Heilbrigðismál - 01.12.1949, Side 1
Fréttabréf um
7
é/Ö'i
HEILBRIGÐISMÁL
Nr. 1 Desember 1949
Með þessu bréfi er Krabbameinsfélag Reykjavíkur að' gera tilraun
til að halda uppi heilbrigðisfræðslu meðal almennings. Ætlunin er
að senda út eitt bréf mánaðarlega og munu þau ekki aðeins fjalla um
krabbamein, heldúr einnig um ýmislegt úr heimi læknavísinda og
læknastarfsemi, sem líklegt þykir að almenningur vilji fræðast um.
Því heyrist oft íleygt, að læknar sé tómlátir um að fræða fólkið
og því ber ekki að' neita, að sumir læknar virðast vera þeirrar skoð-
unar, að almenningsfræðsla um læknavísindi sé aðeins til ills eins,
vegna þess að hún verði, hvort sem er, aldrei nema nasasjón, og lítil
þekking sé venjulega verri en engin.
Vér, sem að þessu bréfi stöndum, höldum hinsvegar að lítil þekk-
ing sé betri en engin og viljum ekki láta vort eftir liggja til að fræða
fólkið um ýmsa hluti, sem varðað geta heilsu og hreysti þjóðarinnar,
því að eins og vér erum sannfærðir um, að fáfræði og hjátrú eru van-
þroskaeinkenni þjóðfélagsins, eins erum vér sannfærðir um, að þessi
vanþroski er læknanlegur með góðri næringu og' að sú næring, sem
til þarf, er aðgengileg og auðskilin fræðsla.
Þótt þessi fréttabréf séu gefin út af Krabbameinsfélaginu, þá er
tilgangurinn með þeim eklci sá, að binda sig við krabbameinið eitt,
heldur fjalla um hvað eina, sem varðar heilbrigði þjóðarinnar og orðið
getur henni til þrifnaðarauka, benda mönnum á ýmislegt sem skiptir
máli fyrir heilsu þeirra sjálfra og barnanna o. s. frv.
Ágóði, sem verða kann af þessari útgáfu, rennur óskiptur til
Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Ef yður líkar vel við þessi bréf
væntum vér þess að þér sýnið þau öðrum og hjálpið þannig til að
stuðla að útbreiðslu þeirra og styrkja Krabbameinsfélagið.
VerksmiSjustarfsemi líkamans
í líkama vorum eru framleidd mörg þúsund mismunandi efni úr
fæðunni, sem við neytum, vatninu sem við drekkum og loftinu sem
við öndum að okkur. Flest þessara efna eru svo flókin að samsetn-
ingu, að færustu efnafræðingar geta ekki framleitt þau, þótt þeir hafi
heimsins stærstu verksmiðjur í þjónustu sinni. Hugsið ykkur muninn
1
ÍLAbDSEÓK/-
j ......