Heilbrigðismál - 01.04.1953, Page 3

Heilbrigðismál - 01.04.1953, Page 3
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL 3 fyrir eyrun, sem hverfur ekki fyrr en loft kemst inn í kokhlustina. Menn geta sjálfir hleypt lofti inn í hana með því að loka munni og nefi og blása síðan fast, svo að þrýstingurinn aukist í munni og nefi. Geta menn þá fundið hvernig loftið berst inn í kokhlustina og hellan hverf- ur skyndilega frá eyranu. Óþægindin í eyranu geta samt haldizt í einn eða fleiri klukkutíma eftir flugið, ef þrýstingsbreytingarnar hafa verið miklar, svo að blóðsóknin hefur aukizt til muna, en eyrað jafnar sig furðu fljótt. Smábörn, sem farið er með flugleiðis, geta fengið mikla hellu fyrir eyrun, og fara þá venjulega að gráta, þegar flugið er lækkað. Oft opnast kokhlustin við orgið, en bezt er að l'orðast lokun á kokhlustinni með því að gefa barninu annaðhvort pela eða „snuð“, ekki aðeins meðan flugið er lækkað, heldur einnig meðan vélin er að taka sig upp. Fyrir alla sem fljúga er gott að opna kokhlustina öðru hvoru bæði þegar flug er hækkað og lækkað. Af því sem hér hefur verið sagt sést að loftið streymir út úr eyranu og inn í það eftir því hvernig loftþrýstingurinn breytist. Þetta þýðir það, að ef bólga er í nefkokinu, þar sem kokhlustin opnast, er hætt við að hún berist upp í hana og alla leið upp í hlust. Menn ættu því ekki að fljúga ef þeir hafa hálsbólgu, sem er svo mikil, að þá kennir til ef þeir renna niður. Heldur ekki ef þeir hala akut bólgu í kjálkaliolu (sinuitis maxillaris), en bíða Iieldur þangað til að bólgan hefur hjaðnað niður. Varasamt getur einnig verið að fljúga með byrjandi kvef, því að því fylgir oft bólga í nefkokinu, sem hættir við að berast inn í eyra við flugið. Við innanlandsflug er hættan minni, en í millilandaflugi Jjarf oft að fljúga svo hátt, að þrýstingsbreytingarnar geta orðið varasamar að þessu leyti. Lojt í pörmum er háð sömu lögmálum og annað loft í líkamanum, þannig að það J^enst út og því meira sem hærra er flogið. Venjulega veldur það engum óþægindum, nema livað það losnar niður sem vind- ur. Þó getur J:>að valdið óþægindum hjá þeim sem hafa slappan kvið, eins og sumar konur hafa eftir barnsburð, og útþenslan á görnunum getur jafnvel orðið hættuleg, ef menn hafa sár í görn, eða hafa nýlega fengið meiriháttar skurðaðgerð á maga eða þörmum. Venjulega eru því ekki teknir flugleiðis sjúklingar, sem hafa verið skornir upp fyrir botn- langabólgu eða kviðsliti, fyrr en 10 dagar eru liðnir frá aðgerð. Ef skor- inn hefur verið hluti úr maga sjúklings eða hann hefur fengið gat á magann, er venjulegt að heimta að tveir mánuðir líði áður en hann er tekinn sem farþegi í flugvél. Sjúklingar sem hafa risilfistil eru yfirleitt ekki takandi í flugvél, því að vindur og saur úr fistlinum veldur ódaun í kringum sjúklinginn.

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.