Vesturland - 14.11.1981, Blaðsíða 4
Ný virkjun eða
önnur byggðalína
—nauðsynleg til að auka raforkuöryggi á
Vestfjörðum.
„Bilunin á Vesturlínu varð til
þess að við urðum að keyra
díselstöðvar í um það bil tvær
vikur. Endanleg niðurstaða um
kostnað liggur ekki fyrir, en
reikna má með að olíureikning-
urinn hljóði upp á 800 þúsund-
ir til 1 milljón nýkróna sagði
Kristján Haraldsson Orkubús-
stjóri í viðtali við Vesturland.
Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum henti það óhapp í
septembermánuði síðastliðnum
að staurar hinnar nýju Vesturlínu
sem tengir Vestfiröi við aðalorku-
veitusvæði landsins tóku að halla.
Þegaryfir lauk var kominn halli á
flest stæði línunnar. Kristján Har-
aldsson sagði að leiða mætti að
því getum að ástæða þessa væri
sú að ekki hefði verið nógsamlega
vandað til vinnubragðanna þegar
staurarnir voru settir niður. Nú er
liins vegar lokið bráöabirgðavið-
gerð og að mati Rafmagnsveita
ríkisins, sem önnuðust viðgerðina,
á línan að geta staðið af sér
veturinn. Á sumri komanda verð-
ur hins vegar gengið frá fullnað-
arviðgerð á staurunum.
Rarik. eins og Rafmagnsveitur
ríkisins eru oft kallaðar sá um
lagningu og hönnun Vesturlínu.
Eins og fram hefur komið í
fréttum lagði Þorvaldur Garðar
Kristjánsson alþingismaður fram
fyrirspurnir til iðnaðarráðherra
um tjón það sem varð á Vestur-
línunni í september. Spurningarn-
ar voru í nokkrum liðum. Spurt
var um orsakir tjónsins, hvenær
endanlegri viðgerð myndi Ijúka
og loks hverjum væri ætlað að
greiða óumflýjanlegan kostnað af
raforkuframleiðslu á Vestfjörðum
með díselvélum á þeim tima sem
viðgerð línunnar fer fram.
Kristján Haraldsson Orkubús-
stjóri sagði að mjög mikilvægt
væri að treysta öryggið í orkumál-
um Vestfirðinga. Til þess væru
þrjár leiðir færar.
Fyrsti kosturinn vaéri að reisa
orkuver hér vestra. Sá virkjunar-
kostur sem mest hefði verið rann-
sakaður væri Dynjandi í Arnar-
firði. Nú er búið að friðlýsa Dynj-
andifoss og því væri sá virkjunar-
kostur út úr myndinni. Aðrir
möguleikar eru virkjun í Vatns-
firði, þar sem vatnasvæði á
Glámuhálendi yrðu tengd saman.
Þar er völ á allt að 30 MW
virkjun. Þá er líka hugsanlegt að
virkja við Hvalsá á Ströndum.
Annar kosturinn er að leggja
nýja byggðalínu.
Þriðji kosturinn er að keyra
díselstöðvar í bilanatilfellum. Vit-
að er þó að sá kostur yrði dýr. Og
fá 'yrði á hreint ef hann yrði
valinn, hver greiddi kostnaðinn af
díselkeyrslu í bilanatilfellum.
Ljóst er að ef sá kostnaður leggð-
ist einvörðungu á raforkunotend-
ur hér vestra hlyti það að þýða
hærra raforkuverð.
Annars sagði Kristján Haralds-
son að rannsaka þyrfti valkosti
vel og vandlega áður en ákvörðun
yrði tekin. Bera þyrfti saman
kostnaðarliði og athuga hvaða
möguleikar væru hagkvæmastir
til að auka raforkuöryggi Vest-
firðinga.
Enginn málefnaágreiningur
—segir Guðmundur
meistari á ísafirði.
„Ég er þeirrar skoðunar að
þetta hafi verið mjög góður
landsfundur", sagði Guð-
mundur Þórðarson byggingar-
meistari á ísafirði, einn þeirra
Vestfirðinga sem sátu Lands-
fund Sjálfstæðisflokksins nú í
ár, í viðtali við Vesturland.
„Ræða formanns Sjálfstæðis-
flokksins, Geirs Hallgrímssonar
við setningu landsfundarins var
mjög góð, sú besta sem ég hef
heyrt hann flytja.
Það er skoðun mín að þær
deilur sem nú eru uppi í Sjálf-
stæðisflokknum séu ekki sprottn-
ar af málefnalegum ágreiningi,
eins og sumir hafa þó látið í veðri
vaka. Fyrst og fremst er þarna um
að ræða valdatogstreitu einstakra
manna. Þetta kom afar vel fram á
landsfundinum. Ég vil benda á að
fiestar stefnumótandi álytanir
voru samþykktar samhljóða, eða
því sem næst. Það er því skoðun
mín að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
komið sterkur út úr þessum
landsfundi. Staða Sjálfstæðis-
flokksins er því ekki í hættu".
Guðmundur Þórðarson er full-
trúi ungra sjálfstæðismanna í
stjórn Sambands úngra sjálfstæð-
ismanna. Hann hefur verið í
stjórn SUS frá árinu 1977 og var
síðast endurkjörinn á þingi þess
sem haldið var á ísafirði, síðsum-
ars nú í ár svo sem flestir vita.
Guðmundur var því spurður
hvort hann fagnaði einhverju sér-
stöku á landsfundinum, sem full-
trúi ungra manna.
„Ég fagna að sjálfsögðu kjöri
Friðriks Sophussonar í sæti vara-
Þórðarson, bygginga-
formanns," sagði hann. „Það er
von mín að hann eigi eftir að
reynast vel í þessari ábyrgðar-
stöðu og ég tel að það sé vel að
ungur maður gegni þessari miklu
áhrifastööu hjá Sjálfstæðisflokkn-
um.
Það er auðvitað alveg ljóst að
núverandi ástand í Sjálfstæðis-
flokknum er gjörsamlega óviðun-
andi. Það gengur hreinlega ekki
að einstaklingar innan flokksins
séu bæði með og á móti ríkis-
stjórninni. Það er auðvitað ófært
að minnihlutaaðilar taki völdin.
Það er bersýnilegt að andstæð-
ingar Sjálfstæðisflokksins, til
dæmis hér á Vestfjörðum munu
nýta innanflokksmál Sjálfstæðis-
flokksins sér og sínum málstað til
framdráttar. Sú óeining sem ríkir
er þeim sterkt vopn er þeir munu
nota óspart. Það er því von mín
að forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins haldi skynsamlega á málunum
og haldi áfram að vinna að sam-
komulagi milli deiluaðila, svo að
menn geti náð saman og barist
sem ein heild á þeim vígstöðvum,
sem við eigum að berjast á, gegn
andstæðingum Sjálfstæðisflokks-
ins.“
Guðmundur Þóröarson,
byggingarmeistari á Isafirði
Friðvænlegra í Sjálfstæðis-
flokknum
—segir Hilmar Jónsson, sparisjóðsstjóri á Pat-
reksfirði.
„Þetta var líflegasti iands-
fundur sem ég hef setið,“
sagði Hilmar Jónsson spari-
sjóðsstjóri á Patreksfirði þegar
Vesturland ræddi við hann að
loknum landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins. „Þetta var kröftug-
ur og skemmtilegur fundur og
hans verður ekki síst minnst
fyrir það að undanfarið hafa
geysað eldar í flokknum. Menn
fengu tækifæri til að blása út
þannig að andrúmsloftið hefur
hreinsast.
Það var ekki meiri harka á
þessum fundi en ég bjóst við. En
því er auövitað ekki að neita að
harkan var meiri, en verið hefur
undanfarna landsfundi. Sérstak-
lega voru fluttar nokkrar óvægi-
legar ræður. sem settu svip sinn á
landsfundinn að þessu sinni."
Menn velta því nú mjög fyrir
sér hvort friðvænlegar horfi í
Sjálfstæðisflokknum en fyrr.
Margir spyrja hvort einhver sátta-
og einingavon sé. Við inntum Hil-
mar álits á þessu.
„Að mínum dómi auðveldaði
kjör Friðriks Sophussonar alþing-
ismanns í embætti varaformans,
leiðina til sátta í Sjálfstæðis-
þremur eða fjórum dögum. Sættir
í máli sem þessu laka miklu
lengri tíma. En ég tel að mjög
horfi til betri vegar að loknum
þessum landsfundi, ef menn vilja
að honum loknum gefa sér þann
tíma sem nauðsynlegur er til þess
að menn, sem nú starfa ekki sam-
an í einni fylkingu nái saman að
nýju.“
Hilmar Jónsson á Patreksfirði
er þjálfaður og reyndur sveitar-
stjórnarmaður og þekkir málefni
sveitarfélaga vel. Hann hefur um
árabil sinnt sveitarstjórnamálum
á Patreksfirði og við sveitarstjórn-
arkosningarnar árið I978 skipaði
hann fyrsta sæti á framboðslista
Sjálstæðisflokksins á Patreksfirði.
Það var því ekki úr vegi að inna
hann eftir því hvernig honum
lítist á sveitarstjórnarkosningarn-
ar næsta vor.
„Þessari spurningu er ekki auð-
velt að svara. Ég á þó ekki von á
Málefnaleg sam
staða
Mikill málefnalegur einhug-
ur ríkti með Sjálfstæðismönn-
um á landsfundi flokksins sem
haldinn var dagana 29. október
til 1. nóvember síðast liðinn í
Reykjavík. Þrátt fyrir allt tal um
óeiningu í Sjálfstæðismönnum
sannaðist það áþreifanlega á
þessum landsfundi að meðal
sjálfstæðismanna er ekki deilt
um málefni.
Grundvallarstefnumörkun
Sjáifstæðisflokksins var sam-
þykkt mótatkvæðalaust á fund-
inum. Svipaða sögu er að
segja um flestar aðrar ályktanir
í hinum ýmsu málefnaflokkum.
Geir Hallgrímsson var end-
urkjörinn formaður Sjálfstæð-
isflokksins. Fékk hann 637 at-
kvæði. Pálmi Jónsson land-
búnaðarráðherra fékk 209 at-
kvæði og Ellert B. Schram rit-
stjóri 79. Friðrik Sóphusson al-
þingismaður var kjörinn vara-
formaður í stað Gunnars Thor-
oddsen, sem ekki gaf kost á
sér. Fékk Friðrik 549 atkvæði.
Ragnhiidur Helgadóttir fyrrum
alþingismaður fékk 381 at-
kvæði.
Samkvæmt skipulagsreglum
Sjálfstæðisflokksins kaus
landsfundurinn ennfremur ell-
efu manns í miðstjórn. Flest
atkvæði hlaut Björn Þórhalls-
son varaforseti ASf eða 832,
næstur honum kom Davfð
Scheving Thorsteinsson for-
maður Félags ísl. iðnrekenda
með 749 atkvæði, þá Jónas H.
Haralz bankastjóri 720, Ellert
Framhald á hlx. 3
Hilmar Jónsson, spari-
sjóðsstjóri á Patreksfirði
flokknum. Og að minni hyggju
horfir mun friðvænlegar eftir kjör
hans. Þegar spurt er hvort sættir
hafi náðst á landsfundinum er því
auðvitað til að svara að öllum má
Ijóst vera að sættir nást ekki á
neinni skyndilegri breytingu I
sveitarstjórnarkosningunum í vor.
Ef vel verður unnið, þá lít ég
björtum augum til þeirra."
Að lokum var Hilmar spurður
um hvernig honunt þættu málin
horfa við að loknurn landsfundi.
Hann sagði að sér virtist að sá
ágreiningur sem upp væri kom-
inn, stafaði fyrst og fremst af
þeim aðferðum sem voru hafðar
við ntyndua núverandi rikis-
stjórnar. Ennfremur sagði Hilmar
Jónsson:
,,Á landsfundinum að þessu
sinni voru samþykktar ályktanir
um ntjög mörg og merkileg mál,
sem ég tel að muni efla flokkinn
og veita honum gott brautargengi.
Ég er sannfærður um að þær
ályktanir sem þarna voru sam-
þykktar falla landsmönnum vel í
geð. Ég vil sérstaklega geta ítar-
legrar ályktunar um atvinnumál,
undir yfirskirftinni Leiðin til
bættra lífskjara, en einnig mætti
nefna mörg önnur merkileg og
góð mál.“
[ Minning:
■ Halldór í
| Jónsson j
I Halldór Jónsson fyrrum I
I sjómaður á ísafirði, lést 5. I
I nóvember síðasl liðinn. •
[ Hann var 91 árs gamall.
Halldór fæddist að Foss- .
• um í Skutulsfirði 28. april |
| árið 1890. Hann fluttist átta |
| ára að Krirkjubóli í Skutuls- |
■ firði og dvaldist þar til full- |
I orðinsára, er hann flutti sig ■
j um set út i Hnífsdal. Árið ■
■ 1928 flutti hann til ísafjarðar |
| og bjó þar til æviloka.
I Lengst af stundaði Halldór I
I sjómennsku á minni og ■
[ stærri bátum, en einnig á !
! togurum. Eftir að hann var ■
■ kominn í land vann Halldór |
| almenna verkamannavinnu. |
| Halldór heitinn stundaði I
I vinnu af krafti fram á níræð- I
I is aldur, enda var hann J
J heilsuhraustur alla ævi.
Kvæntur var Halldór Jóns- ■
■ son, Kristínu Guðfinnsdótt- |
| ur. Þau eignuðust fimm |
| börn. Fjögur þeirra komust I
I upp, en þau misstu son, er I
I hann var á þriðja ári.
Vesturland sendir Kristínu J
J Guðfinnsdóttur ættingjum J
J og niðjum Halldórs Jónsson- ■
• ar innilegustu samúðarkveðj- |
■ ur.
Minning:
Elísabet
Hjaltadóttir
Elísabet Hjaltadóttir, eig-
inkona Einars Guðfinnsson-
ar útgerðarmanns í Bolung-
arvík lést 5. nóvember síðast
liðinn 81 árs gömul.
Elísabet fæddist aldamóta-
árið I Bolungarvík. Hún gift-
ist Einari Guðfinnssyni árið
1919. Þau einuðust 9 börn.
Átta þeirra komust á legg.
Sex barna Elísabetar og Ein-
ars búa og starfa í Bolungar-
vík, en tvö I Reykjavík.
Auk umsvifamikilla hús-
móðurstarfa tók Elísabet rík-
an þátt í félagsmalastarfi í
Bolungarvík. Var lengi for-
maður í kvenfélaginu Braut-
in og siðar heiðursfélagi þess.
Hún starfaði í Sjálfstæðis-
kvennafélaginu, sat í stjórn
Sambands vestfirskra kvenna
og var í skólanefnd í Bolung-
arvík um tuttugu ára skeið.
Vesturland sendir Einari
Guðfinnssyni og aðstendum
öllum samúðarkveðjur.