Heilbrigðismál - 01.12.1949, Blaðsíða 4
sóttinni sé komnar á brautarenda, þar sem ekki verður lengra kom-
izt í bili. Reyna verður einhverjar nýjar leiðir og ekki er ómögulegt
að við gætum lagt þar eitthvað til málanna ef við hefð'um skilyrði
nútíma vísinda til slíkra rannsókna.
Ef við eigum kost á slíku boði er vonandi að stjórnarvöldin hafi
vit á að þiggja það. Slík stofnun væri mikill metnaðarauki og ætti
að geta orðið okkur til sóma. Við eigum marga unga, efnilega lækna,
sem mikils mætti vænta af, ef þeir hefðu slík vinnuskilyrði. Og ekki
skortir verkefnin.
Nýtt sjóveikismeSal
Amerísku læknarnir O. Lucius Gay og P. E. Carliner athuguðu
sjóveiki í 1366 hermönnum, sem fóru frá New York til Bremerhaven
á herflutningaskipi sem var 13.000 smálestir að stærð. Skipið fór af
stað þ. 27. nóvember 1948, félck vont veður á leiðinni og kom ekki
til Bremerhaven fyrr en 7. desember.
Fjórar deildir í skipinu, 3E, 3F, 4E og 4F, voru teknar til þessara
athugana vegna þess að hreyfingin í þeim af sjógangi var sú sama.
Af þeim 485 mönnum, sem í þessum deildum voru, fékk helmingur-
inn nýja sjóveikismeðalið dramamin, eða töflu, sem var eins að út-
liti, en án meðalsins, um leið og skipið lét úr höfn frá New York.
Hinn helmingurinn fékk dramamin, eða gerfitöflu, tveim til tólf
klukkutímum eftir að sjóveiki varð vart. Nægilega margir fengu gerfi-
töflur til samanburðar. Dramamin var gefið í 100 mg. skömmtum
fimmta hvern klukkutíma og fyrir svefn. Lyfið kom í veg fyrir sjó-
veiki hjá öllum nema tveim mönnum af 134 í deild 3E. Gerfitaflan
hindraði ekki sjóveiki hjá neinum í 3F. Þeim 34 mönnum, sem veikt-
ust þar, létti algerlega innan klukkutíma sjóveikin, eftir að þeir fengu
dramamin. Lyfið læknað'i líka algerlega 13 menn, sem urðu sjóveikir
í 4E, úr því að þrír klukkutímar eða lengra var liðið frá því að þeir
létu úr höfn. Gerfitafla bætti ekki líðan 14 manna, sem urðu sjó-
veikir í 4F, en þeim létti öllum algerlega hálftíma eftir að þeir fengu
dramamin. Nítján mönnum, sem urðu sjóveikir 3 klukkutímum eða
meira eftir brottför frá New York, létti eftir að þeir fengu gerfitöfl-
urnar og þurftu engra lyfja með upp frá því. Alls voru 881 í öð’rum
deildum skipsins. Af þeim urðu 195 illa sjóveikir. Af þeim batnaði
187 algerlega hálftíma eftir að þeir fengu dramamin. Ferðin stóð yfir í
10 daga og lyfið var gefið 389 sjóveikum mönnum. Af þeim batnaði
372 algerlega innan klukkustundar frá því að þeir tóku inn 100 mg.
af meðalinu. Seytján mönnum létti aðeins að' nokkru leyti.
Dramamin er tekið inn, en ef uppköst eru mikil, svo að hætt er
við að sjúklingurinn kasti því upp, má láta það inn í endaþarminn.
4