Heilbrigðismál - 01.04.1953, Qupperneq 5

Heilbrigðismál - 01.04.1953, Qupperneq 5
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL 5 manni. Þegar 60 miljónir hektara af landi þeirra voru orðnir yfirvaxn- ir af kaktus og útlit fyrir að hann myndi leggja landið undir sig og út- rýma ekki aðeins sauðfé og nautpeningi, heldur einnig mannfólkinu, kom þessi litla mölfluga og bjargaði öllu saman. Fyrir rúmum hundrað árum fundu ástralskir bændur upp á því að flytja inn nýja kaktustegund, sem ekki hafði vaxið í Ástralíu áður, fíkjukaktus, Opuntia inermis, til að planta henni í kringum lönd sín. Þegar þessi planta, sem myndar stóra spaða, alsetta hárbeittum gödd- um, vex upp, myndar hún belti, sem er öruggara gegn mönnum og skepnum heldur en nokkur gaddavír. Framan af voru menn ánægðir, því að kaktusinn óx vel og gegndi sínu hlutverki með prýði. En ekki voru liðnir tveir áratugir er menn sáu fram á að landinu var mikil hætta búin af þessum nýju girðingum. Kaktusinn óx og óx út fyrir öll takmörk og varð óviðráðanlegur. Fuglar báru fræ hans út um allt og löndin sem hann átti að vernda urðu alþak- in af gaddavexti, sem engu tauti varð við komið. Um 1930 var svo kom- ið, að kaktusbeltið var orðið 1400 kílómera langt á austurströnd Ástra- líu, frá norðurhluta Queenslands og suður undir Sidney. Jarðirnar voru allar eyðilagðar, bændurnir flosnuðu upp, jafnt stórir sem smáir og kaktusinn varð allsráðandi og ekki útlit fyrir annað en að hann mundi leggja allt landið undir sig. Hvað mikið sem var brennt og graf- ið dugði það ekkert til. Árið 1923 eyddu jarðeigendur miljón pundum til útrýmingar, en það kom ekki að neinu haldi. Stjórnin í Queensland hét stórum verðlaunum hverjum sem gæti fundið haldgott ráð gegn þessari plágu. Alls komu yfir 600 tillögur frá öllum heimsins löndum. En 1924 komst stjórnskipuð nefnd að þeirri niðurstöðu að ómögulegt væri að útrýma kaktusnum og að herferð gegn honum mundi kosta 100 milj. pund (2000 milj. kr.), án þess að nokkur vissa væri um að hún bæri árangur. En önnur nefnd hafði verið skipuð nokkru seinna, nefnd náttúru- fræðinga, sem tók það hlutverk að sér að svipast um eftir einhverri lif- andi veru, skordýri eða svepp eða bakteríu, sem gæti sýkt og eyðilagt kaktus. Þessi nefnd gróf upp ritgerð frá Argentínu, sem birt var 1914, um fíkjukaktus í opinberum trjágarði við La Plata, sem hafði sýktzt illilega af mölflugu sem nefndist Cactoblastis cactorum. Lirfur af þess- ari tegund voru fengnar frá Argentínu til Ástralíu, en svo illa tókst til með þær að þær drápust allar og með þeim áhuginn fyrir þeim. Önnur dýr voru reynd og milli 1920 og 1927 voru alls prófaðar 150 skordýra- tegundir. Af þeim komust 50 í „úrslit“, meðal þeirra mölflugan Cacto- blastis cactorum. Menn óttuðust að hún mundi ekki láta sér nægja að eyðileggja kaktusinn, heldur jafnframt leggjast á kál, ávexti og tré, en

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.