Vesturland

Árgangur

Vesturland - 26.09.1981, Blaðsíða 1

Vesturland - 26.09.1981, Blaðsíða 1
Er þetta atvinnustefna Framsóknarflokksins: Vill leggja nýja skatta á útgerðina —á sama tíma og undistöðuatvinnugreinar landsmanna berjast í bökkum Ólafur Þ. Þóröarson, alþing- ismaður Framsóknarflokksins hefur lagt til að nýjir skattar verði lagðfr á útgerðina í land- inu. VIII hann að fasteigna- skattur verði innheimtur af fiskiskipum. Þetta gerist á meðan hagsmunasamtök í sjávarútvegi telja rekstrar- grundvöll undirstöðugreina vera brostinn. Hafa þau stutt þetta óyggjandi rökum. Hin athyglisverða yfirlýsing þingmannsins kom fram á Fjóröungsþingi Vestfirðinga, sem haldið var að Laugahóli í Strandasýslu, dagana 29. og 30. ágúst síðast liðinn. Þing- menn Vestfjarðakjördæmis ræddu þar spurninguna: ,,Hver telur alþingismaðurinn vera brýnustu viðfangsefnin til efl- ingar byggðar og mannlífs á Vestfjörðum og hvernig verði best staðið að framgangi þeirra viðfangsefna? Meðal þess sem annar þing- manna Framsóknarflokksins hér vestra, Ölafur Þ. Þórðar- son, taldi brýnast til að efla mannlíf og byggð í kjördæminu var að heimta fasteignaskatt af fiskiskipum. Og hver voru rökin? Jú, sagði hinn vísi maður, Ólafur. Með því að leggja á fiskiskip fasteignaskatt, mætti koma í veg fyrir að lagður yröi á svo- kallaður auðlindaskattur. Eða meö öörum orðum: Með því að leggja á eina tegund af skatti, er hægt að koma í veg fyrir að annar skattur verði lagður á. Nokkrum vikum eftir að þessi spöku orð út gengu af munni Ólafs þingmanns komu frysti- húsamenn víðs vegar að af Vestfjörðum saman. Á þeim fundi kom fram aö hraðfrysti- húsaiðnaðurinn í landinu er rekinn með 6 til 10 prósent halla. Um svipað leyti upplýsti Kristján Ragnarsson formaður Landssambands íslenskra út- vegsmanna að 7,6 prósent vanti upp á að endar nái saman hjá útgerðinni. Nú liggur fyrir hvað Olafur Þ. Þórðarson alþingismaður Framsóknarflokksins í Vest- fjaröakjördæmi vill gera til að leysa þennan vanda- og svona rétt í leiðinni efla mannlíf og byggð hér í kjördæminu; hann vill leggja nýjan skatt á útgerð- ina. Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum: „Verðbólgan klædd í dulargervi en ekki sigruð4t Hótel fsafjörður var opnað við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 16. september síðast liðinn. Ólafur B. Halldórsson bauð gesti velkomna og bað því næst Harald L. Haraldsson bæjarstjóra á fsafirði að opna bygginguna formlega með þvf að klippa á borða. Að því búnu voru bornar fram veitingar. Ólafur B. Halldórsson rakti byggingarsögu hótelsins og gat þess að fjölmargir hefðu sýnt málinu vinsemd, þó við margháttaða erfiðleika hefði veriö að etja áður en unnt var að taka byggingu hótelsins í notkun. Nú er búið að taka í notkun jarðhæð. Þar er veitingasalur og einnig aðstaða til fundahalda. Veitingasala verður opin frá klukkan átta á morgnana og fram til klukkan tíu á kvöldin. Ellefu tveggja manna herbergi hafa þegar verið tekin í notkun á hótelinu, en framkvæmdum verður framhaldið í vetur. Hótelstjóri er Sigurður Stefánsson. Aðalfundur Kjördæmisráðsins: Engilbert endur kjörinn formaður Miklar almennar umræður urðu á aðalfundi Kjördæmis- ráðs Sjálfstæðisflokksins á Vestfjöröum sem haldinn var á Patreksfirði dagana 21.-22. ág- úst sfðast liðin. Fundurinn hófst á setningar- ræðu formanns Kjördæmis- ráðsins, Engilberts Ingvarsson- ar. Fundarstjóri var kjörinn Hil- mar Jónsson, sparisjóðsstjóri á Patreksfirði og honum til að- stoðar Sævar Guðjónsson, Bíldudal. Úlfar Thoroddsen, sveitarstjóri á Patreksfiröi var kjörinn fundarritari og honum til aðstoðar Hafsteinn Davíðs- son, rafveitustjóri á Patreks- firði. Þingmenn Sjálfstæöisflokks- ins í kjördæminu, þeir Matthías Bjarnason og Þorvaldur Garðar Kristjánsson ræddu og reifuðu stjórnmálaviðhorfið. Að þeim loknum hófust almennar um- ræður. Ræddu menn þjóðmálin yfirleitt og ýmis þau mál sem sérstaklega snerta hag kjör- dæmisins. Kom fram mikill ein- hugur á meðal þingfulltrúa. í lok aðalfundar kjördæmis- ráðsins ræddi Einar K. Guð- finnsson starf og stefnu ungra sjálfstæðismanna. Gerði hann grein fyrir baráttumálum þeirra og þeim forsendum og hug- myndum sem að baki liggja. Stjórnmálaályktun var samin á þinginu, borin upp og sam- þykkt án mótkvæða. Birtist hún á öörum stað í blaðinu. Engilbert Ingvarsson var endurkjörinn formaður Kjör- dæmisráðsins. Aðrir í kjördæm- isráðsstjórninni eru: Geirþrúður Charlesdóttir, Sævar Guðjóns- framhald á bls. 3 Stjórnmálaálytun Kjördæm- isráðs Sjálstæðisflokksins á Vestfjörðum var borin upp og samþykkt án mótatkvæða á fundi Kjördæmisráðsins á Pat- reksfirði. Fer ályktunin hér á eftir. Síðustu misserin hefur veriö við völd á íslandi ríkisstjórn sem á margan hátt er einstæð. ( upphafi valdaferils hennar bundu margir vonir við að hún gæti skilað raunverulegum ár- angri í mörgum þeim málum, sem hafa verið meginviðfangs- efni íslenskra stjórnvalda. Nú- verandi ríkisstjórn hét því að viðhalda fullri atvinnu. Sam- kvæmt opinberum hagskýrslum hefur hver vinnufús hönd nóg að starfa, en ekki er allt sem sýnist. Hópar íslendinga taka sig upp ár hvert og flýja land. Stjórnvöld hyggja ekkert aö því aö búa atvinnurekstrinum þau skilyrði að dugi til sköpunar nýrra atvinnufyrirtækja. Þetta er hiö dulbúna atvinnuleysi, sem ekki kemur fram í hagskýrslum, en hlýtur að brenna á komandi kynslóðum. Á næstu áratugum mun virkj- un fallvatna og jarövarma svo og sá stóriðjurekstur, sem því fylgir, hafa grundvallarþýðingu fyrir bætt lífskjör Islendinga. Ljóst er að þessi uppbygging mun að mjög óverulegu leyti verða á Vestfjörðum. Sjávarút- vegurinn mun því í næstu fram- tíð svo sem endranær verða meginstoð atvinnulífs í þessum landsfjórðungi og raunar á enginn landshluti eins mikiö undir þróun og hag þessarar atvinnugreinar og Vestfirðir. Rétt er að benda á þau alvar- legu tíöindi að hlutdeild Vest- firðinga í þorskafla landsmanna hefur farið mjög minnkandi, 15% fyrstu sex mánuðina árið 1979, 12,9% fyrstu sex mánuö- ina árið 1980, 10,4% fyrstu sex mánuði þessa árs. Þessi þróun er svo ískyggileg aö allri byggð á Vestfjöröum er stórlega ógn- að, ef svo heldur fram sem horfir. Sýndaraðgerðir þær sem nefnast niðurtalning munu lítt duga gegn dýrtíðinni, sem geysað hefur í landinu. Til að sigrast á verðbólgunni þarf að ráöast að rótum vandans. Á síöasta ári, fyrsta stjórnarári rík- isstjórnarinnar, jókst verðbólg- an. Sú hjöðnun, sem hefur orð- ið á þessu ári er vart umtals- verö og alls ekki til frambúðar. Fiktað hefur veriö við vísitölu, ríkisfyrirtæki jafnt og einkafyrir- tæki rekin með stórfelldum halla. Þannig hefur verðbólgan veriö klædd í dulargervi en ekki sigruö. Kjördæmisráðið harmar myndun núverandi ríkisstjórnar og þá sundrungu sem hún hef- ur valdið meðal sjálfstæðis- manna. Kjördæmisráðiö bendir á nauðsyn þess að Sjálfstæðis- flokkurinn gangi heill og óskipt- ur til átaka við þau miklu og vandasömu mál, sem nú er við að glíma í okkar þjóðfélagi. Kjördæmisráðið hvetur því til eindrægni og sátta innan Sjálf- stæðisflokksins og treystir framkvæmdastjórn og þing- flokki, til að finna farsæla lausn á þeim deilumálum, sem risið hafa, hið allra fyrsta. Ályktun um samgöngumál Kjördæmisráð Sjálfstæðis- flokksins í Vestfjarðakjördæmi hefur fjallað um samgöngumál fjóröungsins og vill hvetja alla Vestfirðinga til virkrar sam- stöðu um leiöir til úrbóta. Kjör- dæmisráðiö telur að eðlilegast sé að þingmenn kjördæmisins og sveitarstjórnarmenn móti meginstefnu í uppbyggingu samgangna innan fjórðungsins mikilvægustu verkefna ertryggi búsetu alls fjórðungsins og sem greiðastar samgöngur inn- an hans og einnig að og frá vestfirskum byggðum til annarra landshluta. Kjördæmis- ráðiö fagnar þeirri samstöðu vestfirskra sveitarstjórnar- manna, sem þegar hefur tekist í þessum málum, og hvetur þá til frekari umræöna um sam- göngumálin, og að fyllsta sam- heldni ríki meðal Vestfirðinga um röðun verkefna í þessum málum. Kjördæmisráðið áréttar fyrri samþykktir í samgöngu- málum og bendir á mikilvægi þeirra í öllu mannlífi innan fjórðungsins. Ályktun um orkumál Kjördæmisráð Sjálfstæðis- flokksins á Vestfjörðum lýsir fyllsta stuðningi við stefnu og störf Orkubús Vestfjarða í upp- byggingu orkumannvirkja inn- an fjórðungsins. Kjördæmisráð- ið hvetur alla Vestfirðinga til að standa.fast saman um málefni og framkvæmdaáform Orkubús Vestfjarða þar til fullum sigri er náð og öllum Vestfirðingum tryggð afnot þeirrar orku, sem þeir þarfnast á hagkvæmustu kjörum. Kjördæmisráðið bendir á að Vestfirðingar búa í dag við eitt hæsta orkuverð á íslandi og gera kröfu til þess að Vestfirð- ingum verði ekki gert aö greiða hærra orkuverð en meirihluti landsmanna býr við. Kjördæm- isráðið styður því heilshugar þá kröfu Vestfiröinga að stjórnvöld standi við gefin fyrirheit um jöfnunarverð orku. Ráðstefna og árshátíð Sjálfstæðismenn á Vestfjörðum ætla að efna til ráðstefnu um sveitarstjórnarmál í Bolungarvík dagana 10. og 11. október næst komandi. Verður ráðstefnan sett síðdegis þann tíunda, en síðan haldið áfram daginn eftir. Að kvöidi hins tíunda, verður haldin árshátíð Sjálf- stæðismanna hér í kjördæminu. Ráðstefnan og árshátíðin verða nánar auglýst innan tíðar.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.