Heilbrigðismál - 01.06.1985, Side 15
Síðustu ár hefur ristilkrabbamein
verið að aukast í báðum kynjum.
Undanfarin fimm ár voru greind
3548 krabbamein alls, eða 710 að
meðaltali á ári (356 hjá körlum og
354 meðal kvenna). Að jafnaði
greindust 85 brjóstakrabbamein á ári,
72 lungnakrabbamein, 69 blöðru-
hálskirtilskrabbamein, 61 maga-
krabbamein og 52 ristilkrabbamein á
ári.
Krabbamein eru aðallega flokkuð
eftir líffærum og eru flokkarnir rúm-
lega fjörutíu. Fimmtán algengustu
krabbameinin í hvoru kyni fyrir sig
eru talin upp í meðfylgjandi töflum.
AF
100.000
TÍÐNI KRABBAMEINA
HJA KONUM
BRJÖST
LUNGU
RISTILL
EGGJA-
KERFI
MAGI
-59 -64 -69 -74 -79 -84
AR
Tæpur helmingur þeirra karla sem
fengu krabbamein á árunum 1980—
84 var undir 70 ára aldri, og helming-
ur kvennanna undir 67 ára aldri.
Láta mun nærri að þriðji hver ís-
lendingur fái einhvern tímann
krabbamein. Margir þeirra læknast.
Önnur hver kona og þriðji hver karl
eru á lífi fimm árum eftir greiningu
sjúkdómsins.
Jónas Ragnarsson er ritstjóri
Heilbrigdismála.
Dr. Guðmundur Snorri Ingimars-
son læknir er forstjóri Krabba-
meinsfélags íslands. Hann er sér-
fræðingur í krabbameinslækn-
ingum.
Upplýsingamar í þessari grein,
og meðfylgjandi töflum og línurit-
um, eru úr gögnum Krabbameins-
skrár Krabbameinsfélagsins. Tíðni-
tölumar byggjast á aldursstöðluðu
nýgengi
ALGENGUSTU KRABBAMEININ
HJÁ ÍSLENSKUM KONUM 1980-1984
Árlegur fjöldi nýrra tilfella,
miðað við 100.000 konur.
1. Brjóstakrabbamein ............63,8
2. Lungnakrabbamein..............23,5
3. Ristilkrabbamein .............16,4
4. Eggjastokkakrabbamein ........15,1
5. Magakrabbamein ...............14,4
6. Legbolskrabbamein ............14,2
7. Leghálskrabbamein ............12,5
8. Skjaldkirtilskrabbamein....... 9,5
9. Heilaæxli..................... 9,1
10. Briskirtilskrabbamein ........ 7,8
11. Nýrnakrabbamein............... 7,7
12. Blöðrukrabbamein.............. 7,3
13. Sortuaexli í húð ............. 7,0
14. Hvítblæði .................... 5,2
15. Endaþarmskrabbamein .......... 4,8
HEILBRJGÐISMÁL 2/1985 15