Vesturland - 19.08.1981, Page 4
SjSRS) a/esarFwzxxfi saítsFSJiEs»sxaoofa
________
Ný Guðbjörg komin til heimahafnar:
„Líst ljómandi
vel á skipiðCé
— segir skipstjórinn, Ásgeir Guðbjartsson
Skipstjórarnir Ásgeir Guðbjartsson t.h. og Guðbjartur Ásgeirsson t.v.
Ljósm. Vestfirska fréttablaðið.
Sjósókn og aflabrögð í júlí:
Misjafn afli hjá togurum
— Ágætur línuafli — Sæmilegur færaafli
Aflabrögð voru almennt góð í
júlí. Þeir togarar, sem voru á
jiorskveiðum, fengu ágætan afla í
byrjun mánaðarinsog tóku því
strax út þá 22 daga, sem togurum
eru heimilaðar þorskveiðar á
tímabilinu júlí/ágúst á þessu ári.
Aðrir voru mest á karfaveiðum og
geymdu sér þessa daga fram í
ágúst. Afli togaranna var því
mjög misjafn í júlí. Þeir línubátar,
sem voru á grálúðuveiðum við
Kolbeinsey, fengu einnig ágætan
afla í mánuðinum og handfæra-
afli var víðast allsæmilegur.
Heildaraflinn í mánuðinum var
8629 lestir, en var 6.754 lestir á
sama tíma í fyrra. Er ársaflinn þá
orðinn 60.231 lest, en var 61.486
lestir í lok júlí í fyrra.
Verulegur samdráttur hefur
orðið í útgerð rækjubáta frá því í
fyrra. Nú stunduðu 19 bátar
rækjuveiðar og öfluðu 469 lestir í
mánuðinum, en á sama tíma í
fyrra voru 28 bátar á rækjuveið-
um og öfluðu 772 lestir.
Botnfiskaflinn í einstökum ver-
stöðvum:
PATREKSFJÖRÐUR:
Guðm í Tungu 200,0
Núpurl. 79,0
20 færabátar 258,8
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Tálknfirðingur 249,9
BÍLDUDALUR:
Sölvi Bjarnason tv. 274,2
Snæberg dr. 38,2
Helgi Magnússon dr. 27,9
Jörundur Bjarnason dr. 12,7
ÞINGEYRI:
Framnes I tv. 500,3
Hegranes tv. 139,6
10 færabátar 94,3
FLATEYRI:
Gyllir tv. 564,8 4
6 færabátar 37,2
SUÐUREYRI:
Elín Þorbjarnard. tv. 509,9 3
Sigurvon 1. 225,5 3
Olafur Friðbertsson 1. 102,3 2
Njáll f. 23,7 7
Jón Guðmundsson f. 13,2 15
Kristinn f. 12,9 15
7 færabátar 32,4
BOLUNGARVÍK:
Heiðrún tv. 446,0 4
Dagrún tv. 438,6 4
Óli f. 37,7
Haukur f. 24,8
Flosi f. 23,2
23 færabátar 142,3
(SAFJÖRÐUR:
Júlíus Geirmundss. tv. 535,0 3
Guðbjartur tv. 500,3 3
Guðbjörg tv. 491,9 2
Páll Pálsson tv. 445,8 3
Framhald á bls. 3
Matthías Bjarnason - sextugur
„Mér Ifst Ijómandi vel á skip-
ið“, sagði Ásgeir Guðbjartsson
skipstjóri á Guðbjörgu IS. er
kom til heimahafnar, Tsafjarðar
5. júlí síðast liðinn."
,,Það sem þó sker á milli
þessa skips og hinnar Guð-
bjargarinnar, er spilbúnaður-
inn“, sagði Ásgeir ennfremur.
Þetta er ,,auto“ búnaður. Hann
gerir það að verkum að miklu
betra er og auðveldara að
draga úr festum. Hann á líka að
halda trollinu mun jafnara þeg-
ar togað er í miklum straumi".
Ásgeir nefndi að mjög væri
vandað til allrar byggingar
hinnar nýju Guðbjargar. Önnur
efnisþykkt er í þessu skipi en
hinni Guðbjörginnijangt fram
yfir kröfur", sagöi Ásgeir. „Viö
finnum mun á þessu. Þannig
finnst ekki fyrir þó vél sé á
keyrslu". Aðalvél skipsins er
3200 hestöfl, en til samanburð-
ar má geta þess að vél gömlu
Guðbjargarinnar var 1780 hest-
öfl. Þetta skilar sér að sjalf-
sögðu í auknum togkrafti, auk
þess sem þyngd skipsins gerir
togið betra.
Nýja Guðbjörgin er afbragös
sjóskip að sögn Ásgeirs Guð-
bjartssonar. ,,Við höfum ein-
ungis fengið 7 — 8 vindstig og
skipið reyndist prýðilega",
sagði hann jafnframt.
846 TONN I FJÓRUM TÚRUM
Vesturland sneri sér jafn-
framt til Guðmundar Guð-
mundssonar útgerðarmanns
Guðbjargarinnar. Guðmundur
er framkvæmdastjóri Hrannar
hf. sem á skipið.
Guðmundur sagði að Guð-
björgin væri 484 tonn að stærð.
Aðalvél skipsins er eins og fyrr
Afmæliskveðja frá Vestur-
landi.
Örlögin, það eru stjórnmálin,
er haft eftir Napóleon Bóna-
parte hinum Frakkneska. Og
víst er um það að örlög manna
og stjórnmál eru jafnan saman-
tvinnuð.
Þessi hefur að minnsta kosti
orðið raunin á með líf Matthías-
ar Bjarnasonar alþingismanns,
sem varð sextugur laugardag-
inn 15. ágúst síðast liðinn.
Matthías er ísfirðingur, fædd-
ur 15.ágúst 1921. Hann er son-
ur hjónanna Bjarna Bjarnason-
ar sjómanns og síðar vegaverk-
stjóra og konu hans Auðar Jó-
hannesdóttur. Leið Matthíasar
Bjarnasonar lá í Verslunarskól-
ann þar sem hann lauk Versl-
unarskólaprófi árið 1939.
Ekki varð Reykjavíkurdvöl
Matthíasar löng. Hann sneri
aftur til (safjarðar og haslaði sér
þar völl með eftirminnanlegum
hætti. Hann varð umsvifamikill
jafnt á sviði atvinnureksturs og
sviði stjórnmála. Matthías var
ráðinn framkvæmdastjóri Djúp-
bátsind árið 1942 og gegndi því
starfi til ársins 1968. Mér þykir
trúlegt að mörgum hafi þótt
greinir 3200 hestöfl. Skipið er
búið Atlas fiskleitartækjum. 3
Furuno radarar eru í skipinu.
Allt rafmagn sem skipið not-
ar, er framleitt frá aðalvél skip-
sins. Þá er efafgas skipsins not-
að til hitunar og varminn til aö
eima vatn fyrir ísframleiðslu um
borð. Sömuleiðis er afgasið
notað ef hita á upp olíu fyrir
svartolíukeyrslu.
Nýja Guðbjörgin gekk 14,8
sjómílur í reynslusiglingu. Skip-
ið hefur reynst ágætlega að
sögn Guðmundar.
Eins og fram hefur komið í
fréttum, er Guöbjörgin búin svo
kölluðum,,auto“ trolli. Þessi
búnaður ér rafknúinn og gerir
þaö að verkum að alltaf er jafnt
átak er á báðum togvírum.
Eins og fram kemur í viðtal-
inu við Ásgeir Guðbjartsson hér
á undan er mikill munur á að
toga með þessum nýja búnaði.
Þegar togað er og beygt með
hefðbundnum trollbúnaöi slak-
ar á togvírnum á það borð sem
beygt er í. Það gerist ekki með
auto“ tækninni. Fyrir vikið helst
trollið opnara.
Guðbjörgin fór sína fyrstu
veiðiferð 7.júlí síöast liðinn.
Þegar þetta er ritað hefur skipið
landað 843 tonnum.í fjórum
veiðiferðum og var að mokfiska
þegar blaöið fór í prentun.
Kaupverð Guðbjargarinnar
var 34 milljónir norskra króna.
Skipstjórar á Guðbjörgu ÍS
46 eru feögarnir Ásgeir Guð-
bjartsson og Guðbjartur Ás-
geirsson. 1 .vélstjóri er Pétur
Jónsson. Eigandi skipsins er
Hrönn hf. á (safirði og útgerðar-
maður Guðmundur Guðmunds-
son.
Matthías nokkuð ungur til starf-
ans. Rúmlega tvítugur var hann
farinn að veita rekstri Djúpbát-
sins forstöðu. En þetta segir
vissulega nokkra sögu um
manninn. Að eigendur og for-
ráðamenn Djúpbátsins skyldu
treysta honum fyrir svo ábyrgð-
armiklu hlutverki, sýnir auðvit-
að svart á hvítu aö menn hafa
talið að mikils hafi mátt vænta
af hinum unga manni. Sjálfur
hefur Matthías sagt mér að
störfin við Djúpbátinn hafi
verið einkar ánægjuleg. Djúp-
báturinn var mikilsvert sam-
göngutæki fyrir margar sveitir,
og framkvæmdastjórinn var að
sjálfsögðu í stöðugu sambandi
við fjölda manna, sem nutu
þjónustu þessa þarfa sam-
göngutækis.
En fleiri ábyrgðarsrörf ráku
þetta. Matthías varð fram-
kvæmdastjóri útgerðarfélagsins
Kögurs frá 1959 og gegndi því
til ársins 1966, og Vélbátaá-
byrgðarfélags ístirðinga árin
1960 — 1974. Hann rak verslun
á ísafirði 1944 — 1973. Auk
þess tók hann virkan þátt í
margs konar öðrum störfum
sem of langt mál væri að rekja.
Þrátt fyrir þetta, eru það
stjórnmálin sem skipa stærsta
þáttinn í starfssögu Matthíasar
Bjarnnasonar. Um margra ára
skeið starfaði hann í bæjarmál-
unum. Var lengi forystumaður
Sjálfstæðisflokksins á ísafiröi
og gegndi störfum forseta bæj-
arstjórnar á (safiröi árin 1950 —
1952. Hann haföi líka um
margra ára skeið afskipti af
Vesturlandi og var ritstjóri blað-
sins árin 1957 — 1960 ásamt
þeim Guðfinni Magnússyni og
Sigurði Bjarnasyni.
Árið 1963 var Matthías
Bjarnason kosinn til setu á AL-
þingi og hefur setið þar æ síð-
an. Árið 1974 varð hann síðan
sjavarútvegs— heilbrigðis og
tryggingarráðherra í ráðuneyti
Geirs Hallgrímssonar.
1974 — 1978 áranna sem
Matthías Bjarnason var ráð-
herra verður sennilega fyrst og
fremst minnst fyrir eitt, af seinni
tíma sagnfræðingum. Á þess-
um tíma var landhelgi (slands
færð úr 50 í 200 sjómílur. Það
er örugglega ekki ofmælt, að sú
útfærsla, sem innsigluð var
með Oslóarsamningunum, er
stærsti stjórnmálasigur sem við
(slendingar höfum unnið frá því
að, lýðveldið var stofnað. Eng-
inn dregur í efa að að þáttur
Matthíasar var drjúgur í þessu
lífshagsmunarmáli. Stefnufesta
hans og einurð var meðal þess
sem færði okkur þennan mikla
áfanga.
Vestfiröingar minnast Matt-
híasar Bjarnasonar sérstaklega
frá því hann var ráðherra. Sem
heilbrigðis og tryggingarráð-
herra beitti hann sér fyrir mikilli
uppbyggingu heilbrigðiskerfis-
ins úti á landsbyggðinni. Þess
sér víða merki. Ekki síst á Vest-
fjörðum. Nefna má að byrjaö
var að smíða hið glæsta fjórð-
ungssjúkrahús á ísafirði í ráð-
herra tíð hans. Jafnframt var
byrjað á heilsugæslustöðvum
sem brýnan vanda leystu víða.
Það væri synd aö segja að
lognmolla fylgdi stjórnmála-
manninum Matthíasi Bjarna-
syni. Hann þykir fastur fyrir og
fylginn sér og lítt gefinn fyrir vol
og víl. Hann er afbragðs fund-
armaður og ekki er það heigl-
um hent að lenda i klóm Matt-
híasar Bjarnasonar á harðvítug-
um stjórnmálafundi hér á Vest-
fjörðum. Samþingsmaður hans
og félagi um margra ára skeið,
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
lýsir því svo: ,,Menn geta verið
miklir áróðursmenn, fimir í orð-
ræðum á málþingum og sótt
fram fast í orrahríðum stjórn-
málanna án þess að láta verkin
tala, En Matthías Bjarnason er
jafnvígur á hvort tveggja“. Svip-
aða sögu segir Geir Hallgríms-
son formaður Sjálfstæðisflokk-
sins og samráðherra Matthíasar
um fjögurra ára skeið: ,,Matt-
hías Bjarnason sýndi sem ráð-
herra að hann er ekki aðeins
vígfimur í orðræðum heldur ár-
angursríkur framkvæmdamað-
ur er gengur vel undirbúinn til
starfa".
Þessi dómur tveggja reyndra
og virtra þingmanna segir
meira, en mörg orð um mann-
inn Matthías Bjarnason. Vestur-
land hefur í raun og veru litlu
við þau að bæta, en vill einung-
is fá að gera þau að sínum.
( tilefni af þessum tímamót-
um, sendir blaðið Matthíasi
Bjarnasyni, konu hans Kristínu
Ingimundardóttur, börnunum
Hinriki og Auði tengdabörnum
og barnabörnum, alúðarkveðj-
ur. Við sem nú vinnum að út-
gáfu Vesturlands teljum sér-
staka ástæðu til þess að senda
forvera okkar afmæliskveðjur
með þökk fyrir gott samstarf til
margra ára:
Fyrir hönd Vesturlands,
Einar K. Guðfinnsson.