur
Kj ördæmisráðsins
Aðalfundur Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Vest-
fjarðakjördæmi verður hald-
inn á Patreksfirði dagana
21. og 22. ágúst næst kom-
andi.
Fundurinn hefst að kvöldi
21. ágúst klukkan 21. Dag-
inn eftir sem er laugardagur
verður fundinum framhaldið
og lýkur honum þann dag.
Efni fundarins er venjuleg
aðalfundarstörf. Þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í Vest-
fjarðakjördæmi, þeir Matt-
hías Bjarnason og Þorvaldur
Garðar Kristjánsson munu
mæta á fundinn.
Þess skal getið að
Sjálfstæðismenn, aðrir en
kosnir fulltrúar á Kjör-
dæmisráðsþing eru jafn-
framt velkomnir að mæta til
þingsins á föstudagskvöld,
en þá verður flutt skýrsla
formanns og stjórnar.
Að kvöldi laugardags
klukkan 22 hefst dansleikur
í félagsheimilinu. Hljóm-
sveitin Ásar ásamt söng-
konunni önnu Vilhjálms
munu sjá um fjörið.
Bolvískur karlakór
í Færeyjum
Karlakórinn ÆGIR, í
Bolungarvík hleypti heim-
draganun um hvítasunnuna í
vor og hélt í söngför til
Færeyja. 23 söngmenn voru
með í ferðinni og margir
þeirra höfðu eiginkonur sín-
ar með sér. Söngstjóri var
séra Gunnar Bjömsson,
undirleikarar Anna Kjart-
ansdóttir og Ragnar Jóns-
son og einsöngvarar Björg-
vin Þórðarson á Flateyri og
öm Jónsson. Þá kom og
fram karlakvartett, skipaður
þeim Pálma Karvelssyni,
Einari Jónatanssyni, séra
Gunnari Bjömssyni og Hall-
grfmi Kristjánssyni.
Kórinn flaug næturflug frá
(safiröi til Voga í Færeyjum, þar
sem gist var eina nótt. Síðan
var haldið til Austureyjar, þar
sem ferðalangarnir dvöldu í
heimahúsum tveggja sjávar-
plássa, á Ströndum og í Skála.
Gestrisni Færeyjinga er við-
brugðið og hana fengu Bolvík-
ingarnir að reyna eftirminni-
lega. Sungnar voru guðsþjón-
Framhald á bls. 2