Búnaðarrit - 01.01.1995, Page 148
F orfallaþj ónusta
Gunnar Hólmsteinsson
Forfallaþjónustu í sveitum var komið á með
lögum nr. 32/1979 og tók fyrst til starfa á árinu
1980. Lög nr. 32/1979 giltu til miðs árs 1992
en voru þá leyst af með nýjum lögum nr.
35/1992.
Með lögum um Búnaðarmálasjóð, lög nr.
41/1990, var ákveðið að liluti af tekjum
Búnaðarmálasjóðs, 0,200% af tekjum í A flokki
og 0,400% í B flokki, skyldi nota til að standa
straum af forfallaþjónustunni.
í lögum nr. 41/1990 var ákvæði er heimil-
aði einstökum búgreinum að segja sig frá for-
fallaþjónustunni en fram að þeim tíma voru
allir bændur, sem greiddu búnaðarmálasjóðsgjald, aðilar að henni.
Nokkur búgreinafélög nýttu sér þetta ákvæði og þegar lög nr. 35/1992 tóku
gildi voru einungis nautgripabændur, sauðfjárbændur og loðdýrabændur, sem
greiddu til forfallaþjónustunnar. í lögunum um forfallaþjónustu nr. 35/1992 var
ákvæði sem kvað á um, ef einstök búgreinafélög leituðu eftir því, að greiðslur
félagsmanna þeirra til forfallaþjónustunnar falli niður, skuli sú niðurfelling ein-
ungis ná til þeirra félagsmanna búgreinafélagsins, sem staðfest hafa með
undirskrift sinni, að þeir séu ekki lengur aðilar að forfallaþjónustunni (8. gr. I. nr.
35/1991).
í maí 1994 var svo komið að öll búgreinafélög önnur en sauðfjárbænda og loð-
dýrabænda höfðu sagt sig frá þátttöku í forfallaþjónustunni. Stjórn landssambands
sauðfjárbænda stefndi að því að leggja fyrir næsta aðalfund tillögu um að segja
sauðfjárbændur frá þessari þjónustu. Landbúnaðarráðherra skipaði þá þriggja
manna nefnd til að endurskoða lög nr. 35/1992 um forfallaþjónustu í sveitum.
Niðurstaða nefndarinnar var sú að hún lagði til að lög nr. 35/1992 um for-
fallaþjónustu í sveitum yrðu felld úr gildi. I greinargerð nefndarinnar segir m.a.:
146